Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 26

Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 26
26 MORGUNBLADIÐ Þriðjudagur 28. des. 196! Keino og CEarke í keppni HÉR sjást Kipchonge Keino frá Kenýa og Ástralíumaður- inn Ron Clarke í 5000 m hlaupi sem fram fór í Mel- . bourne 21. des. Keino kom til Ástralíu eftir vel heppnaða keppnisferð til Nýja Sjálands ]>ar sem hann hafði m.a. sett nýtt heimsmet í 5 km hlaupi — bætt frábært met Clark- es. Fundum þeirra var stefnt saman á hlaupabraut en Clarke hafði verið frá æfing- UMFK sigraði i 5 flokkum i handbolta HIÐ árlega jólamót Keflvík- inga í handknattleik fór fram á 2. jóladag í Keflavík. Keppt var alls í 7 flokkum og urðu úrslit þessi milli Knattspyrnu- félags Keflavíkur (KFK) og Ungmennafélags Keflavíkur (UMFK). KFK UMFK Kvennaflokkur .......... 14 5 4. fl. karla A ......... 11 9 4. fl. karla B .......... 5 9 3. fl. karla A .......... 7 10 3. fl. karla B ......... 16 17 2. flokkur karla ....... 18 20 Meist.fi. karla ........ 24 36 um og keppni um tíma vegna f| bakmeiðsla. Og árangur J fundar þeirra varð ekki góð- 1 ur. Keino sigraði með yfir- l' burðum, hljóp á 13.40.6 mín t| — eða 16,4 sek lakari en ný- /i sett heimsmet hans. Keino V var um 40 m á undan Clarke « á endasprettinum en þeir t| höfðu lengst af fylgst að í J hlaupinu. enda hríéddir hvor 1 við annan. i Daníel Benjamínsson dæmdi alla leikina og var það erfitt verk meira en 5 tíma vinna næstum linnulaus. Landslið Chile til Norðurlanda LANDSLIÐ Chile í knattspyrnu, sem áunni'ð hefur sér rétt til keppni í lokabaráttunni um heimsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu, sem fram fer í Englandi næsta sumar, fer í keppnisferð um Norðurlönd áður en keppnin hefst í Englandi. Mun liðið senni lega leika landsleiki við Dani og Svía. maður í keppnisbann eftir 3 áminningar i Skotlandi l'verpool tapaðí í fyrsta sinn síðan 23. október Reykjavíkurmeistarar í körfuboltaleik 1965 SKÖMMU fyrir jólin lauk Körfu i með nokkrum yfirburðum — knattleiksmóti Reykjavíkur. — vann alla sina keppinauta með öllum á óvart sigraði lið Körfu- góðum stigamun og eftirsóttan knattleiksfélags Reykjavíkur I titil. Lið félagsins hefur á und- Norskur knattspyrnu anförnum mótum verið heldur slakt, en nú tóku höndum saman gamlir og reyndir leikmenn og upprennandi stjörnur og árang- urinn varð sá að sigur vannst m.a. yfir liðunum, sem allar „landsliðsstjörnurnar“ telja. Hér eru liðsmennirnir að unnum sigri. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ. Sveit skíðamanna IR vann Mullersbikarinn í 3. sinn Skíðmót í hörkufrosti á 2. jóladag ÞRIÐJA minningarmót um stofnanda Skíðafélags Reykja- víkur L. H. Muller var haldið á annan í jólum í brekkunni við Skíðaskálann í Hveradölum. Mótsstjóri var sonur L* H. Mull- er Leifur Muller frá Skíðafélagi Reykjavíkur. Margt vár um manninn þar efra, verður gott en um 20 stiga kuldi og stormur. Fært var öllum bílum heim að skála og veitingar allann daginn. ★ ÚRSi.rr Keppendur ( 6 manna sveit) mættu frá Reykjavíkurfélögun- um Ármann, K.R., Í.R. og Vík- ing. Brautina lagði íslandsmeist- arinn Kristinn Benediktsson af mikilli snilld. Kristinn ásamt for manni Skíðasambands íslands Stefáni Kristjánssyni voru undan farar. Hlið voru um 30, brautar- lengd 300 metrar. Mótsstjóri setti ! mótið klukkan 1.30 og rétt á | eftir var fyrsti keppandinn ræst- ur. Sigurvegarar urðu A. sveitar- menn Í.R. í henni voru, Sigurður Einarsson, Þorbergur Eysteins- son, Eysteinn Þórðarson og Guðni Sigfússon. Samanlagður tími 280,6 sek. Önnur varð sveit K.R. í henni voru Leifur Gíslason, Gunnlaug- ur Sigurðsson, Einar Þorkel-sson, Hinrik Hermannsson tíminn var 298.1 sek. Númer 3 var sveit Ármanns er í henni voru: Tómas Jónsson, Bjarni Einarsson, Arnór Guð- bjartsson, Bergur Eiríksson tími þeirra var 304 sek. Númer 4 var B sveit Í.R. í henni voru: Jakob Albertsson, Eyþór Haraldsson, Þórður Sigur- jónsson, Haraldur Haraldsson, tíminn var 337.10 sek. Á eftir keppni fór fram verð- launaafhending og minntist mót- stjórinn við þetta tækifæri á að þetta er í 3 sinn að sveit Í.R. tekur við þessum fagra silfurbik- ar, sem ættingjar L. H. Mullers gáfu á sínum tíma. Ennfremur er þess að minnast að í öll 3 skiptin sem hin sigursæla sveit Í.R. hefur unnið bikarinn hafa Þorbergur Eysteinsson og Guðni Sigfússon keppt með í sveitinni. í reglugerðinni er tekið fram að bikarinn þarf að vinnast 5 sinn- um til að vera unninn til eignar. Þrátt fyrir 20 stiga kulda var skíðaskálinn við þetta tækifæri fullskipaður keppendum, starfs- mönnum og kaffigestum frá Reykjavík. ★ L. H. MÚLLERS MINNST. Áður en keppni hófst lagði Auður Björg Sigurjónsdóttir einn yngsti keppandi fyrir Skíðaráð Reykjavíkur blómsveig á minnisvarða L. H. Mullers við Skíðaskálann. NORSKI knattspyrnumaðurinn Roald Jensen, sem er atvinnu- maður hjá skozka liðinu Hearts var í 3. sinn „skrifaður upp“ af .dómara í leik li'ðsins gegn Kil- marnoc í gær. Þetta þýðir að hann verður sennilega dæmdur i keppnisbann. Þær reglur gilda í Skotlandi að þegar knattspyrnumaður hefur þrívegis verið „skrifaður upp“ verður hann að mæta til yfir- heyrzlu hjá sérstakri dóm- og aganefnd skozka knattspyrnu- sambandsins. Að mæta þar í slíku tilfelli þýðir venjulegast 1—2 vikna keppnisbann. Roald Jensen hefur átt marga ágæta leiki í Skotlandi, en ekki ævinlega fallið vel inn í lið það er keypti hann til Skotlands. — Hollenzku meistararnir Feyen- oord hafa gert Jensen tilboð um að koma tíl Hollands frá Hearts. Norðmaðurinn vill ekki yfirgefa Edinborg að svo stöddu. Hins veg ar er stjórn Hearts reiöubúinn til að selja Jensen fyrir 10 þúsund pund. Sagt er í Bergen að hol- lenzka liðið hugsi sér að koma me'ð annað tilboð í Jensen í lok keppnistímabilsins i vor. FRESTA varð allmörgum leikj- um í 23. umferð ensku deildar- keppninnar, sem fram áttu að að fara í gær vegna snjókomu og kulda. Þrátt fyrir mikinn kulda voru 53.430 áhorfendur á heima- velli Liverpool og sáu Leeds sigra með einu marki gegn engu. Markið var skorað á 14. mínútu af Peter Lorimer og var þetta fyrsti tapleikur Liverpool síðan 23. október. — Burnley tapaði einnig óvænt eftir að staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Burnley. Úrslit urðu þessi: 1. deild Liverpool—Leeds 0—1 Manchester U.—W.B.A. 1—1 Northampton—Chelsea 2—3 N. Forest—Everton 1—0 Sheffield W.—Arsenal 4—0 Stoke—Burnley 3—1 Tottenham—Sheffield U. 1—0 2. deild Cardiff—Southampton 3—5 Carlisle—Bury 4—1 Charlton—Portsmouth 2—2 Crystal Palace—Ipswich 3—1 Middlesbrough—Leyton O. 2—1 Norwich—Coventry 1—1 Wolverhampton-Bristol City i—1 Staðan er þá þessi: 1. deild 1. Liverpool 32 stig. 2. Burnley 30 stig. 3. Manchester U. 29. stig. 4. Leeds 27 stig, 5'. Tottenham 27 stig. 2. deild 1. Huddersfield 32 stig. 2. Manchester City 29 stig. 3. Coventry 28 stig. 4. Wolverhampton 27 stig. 5. Bristol City 27. stig. 6. Southampton 27 stig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.