Morgunblaðið - 17.02.1966, Page 10
10
■Fimmtudagur 17. febrúar 1966
MORGUNBLAÐIÐ
Kennslan í Iðnskdlanum
geysimkil og margþætt
Kennt i skólahúsinu frá kl. 8 - 23 dag hvern
Rætt við Þór Sandholt,
skólastjóra
MEB aukinni iðnþróun skipa iðn-
aðarmenn sífellt meira rúm í
verkefnum þjóðfélagsins, hér á
íslandi sem annars staðar. Ef
komið er í Iðnskólann í Reykja-
vík gerir maður sér það kannski
enn ljósara hvílíkt bákn iðn-
íræðslan er orðin og hve hratt
I»ór Sandhlt, skólastjóri.
vaxandi sá fjöldi er, sem þarf á
iðnnámi að halda. Það sem af er
vetri hafa 1957 nemendur verið
skráðir þar til náms og á sú tala
eflaust eftir að komast upp í
2000—2100, áður en námsárið er
liðið. En þeir, sem stunduðu þar
ur, ef próftími er meðtalinn. Á
10 vikna fresti tökum við því
nýja nemendur til náms, og út-
skrifum aðra. Þá skipum við í
allar bekkjardeildir upp á nýtt.
Kennt er 1 húsinu frá kl. 8 á
morgnana til kl. 8.40 á kvöldin
og sérnámskeið standa jafnvel
lengur fram eftir. Ekkert má rek-
ast á. Hver kennari þarf að hafa
sem samfelldasta stundarskrá, en
stundakennarar eru núna 25 tals-
ins, fyrir utan þá sem kenna á
námskeiðum og í meistaraskóla.
Og nemendur þurfa að komast
að í verklegt nám, stundum í fá-
mennum hópum, eins og t.d.
prentnemarnir, sem aðeins kom-
ast 5 í einu að prentvélunum og
7 í setjarasal. Og fleira þarf að
samræma. Svo það er ekki að
furða þó ykkur finnist töflurnar
okkar flóknar. >að er líka flókið
mál að setja þær saman.
— >að veldur okkur talsverð-
um erfiðleikum á hve misjöfnu
menntunarstigi nemendur eru,
bætir >ór við. — >eir eiga að
hafa miðskólapróf, áður en iþeir
koma til okkar. En svo er okkur
leyft að taka inn aðra, sem að-
eins hafa lokið skyldunámi, ef
þeir ganga undir sérstakt inn-
tökupróf í reikningi og íslenzku.
En það reynist verða fullur helm
ingur nemenda, sem er undir
hinni almennu menntunarkröfu
og verður að ganga undir slík
Úr bakaríinu í Iðnskólanum, þar
verklegt nám.
orðið sé eins mikið um verklega
kennslu og frekast sé hægt að
koma fyrir í skólahúsinu. Og
samt sé allt slíkt nám í ófull-
nægjandi húsnæði. Nú séu rak-
ara- og hárgreiðslunemar að fá
sérstakt húsnæði fyrir verklega
kennslu, þar sem Iðnaðarmála-
stofnunin var til húsa. Við stöldr
um því við, og fáum að vita
hvernig húsnæðismálum skólans
sé háttað, áður en við höldum
lengra.
— >etta skólahús var byggt
upp úr 1940 og hefur því verið
yfir 20 ár í smíðum, segir >ór.
— >að var haft við vöxt, miðað
við aðstæður sem þá giltu um
að hér færi aðeins fram bóklegt
nám og teikningar. Síðan hefur
verið sívaxandi þörf fyrir og
kröfur um að færa hið verklega
nám inn í skólann og við höfum
hverju sinni gert það sem við
höfum getað til að mæta þeim.
Fyrir nokkrum árum hættum við
því við að byggja samkomusal
vestan við húsið, eins og gert
hafði verið ráð fyrir. En í stað-
sem 5 nemendur stunda nú
inn er byggt um 1000 ferm. ný
áima, og 250 ferm. viðbót við
milliálmuna, sem tengir nýja og
gamla skólahúsið. Viðbótarbygg-
ingin öll er ætluð fyrir verk-
nám og skólaverkstæði. í hinni
nýju álmu, sem nú er upp steypt,
1 hæð og kjallari, er áformað að
hýsa málmiðnaðarkennslu í kjall
aranum, en tréiðnað á 1. hæð.
En í viðbótinni við tengibygging-
una á að vera vinnusalur fyrir
byggingariðnaðarmenn og á
Iþrem hæðum þar fyrir ofan hús-
rými fyrir verklegt nám ýmissa
fámennari og léttari iðngreina.
Með þeim nýju viðhorfum,
sem skapast, ef frumvarp iþað,
sem nú liggur fyrir Alþingi um
nýja skipan iðnfræðslunn-
ar, verður að lögum, er
gert ráð fyrir að byggja þurfi
eina hæð ofan á nýju álmuna,
til þess að fullnægt verði þörf-
inni fyrir skólaverkstæði fyrir
tré- og málmiðnir, en sú hæð
yrði um 1000 ferm., eins og fyrr
segir. Eftir sem áður þurfum við
á viðbótinni við tengiálmuna að
halda, enda er hún nú nærri
fullsteypt.
>essi byggingaráfangi kostar
óhemju fé. Ekki aðeins það að
byggja húsið, heldur líka að búa
kennsludeildirnar vélum og tækj
um. Nauðsynin á að koma verk-
lega náminu í framtíðarform er
mjög brýn, heldur >ór áfram. —■
Gert er ráð fyrir mjög róttæk-
um aðgerðum við framkvæmd
nýju iðnfræðslulaganna. >ar eru
svo mörg nýmæli, að skólann þarf
alveg að skipuleggja að nýju.
UndirstöSuatriði verkanna
kenuid í skóla.
— Er þróunin sem sagt sú, að
allt iðnnámið færist inn í skól-
ann?
— Iðnaðurinn í Reykjavíkur-
borg hefur mikla þörf fyrir auk-
ið verknám og nauðsynlegt er að
samræming verði á iðnnámi í
landinu. Iðnmeistarar eiga oft
orðið erfitt með að kenna sína
iðngrein. Hraðinn er orðinn svo
mikill í iðnrekstri og byggingar-
framkvæmdum, að það er mjög
undir hælinn lagt hvort meistar-
inn hefur tíma til að segja nem-
anda til. Og piltarnir eru ekki
liðtækir hjá þeim fyrr en þeir
eru búnir að læra undirstöðu-
atriðin í verkinu. Nauðsynlegt
er því, að sem flest af undirstöðu
atriðunum séu kennd á kerfis-
bundinn hátt í skóla. En síðar
þurfa nemarnir reynslu, sem má
veita þeim úti í atvinnulífinu.
Til viðhalds iðnstéttanna er það
beinlínis nauðsynlegt, að skólinn
geti tekið að sér að kenna undir-
stöðuatriðin í hinum ýmsu verk-
um.
— Iðngreinarnar í landinu eru
nú 60 talsins. Þar af 14, sem ekki
eru nemendur í, og nokkrar með
aðeins einn nema. Erfið aðstaða
iðnmeistara hefur stundum vald-
ið því, að nemendur hafa ekki
komizt að í iðngreinunum. Hættu
legt ástand getur skapast ef stétt-
irnar endurnýja sig ekki nægi-
lega ört. Ástandið hjá bökurun-
um var orðið þannig, að flestir
þeirra voru komnir yfir sextugt.
Með verklegum skóla hefur að-
sókn í stéttina aukizt. Hefur hún
því nú betri aðstöðu til að end-
urnýja sig. Fimm nemendur eru
nú í hinu nýlega skólabakaríi og
virðist aðsókn í stéttina nú nægi-
ieg. Svipað var um skósmiðina,
og því höfum við tekið upp verk
lega kennslu þeim til aðstoðar.
Við höfum reynt að hafa góða
samvinnu við iðnstéttirnar, enda
er nauðsynlegt að hafa stuðning
þeirra. Við reynum að koma til
móts við iðnstéttir, sem vilja
koma á verkiegri kennslu. Til-
högun hefur verið þannig, að
stéttirnar hafa gefið skólanum
meiriháttar tæki og vélar, en Iðn
skólinn skipuleggur kennsiuna,
lætur í té húsnæði og aðstöðu,
ásamt minni tækjum. Þetta bygg
ist allt á góðri samvinnu milli
stéttanna og skólans. Án sam-
vinnu verður litlum árangri náð
fram á við.
— Eitt af því sem við eigum
við að glíma nú, er að 10 vik-
urnar duga ekki alltaf til að
ljúka kennslu í öllu því sem
þurfa þykir. Þá höfum við í sam
Málaranemi í nákvæmnásvinnu.
nám sl. skólaár, voru því sem
næst 1700. Aukningin sem sagt
um 300—400 nemendur á þessu
eina ári, ef allir skráðir nemend-
ur mæta til náms.
Þessar upplýsingar fékk Mbl.
m. a. í upphafi viðtals við Þór
Sandholt skólastjóra. Hann sýn-
ir okkur stundaskrár og töflur
yfir skiptingu nemenda í flokka
eftir námi og stundatöflu kenn-
ara, og við reynum að átta okkur
á allri þessari flóknu niðurskip-
an, sem gera verður á 10 vikna
fresti, í stað einu sinni á ári í
öðrum skólum. Og >ór útskýrir:
— í september eru haldin nám-
skeið fyrir væntanlega próftaka
til inntökuprófs og námskeið fyr-
ir þá af nemendum, sem þurfa
að bæta sig í einhverri grein.
í október byrjar svo hinn reglu-
legi iðnskóli og skiptast nemend-
ur fyrst í 3 flokka, sem eru í
skólanum á mismunandi tíma,
einn fyrir áramót og tveir eftir
áramót, hver þeirra í 8—10 vik-
próf. Við gerum talsvert að því
að taka nema frá öðrum byggðar
lögum og kemur þá oft í ljós,
að þeir sem byrjað hafa námið
annars staðar eru ekki á sama
stigi og bekkjarfélagar þeirra
hér. Þetta stafar af því, að iðn-
skólarnir hafa ekki nógu sam-
ræmda námskrá í hinum mismun
andi bekkjum. Málið mundi vera
svo miklu auðveldara viðfangs,
ef námsskrár skólanna um allt
land væru betur samræmdar.
Nýbygging fyrir verknám.
Áður en við hófum samtalið
við skólastjórann, gengum við
ofurlítið um skólann og litum
inn í kennslustofur. >ar stóðu
hárgreiðslunemar við að leggja
hár á gínum eða lifandi viðskipta
vinum, skósmíðanemar sátu við
leistinn, prentarar settu letur og
unnu við pressuna o.s.frv. Við
spyrjum því >ór hvort verkleg
kennsla skipi orðið mikið rúm í
skólanum. Hann segir okkur, að
Prentnemi við pressuna. Olgeir Axelsson leiðbeinir honum.