Morgunblaðið - 30.12.1965, Blaðsíða 24
Langstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi utbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
2S8. tbl. — Fimmtudagiur 30. dcsember 1965
Vinna verður kerfisbundið að því að
fækka árekstrum og bifreiðaslysum
Ey|<t fæddist
wíð Surtsey
I>EGAR flugvél frá Eyjaflugi
fór yfir nýju gosstöðvarnar við
Surtsey í fvrradag kil. 11, sást
að ný eyja hafði rétt skotið upp
koilinum. í flugvélinni var m.a,
Sigurjón Einarsson, flugmaður,
sem manna mest hefur fylgst
með gosinu við Surtsey.
mætti rekja til gáleysis gangandi
fólks og ökumanna. Hann benti á
að helmingur allra slasaðra
manna í bifreiðaslysum hér í
Reykjavík væri undir tuttugu
ára aldri, en þó má geta þess að
af níii sem létust á árinu 1&64 af
völdum bifreiðaslysa voru sex
fæddir fyrir aldamót Fiest um-
ferðarslys í Reykjavík eiga sér
stað milli klukkan 1 og 2 á dag-
inn eða 10—12% af öllum siysum
og árekstrum.
Þá má geta þess, að 1964 urðu
477 umferðarslys í Reykjavík, og
Framh. á bls. 23.
í gær var stórviðri á þessum
slóðum og má því búast við að
nýja eyjan hafi átt erfit upp-
dráttar og jafnvel stungið sér
aftur undir yfirborð hins úfna
hafs. Ekkert fréttist af þeim
slóðum í gær.
Svía konungur
Eieíðrar forsætis*
ráðherra
Um 70 brennur á
gamlárskvöld
— Nú er búið að sækja
um 70 áramótabrennur víðs-
vegar um borgina og hafa
þær allar verið metnar af
lögreglu og slökkviliði þann-
ig að ekki á að geta stafað
af þeim hætta, sagði Eriing-
ur Páisson yfiriögregluþjónn
við Mbl. í gær.
Á Miklatúni verður stór og
mikil brenna á vegum borg-
arinnar, ennfremur eru stór-
ai- brennur í Skjólunum. Þá
verður og stór brenna inn
við Sætún gegnt Klúbbnum.
Á fleiri stöðum verða svo
stærri og minni brennur. All-
ar brennurnar hafa sína á-
byrgðarmenn og umferðalög-
regla og götulögregla munu
annast um stjórn umferðar,
sem að vanda verður eflaust
mikil framhjá stærstu brenn
unum, svo og mun lögregl-
an hafa á hendi gæzlu við
ailar brennurnar.
Lögreglan biður blaðið að
koma þeim tilmælum á fram
færi við ábyrgðarmenn brenn
anna að ekki verði kveikt í
þeim fyrr en um kl. 22.00
um kvöldið.
Mynd þessi er af einum
bálkestinum, en þar voru
unglingar að hlaða upp köss-
um og öðrum eidsmat í kuid-
anum og rokinu í gær.
Ljósm. Ól. K. M.
Borgareyrum 29. des.
Hér hefir verið leiðindaveður
í dag, hvassviðri með snjóburði
hefir gengið yfir. Hiti er um
frostmark. Nokkrir samgöngu-
örðugleikar hafa skapast. Rílar
frá Mjólkurbúi Fióamanna, sem
sækja mjólk austur undir Eyja-
fjöll, voru á austurleið milli kl.
4 og 5 í dag við Markarfljóts-
brú. Þá komust þeir ekki lengra
vegna veðurhæðar og dimm-
viðris. Rafmagnsiaust hefir ver-
ið af og til undir Austur-Eyja-
fjölium í dag og simasambands
laust er miili Skarðshlíðar og
Víkur í Mýrdal, en austur þar
hefir veðrið verið mjög siæmt í
dag. Ekki er vitað um tjón á
byggingum eða öðrum mann-
virkjum í veðri þessu.
I kvöld er veðrið að ganga
niður.
Vestmannaeyjum, 29. des.
Hér hefir verið stólparok í nótt
sem leið og allan dag og komst
það upp í 15 vindstig í morg-
un. Ertgin snjókoma hefir fylgt
rokinu. Svo hefir veðurhæðin
verið mikil að heita má að ekki
hafi verið stætt á götum úti,
enda hálka samfara rokinu. Það
má furðu gegna að ekki skuli
hafa orðið annað tjón í ofviðri
þessu en að trilla laskaðist lít-
illega.
Isafirði, 29. des.
Togarinn Júpiter fékk á síg
brotsjó snemma í morgun, er
harin var að véiðum út af Vest-
fjörðum og slasaðist einn skip-
verja illa á bandlegg og tveir
aðrir hlutu smámeiðsli. Júpiter
kom hingað til ísafjarðar laust
Örninn, sem fannst sjúkur á
Snæfelisnesi í desembermánuði
og komið var með að Keldum,
var þar í góðu yfirlæti til 18.
desember. Ekkert fannst að hon
um og ástæðan fyrir því að
hann náðist þvi ekki kunn. En
hann náði sér fljóitt og áit
vel í fóstrinu. .
Er hann þótti nægilega hress
orðinn, flugu þeir dr. Finnur
Guðmundsson, Birgir Kjaran og
Björn Guðbrandsson með Agn-
ari Kofoed Hansen með örninn
vestur á Hellissand, til að
sleppa honum á þeim slóðum,
sem hann hafði verið tekinn.
Ekki þótti rétt að skilja við
hann annars staðar, þar sem
hann var ókunnugur.
í fyrstu virtist fuglinn léleg-
ur til flugs, þegar hann hafði
verið skilinn eftir. Tóku þeir
félagar hann þá aftur og völdu
nýjan stað fyrir hann, á nesi
þarna rétt hjá. Þar gekk allt
vel. Og tveimur dögum seinna
sást örninn aftur og var á flugi.
Síðan hefur ekkert til hans
spurzt svo hann er vafalaust far
inn að bjarga sér vel.
Samikvæmt talningu, sem
Agnar Ingólfsson, fuglafræðing
ur gerði á örnum í sumar, erú
nú örugglega 40 fullOrðnir fugl-
ar í iandinu. í fyrra voru þeir
samkvæmt talningu 41. Ung-
fugla er erfitt að telja.
Aldrei meiri afli
Heildarafli 20% meiri en í fyrra
EFTIR þeim upplýsingum,
sem fyrir liggja um fiskafla
íslendinga á árinu 1965 má
gera ráð fyrir, að heildarafl-
inn hafi orðið um 1.166 þús.
lestir. Á árinu 1964 varð
heildaraflinn 972 þús. lestir
og nemur því aukningin á ár
inu 194 þús. lestum, eða tæp-
iega 20%. Afli þessi skiptist
þannig, að af síld komu á
land 753 þús. lestir sém er
209 þús. lestum meira en á
árinu 1964 eða 38% aukning
en hinsvegar roinnkaði afl-
inn á þorskveiðunum og nam
aflinn þar í heild 361 þús.
lestum, sem er 54 þús. lest-
um eða 13% minna en á ár-
inu 1964. Þé voru veiddar
nær 50 þús. lestir af loðnu,
sem er mikil aukning frá
fyrra ári þegar aðeins veidd-
ust rúmlega 8 þús. lestir og
loks hátt á 4 þús. lestir af
krabbadýrum (humar og
rækju), sem var lítíð eitt
meira en á fyrra ári.
Aí heildaraflanum á þorsk-
veiðum öfluðu togararnir 75
þús. Lestir sem er um 10 þús.
lestum meira en á árinu
1964.
(Frétt frá Fiskifélaginu)
Átak tryggingafélaganna til oð draga úr umferbarsíysum
ÖLLUM er Ijóst að gera þarf
ailt sem í mannlegu valdi
stendur til að fækka umferð-
arslysum hér á landi, og þá
ekki sízt í höfuðborginni. Sem
spor í þá átt hafa átta vá-
tryggingafélög tekið ákvörð-
nn um að efna til ráðstefnu
um umferðarmálin í því skyni
að finna leiðir til úrhóta. A
árinu 1965 gera tryggingafé-
lögin ráð fyrir að greiða milli
120 og 130 millj. króna í bæt-
ur vegna umferðarslysa, og
þegar öll kurl koma til grafar
má ætla að tjónið af umferð-
arslysum hafi ekki numið
undir 250 til 300 millj. króna.
Má af því sjá hvílíkt f járhags-
legt vandamál hér er við að
glíma, svo ekki sé minnzt á
þær hörmungar sem bifreiða-
slysin hafa í för með sér.
Á fundi sem samstarfsnefnd
tryggingafélaganna átti með
fréttamönnum í gær, skýrði Egill
Gestsson m.a. frá því, að lang-
mestan hluta bifreiðaslysanna
Ofsaveörið í gær
Bílar teppast —
Ofsa hvassveður var hér
um sunnan og vestanvert
landið í fyrrinótt og gær, en
ekki er vitað um teljandi
tjón af völdum þess. Stór-
viðri var á miðunum og
fengu togarar áföll út af
Vestfjörðum. Bílar komust
ekki leiðar sinnar undir Eyja
fjöllum. TriIIa laskaðist í
Vestmannaeyjum og þar var
vart stætt á götum í gær.
Hér fara á eftir frásagnir
þriggja fréttaritara, Markús-
ar Jónssonar á Borgareyrum
undir Eyjafjöllum, Björns
Guðmundssonar í Vest-
mannaeyjum og Högna
Torfasonar á ísafirði.
Sjómenn slasast
fyrir hádegið í dag og var hinn
slasaði maður lagðúr í sjúkra-
hús og verður gerður uppskurð-
ur á honum á morgun. Annar
skipverja, sem var með lungna-
bóigu var einriig lagður í sjúkra
húsið. Skemmdir munu ekki
hafa orðið á skipinu.
Fjórir enskir togarar komu
hingað í dag og voru með menn
sem hlotið höfðu smámeiðsli.
Togarinn Harðbakur kom
hingað í dag með vélarbilun og
er nú unnið að viðgerð.
Stormur er hér og engir bát-
ar á sjó.
Konungur Svía Gustaf VI Ad-
olf hefur sæmt forsætisráðherra
Dr. Bjarna Benediktsson, stór-
krossi hinnar konunglegu norð-
stjörnuorðu.
Honum var afhent heiðurs-
merkið í sænska sendiráðinu
þann 28. desember s.l.
(Frétt frá sænska sendiráðihu)
I Hafnarfirði
VEXJiNA þess hve margir hafa
orðið fré að hverfa á jólatrés-
skemmtunum Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði, hefur verið á-
kveðið að efna til hinnar þriðju
skemmtunnar og verður sú hald-
in sunnudaginn 2 .janúar n.k. kl.
3 í Sjálfstæðishúsinu. Aðgöngu-
miðar að þessum jólatrésfagnaði
verða seldir í dag í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins milli klukk-
an 1 og 3.
Erninum sleppt heima