Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 21

Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 21
Þriðjudagur 28. des. 1968 MORGUNBLADIÐ 21 Gúmmí-fiskiskip eða plast- síldardrekar? — Ég skal játa að hann liggur | ekki mjög vel á vegi, en hann eyðir líka aðeins lítra á hálfum mánuðL — Bílstjóri, sagði greifinn, — ég fann þetta langa ljósa hár hér í aftursaetinu á bílnum mínum, en konan mín er ekki ljóshærð. — Ég skal gefa yður skýringu, Iherra minn . . . — Ég kæri mig ekkert um skýr ingu, ég vil fá kynningu. ÞAÐ hefir stundum verið sagt í gamni, að síldveiðiskipin okkar þyrftu að vera gerð úr gúmmíi, þannig að þau gætu stækkað eftir þörfum, þegar mikil síld er í nótinni. Sennilega er ekki fjarri lagi að þessi óskhyggja geti orðið að raunveruleika, þótt það reyndar séu ekki skipin sjálf, sem verði þanin út eftir þörfum, heldur flot-slöngur, sem nefndar hafa verið „Dracone". Þessar aflöngu pylsur eða drek ar hafa verið notaðir til flutn- ings á olíu, en nú er í Noregi verið að gera tilraunir með flutn- ing á síld í þannig drekum úr plast-efni. Samanþrotinn tekur plast-drekinn ekki mikið meira pláss um borð í skipunum en stór gúmmíbátur. Ef meira er í nótinni eftir gott kast en skipið getur borið, þá er hugmyndin að sjósetja þennan dreka og fylla hann af síld. Honum er haldið á floti með því að blása inn í hann samanþjöppuðu lofti, og hann er síðan dreginn að landi, annað- hvort af veiðiskipinu sjálfu, eða sérstökum dráttarbátum. Ef slík- ar tilraunir tækjust vel, þá gæti jafnvel verið hagkvæmara að veiðiskipin héldu áfram veiðum, en dráttarbátar flyttu veiðina í landi í belgjunum. Sagt er að tilraunir hafi þegar tekizt vel í Noregi með dreka, sem tók 500 hektólítra (um 46,2 tonn) af síld, og hugmyndin er að reyna þar stærri gerð, sem tekur 2000 hektólítra (um 182 tonn). Að sjálfsögðu getur verið vandamál að draga slíkan dreka á eftir hlöðnu síldveiðiskipi í sjó. Drekinn þyrfti að vera búinn ljósum og radar-endurskins- merkjum og/eða radíó-sendistöð (radíóvita), bæði til að finna drekann, ef hann slitnar aftan úr, og til að forðast árekstur. JAMES BOND — — Það er að sjálfsögðu sárt fyrir sjómenn að verða að sleppa síld úr nótinni, þegar skipið er orðið hlaðið, — og gildir þá einu hvort um er að ræða takmarkaða vetrarhleðslu, eða sumar-síldar- hleðslu eins og hún tíðkast á ís- lenzkum skipum. öll hleðsla veiðiskipa hefir sín takmörk, miðuð við stærð og burðarhæfni, en vegna mikillar síldveiði undan farið er mikill hugur í eigendum að lengja skip sín, til að auka burðarhæfni, þótt skipin annars Happdrætti Styrktarfélags vangefinna DREGIÐ vaí á Þorláksmessu í happdrætti Styrktarfélags van- Vinningsnúmerin eru innsigluð gefinna á skrifstofu borgarfógeta. hjá borgarfógeta og verða ekki birt fyrr en skilagrein er komin frá öllum umboðsmönnum happ drættisins úti á landi. Má bú.ast við að það verði um mi'ðjan jan- úar. séu nógu stór til veiðanna og hlutföll þeirra góð án lengingar. Án efa verður fylgzt af áhuga hér með þessum tilraunum Norð- manna, en hvernig væri annars að gera tilraunir með þessa að- ferð við íslenzkar aðstæður? Ef þær tækjust vel, myndu ger- breytast möguleikar við flutning síldar og við veiðar. Veiðiskipin mætti hlaða í hófi og þar með auka öryggi þeirra, og spara mætti kostnað við lengingu skipa, sem að öðru leyti eru góð fyrir. 22. desember 1965, Hjálfar R. Bárðarson. Trúlofunarhringar HALLDÓR Skólavörðustig 2. -Æ- Eftir IAN FLEMING — Hvað ætlar þú að gefa mann inum þínum í jólagjöf? — Hundrað stykki af uppá- halds vindiunum hans. — En eru þeir ekki ægilega dýrir? — Nei, þeir kostuðu mig ekk- ert. Undanfarna mánuði hef ég tekið svona við og við einn vindil úr kassanum hans, og geymt þá. Þeir eru núna orðnir hundrað og ég veit að hann verður voðalega glaður þegar ég færi honum uppáhalds vindlana sína. Konan kom til lögfræðins og vildi fá skilnað frá manni sínum. — Og hver er ástæðan? spurði lögfræðingurinn. — Ég held að hann sé mér ekki trúr. — Og hvaða ástæðu hafið þér til að halda það? — Ég held að hann só ekki faðir barnsins míns. — Heyrið þér þjónn, það er fluga í súpunni minni. — Afsakið herra, get ég nokk- uð gert tiil þess að bæta úr þeim mistökum? — Já, næst þegar þetta gerist, skulið þér annað hvort vera bú- inn að kenna henni að synda, eða láta björgunarhring á bakið á henni. Skotinn Sahdy hafði legið fyr- ir dauðanum í nokkra daga og Ikonan hans haifði ekki vikið frá dánarbeði hans. En þegar hinar vanræktu skyWur hennar köll- uðu svo ákaft á hana, að hún varð að yfirgefa manminn sinn augmablik, sagði bún við hann éður en hún fór: — Sandy minn. Ef þú skyldir deyja meðan ég er í burtu, bless- aður reyndu þá að blása á kertið áður en þú skilur við. Eiginikonan æpti öskuvond á manninn sinn: — Hvað ertu eiginlega — maður eða mús? Eiginmaðurinn: — Maður, því miður. Ef ég væri mús, miyndir þú hafa stokkið upp á borð og hrópað af hræðslu. THE UUNT BEG/NS TO MOVE DOWN-P/VER BY IAN FIEMING ORAWINC BY JOHN McLUSKY BET VA PAT LIMEY'S LYING UP IKJ TUE MANGROVE. MIND US PON'T GIVE US NO . AMBUSH/ > Eltingarleikurinn færist niður eftir ánni. — Ég þori að veðja að þessi Bretablók liggur einhversstaðar í sefinu. Gættu að, að hann liggi ekki í leyni fyrir okkur. Og undir yfirborði vatnsins . . . — Skyldi þessi fjárans byssa vera not- hæf, ef hún blotnar? ... — Áfram hundur — farðu og þefaður þarna inni! J Ú M B Ö —-K—• — -K—• —-X— —TeiknarL J. M O R A En glæpamönnunum tókst aldrei að gera alvöru úr ógnunum sínum, því að skyndilega fóru sprengjur að springa allt í kringum þá. Reykský stigu til lofts og smásteinum rigndi niður. Glæpamennirn- ir urðu svo hræddir, að þeir hugsuðu að- eins um það eitt að forða sér. — Þetta hlýtur að vera strandgæzlan, stamaði einn mannanna. — Vitleysa, þrum aði Álfur, — það er ekki sálu að sjá úti á hafinu. Nei, það hefur verið ráðizt á okkur aftan frá og það er skotið á okkur hér á eynni. Álfur var nú ekki nándar nærri eins borubrattur og hann hafði verið, er hann var að yfirheyra Júmbó. Hann var sá fyrsti sem tók til fótanna, þegar spreng- ingarnar upphófust, og hinir glæpamenn- irnir fylgdu hinum „hugrakka" foringja sínum dyggilega á eftir. KVIKSJÁ ~K- Fróðleiksmolar til gagns og gamans AÐ GRÆÐA Á FERÐA- MÖNNUM Það er álitið, að íbúar jarðar- innar verzli sín á milli fyrir um 4800—5200 milljarða króna ár- lega — og vex sú fjárupphæð um 9—10% á hverju ári. Af þessari upphæð koma 360 mill- jarðar beinlínis af ferðamanna- straum, en þessi upphæð þre- faldast, sé reiknað með hinum óbeinu tekjum af ferðamanna- straumnum (launum, innkaup- um, sköttum o. s. frv.). — I nokkrum löndum (Ítalíu, Spáni, írlandi og Austurríki) er engin útflutningsgrein, sem gefur eins mikið í aðra hönd og „túrismi". Er því ekkert að furða þótt þjóðir veraldar byggi æ meira á ferðamönnum og peningum þeirra. Grikkir hafa á síðustu 10 árum byggt 60 hótel. írland gerir ráð fyrir 1200 millj. kr. til hótelbygginga. Egyptaland, sem hefur næstum því eins miklar tekjur af ferðamönnum og Súez-skurðinum (6.600 millj. árlega), gerir ráð fyrir 2400 miilj. króna í ný hótel og Nílar- báta. Þar að auki hefur Sfinx- inn og pýramídarnir verið lýst- ir upp með rafmagnsljósum og ferðamenn fræddir um landið og sögu Faróanna af segulbönd- um á fjórum málum. Járntjalds löndin hafa fyrir löngu dregizt inn i kapphlaupið um ferða- mennina og jafnvel í Rauða- Kína eru sumir veitingastaðir byrjaðir að hafa matseðla sina á ensku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.