Morgunblaðið - 30.12.1965, Side 23
Fimmtudagur 30, des. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Teksf Sovét
Framhald af bls. 1
ézkum ráðamönnum. Haldi Pek-
ingstjórnin þessari kröfu sinni
til streitu, en við því er
fastiega búizt, getur svo far-
ið að stjórn Ho Chi-Minh
verði að velja milli stórveldisins
við norðurlandamærin og Sovét-
ríkjanna, sem fjær liggja. Ráða-
menn í Kína hafa hins vegar
enga dul á það dregið, að þeir
muni krefjast þess, að styrjöldin
í Vietnam verði til lykta leidd
imeð sigri norðanmanna.
Sovétstjórnin virðist hins veg-
ar fylgjandi samningum, sem geti
í senn bundið enda á átökin og
leitt til bættrar sambúðar Sovét-
ríkjanna og Bandaríkjanna. Það
myndi m. a. hafa í för með sér,
að ráðamenn Sovétríkjanna gætu
einbeitt sér, meira en verið hef-
ur, að innanríkisvandamálum.
Hins vegar verða sovézku leið-
togarnir að taka tillit til gagn-
rýni Pekingstjórnarinnar, og
gæta þess, að ekki komi opinber-
lega fram, að þeir óski eftir frið-
samlegri lausn, með samningum,
þar eð þeir hafa þegar fordæmt
afstöðu Bandaríkjanna til mál-
efna Vietnam.
Þótt margt bendi, eins og áður
segir, til þess, að Sjelepin muni
mæla með samningum, þá gæti
för hans til N-Vietnam leitt til
slíks mats sendinefndarmanna á
ástandinu þar, að þeir sæju sér
ekki annað fært en auka hern-
aðaraðstoð sína. Loftvarnarvopn
hafa. að undanförnu verið send
til N-Vietnam frá Sovétríkjun-
um, en Pekingstjórnin telur, að
þau nægi hvergi nærri.
Stjómmálafréttaritarar e r u
þeirrar skoðunar, ef marka má
fregnir frá Hanoi að undanförnu,
að Ho Chi-Minh muni annað
hvort lýsa því yfir við Sjelepin,
að N-Vietnam þarfnist friðar,
eða hann muni fara fram á aukna
aðstoð.
Hver sem afstaða hans verður,
þá gefst sovézkum leiðtogum gott
tækifæri til að auka áhrif sín í
N-Vietnam, með því að bregðast
vel við óskum stjórnar landsins.
Slíkt yrði meiriháttar sigur í
þeirri baráttu, sem nú stendur
milli sovézkra og kínverskra
kommúnista.
— Mesta
'i'ramh. af bis. 1.
veitt lán samtals að upphæð kr.
74.758.000. Síðari lánveiting árs-
ins fór fram í október/desember
og nam hún samtals kr. 208.657.-
000. í lánveitingum þessum tókst,
eins og áður segir, að fulinægja
með öllu eftirspurn þeirri eftir
lánsfé til íbúðabygginga, er lög
heimila. Eldri hámarkslán, þ. e.
100, 150 og 200 þús. króna lán,
voru veitt lántakendum í einu
lagi en núgildandi hámarkslán,
þ. e. 280 þús. krónur, verður
veitt í tveim hlutum lögum sam-
kvæmt. Var fyrri hluti þess, 140
þús. krónur, greiddur nú en
sækja ber um síðari hluta þess
fyrir 1. marz nk. Fer sú veiting
væntanlega fram í maí/júní nk.
Auk veitingar hinna almennu
íbúðalána annast Húsnæðismála-
stjórn einnig veitingu lána til
sveitarfélaga til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis. Á árinu
var lánað til þess kr. 20.120.000.
Á árinu 1965 tók ný útlána-
reglugerð gildi. Eru meginatriði
hennar m. a. þau, að nú skulu
menn sækja um lán til stofnun-
arinnar áður en þeir hefja bygg-
ingu eða gera kaup á nýjum íbúð
um; þá eru þar ennfremur á-
kvæði um það, að hér eftir á 1—2
manna fjölskylda rétt á láni til
byggingar íbúðar, sem er allt að
70 ferm, 3—5 manna fjölskylda
rétt á láni til byggingar íbúðar,
sem er allt að 120 ferm, 6—8
manna fjölskylda rétt á láni til
byggingar íbúðar, sem er allt að
135 ferm. Ekki má veita lán til
byggingar stærri íbúða en 150
ferm. — Allt er þetta þó jafn-
framt háð öðrum atriðum út-
lánareglugerðarinnar og eru
væntanlegir umsækjendur því
beðnir að kynna sér hana ræki-
lega. .
— Þakkar páfa
Framhald af bls. 2-
fosfórvopnum. Hafi þeir ekki
skirrzt við að myrða konur og
börn, eyðilagt þorp og kirkjur,
sjúkrahús, skóla og akra.
Lýkur Ho Chi Minh orðum sín-
um með því að segja, að loftár-
ásir Bandaríkjamanna hafi mis-
tekizt og muni þær aldrei megna
að drepa niður baráttuvilja fólks-
ins í Vietnam.
DJÚP lægð var í gær um
800 km fyrir suðvestan land
á austurleið.
Olli hún stormi sunnan
lands og komst vindur á Stór
höfða i 15 vindstig. Nokkuð
einkum í Slcaftafellssýslu. —
Mjög hafði dregið úr frosti,
en ekki er gert ráð fyrir þíð-
viðri, heldur muni vindur fær-
ast aftur í norðaustri’ð og
snjóaði á suðurströndinni, kólna.
Samstarfsnefnd trygg ingafélaganna á fundinum með blaðamönnum
— Arekstrar
Framhald af bls. 24
þar af létust níu manneskjur, eins
og fyrr getur. En endanlegar töl-
ur liggja ekki fyrir það sem af
er þessu ári, þó er búizt við að
slysin verði ívið fleiri. Til þessa
dags hafa átta manneskjur látizt
í bifreiðaslysum á þessu ári. 1964
létust 27 manns á öllu landinu af
völdum umferðarslysa, en það
sem af er þessu ári hafa 24 látizt
í bifreiðaslysum.
Meðaltjón tryggingafélaga í á-
rekstri er tíu til tólf þúsund krón
ur.
‘— * —
Fréttamenn voru upplýstir um
það á fundi þessum, að hin mörgu
umferðarslys hér á landi gætu
ekki stafað af því að hér væru
fleiri bílar á hvern íbúa en í öðr-
um löndum. Var þeim bent á að
hér væri 1 bíll á hverja ð íbúa,
en í Bandaríkjunum væri bíll á
hverja 2% íbúa og færi allt hiður
í 1 bíl á lVz íbúa, eins og t.d. í
Los Angeles.
— ★ —
Einu gleðitíðindin sem komu
fram á fundinum voru þau, að
ekki er annað að sjá en heldur
hafi dregið úr ölvun við akstur.
Gat Egill Gestsson þess að al-
menningsálitið hefði tvímælalaust
þokað málinu til hagstæðari þró-
unar, og e.t.v. mætti einnig rekja
þetta að einhverju leyti til þess,
að 1. nóvember sl. voru sett að-
vörunarspjöld á bifreiðar fyrir
utan veitingahús, eins og áður
hefur verið skýrt frá í fréttum.
Ymsar aðrar ástæður koma vafa-
laust einnig til greina. Þá má
geta þess að ölvun við akstur er
aðeins talin eiga sök á 2%% bif-
reiðaslysa hér á landi 1964.
Árið 1964 voru 674 ökumenn
teknir ölvaðir við akstur, en frá
1. nóvember það ár til áramóta
voru þeir 194. Á sama tíma 1965,
þ.e. til þessa dags, hafa þeir ver-
ið 74. Alls hafa 527 bifreiðastjór-
ar verið teknir ölvaðir við akstur
það sem af er þessu ári. Virðist
því vera um hagstæða þróun að
ræða, sem ástæða er til að fagna.
— ★ —
Þá kom það einnig fram á
fundinum að 13% af bifreiðaslys-
unum ættu rætur að rekja til þess
að of lítið bil var á milli bíla, og
hefur sú prósenttala komizt upp
í 17 einn mánuðinn. í haust
hefði verið slegið það met að
fimm bílar hefðu lent í árekstri
samtímis, nú væri dæmi þess að
þeir hefðu verið sjö.
— ★ —
Ekki virðast vera fleiri slys
einn mánuð en annan, svo ekki
er hægt að kenna skammdeginu
um hin tíðu bifrei'ðaslys hér á
Boða til ráðstefnu
vegna umferðaslysa
Erindi samstarfsnefndar tryggingorféL-
agana vegna ráðstefnu um umferðarmál
HÉB á eftir fer erindi það sem samstarfsnefnd trygginga-
félaganna hefur sent frá sér í sambandi við væntanlega
ráðstefnu um umferðarmálin:
Undirrituð bifreiðatryggingafélög hafa, í samráði við
fulltrúa Umferðarnefndar Reykjavíkur, að undanförnu gert
nokkrar ráðstafanir, sem verða mættu til að hindra hin tíðu
og hörmulegu umferðarslys.
Sýnilegt er, að til að ná sem beztum árangri í þessum
málum, er þörf á samstilitu átaki margra aðila í stað þess
ástands, sem nú ríkir, að einstakir aðilar beiti sér fyrir meira
og minna óskipulögðum og einangruðum aðgerðum, sem þó
eru að sjálfsögðu virðingarverðar.
Ennfremur teljum vér nauðsynlegí að tryggja, að slíka
samstarfi verði haldið stöðugt áfram í framtíðinni, og þess
vegna sé nauðsynlegt að finna því fastan grundvöH.
Vér höfum því ákveðið að boða til og kosta ráðstefnu,
sem haldin verði fljótlega um þetta mál, ef nægileg þátttaka
og jákvæðar undirtektir fást.
Auk fulltrúa undirritaðra félaga, höfum vér gert ráð
fyrir, að ráðstefnuna sitji fulltrúar fyrir eftirtöld félög og
stofnanir: Ansvar International Ltd (Ábyrgð hf.), Bifreiða-
stjórafélagið Frama, Bindindisfélag ökumanna, Félag ísl.
bifreiðaeigenda, Félag sendibílstjóra, Félag sérleyfishafa,
Hagtryggingu hf., Klúbbinn „Öruggan akstur“, Landssam-
bands ísl. barnakennara, Landssambands vörubifreiðastjóra,
Rauða Kross íslands, Reykjavíkurborg, Samband ísl. sveitar-
félaga, Slysavarnafélag íslands, Tryggingamiðstöðina hf„
Vörubílstjórafélagið Þrótt, Æskulýðssamband íslands og
Ökukennarafélag Reykjavíkur.
Auk þess mun ýmsum opinberum aðilum, svo sem lög-
reglustjóra, bifreiðaeftirlitinu, fræðslumálastjóra, dómsmála-
ráðuneytinu o. fl. boðið að senda áheyrnarfulltrúa á ráð-
stefnuna.
Þess er fastlega vænzt, að þér ljáið þessu máli lið með
því að senda fulltrúa á ráðstefnuna, og biðjum vér yður að
tilkynna það til Baldvins Þ. Kristjánssonar, félagsmálafuli-
trúa í Samvinnutryggingum.
Gert er ráð fyrir, að hægt verði að halda ráðstefnuna
í Reykjavík 22.—23. janúar nk.
Fyrirhugað er, að ráðstefnunni verði skipt niður I um-
ræðunefndir, sem skili tillögum og áliti, sem ráðstefnan í
heild taki síðan til afgreiðslu. Er gert ráð fyrir eftirtöldum
nefndum:
SKIPULAGSNEFND
Verkefni:
Stofnun og skipulag samtaka gegn umferðarslysum.
FRAMKVÆMDANEFND
Verkefni:
Ráðstafanir, sem að gagni mega verða í baráttunni gegn
umferðarslysunum.
FJÁRHAGSNEFND
Verkefni:
Öflun nauðsynlegs fjármagns til reksturs samtakanna.
Undirrituð félög hafa allan vanda af undirbúningi ráð-
stefnunnar, og hafa kosið sérstaka framkvæmdanefnd, en
hana skipa Egill Gestsson (Vátryggingafélaginu hf.), Jón
Rafn Guðmundsson (Samvinnutryggingum) og Ölafur B.
Thors (Almennutn tryggingum hf.).
Æskilegt væri, að tillögum yðar eða ábendingum, sem að
notum mættu koraa, yrði komið á framfæri við einhvern
nefndarmannanna, og sérstaklega, ef þér telduð, að bjóða
ætti til ráðstefnunnar einhverjum þeim aðila, sem ekki hefur
verið minnzt á hér, þvi vér leggjum ríka áherzlu á, að til
þessa samstarfs sé stofnað á sem allra breiðustum grundvelli.
Vér vonum, að þér séuð oss sammála um nauðsyn þess-
arar ráðstefnu. Ef fulltrúar þeir, sem hana sækja, bera gæfu
til að standa saman um að leggja grundvöU að raunhæfum,
víðtækum og vel skipulögðum aðgerðum geign umferðarslys-
unum. teljum vér, að með því verði stigið stórt skref í átt tU
þjóðfélagslegra umbóta.
V irðingarf y Ilst.
Almennar tryggingar hf., Brunabótafélag íslands,
Samvinnutryggingar, Sjóvátryggingafélag íslands hf„
Trygging hf., Tryggingafélagið Heimir hf.,
Vátryggingafélagið hf., Verzlanatryggingar hf.
landi. Þó kom fram á fundinum,
að líklega væru árekstrarnir ívið
fleiri í skammdeginu, en slys
á fólki eða banaslys, jafnvel
fleiri suma aðra mánuði ársins.
Á fundinum voru loks bornar
fram nokkrar ábendingar um,
hvað hægt væri að gera til að
draga úr umferðarslysunum, og
rn.a. bent á að almenningsálit
gæti orðið hyað sterkasta vopn-
rð, en einnig yrði áreiðanlega
árangursríkt að hækka sektir
og þyngja hegningar fyrir ógæti
lega framkomu í umferðinni.
Á ö’ðrum stað í blaðinu i dag
er birt ávarp frá samstarfsnefnd
tryggingarfélaganna um fyrr
nefnda ráðstefnu. Þess má geta
að lokum að borgarstjórinn í
Reykjavík hefur skýrt nefndinni
frá því, að fyrirsvarsmenn borg
arinnar muni veita samtökunuua
alla þá aðstoð sem. unnt er.