Morgunblaðið - 25.01.1966, Side 11

Morgunblaðið - 25.01.1966, Side 11
1 Þriðjudagur 25. janúar 196W MORGU NBLAÐIÐ 11 Úr Mývatnssveit Björk, Mývatnssveit, 11. jan.: VIÐ höfum nýlega kvatt gott og gjöfult ár og heilsað öðru. Enginn veit hvað það ber í skauti sínu. Hér setti niður allmikinn snjó eftir 20. nóvember, varð þá nokkuð þungfært á vegum. Um miðjan desember gerði hláku- blota, og voru þá vegir líka skafnir. Um jólin og áramótin gerði frosthörkur, sumsstaðar komst frostið í 20 stig. Furðu lítið iann maður fyrir þessu frosti,vegna þess hvað ve’ður var þá oftast stillt. Úrkoma var sama og engin, og hér í sveitum mátti færð heita gó'ð á aðalvegum. í Keykjadal og á Mývatnsheiði var aftur á móti meiri snjór og þá jafnvel ófært bílum nema með drifi á öllum hjólum, svo og snjó- bílum. Er nýi snóbíllinn, sem er í umsjá héraðslæknisins á Brei'ðamýri þegar búinn að sanna ágæti sitt. Á milli jóla og nýjárs sótti hann sjúkling hingað í Mý- vatnssveit. Er almenn ánægja með þetta farartæki til sjúkra- flutninga og skapar mikið ör- yggi, þegar verst gegnir. Eiga forgöngumenn þessara bílakaupa þakkir skilið fyrir framtak sitt. Eftir áramótin flutti Tryggvi Heigason, flugmaður, milli 20—30 farþega héðan af flugvellinum hjá Reykjahlíð til Akureyrar. Var það skólafólk, sem heima var í jólafríi, svo og áðrir er heima dvöldu hjá sér um jólin. Dægrastyttingar um jólin Svo sem venja er til reyndu menn að gera sitthvað til dægra- styttingar um jólin. Messað var í báðum kirkjum. Komið var snemma til mannfagn aðar í félagsheimilinu. Haldin var jólatrésskemmtun fyrir börn. Sumir komu saman í heimahús- um og glöddust í góðra vina hópi, og sungu jólasálma. Miki'ð barst af blöðum og bók- um fyrir þessi jól. Margir höfðu ærið verkefni og skemmtun góða við lestur. tJtvarpstruflanir miklar Ekki má gleyma blessuðu út- varpinu, allir vilja hlusta á það, ungir og aldnir. Verst er að þreyt andi er áð hlusta, þegar erlendu stöðvarnar yfirgnæfa algjörlega. Ekki er að undra þótt menn spyrji hvað lengi eigi svo að ganga. Nú er það svo að við hlustum a’ðallega á endurvarpsstöðina við Skjaldarvík. Það er ágætt á dag- inn, en á kvöldin koma trufl- anirnar. Sumir reyna þá að hlusta beint frá Reykjavík. Ég tók eftir því þegar nýi endur- varpssendirinn var tekinn í notk kun, þá virtist mér truflanir aukast að miklum mun, þegar hlustað er beint frá Reykjavík. Væri fróðlegt ef sérfræðingar vildu kynna sér þetta og skýra þessar truflanir og osakir. Sem sagt: ástandið í þessum málum er alveg óþolandi, og ver’ður von andi ráðin bót á því sem fyrst. Hávellan syngur á þrettáanda Hér við Mývatn eru á vetuna íslaus svæði. Að vísu fer það eftir veðurfari hvað vfðáttumikil þau eru. Hér er aðallega um að ræða boga og víkur við austan- vert vatnið, þar sem heitar og kaldar uppsprettur koma undan hrauninu. Á þessum íslausu vog- um halda fjölmargar fuglateg- undir til allan veturinn. í gó’ðviðr inu undanfarna daga hefur fugl- inn unað glaður við sitt. Á þrettándanum máti heyra hinn fegursta fuglasöng sem á vor- degi. Þar var hávellan að syngja út jólin. Má þar til tíðinda telja að heyra hávelluna syngja hér á Mývatni á þessum tíma árs. Kísilgúrverksmiðjan í lesember var loki’ð við að gera fokhelda byggingu á grunni væntanlegrar kísilgúrverksmiðju. Nú er vinna á ný hafin við þessa byggingu, verið er að leggja mið stöð. Þá verður fari’ð að setja ein angrun og múrhúða. Ætlunin er að taka þetta hús í notkun á komandi vori. Enn á að fara taka hér leirsýnihorn í tunnur og senda til Ameríku. Verður tekið úr þró þeirri, er dælt var í síðast- liðið haust. Það sem sent var vestur í haust þótti víst of vatns blandið til fullnaðarrannsóknar. ★ Síðastliðinn laugardag fór fram á Brei’ðumýri í Reykjadal keppni milli Þingeyinga og Eyfirðinga í spurningaþætti ríkisútvarpsins „Sýslurnar svara“. Var húsið svo troðfullt að vart hefur annað eins sézt, og fagn- aðarlæti áhorfenda takmarka- laus. Ásrún Árnadóttir frá Garði Hér hafa orði tvö mannslát með stuttu millibili. Þann 8. þ.m. andaðist á sjúkra- húsinu á Húsavík, Ásrún Árna- dóttir frá Garði hér í sveit, á 82. aldursári. Ásrún var flutt á sjúkrahús skömmu fyrir jól. Var hún áður' búin að liggja heima nokkurn tíma. Hin síðari ár var Ásrún búin að eiga við vanheilsu að stríða og mjög þrotin að líkamskröftum. Ásrún var fædd í Garði 7. júlí 1884. Foreldrar hennar voru Árni Jónsson bóndi þar og Guðbjörg Stefánsdóttir. Hún var alsystir Þuru í Garði skáldkonu, sem látin er fyrir nokkrum árum, og þeirra syst- kina. Ásrún var búin að vera ráðs- kona hjá Valdemar Halldórssyni á Kálfaströnd um 30 ára skeið. Var Kálfaströnd orðin henni mjög kær staður, enda skammt frá æskustöðvunum. Gat hún séð þangað heim yfir sundið hvenær sem hana langaði til. Síðustu dagana áður en hún var flutt burtu úr sveitinni sinni, fékk hún að liggja heima í Garði. Ásrún var mjög vel greind og hafði sérstaka frásagnarhæfi- leika. Hún var margfróð og ‘minnug, enda las hún mikið. Hún var hjálpsöm og greiðvikin, og átti marga vini víða. Þakkir séu henni fyrir margar ánægjulegar stundir og alla góðvild á liðnum árum. Jón Jóhannesson á Geiteyjarströnd Jón Jóhannesson á Geiteyjar- strönd andaðist á sjúkrahúsinu á Húsavík 10. þ.m. á 82. aldursári. Hann var fluttur á Geiteyjar- 12. febrúar 1884. Foreldrar hans voru Jóhannes Jóhannesson og Guðrún Jóhannesdóttir. Jón hef- ur átt heima á Geiteyjarströnd alla tíð og búið með bræðrurft sínum, Sigurði og Jóhannesi fjöl- mörg ár. Hin síðari ár hafa þeir bræðurnir ekki haft neina ráðs- konu. Hefur því komið í hlut Jóns öðrum fremur að annast innanhússtörf. Óhætt er að segja að honum hafi farizt þau störf vel úr hendi, enda var hann verk máður góður og kappsamur, ef því var að skipta. Hann var gamansamur og hafði alltaf spaugsyrði á vörum í við- ræðum. Furðu vel mundi hann glögglega löngu Ifðinn tíma fram undir það síðasta. Ákaflega voru þeir bræður allir samrýmdir og samtaka. Þakkir séu Jóni Jóhannessyni fyrir liðnar samverustundir. Kristján Þórhallson. (iJorciJ) UMBDfllfl Gelum nú boðlð Ivær geröir vörubd« frá hinum þekktu FORD verksmlðjum I Englandl. D - geröln er algiörlega nýr frambyggöur vörublll meö mjög þægllegu og fuHkomnu VELTIHÚSI. MeO allrl slnnl framleiOslutæknl og þekklngu voru FORD verksmlöjurnar rúm 4 ár aO fullkomna og þrautreyna bll þennan áöur en sala var HelmlluO. K - gerOin er endurbsetfur hlnn vel þekktl Thames Trader vörublll, sem ekkl þarf aO kynna Islenzkum vörubllstjörum. Fáanlegir fyrlr buröarmagn á grind Irá i tll g smálestir - 3 geröir dieselvéla f jögurra og sex sfrokka « Vökvastýrl • Vélhemill - Einfalt eOa tvöfalt drif - Fjögurra eOa flmm glra glrkassar ■ Tvöfalt vökva-lofthemlakerfl. Komiö og kynnist fullkomnum vörubllum á hagslæðu verOI HR. KRISTJÁNSSDN H.F. SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00 IRAUSHR K tD-GERÐ 4 jl Honda raístölvar MODEL-40 220 volt 40 vött MODEL-300 220 volt 250 vött og 12 volt — 8 amper Þyngd: 18.5 kg. Verð kr. 10.600. Rafstöðin er drifin með 4 gengis benzínvél og eyðir 2 íítrum á 5 klst. Rafstöðin er tilvalin fyrir rafknúin smáverkfæri t. d. sagir, bora, rúnings- klippur og til ljósa á vinnustöðum, sum arbústöðum, bátum o. s. frv. Model-300 er til á lager-Kynnið yður HONI>A-færanlegar rafstöðvar. HONDA-umboðið GUNNAR BERNHARD Laugaveei 168 — Sími 38772.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.