Morgunblaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 11
Laugarffagur 8. janúar 1966
MORGUNBLAÐIÐ
11
Stórgjafir í
Heimildarsjóð
taugaveiklaðra
barna
Þórður Guðmundsson
Minningarorð
HEIMILISSJÓÐI taugaveilklaSra
barna hafa borizt höfðinglegar
gjafir. Gefnar voru kr. 20.342,10
til minningar um Guðrúnu Björns
dóttur ljósmóður frá Dýrafirði.
Gefandinn óskar, að nafn hans
ver'ði ekki getið.
Rétt fyirr jól barst Heimilis-
sjóði önnur gjöf, 60 þúsund kr.,
sem gefin var til minningar um
hjónin Þorstein Jóhannesson og
Lovísu Loftsdóttur og son þeirra
Svavar. Gefandinn óskar, að
nafn hans verði ekki getið.
Stjórn Heimilissjóðs þakkar
þessar stórmannlegu gjafir.
í Heimilissjóði eru nú nálega
11 hundruð þúsund krónur, sem
safnazt hafa af gjöfum einstakl
inga og framlögum Barnavernd
arfélags Reykjavíkur. Þess má
geta, að gjafir í Heimilissjóð
taugaveikláðra barna eru undan
þegnar skatti.
Gjaldkeri Heimilissjóðs er séra
Ingólfur Ástmarsson, biskupsrit-
ari.
(Frá stjórn Heimilissjóðs)
ÞANN 18. þ.m. andaðist í Hvíta-
bandinu Þórður Guðmundsson,
afgreiðslumaður, Hofsvallagötu
15 og fór útför hans fram frá
kapellunni 28. þ.m.
Þórður var fæddur 14. ágúst
1902 og voru foreldrar hans Guð-
mundur Guðmundsson, trésmið-
ur og Siguriaug Þórðardóttir,
Bjargarstíg 14. Þórður var frá
barnmörgu heimili og fór því
snemma að vinna og um 9 ára
fór hann sem léttadrengur að
Laufási til Þórhalls biskups og
mun hafa verið þar að mestu
leyti til 16 ára aldurs að hann
fór að Hvanneyri til Svövu Þór-
hallsdóttur og Halldórs Vilhjálms
sonar skólastjóra og þar var
hann til vorsins 1922, en það vor
útskrifast hann úr Bændaskólan-
um á Hvanneyri með mikilli
hlýju og þakklæti.
Um haustið 1922 fór Þórður
til Noregs og dvaldist þar við
búnaðarstörf í tvö ár. Oft minnt-
ist Þórður á veru sína í Noregi
og var mjög hlýtt til Norð-
manna.
Eftir heimkomuna var Þórður
við ýms störf hér í Reykjavík og
búnaðarstörf í Borgarfirði, Kjós-
inni og Kjalarnesinu og á Keld-
um í Mosfellssveit var hann í
nokkur ár, en þaðan fluttist hann
hingað 1931 og fór þá að vinna
hjá móðurbróður sínum, Valdi-
mar Jónssyni, sem þá var verk-
stjóri hjá Olíuverzlun Islands og
þar vann hann til hinztu stund-
ar, fyrst sem. verkamaður, en nú
um langt skeið sem afgreiðslu-
maður á olíustöðinni.
1933 kvæntist Þórður Stefaníu
Kristjánsdóttur frá Seli í Mikla-
holtshreppi á Snæjéllsnesi. Um
vorið 1940 varð Þórður fyrir
þeirri sorg að missa konu sína
snögglega frá tveim börnum,
Sigurlaugu kjördóttur 4 ára og
Kristjáni syni þeirra 2 ára. Það
var erfitt hjá Þórði fyrst eftir að
hann missti konuna að halda
heimilinu saman með stúlkum í
Bréfaskóli S.I.S. veröur nú
sameignarstofnun S.I.S. og A.S.I.
UM næstu áramót verður
breyting á rekstri Bréfaskóla
SÍS og ASÍ. Hefur reglugerð
fyrir sameignarstofnunni verið
lögð fyrir stjórnarfundi sam-
bandanna beggja, og hlotið
samþykki á báðum fundunum.
Á fundi með fréttamönnum
fyrir skömmu, þar sem viðstadd
ir voru forráðamenn Bréfaskól-
ans ásamt Hannibal Valdimars-
syni forseta ASÍ, skýrði Guð-
mundur Sveinsson skólastjóra
jBrófaskóIans frá því, að fyrr-
greind breyting væri í samræmi
við þá þróun sem orðið hefði
í nágrannalöndum okkar.
Nefndi hann sem dæmi Bréfa-
ckóla samvinnuhreyfingarinnar
í Svíþjóð, sem varð fyrst Norð-
urlanda til þess að stofna bréfa-
ekóla, eða strax um aldamótin,
er hefði verið mjög öflug stofn-
un. Árið 1919 hefði Samvinnu-
hreyfingin hvatt til þess að
fleiri alþýðuhreyfingar tækju
þátt f skólanum. Nokkru síðar
hefði tillaga þessi verið sam-
þykkt á alþýðuþingi, og sú skoð
un verði ríkjandi að auka ætti
og efla alþýðumenntun. í því
skyni hefði verið komið á sam-
tökum er stuðla skyldu að þessu
og væri Bréfaskólinn nú áhrifa-
mikil stofnun í Sviþjóð, sem
reyndi að gefa nemendum
eínum kost á sem fjölbreyttustu
elmennri menntun. Nokkru síð-
ar hefði þessi sama þróun orðið
á Noregi.
Þá gerði Erlendur Einarsson
að starfrækja menntastofnun,
sem orðið gæti áhrifamikill að-
ili að íslenzkri alþýðumenntun,
sem styðja ætti samböndin bæði
í sameiginlegri baráttu þeirra
fyrir aukinni þjóðmenningu.
í reglugerð segði, að Bréfa-
skóli SÍS og ASÍ ætti að veita
aðstöðu til menntunar og
fræðslu með bréfakennslu eða á
annan hátt, sem æskilegur
þætti. Aðaláherzla hvíldi á fé-
lagslegri og hagrænni fræðslu um
atvinnulíf Islendinga og hag
nýtri menntun í tengslum við
það, og á almennri menntun.
Skyldi öll kennsla skólans vera
Ihlutlaus, hvað snertir trúmál og
stjórnmál. Ennfremur segið í
reglugerðinni, að enda þótt
forstjóri SÍS, grein fyrir tilgangi
skólans með myndun sameign-
arstofnunarinnar. Væri hann sá
skólinn væri nú sameignarstofn-
un verkalýðshreyfingarinnar og
samvinnuhreyfingarinnar, væri
heimilt að veita öðrum samtök-
um á íslandi aðild að rekstri
skólans, en þau samtök skyldu
vera lýðræðisleg og í þágu al-
mennings. Samkvæmt reglugerð
inni væri bréfaskólanum nú
stjórnað af þriggja manna fram
kvæmdanefnd og ættu í henni
sæti, þeir Erlendur Einarsson
forstjóri SÍS, Hannibal Valdi-
marsson forseti ASÍ og loks
Guðmundur Sveinsson, skóla-
stjóri.
Erlendur sagði ennfremur, að
í samræmi við Bréfaskóla SÍS
og ASf svo og yfirlýstan vilja
forráðamanna menntastofnunar-
innar hefði verið hafizt handa
um útgáfu nýrra kennslubréfa-
flokka. Yrði aukningin fyrst og
fremst fólgin í þrennu, þ.e.a.s.
framlagi verkalýðshreyfingarinn
ar, framlagi samvinnuhreyfing-
arinnar, og almennt fræðslu- og
námsefni yrði samið og kennt,
í samstarfi við ýmsa aðila, sam-
tök og einstaklinga. Hvað varð-
aði framlag verkalýðshreyfing-
arinnar, þá myndi ASÍ hið
fyrsta láta semja kennslubréfa-
flokka í fjórum greinum: Hag-
ræðingu, bókhaldi verkalýðsfé-
laga, vinnulöggjöfinni og sögu
verkalýðshreyfingarinnar, þá
sagði Erlendur, að SÍS undir-
byggi nú námskeið fyrir starfs-
fólk samvinnusamtakanna, og er
snertu starfsemi þess. Yrði skól-
inn látinn gefa út kennslubréfa-
ffokka, er hagnýta mætti á
þeim námskeiðum. Væru eftir-
farandi flokkar áformaðir: kjör-
búðin, búðarstörf í samvinnu-
verzlunum, deildarstjórn, vanda
mál vörurýrnunar, og verk-
stjórn í frystihúsum. Auk þess
myndu samvinnusamtökin láta
semja hið fyrsta kennslubréfa-
flokka um sögu samvinnuhreyf-
ingarinnar á íslandi og mann-
leg samskipti.
Þá skýrði Erlendur frá því,
að til viðbótar við hið sérstaka
framlag samvinnuhreyfingar-
innar og verkalýðshreyfingar-
innar, hefði verið brotið upp á
ýmsum nýmælum öðrum í starf-
og kona nokkur, ritstjóri „II
semi skólans og mætti þar sér-
staklega nefna: aðstoð við fjöl-
menn heildarsamtök, aðstoð við
fræðslumálastjórnina, aðstoð við
starfshópa og loks gripið á þjóð-
félagsvandamálum og boðinn
fram stuðningur til úrbóta.
Tveimur fjölmennum heildar
samtökum, U.M.S.Í. og Kven-
félagasambandi íslands, hefði
verið gefinn kostur á að fá
gefna út kennslubréfaflokka, er
gæti orðið þeim til ávinnings,
og fræðslumálastjóra, Helga
Elíassyni, hefði verið greint frá
vilja forráðamanna bréfaskól-
ans, að hann yrði felldur að
nokkru inn í hið almenna
fræðslukerfi, líkt og tíðkaðist er
lendis, til uppfyllings og aðstoð-
ar. Hefði orðið að samkomulagi
að athuga þetta fyrirkomulag
gaumgæfilega í þeim löndum
þar sem reynsla væri fengin af
slíku. Varðandi aðstoð við á-
kveðna starfshópa, kvað Erlend-
ur forráðamenn skólans hafa
tekið vel beiðnum, sem borizt
hefðu, og t.d. væru bankamenn
meðal þeirra, er hefðu komið
slíkri beiðni á framfæri. Um
síðastnefnda nýmælið í starf-
semi skólans, eða hvað varðaði
þjóðfélagsvandamál og sköpun
samstöðu til úrbóta, sagði Er-
lendur, að forráðamenn bréfa
skólans litu á það sem mikil-
vægan þátt í starfsemi mennta-
stofnunarinnar að ljá lið til úr-
lausnar aðkallandi þjóðfélags-
vandamálum, og hefði athyglin
fyrst og fremst beinzt að tveim-
ur verkefnum, sem væru: bif-
reiðin og samskipti manna við
hana, og öryggis og tryggingar-
mál, en áformað væri að gefa
út sem fyrst kennslubréfaflokk,
sem þeim væru tengdir.
Loks gat Erlendur þess, að
Bréfaskóli SÍS hefði nú verið
starfræktur í 25 ár, en hann
hefði tekið til starfa í október-
mánuði 1940. Á þessum 25 árum
hefðu nemendur skólans alls
15.040, en skólastjórastörfum við
skólann á þessum árum hefði
gengt fjórir menn, þeir Ragnar
Ólafsson lögfræðingur, Jón
Magnússon, fréttastjóri útvarps
ins. Vilhjálmur Árnason, lög-
fræðingur, og Guðmundur
Sveinsson. Nemendur skólans
nú væru sem næst 1150, en kenn
arar 18 að tölu. Kennslubréfa-
flokkarnir eru 30 að tölu. Um-
sjón og daglegan rekstur skól-
ans annast Jóhann Bjarnason.
stuttan tíma í einu, en eftir rúmt
ár var hann svo heppinn, að
til hans réðst ágæt stúlka, Unn-
ur Oddsdóttir og tók við heim-
ilinu og reyndist hún börnum
hans sem bezta móðir og ekki
sízt dótturinni, sem þurft hefur
mikla nærgætni. Síðan hafa þau
búið saman og eiga 19 ára son,
Odd að nafni.
Unnur hefur reynzt Þórði góð-
ur förnunautur og ekki sízt nú
í hans löngu og erfiðu veikind-
um og miklu þjáningum, sem
hann hefur orðið að þola. Fyrir
það allt þakka systkini Þórðar
Unni nú af alhug.
Það var mikil gleði fyrir Þórð
að sjá syni sína kvænast góðum
konum og eignast góð heimili og
hafa þá ánægju að njóta litlu
sonarbarnanna, því hann var
barngóður og hafði gaman af
börnum.
Nú þegar Þórður er horfinn af
sjónarsviðinu minnist ég margra
ánægjulegra stunda, sem ég hef
átt með honum í um 35 ár og
allan þann tíma hefur aldrei fall-
ið skuggi á þann kunningsskap.
Þórður var ákaflega vandaður
maður í orði og verki og allt sem
hann sagði og gerði stóð eins og
stafur á bók, og svo hjálpsam-
ur að hann vildi öllum gott gera.
Svo góður sonur var Þórður
að meðan foreldrar hans voru
á lífi fór hann aldrei heim frá
vinnu án þess að koma við heima
hjá þeim. Systkinum sínum var
hann mikill og góður bróðir og
börnum þeirra góður frændi.
Nú þegar Þórður er allur færi
ég og fjölskylda mín honum
hugheilar þakkir fyrir allar sam
verustundirnar.
Unni, börnum og tengdadætr-
um Þórðar sendi ég og fjöl-
skylda mín innilegar samúðar-
kveðjur.
Cuðjón E. Long.
12 mílna land-
helgi við
IM-Sjáland
Auckland, 29. desember
— AP
Flugher Nýja-Sjálands og
sjóher mun framvegis gæta
þess, að haldin verði lög um
nýja, 12 mílna fiskveiðilög-
sögu við strendur landsins.
Ganga þau í gildi um áramót-
in.
Flotamálaráðherra landsins,
William Scott, sagði í dag,
að brátt yrðu birtar niður-
stöður samningaviðræðna,
sem nú standa yfir í Well-
ington, við fulltrúa japönsku
stjórnarinnar. Hún hefur lát-
ið að því liggja, að leitað
verði til Alþjóðadómstólsins,
vegna nýju löggjafarinnar í
Nýja -Sjálandi.
i
IHarcos boðar
breytingar á
utanrikisstefnii
Manila, 30. desember - NTB.
FERDINANT E. Marcos sór í dng
eið sinn sem forseti Filippseyja.
í ræðu, sem hann flutti við það
tækifæri, boðaði hann að ýmsar
breytingar væru í vændum. á
stefnu landsinis í utanrikismálum,
einkum að því er varðaði Mala-
ysíu og Vietnam.
Marcos, sem er 48 ára lög-
fræðingur, áður kunnur sem
stríðshetja á Filippseyjum, sagði
meðal annars, að Filippseyingar
yrðu að horfast í augu við heim,
þar sem ríki Asíu og Afríku yrðu
æ áhrifaríkari. „í dag verðum við
að beina augum okkar að Asíu í
meiri mæli en áður“ sagði hann
og bætti því við, að ógnun við
friðinn í einhverjum hluta SA-
Asíu væri ógnun við líf hvers
einasta íbúa þess hluta heimsins.
IMinning:
• •
Ossur
Sigurvinsson
F.: 23. 8. 1929. — D.: 23. 6. 1965.
Það hljóðnuðu allir við
harmafregn.
Helköld er dauðans mund.
Náfingra milli þó glitti í gegn
glæta vonar um stund.
Er blómin og grösin blíðlega
strauk,
blærinn um hásumartið,
hann barðist af alefli unz yfir
lauk.
Það var ellefu daga stríð.
Honum, sem mitt í starfi stóð
var steypt inn í dauðans vé.
Því finnst okkur missa fámenn
þjóð,
er fellur svo mikið tré.
Hver á að búa að börnum hans,
sem bæði eru mörg og smá?
Hver getur konu huggað þessa
manns
sem hverfur svo snögglega frá?
Þögnuð er röddin hressileg hér.
Hrein var hans glaða lund.
Hljóðnaður bjarti hláturinn er,
horfin vinnufús mund.
Hann, sem ímynd hreystinnar var
og hýr eins og morgunskin.
Mér finnst líkt og missti ég þar
mætan bróður og vin.
Þeir, sem hann nú harma mest
og héldu um deyjandi mund.
Finnst nú hafi sólin sezt
við síðasta ástvinafund.
Víst eru margir vinir hans,
sem vilja ei trúa því,
að lokið sé ævi hins mæta manns
miðju lífsstarfi í.
Drottinn gaf og Drottinn tók
að dæma er lika hans.
Letruð stendur í lífsins bók
lífssaga göfugs manns.
Því eins og sólin aftur skín
að endurfundurinn er vís.
Nú byggir hann fyrir börnin si»
og brúði í Paradís.
G. J.