Morgunblaðið - 30.12.1965, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.12.1965, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 30 des. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 9 Skrifstofustarf Stúlka óskast til skrifstofustarfa, aðallega vélritun og símavarzla. Umsóknir merktar: „Skrifstofustúlka — 8139“ sendist Morg- unblaðinu. Vélbáfur til sölu Af sérstökum ástæðum er Mb. Stafnes G.K. 274 56 smálestir til sölu. Bátur og vél í mjög góðu ástandi. Báturinn liggur við bryggju í Sandgerði, tilbúinn til línuveiða. Ennfremur getur fylgt netaútbúnaður, humar og fiskitroll. Óskað er eftir tilboðum í bátinn með eða án veiðarfæra. Réttur er áskilnn til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er. Allar nánari uppl. gefnar í síma 7059, Gerðum. Skrifstofustarf Viljum ráða mann til starfa á skrif- stofu vorri. Sjóvátryggingafélag íslands hf. ÁRMÚLI IMI 38500 Viljum ráða ungan og reglusaman pilt til sendi- og innheimtustarfa. Þarf helzt að hafa próf á bifhjól. Upplýsingar gefur Skrifstofuumsjón. SAMVIN N UTRYGGINGAR DAVID BROWN Tækninýjungar, aflmeiri, fullkominn útbúnaður, nýtízku stílhreint útlit 1 SELECTAMATIC fjórvirka vökvakerfið Mesta framför í gerð vökvakerfa. síðan þau voru fyrst tekin í notkun í dróttarvélum. SELECTAMATIC er óviðjafdanlega einfalt í notkun - aðeins með því að snúa hnopp þó stillið þér inn á ákveðið kerfi: Sjálfvirka dýptar- eða hæðarstillingu, stillingar fyrir þungaflutning á afturhjól eða vökvaknúin hjálpartæki. Ekkert vökvakerfi jafnast á við SELECTAMATIC - fjölhæft, einfalt í notkun. hö. 90% af vélaraflinu nýtist á aflúrtaksás. Meira dráttarafl — aukið afl á vökvalyftu. 9 3 Fullkomínn fastur útbúnaður Auk fleiri mikilvægra nýjunga og breytinga, er fastur útbúnaður vélanna nú meiri og full- komnari en áður hefur þekkzt. Þar sem sér- ástæður krefjast, er fjölbreytilegur aukaút- búnaður fáanlegur. 4 Glæsiíegt og stílhreint útlit Auk hinna miklu tæknilegu og hagnýtu end- urbóta, hafa David Brown dráttarvélarnar fengið stórglæsilegt nýtt útlit, Litur vélanna er nú beinhvítur, brúnn og rauður. 2 Meira afl - meiri afköst Afl allra þriggja gerðanna hefur verið aukið: gerð 770 er 36 hö.: 880 er 46 hö.: 990 er 55 Áður en þér festið kaup á dráttaryél, þá kynnið yður kosti hinna nýju Dayid Brown gerða. Tæknilegir og hagnýtir yfirburðir, ásamt nýtízku útliti, gerir Dayid Brown glæsilegustu dráttaryélina á markaðnum í dag. Ein hinna þriggja gerða er yélin, sem hentar yður bezt. Sýningar- vélar fyrirliggjandi. GLÖBUS H.F. Vatnsstíg 3. Sími 11555 SVÖRT MESSA Hvað segja ritdómendurnir um nýju bækumar. Hvað segja þeir um þær sem mesta athygli hafa vakið. Hvað um „Svarta messu“ Jóhannesar Helga. Hér verða birt nokkur lof- samleg ummæli um bókina. Ólafur Jónsson, Alþýðu- blaðið 19. des.: „Bók hans (Svört messa) er skrifuð með sjaldgæfum eld- n.óði, skapríki, tilfinningahita; hún Ijómar öll og skín af skáldlegum hæfileik . . . . “ „Ég veit ekki til að ungur höfundur hafi hafist handa með öðrum eins tilþrifum síðan Vefarinn mikli var skrifaður fyrir 40 árum.“ Bjami Benediktsson frá Hofteigi, Frjáls þjóð 23. des.: „Svört messa er óneitanlega stórglæsilegt ritverk með köflum . ... u „ ... . Jóhannes Helgi hef- ur ákaflega næmt auga fyrir lífi hinnar dauðu náttúru, einkum hinu stórkostlega í fari hennar; geisandi storm- um, þjótandi skýjum, hvít- fextu hafi — og fyrir smæð mannsins undir himninum. í slíkum lýsingum er höfundur inn verulega í essinu sínu, ritar af seiðmögnuðum þrótti og rammri kyngi. Hann virð- ist yfirleitt standa í nánu sambandi við höfuðskepnurn- ar.“ „ . . . . En þess skyldi jafn- framt getið, að Jóhannes Helgi kann einnig vandasamari og skáldlegri íþrótt: að gefa í skyn, tala í gátum og hálf- kveðnum visum, segja ó- skráða sögu milli línanna. Ég nefni sem dæmi þáttinn af rúmförum Murts og sýslu- mannsfrúarinnar. Mér virðist su erótík að vísu þarflítil. En frásögnin er fjarska vandlega gerð, rituð af ísmeygilegri kunnáttu, sannri skáldlegri íþrótt.“ Loftur Guðmundsson, Vísir 15. des.: „í rauninni er skáldsaga hans (Svört messa) tvískift, öðru veifinu venjuleg skáldsaga, þar sem lýst er komu Murts í eyna og fólki þar, umhverfi og aðstæðum. Að þeim hluta væri skáldsagan stórvel gerð, ef staðgengill höfundar, skáld ið Murtur, varpaði ekki súper mennskuskugga sínum á allt og alla. Aðrar persónur eru mótaðar sterkum dráttum, sannar og lifandi — að Klæng undanskildum — og umhverf- inu svo snilldarlega lýst, að þar gera ekki aðrir betur." Andrés Kristjánsson, Tíminn 23. des.: „Jóhannes Helgi er afburða- sjall rithöfundur. Stíll hans er víða með miklum glæsi- brag, en hann hnígur og fell- ur á víxl, strengjaköst og ládeiður skiftast á. Mál hans er sterkt, lýsandi og þó blæ- fcrigðamjúkt. Hófsemi hans og sjálfsagi er stundum með afbrigðum, ekki sízt í ásta- lýsingum, þar sem örfáir tón- ar slegnir með réttum hætti fcirta heila hljómkviðu, alveg eins og slitróttar myndir sög- unnar bregða ljósi yfir stórt þjóðsvið og lítil eyja verður landið allt.“ „Svört messa", bókin sem hlaut að koma. — Fæst hjá öllum bóksölum og HELGAFELLI, Unuhúsi (Sími 16837)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.