Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 27

Morgunblaðið - 28.12.1965, Side 27
í>riðjudagur 28. des. I96S MORGUNBLAÐIÐ 27 Stöðugir samgöngu- erfiðleikar austur á Mýrdalssandi r * Aætlunar- og mjólkurbílar í vandræðum VÍK, 27. des. — Miklir samgöngu erfiðleikar hafa verið hér síðan í fyrstu snjóum og hefur næstum daglega verið unnið með jarðýtu og veghefii við að ryðja snjó af vegum. Þrátt fyrir það hafa veg- ir oft lokazt eða verið mjög sein- færir. Nú er Mýrdalssandur tal- inn ófær. Áætlunarbifreið frá Austur- leið, sem fór frá Kirkjubæjar- klaustri kl. 1 í gærdag, varð stopp á Mýrdalssandi, vestan við Blautukvísl. I>ar var skafrenn- ingsbylur. Sex farþegar voru í bifreiðinni. Bifreiðarstjórinn gat náð sambandi við Loranstöðina á Reynisfjalli um talstöð og bað um aðstoð. En þá þegar var jarð- ýta frá Vegagerðinni lögð af stað frá Vík í Mýrdal og gat rutt leið- ina, svo að áætlunarbifreiðin kom til Víkur kl. 3 í nótt. Og hélt síðan áfram til Reykjavíkur. Var hún þá orðin 12 tíma á eftir á- ætiun. — Fréttaritaro ',r«nh. af bis. 1. sem vísað var úr landinu árið 1959. Áður en Haliberstam ko.m til Póllands vann hann í Kongó og síðar í Vietnam. Ha-nn var sæmdur Pulitzer verðlaununum bandarísiku fyrir greinar sínar um Viet- nam, þar sem hann gagn- rýndi mjdg stefnu Bandaríkja- stjórnar. Halberstam kvæntist pólskri leikkonu, Blzibieta Czyzewska, fyrir u.þ.b. ári. Etoki fylgir fregninni hvort hún fer með honum frá Pól- landi. — BP-stöðin Framhald af bls. 1. 6.500 lestir, 90 metra löng og 65 metra breið. Hún stóð á tíu súl- um, er skorðaðar voru í sjávar- botninum og vökvastýrðar. Þetta var fyrsta stöðin sem BP kom upp í Norðursjó, en starfs- liðið hafði allt reynslu og þjálf- un frá samskonar stöðvum ann- ars staðar. Venjulega störfuðu í stöðinni 46 menn, 'en 16 þeirra voru í landi nú vegna jólahalds- ins. í kvöld, er síðast fréttist, höfðu tuttugu menn fundizt, þar af þrír alvarlega slasaðir og einn látinn. Engin skýring hefur fundizt á þessu slysi og talsmenn BP segja óskiljanlegt, að stöðin skyldi hrynja þannig saman. Óstaðfest ar fregnir NTB herma, að sprenging hafi orðið í stöðinni. Vindhraðinn var 32 km á klst. er slysið varð um kl. 1 e.h. að íslenzkum tíma. Flutningaskipið „3altrover“ var næst slysstaðnum, er stöðin hrundi. Sendi það þegar út hjálp arbeiðini og önnur flutninga- skip, togarar, smábátar og þyrl- ur frá brezka flughernum tóku þátt í leitinni í dag. Þegar dimmdi flaug þyrla frá BP yfir slysstaðinn og varpaði út ljós sprengjum, s«m lýstu upp leit- arsvæðið. Sem fyrr segir hafði „SEA GEM“ nýlega fundið mikið magn af jarðgasi og var fyrir- hugað að leggja þaðan leiðslu til lands á árunum 1967-68. Bor- að hafði verið 3000 metra efti» gasinu. Til stóð að flytja stöðina fljótlega eftir jólin. Mjólkurbílar frá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík, er ætluðu að Kirkjubæjarklaustri í gær, voru með trukk með ýtu á, til að ryðja leiðina, sneru aftur á Mýrdals- sandi og komu til Víkur í gær- kvöldi. > Brandur Stefánsson, verkstjóri í Vík, taldi í viðtali ófærðina á Mýrdalssandi vera á 20 km kafla. Svo eru aðeins snjóadrög á veg- um í Skaftártungu, en síðan má heita snjólaust í austursveitum. Hér í Mýrdal eru víða snjó- traðir á vegum. Ef nokkuð hvessir eða snjóar má búast við að leiðin lokist fljótt. Á þetta við kaflann frá Vík að Litla Hvammi, en úr þvi er færi fyrir hvaða bíl sem er til Reykjavík- ur. — Sigþór. — Viefnam 1 umferðamiðstöðinni nýju hefur verið opnuð verzlun fyrir ferða- íólk. Þar er á boðstólum ýmiss konar smávarningur, sælgæti, gos- drykkir og dagblöðin. Stokklhólmi, 27. des. NTB. • Alls ha£a 68 Svíar týnt lífi í flugslysum á árinu 1966 og flugslys verið tleiri og meiri en notokru sinni fyrr. Síðasta slysið varð á annan jóladag, er fjórir ungir menn fórust með sportflugvéd í Suður- Svíþjóð. Brezkui togori strondar d Norð- iirði — Losnaði af egin rnmmleik Neskaupstað, 27. desember: UM KL. 22 á jóladag urðu bæjar- búar í Neskaupstað varir við skip, sem kom inn með landi a'ð norðanverðu, og skömmu seinna sáu þeir, að það tók niðri fyrir utan svonefnda Neseyri. Reyndist þetta vera brezki togarinn Lan- cella H-29. Skipverjar báðu ekki um aðstóð og svöruðu ekki í talstöðina, er þeir voru kallaðir upp. Um það bil klukkustund síðar losnaði svo togarinn af eigin rammleik, og hefur það eflaust Jólaoratoria Bachs í Kristskirkju PÓLÝFÓNKÓRINN og 25 manna kammerhljómsveit undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar flutti Jólaóratóríu Bachs annan jóladag í Kristskirkju fyrir þéttsetnu húsi. Einsöngvarar í verki þessu voru Sigurður Björnsson, Guðrún Tómasdóttir og Halldór Vilhelms son. Flutningur verksins tókst mjög vel og voru tónleikarnir end urteknir í gær og var uppselt. Þriðju og seinustu tónleikarnir að þessu sinni verða í kvöld kl. 6, óseldir aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og er fólki ráðlagt að koma tímanlega, því búast má við a'ð uppselt verði. hjálpað honum áð það var hálf- flæddur sjór. Kom hann síðan að bryggjunni, en erindi hans hing- að var að koma með þrjá veika skipverja. Er togarinn hafði lagzt að bryggju kafáði kafari undir hann til að kanna skemmdir, en þær voru engar að finna. Togar- inn er nú kominn út á veiðar. — Ásgeir. Eldur í gamla bænum á Akureyri Akureyri, 27. desember: — ELDUR kom upp í geymsluher bergi í Lækjargötu 2 hér í bæ á þriðja tímanum í dag. Roskin kona hafði lagt sig til svefns eftir hádegið í öðru herbergi og vakn- aði við snarkið. Var geymslan al- elda, þegar slökkviliðið kom. — Tókst því áð aftra því að eldur- inn breiddist út, en allt sem í geymslunni var brann til ösku. Rjúfa varð þakið yfir geymsl unni og vatnsskemmdir urðu ein hverjar. Annars varð ekkert telj andi tjón. Tvö timburhús, sambyggð hús- inu nr. 2, sluppu óskemmd með öllu, en á þessu svæði er þétt þyrping gamalla timburhúsa. — Sv. P. Skotinn til bana í Austur-Berlín Berlín, 26. des. — NTB: í bílnum voru, Vestur-Þjóð- EINN Vestur-Þjóðverji var verjanum Heinz Schöneberger, drepinn og annar særður, er tókst að fara út úr bifreiðinni þeir reyndu að aka í gegnum og skrfða yfir markalínuna vegatólmanir við eina af eftir inn í Vestur-Berlín, en hann litsvarðstöðvunum á mörkum lézt á sjúkrahúsi nokkrum A-Berlínar á sunnudagsmorg- klukkustundum síðar. un. _. Einn af monnunum féll út um bakdyr bifreiðarinnar og var borinn burt af landamæra vörðunum, en maður og kona, sem eftir sátu í bifreiðinni, voru einnig handtekin. Fjórir menn voru í bílnum, sem varð að nema sta'ðar nokkra metra frá borgarmörk unum, eftir að austur-þýzkir landamæraverðir höfðu skotið á hann. Einum þeirra, sem Couve de Mur- ville slær met Talleyrands París, 27. des. NTB. Maurice Couve de Mur- ville, utanrikisráðherra Frakklands, setti í dag, mánu dag, nýtt met í langlifi í því embætti. Murville var skip- aður utanrikisráðherra 1. júní 1958 og hefur gegnt því embætti síðan. Er hann jafn- framt eini ráðherrann í frönsku stjórninni, sem setið hefur óslitið frá því de Gaulle komst til valda. Sá sem áður hafði gegnt embætti utanríkisráðherra Frakklands lengst var Char- les Maurice de Talleyrand, ut anrikisráðherra í stjórnartíð Napóleons. Gegndi hann em- bættinu frá 21. nóvember 1799 til 17. júni 1807. — Mikil ölvun Framhald af bls. 28. málum á Þorlálksmessu og að fangadag. Á Þorláksmessu höfðu hjón 5 mánaða gamalt barn sitt í óleyfi á brott með sér af Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Hafði því verið komið þar fyrir að læknis- ráði og fyrir forgöngu barna verndanefndar. Er hjónin voru að heimsækja það á Þorláks messu, vöfðu þau utan um barn ið sæng og fóru með það, án þess að starfsfólk yrði vart við. Var leitað til barnaverndarnefndar og lögreglunnar, sem sótti barnið. Jól við glas og tónlist Á Þorláksmessukvöld var stol ið 2 albúmum eða 24 hljómplöt- um úr bíl, sem stó’ð ólæstur bílastæði við Klapparstíg. Tók þjófurinn einnig áfengisflösku með sér úr bílnum og hefur vænt anlega átt ánægjuleg jól við glas og tónlist. Konu bjargað Á aðfangadagskvöld var lög reglan kvödd að húsi við Spítala- stíg, vegna þess að reyk lagði þar út úr íbúð. Urðu lögregluþjónar að brjóta hurðina til að komast inn. Kom reykurinn frá tómri pönnu á glóandi eldavél, en kona lá þar í dái í stól. Var hún flutt á Slysavarðstofuna, en þar sem hún reyndist drukkin, þegar hún hafði verið lífgúð úr dáinu, þótti öruggara að geyma hana í fanga- geymslunni í Síðumúla. Nær engin bifreiðaslys Engin slys urðu í umferðinni yfir jólin. En á Þorláksmessu gekk kona á bíl á Snorrabraut fyrir sunnan Flókagötu. Hand- leggsbrotnaði hún og var flutt á Slysavarðstofun og sfðan heim. Nær engir bifreiðaárekstrar urðu um jólin, en fyrir jól og fram að aðfangadag var stanz- laus skæðadrifa af árekstrum. Framhald af bls. 1 hvað valdi. Telja sumir, að hlé verði á árásunum, þar til Hubert Humphrey, varaforseti, er snúinn heim úr sex daga Austurlanda- ferð sinni, sem hófst í morgun. Aðrir telja, að ?áll páfi VI hafi hlutazt til um málið og sé að reyna að koma á friðarviðræðum. Mikið tjón varð í liði stjórnar- hersins í S-Vietnam og Banda- ríkjahers í dag af völdum tveggja sprenginga Viet Cong-manna. — Fyrri sprengingin varð í morgun stöð S-Vietnam-hermanna við Sa Dec í Mekong-óshólmunum, um 112 km suðvestur af SaigOn. Fórust 14 stjórnarhermenn og 42 særðust. Úr liði Bandaríkjahers féllu síðan allmargir landgöngu- liðar, er herflutningabíll ók á sprengju. Ekki er þess getið, hversu margir fórust eða særð- ust. Bandarískar flugvélar héldu í dag uppi hörðum árásum á stöðv ar Viet Cong í S-Vietnam, en engar árásir hafa enn verið gerðar á N-Vietnam. Talsmaður bandaríska hersins kvað enn eng ar fyrirskipanir hafa vérið gefn- ar um að hefja þær árásir á ný, en neitaði að gefa sikýringu. — Hinsvegar upplýsti hann, að frá því í júlímánuði sl. hefðu tíu bandarískar flugvélar verið skotnar niður yfir N-Vietnam með sovézkum eldflaugum. — ★ — Sem fyrr segir hafa verið uppi ýmiss toonar getgátur um hvað valdi því, að Bandaríkjamenn hafa ekki hafið aftur loftárásir á N-Vietnam. Blaðið „La Stampa“ í Torínó segir í dag, að sendi- menn páfa hafi haft samband við leiðtoga Bandaríkjanna og N- Vietnam og óskað eftir því, að gert verði vopnahlé í Vietnam aftur um áramótin. Segir blaðið, að í Páfagarði sé að vakna von um að innan skamms muni miða í rétta átt um friðarviðræður. Opinberlega hefur talsmaður Páfagarðs ekki viljað segja neitt um það, hvort páfi hafi leitað hóf anna við stjórn N-Vietnam um vopnahlé, en góðar heimildir innan Páfagarðs herma, að mjög sé sennilegt, að páfi fylgi eftir margítrekuðum friðaráskorunum sínum með því að reyna að stuðla að vopnahléi og friðarviðræðum. Stórblaðið „New York Times“, hefur hvatt til þess, að Banda- ríkjamenn geri nú langt hlé á loftárásum á N-Vietnam og reyni þar með enn á ný að koma á friðarviðræðum. Blaðið segir í ritstjórnargrein í dag, að lang- varandi hlé yrði ekki aðeins til þess að færa heiminum heim sanninn um, að Bandaríkjamenn vildu raunverulega frið, heldur opnaði það einnig leiðir til þess að notfæra sér ágreininginn milli kommúnista í Moskvu og Pek- ing. Blaðið bendir á, að ekki hafi verið tilkynnt opinberlega að hlé yrði gert á árásunum, fremur en í mai sl., þegar sex daga hlé var gert á þeim. En til þess, að hléð geti borið tilskilinn árangur seg- ir blaðið, að tilkynna verði það vandtlega að hafa það jafnframt lengra en í maí, — sex dagar hafi ekki verið nægilegur frestur fyrir Hanoi-stjórnina. — NTB segir, að „New York Herald Tribune" sé ekki eins trúað á ár- angur af hléi þessu. Þá birtir tímaritið „U.S. News & World Report“ viðtöl við nokkra bandaríska þingmenn, sem nýlega fóru til Vietnam. — Hvetja þeir allir nema einn til þess að hert verði á aðgerðum Bandaríkjamanna, bæði í S- og N-Vietnam. — Hungursneyð Framh. af bls. 1 búum mikil hungursneyð — og væri ekki annað sjáanlegt en fjölda manns biði hungurdauð- inn. Én nú hefur Bandaríkja- stjórn heitið áframhaldandi að- stoð og matargjöfum og þar með bægt frá mestu hæbtunni. f stór- borgunum Bombay, Calcutta og Madras hefur þegar verið kom- ið á strangri skömmtun og inn- an skamms verður skömmtun tekin upp í öðrum borgum lands ins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.