Morgunblaðið - 28.12.1965, Síða 24

Morgunblaðið - 28.12.1965, Síða 24
24 MORGUNBLADIÐ Þriðjudagur 28. des. 1965 Langt yfir skammt eftir Laurence Payne ■ Þú getur vel farið að sofa, en ég verð að sitja hérna of æfa mig. — Tvo dóma fyrir þjófnað og einn fyrir ofbeldi, er ekki svo? Hann er nú farinn að stillast í seinni tíð, enda orðinn óþarf- lega feitur — og ég mundi segja að hann færi ekki að fremja nein ofbeldisverk héð&n af. Hann hélt út lófanum og lét öskuna af vindlinum detta fim- lega ofan í hann. Ég var farinn að velta því fyr ir mér, til hvers ég væri eigin- lega að eyða tíma í þetta. Og ég war ekki einn um slíkar hugs anir. Saunders sat úti við glugg ann, eins og eitthvert kínverskt skurðgoð á svipinn, daufur, ó- lundarlegur og þögull. Ég hafði allt í einu fengið þá hugdettu að líta inn í Hásetaklúbbinn, rétt til þess að koma með þessar spumingar, sem ég vissi, að bú- izt var við iaf mér, og heyra svörin, sem ég vissi fyrirfram — en nú, þegar ég var kominn þarna, óskaði ég mér langt í burt. Eitt eftirtektarvert smá- atriði hafði ég samt náð í og stungið hjá mér: Herter bjó þama á staðnum. Ég hefði vilj- að snuðra um íbúðirn hans, en hvernig sem ég braut heilann, sá ég enga leið til þess að geta það. Hefði ég verið einkaspsejari, hefði ég getað keyrt vindilinn niður í kok á honum og gefið honum bylmingshögg í hausinn með öskubakkanum hans. - Það var yfirleitt hægt að gera hitt og þetta skemmtilegt, væri mað- ur bara einkaspæjari! — Hve lengi hafið þér þekkt Yvonne Lavalle? spurði ég, og meira til að segja eitthvað held- ur en ég byggist við nokkrum merkum upplýsingum. Sorgarbros færðist yfir and- litið á Herter og hann hristi höf uðið eins og hann væri að rifja upp fyrir sér einhverjar endur- minningar. — Fleiri ár en ég kæri mig um að muna. Ég hitti hana upphaflegia í Ríkjunum — í New York. Og svo hittumst við aftur hérnamegin hafsins. — Þér emð Bandaríkjamaður, hr. Herter? — Ég er Bandaríkjaborgari. — Hvað eigið þér við með því? — Ég á við, að enda þótt ég sé brezkfæddur, þá sé ég nú •amerískur borgari. Hann var mjög þolinmóður við mig og mér var farið að leiðast þetta allt saman. — Okkur ríður á að fá að vita um ferðir ungfrú Lavalle eftir að hún fór héðan úr klúbbnum á föstudiagskvöldið var. Btónn glennti út fingurna. — Já, okkur langar víst alla til að vita það. — Ég var viðstaddur, munið þér, þegar þér sögðuð ráðsmanni yðar, Neal, að koma henni í leigubíl. Gerði hann það raun- verulega? — Ég veit ekki annað. Þegar ég gef fyrirskipanir, ætlast ég til, að þær séu framkvæmdar. — Er Neal hérna staddur núna? — Nei, ekki rétt í bili. Ekki veit ég, hversvegna hann var að Ijúgia, en það var hann. En það gat nú beðið. — Ég tala þá við hann seinna, sagði ég. — Ég skal taka skilaboð til hans. — Býr hann líka hérna á steðnum? Hann hristi höfuðið. — Nei, hann hefur þægilega einhleyp- ingsíbúð í Mayfair og hefur þar kött, en það mætti næstum segja, að hann byggi hérna. Hann vinnur allan sólarhring- inn. Klúbburinn er alveg undir hans stjóm og ég kem hvergi nærri rekstrinum á honum. — Hviað gerið þér þá eigin- lega, hr. Herter? Hann glotti glettnislega. — Ég lifi á ágóðanum. Það mætti kannski kalla mig óvirkan fé- laga. — En þér lögðuð til pening- ana upphaflega? — Vissulega. Ég byrjaði með mjólkurstofur. Það er hægt að hafa vel upp úr því, skal ég segja yður. Þér ættuð að reyna það síðar meir, þegar........... fer að draga úr atvinnu hjá yð- ur. í þessu bili var barið hóglega að dyrum og áður en Herter gat svarað, kom Neal inh. Andlitið á Herter stirðnaði upp, rétt sem snöggvast, en svo varð það strax að einu brosi, og hann bað Hert- að koma nær. — John, tautaði hann, eins og ekkert væri, — Þetía var heppni. Ég hafði enga hugmynd um, að þú værir við. □-----------------------------□ 61 □-----------------------------□ — Ég vissi ekki, að þú værir upptekinn, svaraði Neal. — Góð an daginn, fulltrúi, afsakið ef ég ónáða ykkur. Hann var sýnilega ékki með neina afsökunarbeiðni í huga. Það, að honum brá ekkert við að sjá réttvísina þarna á staðn- um, benti til þess, að hann hefði vel vitað um nærveru mína. Fregnin um komu okkar var sennilega komin út um allt hús- ið — Miguel, sem hleypti okkur inn, hefði séð fyrir því. — Ég kom bara með þessa reikninga til uppóskriftar, sagði Neal og lagði skjalabunka á borðið. Svo stefndi hann til dyranna, þungum skrefum. — Afsakið andartak, hr. Neal sagði ég. — Fulltrúinn þarf að fá hjá þér ofurlitlar upplýsingar, ef þú mátt vera að, sagði Hert- er. Ég þóttist sjá ofurlítinn á- nægjuglampa í augum Neals, er hann sneri aftur við inn í stof- una. Hann var með eitthvað á samvizkunni og hann hafði geng ið beint inn í ljónagryfjuna til að losna við það. Ég taldi hann vera laganna megin. vantar í eftirtalin Skerjaf. sunnan flugvallar Háteigsvegur Snorrabraut Vesturgata, 44-68 Austurbrún Freyjugata Lambastaðahverfi 1 —Það voru bara einfaldar spurningar, tautaði ég vingjarn- lega, — um dauða hennar ung- frú Lavalle. Hann fölnaði hægt og hægt. — Ungfrú Lavalle? át hann eftir. Svo leit hann á Herter. — Er Yvonne dáin? — Þú lest sýnilega ekki blöð- in, gagði Herter rólega og ýtti kvöldblaðinu að honum og benti á smágrein, neðst á síðunni. Ne- al starði á greinina, án þess að lesa hana, en svo leit hann upp og mætti augum húsbónda síns, og augnatillitið var vandræða- legt. — Hún dó á föstudagskvöldið af of stórum skammti af ein- hverju — Af hverju? — Af heróíni, grunar okkur. — Þarna sérðu, tautaði Hert- er. — Ég sagði þér, að að þessu mundi koma, fyrr eða síðar, var það ekki? Ef nokkur svipur var í augimum í honum var í þeim hátíðleg aðvörun. Ég hefði nú ekki getað svarið það, en hitt veit ég, að þau voru of hreyf- ingarlaus. Og Neal leit undan. .— Ég þarf nauðsynlega að vita, hr. Neal, sagði ég dræmt, hvort þér senduð irngfrú Lavalle raunverulega heim á föstudags- kvöldið? — Já. Hiann kinkaði kolli. — Já, það gerði ég. — Fylgduð þér henni raun- verulega upp í leiguvagn? Hann svaraði einbeittur. — Nei, það lét ég Miguel gera. Ég sagði honum heimilisfangið og sagði honum að fylgja henni heim, hún var í slæmu ástandi eins og þér munið. Ég hefði ekki viljað trúia leigubílstjóra fyrir henni. Ég leit á þá á víxl og slökkti svo í vindlingnum mínnm. — Vissuð þér um þetta, hr. Herter? — Já, sannast að segja, vissi ég það. — Má ég spyrja, hr. Neal, hversvegna þér nefnduð þetta ekki á nafn við lögregluna, þeg- ar hún var að spyrjast fyrir um hwarf hennar? Hann starði fast á endann á vindli Herters. — Þar fór ég eftir skipun. — Skipun hvers? — Minni, tók Herter fram í. — Mér fannst það ekki skipta neinu máli. — Kona hverfur og finnst síð- ar dauð, þér liggið á mikilvæg- um upplýsingum og segið mér svo, kaldur og rólegur, að yð- ur finnist þær ekki skipta máli! Hann glennti úr fingrunum. — Já. en hverju breytir bað, l^vort Naal fylgir henni út í bíl, eða Miguel gerir það? Það sem máli skiptir er hitt, að hún fór af staðnum í bíl. hverfi: Ingólfsstræti Meðalholt Aðalstræti Túngata Laufdsvegur II Þingholtsstr. Skipholt II — En þar skjátlast yður ein- mitt, hr. Herter, svaraði ég hvasst. Hún fór ekki burt í bíl. Það liggja engar skýrslur fyrir um það, að neinn bílstjóri hafi tekið hania hér á föstudagskvöld. Hann leit fast á mig. — Þér hafið þá spurt hvern einstakan þeirra, eða hvað? Ég starði fast á hann. — Ég held, ef þér hafið ekkert við það að athuga, að ég verði að spyrja Miguel nokkurra spurn- inga. Hönd hans snerti hnappinn á innanhússíma, en hætti svo við og féll niður á hné hans. — Gott og vel, fulltrúi, eins og þér viljið. Hann dró til sín öskubakkann og drap í vindl- ingnum sínum — og var lengi ©ð því. — Hr. Neal, sagði ég, — vild- uð þér vera svo góður að biðja Miguel að koma hingað? — 3íddu andartak, John. Röddin var stálhörð og Neal hik aði. — Bíddu andartak, John. Röddin viar stálhörð og Neal hikaði. — Mér þykir fyrir því full- trúi, að ég hef líklega gert rugl- ing úr þessu öllu. Ég fullvissa yður um, að þetta var aðeins vísvitandi tilraun til að sleppa við hneyksli fyrir klú'bbinn. Ég er viss um, að þú skilur það, John. Augun í honum voru mjúk eins og í grimmum ketti. — Sannleikurinn er sá, að Migu el ók Yvonne heim í mínum bíl — því að hiann er líka bílstjóri minn. Það fékkst enginn bíll, svo að við tókum minn. Hann hefur mitt leyfi til að gera það, éf á þarf að halda, og ég þarf hans ekki sjálfur. Þér megið vera viss um, að ég hafði enga hugmynd um þetta fyrr en í gær, þegar Miguel lét orð falla. — Og honum datt auðvitað ekki í hug að nefna það við lögregluna? — Hann yppti öxlum eins og honum væri skemmt. — Það langar nú engan að komast í kast við lögregluna. — Nei, líklega ekki, svaraði ég þurrlega. — Og nú, ef þér hafið engu við að bæta, vil ég samt segja eitt orð við hlutað- eigandi herra. Hann kinkaði kolli. Já, það er rétt að Miguel segi yður það, sem eftir er af sögunni. Nú studdi hann á hnappinn á inn- anhússímanum og þegar málm- kennd rödd svaraði, sagði hann: — Viltu biðja Miguel að koma hérna sem snöggvast. Ég stóð á fætur og það sauð niðri í mér. Ég hafði svitnað of- urlítið og ég var búinn að fá höfuðverk. Ég þerraði á mér ennið með vasaklút. — Vilduð þér láta opna glugga, fulltrúi? spurði Herter, fullur umhyggjusemi. Ég horfði á hann auga, sem var eins og soðið egg. — Mér þætti gaman að vita, hvernig þér munduð bregðast við, ef yður væri gert starf yðar viljandi eins erfitt og mér er gert. — Mjólkurstofuatvinnan er nú heldur enginn rósabeður, sagði hann, — svo að ég skil þetta vel. Það er óheppilegt, að nærvera réttvísinnar skuli allt- af valdla mönnum skjálfta —. svo þeir setja sig í varnarstell- ingu. —Já, einkum þeir, sem hafa einhverju að leyna. — Nei. einkum þeir, sem hafa engu að leyna, svaraði hann á móti. Við það að sjá lögreglu- mann fara sjálfir sakleysingj- arnir að telja upp syndir sínar. En þetta er eins og hvert annað atvinnuböl hjá ykkur, skilst mér. Jafnvel ég á bágt með að horfa í augun á lögreglumianni. — Mig furðar alls ekki neitt á því, svaraði ég önugur. Brosið, sem hann sendi mér var hreint ekki neitt kæruleys- islegt. En þessari gamansemi okkar var nú lokið, þegar Miguel kom inn, sem stanzaði á miðju gólfi og horfði á mig varkárum aug- um. Það fyrsta, sem ég tók eftir var að hann var með blett á gagnauganu, og þar var ofurlítil skinnspretta. Ég hafði ekki tek- ið eftir þessu þegar hann opnaði fyrir okkur, en mér hefði hæg- lega getað sézt yfir það í hálf- rökkrinu, sem var í dyrunum. f fullri birtu leit hann unglegar út og ekki eins grunsamlegur. Og það var einhver mýkt f augnaráðinu sem kom mér á óvart. — Það var þetta á föstudags- kvöldið, Miguel, sagði Herter, snöggt og kom beint að efninu. — Segðu fulltrúanum sannleik- ann. Miguel þurfi ekki að láta hvísla neinu að sér. Smám sam- an kom' öll sagan í dagsljósið, þótt slitrótt væri, og jafnvel þótt hann hefði ekki verið svona á- berandi feginn að segja frá öllu, hefði hún samt látið trú- lega í eyrum. Viðburðir föstudagskvöldsins höfðu haft djúp áhrif á hann og það máttu þeir líka gera. — Meðan Yvonne Lavalle sat í dái á stól reyndi hann að ná í leigubíl, með því að hringja fyrst upp nokkrar stöðvar og síðan með því að standa fyrir dyrum úti og reyna að ná í ein- hvern sem framhjá færi. Þegar allt reyndist árangurslaust, á- kvað hann að taka bíl Herters. Hann skildi því Yvonne eftir þar sem hún var komin og tók bílinn út úr skúrnum, sem var ein fimmtíu skref þaðan, og þegar hann kom aftur, fann hann, að Yvonne var fárveik og kveinaði eins og barn ... 1 henclinni hafði hún meðala- sprautu og reyndi árangurslaust að sprauta einhverju inn í hand legginn á sér. Hann hafði ver-' ið í þann veginn að kalla á ein- hverja hjálp, þegar hún kallaði til hans og bað hann gefa sér sprautuna .... það mundi hressa hana, sagði hún . ... og hún mundi geta sofið. — Hún sagði líkia, að hún skyldl gefa mér hvað, sem ég óskaði, ef ég vildi hjálpa sér........ Hann hallaði sér í áttina að mér, með spenntar greipar, og augun störðu örvæntingarfull í mín, og báðu mig að trúa sög- unni. Bræðraborgarstígur frá 58-79 Kerrur undir blöðin fylgja hverfunum SÍMI 22-4-80 Blaðburðarfólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.