Morgunblaðið - 30.12.1965, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.12.1965, Qupperneq 15
Fimmtudagur 30 des. 1965 MORCUNBLAÐIÐ 15 Halldór P. Jónsson Króktúni — Minning F. 14. nóv. 1903. D. 23. des. 1965 HINN 24. des. 4.965 barst mér bú sorgarfregn að einn sveitungi minn, Halldór í Króktúni hefði látizt í Landsspítalanum í Reykja vík 23. des. á Þorláksmessu, þar sem hann lá í lyflækningadeild spítalans til rannsóknar á hjarta- sjúkdómi (mjög sjaldgæfum). Mér varð strax hugsað til orð- anna: „Líf mannlegt endar skjótt.“ Því síðast bar fundum okkar saman í góðra vina hópi í fyrri hluta desember 1965, og virtist síður en svo nokkuð ama að honum. Ég minnist þess samt, að hann hafði áður látið á sér heyra í mín eyru, missmíði nokkra á heilsu sinni, þó hánn gengi til allra venjulegra starfa. Halldór P. Jónsson var fædd- ur að Þinghóli í Hvolhreppi 14. nóv. 1903, og var því rúmlega 62 ára þegar hann lézt. Foreldrar hans voru bænda- hjónin Jón Jónsson og Guð- björg Guðnadóttir. Lézt móðir hans í hárri elli hjá syni sínum ft^rir nokkrum árum. Halldór ólst upp með systur sinni Daníellu í foreldrahúsum að Stóra-Moshvoli í Hvolhreppi og aðstoðaði foreldrana við bú- störf alla tíð, meðan þau bjuggu, að fráteknum vetrarvertíðum, fyrst á tveim öðrum bændabýl- um, síðar í Vestmannaeyjum við fiskaðgerð, og var þar einnig á fyrstu ventíðum í byrjun búskap- ar sín sjálfs að Króktúni, þar sem hann hóf sjálfstæðan bú- rekstur árið 1931 ásamt konu sinni Katrínu Jónínu Guðjóns- dóttur frá Brekkum í Hvol- hreppi. Er hún látin fyrir nokkr- um árum. Eignuðust þau fjögur börn, sem öll eru gift og farin úr foreldrahúsum. Þau eru: Frú Guðrún, búsett að Ægis- síðu í Djúpárhreppi, gift Gunnari Þorgilssyni, frú Elísabet, búsett að Selfossi, gift Hafsteini Trausta syni. Jón og Björgvin, einnig búsett- ir að Selfossi. Jón er giftur Margréti Óskarsdóttur frá Varma dal, en Björgvin er giftur Hrönn Viggósdóttur. Þ'á voru fóstraðir upp á heim- ili Halldórs stjúpsonar hans, Óskar Karelsson, bóndi í Mið- túni í Hvolhrepp, giftur Margréti Guðjónsdóttur, og dóttursonur Halldórs: Daníel Gunnarsson, sem síðustu ár hefir verið önnur hönd afa síns við búskapinn, þó ungur sé, innan við fermingu. Og ekki hefur systir hans, Guð- björg Daníella, síður verið hans önnur hönd, enda hefur hún ann- azt húsmóðurstörf á heimilinu í Króktúni af mikilli snyrti- mennsku frá því Halldór missti konu sína. Starf Daníellu á heim ili Halldórs honum til blessunar, gat ekki farið framhjá sveitung- um Halldórs heitins. Halldór P. Jónsson var á marga lund óvenjulegur maður. Greiðvikni og hjálpsemi var áberandi þáttur í eðlisfari hans, enda var hann tilfinningaríkur. Halldór heitinn var vel verki farinn. Leituðu því margir til hans bæði í sveitinni sem úr Hvolsvelli, hinum nýja kaupstað, sem vart var til, þegar Halldór byrjaði búskap fyrir 34 árum. Munu sveitungarnir því nú að leiðarlokum ábyggilega þakka margvíslega aðstoð og greiða- semi. Ég hefi raunar þekkt Hall- dór P. Jónsson frá blautu barns- beini, og það sem ég minnist líka í fari hans er léttlyndið, gam- ansemin, áreiðanleikinn og tryggðin til alls þess er hann hafði getað tileinkað sér. H. P., eins og hann stundum í gamni kallaði sjálfan sig, var í eðli sínu sannur sveitamaður, sem hafði mikið yndi af húsdýr- unum, mjög glöggur á fjármörk, og þvi manna bezt liðtækur í öllum skilaréttum, og var einn af sendimönnum Hvolhreppinga til fjárkaupa vestur í Barða- strandar- og ísafjarðarsýslur haustið 1953, þegar hin fágætu fjárskipti fóru fram árin 1953 og 1954. Halldór P. Jónsson var vel á sig kominn, með hærri mönnum á vöxt. Ég hygg að sóknarprest- ar og safnaðarfólk Stórólfshvols- sóknar muni geyma minningar um Halldór P. Jónsson frá þeim árum sem hann var meðhjálpari og hringjari við Stórólfshvols- kirkju. Þau störf sem og hjálp- semi hans við jarðarfarir leysti hann af hendi með hinni mestu háttprýði. Hann var kirkjuræk- inn og trúhneigður maður sem viðurkenndi þessi fögru orð sálmaskáldsins: f hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er allt vort stríð, hið minnsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár. Já, heill og heiður, Halldór okkar góður. Þú hjartans beztu óskum kvaddur sért. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafði þökk fyrir allt og allt. Halldóri er búinn legstaður í Stórólfshvolskirkjugarði, og fer jarðarför hans fram þar í dag, hinn 30. desember 1965. Blessuð sé minning Halldórs P. Jónssonar. Páli Björgvinsson. Flugeldar Bengalblys Jókerblys Stjörnuljós Fallhlífarblys Snákar Bengaleldspýtur . o. m. fl. í úrvali. Gott verð. Litahöllin Langholtsvegi 128 — Sími 34300. Aðstoðarstulka eða kona óskast til vinnu á morgnana kl. 9—12)- Upplýsingar á stofunni í dag kl. 13—14 (ekki í síma). NUDDSTOFA Jóns Ásgeirssonar, Ph. Th. Hótel Sögu. Almennur jólatrésfagnaður verður haldinn í LIDÓ miðvikudaginn 5. jan- kl. 3—6. — Forsala aðgöngumiða hefst í Lídó 3. jan. k. 2—4 . LIGELD AR ELDFLAUGAR HAIMDBLYS Rauð — Græn — Blá í JOKERBLYS REGNBOGABLYS RÓMÖNSKBLYS FALLHLÍFARBLYS BENGALBLYS STJÖRNUGOS TUNGLFLAUGAR STJÖRNURAKETTUR SKIPARAKETTUR JÖKER STJÖRNUÞEYTIR BENGAL ELDSPÝTUR rauðar - grænar STJÖRNULJÓS SÖLIR * VAX-ÚTIHANDBLYS, loga % tíma - VAX-GARÐBLYS, loga 2 tíma ----- HENTUG FYRIR UNGLINGA - VERZLUN 0. ELLINGSEN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.