Morgunblaðið - 14.01.1966, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.01.1966, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FSstudagur 14. janúar 1963 Rafvirkjar Rafmagnsheildverzlun óskar að ráða raf virkja til starfa nú þegar. Gott kaiF Tilboð sendist afgr. Mbk merkt: „Rafvirki — 8087“. C3MUR NÝJASTA TÍZKA í KJÓLASKRAUTI ERU STRÚTSFJAÐRIR MARGIR LITIR. Hjá Báru Austurstræti 14. FLVGLAR Af sérstökum ástæðum er til afgreiðslu nú þegar frá verksmiðju C. Bechstein flygill Hnota, „opengrain” stærðin er 165 cm. Venjulegur afgreiðslutími er ''nnars 15 mánuðir. Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur Vesturveri — Sími 11315. Skrifstofustörf Viljum ráða fólk til skrifstofustarfa. Vant fólk (karlar eða konur) situr fyrir. Þægi- legur vinnutími og góð kjör. Verzlunar- skólamenntun eða hliðstæð menntun áskilin. Upplýsingar í síma 14994 hjá skrifstofustjóra. Takið eftir Höfum opnað verzlun með varahluti í rafkerfi bifreiða að Hverfisgötu 108 (Horninu Hverfisgötu, Snorrabraut). Höfum nú þegar fyrirliggjandi m. a.: Dínamóa Startara Anker 6—12—24 volt Spólur Bendixa Segulrofa Blikkara Kol Fóðringar og margt fleira. Sendum gegn póstkröfu. Bílaraf sf. Verzlunin Hveríisgcitu 108 Sími 2-19-20 Verkstæðið Rauðarárstíg 25 Sími 2-47-00. Utsala í DAG HEFST ÚTSALA á allskonar kventöskum Stendur aðeins í nokkra daga. Notið tækifærið og komið meðan úrvalið er mest. Töskubúðm Laugavegi 73 — Sími 15755. Kaupfélag vestanlsiids vill ráða einhleypan mann til að annast vöruinnkaup, verðlagningu o. íl. — Upplýsingar gefur Starfs- mannahald S.Í.S., Sambandshúsinu. Sölumaður Iðnaðar- og heildsölufyrrtæki vill ráða sölumann með verzlunar- og vöruþekkingu á vefnaðar- og fatnaðarvörum. — í>eir sem hafa hug á þessu starfi sendi nafn og heimilisfang með uppl. um menntun, aldur og fyrri störf til afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Framtíðarstaða — 8250“. Til sölu á Akranesi! Húspignin Vogabraut 24. Upplýsingar í síma 1669. Jarðnæði skammt frá Reykjavík, til leigu. Stórt tún, góð hús, bæði fyrir menri og skepnur. Heitt vatn úr jörðu. Möguleikar til margskonar búskapar. Nokkur vélakostur gæti fylgt og ef til vill nokkrar kýr. Forvitni frábiðst. En þeir sem í alvöru hefðu hug á þessu leggi tilboð inn á afgr. Morgunblaðsins sem fyrst, merkt: „Jarðnæði — 8228“. IMælonskyrtur Á meðan birgðir endast seljum við Vestur- þýzkar PRJÓNANÆLONSKYRTUR í drengja og herrastærðum á mikið lækkuðu verði. Aðeins 1 litur ljósdrappaður pastellitur. Verð kr. 98.— Miklatorgi — Lækjargötu 4. Skrifstofustúlka óskast nú þegar. Skipaútgerð ríkisins Guðrún Jensdóttir kennari frá Hnífsdal F. 6./3. 1896. D. 7./12. 1965 Guðrún var Vestfirðingur, hreinræktaður Vestfirðingur. —- Þar sem ættir eru göfugastar og konurnar fegurstar. Við Guðrún vórum góðir vin- ir í liðlega 40 ár, eða síðan hún lenti á handavinnunámskeiði fyrir kennara, sem jeg hjelt 1923 í Reykjavík. — Guðrún sleppti engu tækifæri, sem bauðst, ef um aukna fræðslu í starfi var að ræða. — Guðrún var alltaf að læra, held helzt, að hún hafi verið að læra til hinztu stundar. Enda ágætlega vel að sjer, óhætt að segja í öllum greinum, eins og vinkona hennar ljet svo vel og maklega um mælt í blaðagrein á jarðar- farardegi hennar. Og nú er hér á ferð önnur vinkona, sem langar til að minn- ast nokkuð þessarar merku konu, sem búin var að starfa landi og lýð til heilla um 50 ára skeið. — Og þar var ekki kast- að til höndum, ekki slegið slöku við, ekki .taldir timarnir. Eins og að framan greinir, leitaði Guðrún sjer menntunar á breiðum grundvelli, svo hún yrði sem færust til hvers konar fræðslu. — Eitt sumar stundaði hún garðyrkjunám á Knarar- bergi í Eyjarfirði, undir leið- sögn Guðrúnar Björnsdóttur, garðyrkjukonu. — Varð það henni síðar að góðu gagni, ásamt öðru námi við matreiðslu kennslu og matreiðslu matjurta, Eftir margra ára barna- kennslu, víðsvegar um land, helgaði Guðrún matreiðslu- kennslunni krafta sína, eftir að hafa aflað sjer menntunar í þeim fræðum í beztu skólum erlendis. — Þetta starf stundaði hún áratugum saman, með hinni mestu prýði. Fyrst og fremst á þrem hús- mæðraskólum: Hallormsstað, Reykjavík og Staðarfelli, eu stundaði einnig umferðakennslu fyrir Kvenfjelagasamband ís- lands víðsvegar um land. — Fræðslu Guðrúnar kynntist jeg vel og met hana mjög mikils. — Kennslan var stunduð af árvekni og brennandi áhuga, mikilli kunnáttu og leikni. — Ég sagði stundum við Guðrúnu, bæði í gamni og alvöru, að hún væri bezti matreiðslukennari landsins, og mjer er nær að halda að jeg þori að standa við það. Guðrún var hraustbyggð öll ár, þoldi vel ferðalög og flæk- ing milli staða, en hún átti alltaf fastan punkt: Faxaskjól 16 í Reykjavík, þar taldi húh sjer jafnan heimili, og þar hjelt hún sig milli þátta. — Hefur ef- laust átt þar vini, þá átti hún marga og víða, manneskjan var vinsæl með afbrigðum. — Það hugsa margir hlýtt til hennar nú við lokin. — Þær gleymdu henni ekki konurnar í Dala- sýslu, þegar hún hætti störfum á Staðarfelli, en buðu henni til sín að njóta hvíldar og hress- ingar. Guðrún var tryggur vinur, merkur persónuleiki. Njóttu heil handa, vinkona. Blönduósi 7. janúar 1966 Halldóra Bjarnadóttir Frankfurt, 12. jan. AP. • Robert Mulka, sem sl. haust var dæmdur í 14 áfa fangelsi fyrir þátttöku í af- töku a.m.k. 2.800 gyðinga í Auschwitz fangabúðunum, hefur verið látinn laus úr fang elsi vegna heilsubrests, að því er v-þýzk yfirvöld skýrðu frá í dag. Mulka er nú sjötugur að aldri og svo farinn að heilsu, að ekki er talið rétt að halda honum í fangavist. Verður honum því leyft að snúa til heimilis síns í Ham- borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.