Morgunblaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.01.1966, Blaðsíða 17
Laugardagur 8. janflar 1966 MORGUNBLAÐIÐ 17 huuert Humphrey, varaforseti Bandaríkjanna, er þarna á tali við forseta Fiiippseyja, Ferdinand Marcos, eftir embættistöku forsetans skömmu fyrir áramót. Við þetta tækifæri bar forset- inn viðhafnarklæðnað þeirra Filippseyinga, hvíta skyrtu, skart- saumaða er kallast Barong Tagalog. Jacqueline Kennedy hélt með börn sin til Sun Valley í Idaho um áramótin og stundaði skíðaíþróttina af kappi. Þarna sést hún í skíðalyftu á leið upp á tindinn. Sex sem við sögu koma í Víetnam-málini. nú: Arthur Gold- þerg, aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ, Hubert Humphrey, varaforseti Bandaríkjanna, Ho Chi Minh, forseti N-Víetnam, ráll páfi VI, U Thant, aðalritari SÞ, og Averell Harriman, sérlegur sendimaður Bandaríkjaforseta. MYNDIR Nýársmynd frá S-Víetnam: Konur og börn leita skjóls í forugum skurði undan skothrið skæru- liða Víet Kong, sem beint er að bandarískum fallhlífarhermönnum lengra burtu. Átök þessi urðu í Ben Trai-héraðinu vestan Saigon, þar sem Víet Kong eiga mikil ítök. Þarna sökk Sea Gem. Fremst á myndinni sér í eina af tíu stoðum þeim er héldu uppi olíuleitar- stöðinni Sea Gem í Norðursjó, sem hvarf í hafið 27. desember og tók með sér í djúpið átta menn, en fimm aðrir biðu einnig bana. Nítján þeirra sem við stöðina störfuðu komust lífs af, en eru enn í sjúkrahúsi. í baksýn sést birgðaskip olíufélagsins (BP), sem hélt vörð um staðinn. í skemmtigarði einum í Bern í Svisslandi stendur þessi fornaldarófreskja, skorin í tré, börnum og fullorðnum til eftirtektar og ánægjuauka. Svissneskir tréskurðarmenn eru margir dverghagir og smíðagripir þeirra afla Svisslendingum töluverðra gjaldeyristekna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.