Morgunblaðið - 17.02.1966, Page 17

Morgunblaðið - 17.02.1966, Page 17
Pimmtudagur 17. febrúar 1966 MORGUtíBLAÐIÐ 17 Vísitala og kaup- greiðsluvísitala Enn hefur litli Surtur náð sér sér upp úr yfirborði sjávar suðvestur af Surtsey. Vetrarveðrin með stórum og sterkum öldum ná *öðru hverju að sópa ofan af eyjunni. En þegar veörið gengur hjá hleðst aftur upp kollur úr sjónum. Þessa mynd tók Sigurður Þórarinsson sl. laugardag. Þá var komin 200 m. löng eyja og.líklega 10 m. h á, en daginn eftir er Sigur- jón Einarsson flaug yfir, hafði hún hækkað í 20 m. Sigurður Þórarinsson segir að talsverður kraftur hafi verið í gosinu, það mesta sem hann hefur séð á þessum stað. ályktanir Fiskiþings KAUPLAGSNEFND hefur reikn að vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun febrúar 1966 og reyndist hún vera 183 stig eða einu stigi hærri en í janúarbyrjun. Vísitalan 1. febr. 1966 er nánar tiltekið 183,1 stig á móti 182,1 í janúarbyrjun 1966. Hækkunin stafar af hækkun á rafmagnsvör- um o.fl. Kaupgreiðsluvísitalan. Kauplagsnefnd hefur reiknað kaupgreiðsluvísitölu eftir vísitölu framfærslukostnaðar í febrúar- byrun 1966, i samræmi við ákvæði fyrri málsgr. 2. gr. laga nr. 63/1964, og reyndist hún vera 178 sti,g. í fyrri málsgr. 3. gr. sömu laga er svo fyrir mælt, að greiða skuli verðlagsuppbót sem svarar 0,61% Góð gjöf til Akraneskirkju Akranesi, 13. febrúar. FALLEGAN og mikinn Ijóskross é turni kirkjunnar hér, gaf frú Ása Ólafsdóttir til minningar um mann sinn Ólaf B. Björnsson ásamt venzlafólki og vinum þeirra hjóna. — Viðgerð og end- urbætur á kirkjunni, standa nú yfir. Byrjað var á sl. ári, og mun verkið standa yfir fram á vor. Á meðan verður messað í gagn- fræðaskólanum. Búið er að setja litað gler í alla kirkjugluggana. — Oddur. Fréttir frá Eskifirði Eskifirði, 14. febr. HÉR á Eskifirði er mikill snjór, sem setti niður í óveðrinu í fyrri viku. Allir vegir tepptust um tíma. Ófært var til Reyðarfjarð- ar og í Helgustaðalhrepp. Veg- inn til Reyðarfjarðar er búið að ýta, en ófært er enn í Helgu- staðahrepp. Af öllum götum Eski fjarðar er nú búið að ryðja svo greiðfært er um kauptúnið enda eiga Eskfirðingar nýja 18 tonna jarðýtu sem keypt var í sumar er leið. Unnið er af fullum krafti að uppfyllingu undir vænt anlega síldarbræð'slu er Hrað- frystihús Esikifjarðar mun léta reisa á nýja hafnarsvæðinu. í óveðrinu um daginn brotnuðu símastaurar í Helgustaðahreppi svo S'ímasambandslaust hefur verið þangað þar til í dag, að lagfært var til bráðábirgða. Mikl- ar skipakomur hafa verið undan farið aðallega til að sækja síld- arafurðír. Tveir bátar Björn og Einir hafa róið héðan þegar gef- ur á sjó og fiskað ágætlega allt að 13 Vz lest í róðri. M-unu þessir tveir bátar fara til Vestmanna- eyja ásamt m.b. Jónasi Jónas- syni er netavertíð hefst þar. Aðrir bátar hér eru að fara í slipp um þessar mundir. Fara þeir síðan ýmist með þorska- net eða nót. F j áihagsáætlun Eskif j arðar- hrepps 1966 hefur verið af- greidd. Niðurstöðutölur eru 12 milljónir 750 iþúsund. Helztu tekjur eru útsvö-r 7.905.000.—. Aðstöðugjöld 3 imilljónir. Jöfnunarsjóður 900 þúsund og ýmsar aðrar tekjur 1 milljón 945 þúsund. Helztu gjaldaliðir eru Verk- legar framkvœmdir 3 milljónir. Vegamál 1 milljón. Menntaimál 500 þús. Alm tr. 650 þús. Til nýs skólahús, íþróttahúss og dag- heimilis 1.370 þús. Framfærslu- mál 400 þús. Löggæzla 100 þús. Franilag til sundlaugar og rekstr ar 350 þús. Félagsheimilið Val- höll, viðbótarbygging 300 þús. Á haldakaupasjóður 400 þús. Lóða kaup 300 þús. Afsiáttur af út- svörum 700 þús. 175 þús. til væntanlegis elli og hjúikrunar- heimilis. — G.W. af launum og öðrum vísitölu- bundnum greiðslum fyrir hvert stig, sem kaupgreiðsluvísitala hvers þriggja mánaða .tímabils er hærri en vísitala 163 stig. Sam- kvæmt því skal á tímabilinu 1. marz til 31. maí 1966 greiða 9,15% verðlagsuppbót á laun og aðrar vísitölubundnar greiðslur. Athygli er vakin á því, að þessi verðlagsuppbót skal ekki reiknuð af launum að viðbættri þeirri verðlagsuppbót (7,32%), sem gildir á tímabilinu desember 1965 til febrúar 1966, heldur mið ast hún við grunnlaun og aðrar grunngreiðslur. Verðlagsuppbót á vikulaun og mánaðarlaun skal, samkvæmt á- kvæðum nefndra laiga, reiknuð í heilum krónum, þannig að sleppt sé broti úr krónu. sem ekki nær hálfri krónu ,en annars hækkað í heila krónu. HóEadómklrkja flóðlýst Þriðjudaginn 8. febrúar kl. 4 síðdðgis, var kveikt á kastljós- um við dómkirkjuna á Hólum í Hjaltadal. Eru það alls sex Ijós, sem lýsa upp bæði dómkirkj- una og turninn. Hefur oft verið um það talað, að vel mundi fara á slíkri lýsingu, þótt ekki hafi úr orðið fyrr en nú, að ónafn- greind skagfirzk kona, sem burt er flutt úr héraðinu, óskaði eft- ir að fá að kosta ljósin og upp- setningu þeirra að öllu leyti. Verkið sjálft annaðist Sigur- björn Magnússon rafvirki á Hofsósi. Öllum, sem yiðstaddir voru, þótti tilkomumikið að sjá flóð- lýsinguna á hinni fornfrægu dómkirkju og turni hennar, þeg- ar kveikt var á ljóskösturnum í góðu veðri á þriðjudaginn var. (Frétt frá Þjóðminjasafninu). ■ Utan úr heiml Framhald af bls. 14. þar í landi til olíuflutninga. Mikið af sænskum landbún- aðartækjum hefur einnig ver- ið selt til Sovétríkjanna. Þá má benda á, að eitt stærsta iðnfyrirtæki í Norður-Evrópu (ASEA) hefur selt rafknúnar eimreiðir til Rúmeníu og ann- arra kommúnistaríkja. Þá hafa mörg A-Evrópu- ríkjanna, einkum Pólland, sýnt mikinn áhuga á því að selja til Svíþjóðar. Nýlega er hafin enn ein auglýsingaher- ferð. Pólska sendiráðið í StokkhólmT hefur margmennu starfsliði á að skipa. Þá hafa sænskir viðskipta- jöfrar talið sig greina örugg merki þess, að þess sé ekki langt að bíða, að ríkin í A- Evróu hætti að einblína á inn- flutning framleiðsluvara og taki að kaupa neyzluvörur í stórum stíl. Þegar hefur orðið var tilhneigingar í þessa átt, Og sænskir vefnaðarvörufram- leiðendur ( sem hafa mikla reynslu í framleiðslu tilbúins fatnaðar), eru þegar farnir að velta fyrir sér, hve mikill hagnaðurinn geti orðið af framtíðarviðskiptum í A- Evrópu. Bréfritararnir tveir, sem eru fyrst og fremst áhugamenn um iðnað, og telja stjórnmál skipta litlu máli, benda á, að utanrikisráðherra Svía, Thorst en Nilsson, hafi nýlega sagt í ræðu, að samruni sé einkenni vorra tíma, og því leggja þeir til viðskiptalega sameiningu A- og V-Evrópu. Svíar, sem virðast hafa sjötta skilningarvitið, að því er snertir alþjóðasamskipti, vita oft lengra en nef þeirra nær. Nokkrar AÐ LOKNUM fundi á fimmtudag sátu Fiskiþings- fulltrúar og ýmsir gestir boð sjávarútvegsmálaráðherra. Fundir hófust á ný kl. 13.30 á föstudag en nefndir höfðu starfað fyrir hádegi. Kl. 14.00 kom sjávarútvegs- málaráðherra Eggert G. I»or- steinsson á Fiskiþing og flutti ítarlegt erindi um ástand og horfur í sjávarútvegsmálun- um. Eftirgreind álit voru tekin til umræðu og þau samþykkt: 1. Álit sjávarútvegsnefndar um fiskileitar- og hafrannsóknarskip. Framsögumaður Ingvar Vil- hjálmsson, Reykjavík. Fiskiþing lýsir ánægju sinni yfir þeim árangri, sem orðið hef- ur af síldar- og fiskileit með skipum og telur að síldar- og og fiskileit þurfi að efla eftir því sem frekast er hægt. Fiskiþing fagnar framkom- inni samþ, tillö.gu hjá Lands- samb. ísl. útvegsmanna um að sjómenn og útgerðarmenn leggi fram V4% af aflaandvirði síld- veiðiflotans annarsvegar og kaup endur hráefnis hinsvegar leggi fram jafnstóra upphæð á næstu árum til þess að standa straum af byggingarkostnaði síldarleitar skips er byggt verði samkvæmt tillögu Jakobs Jakoibssonar, fiski fræðings. Enn fremur æskir Fiskiþing þess að ríkisstjórn og Alþingi flýti þessu máli svo sem unnt er. Fiskilþing lýsir ánægju sinni yfir því, að undirbúningur að öyggingu hafrannsóknarskips er kominn vel á veg, treystir því að framkvæmdum á undirbúningi að byggingu skipsins verði hrað- að sem mest. 2. Álit sjávarútvegsnefndar um afkomu sjávarútvegsins. Fram- sögumaður Ársæll Sveinsson, Vestmannaeyjum. 28. Fiskiþing bendir á þá miklu erfiðleika, sem sá hluti fiskiskipa stólsins sem bolfiskveiðar stundar á nú við að stríða og laggur því til eftirfarandi til úrbóta. a) að lækkaðir verði vextir á stofnlán og afurðalán sjávar útvegsins. b) að launaskatturinn verði greiddur af kauptryggingu skipshafna en ekki af afla- hlut. c) að í veikindaforföllum greiði útgerðin sjúkrabætur miðað við kauptryggingu en ekki aflahlut. d) að nefndin, sem skipuð var á þessum vetri til þess að athuga afkömu fiskibáta 45—120 brúttó smál., hraði störfum og leggi fram til- lögur sínar til úrbóta svo fljótt sem unnt er. e) að allt verði gert sem unnt er til þess að stöðva dýrtíð og engar nýjar álögur verði lagðar á útgerðina. 3. Álit fiskiðnaðar- og tækni- nefndar um ha.gnýtingu sjávar- afurða. Framsögumaður Margeir Jónsson, Keflavík. 28. Fiskiþing telur að fullkom- in hagnýting hvers konar hrá- efnis sé menningu og fjárhag þjóðarinnar nauðsyn og vill benda á að rannsaka beri með- fram ströndum Faxaflóa ag víð- ar magn og viðkomu ýmissa skel fiska, svo sem kúfisk, krækling o.fl. Þá telur þingið að rannsaka þurfi hvaða verkunaraðferð sé heppileg á grásleppu til mann- eldis. Telur þingið stjórn Fiski- félagsins og fiskimálastjóra, að hvetja rétta aðila til rannsókna á þessum málum. Greinar.gerð: Það er öllum ljóst, að á síð- ustu áratugum hefur nýting sjávarafurða aukizt í stórum stíl frá því sem áður var og þar með aukið þjóðartekjurnar og bætt afkomu fólksins. Þótt mikið hafi áunnizt, er margt ógert og verkefnin næg framundan. Enn þarf að auka og. bæta nýtinguna og taka upp nýja framleiðslu- hætti. Meðfram ströndum lands- ins er mikið magn af ýmsum tegundum skelfisks, en það er órannsakað mál hvort magn eða viðkoma er það mikil að vinnsla þessa hráefnis geti orðið arðvæn leg. Grásleppa, sem nú er veidd í vaxandi mæli, hefur ekki verið nýtt nema að mjög litlu leyti, að undanskyldum hrognunum. Margir trúa því, að hér gæti ver- ið um nokkur verðmæti að ræða, ef fundin yrði rétt verkunarað- ferð. 4. Álit laga- og félagsnfela- nefndar um sumarleyfi síldveiði- manna. Framsögumaður Þor- steinn Jóhannesson, Garði. Fiskiþing telur rétt og skylt með tilliti til hins langa úthalds- tíma síldveiðibátanna, að sjó- menn fái sumarfrí eins og aðrar vinnustéttir, en hljóti aðeins ann að af tvennu, launaðan orlofs- tíma eða tilskilið orlofsfé. Hins vegar telur þingið ekki mögu- legt, að síldveiðiflotinn verði stöðvaður um ákveðinn tíma vegna sumarleyfa. 5. Álit fiskiðnaðar- og tækni- nefndar um rækju og humar- veiðar. Framsögumaður Guð- mundur Guðmundsson, ísafirði. Fiskiþing telur að sú takmörk un, sem sett hefur verið á Vest- fjörðum hafi verið spor í rétta átt til þess að koma í veg fyrir ofveiði og að enn sé eigi tíma- bært að aflétta þeim takmörk- unum. Þingið leggur áherzlu á það, að fiskifræðingum verði veitt aðstaða til þess að fyl.gjast með hvaða élag stofninn þolir. Ennfremur verði haldið áfram að leita að nýjum rækjumiðum. Þé telur Fiskiþingið rétt að lát- in verðu fara fram athugun á því hvort stækka beri möskva- á rækjuvörpum, þar sem ávallt veiðist nokkuð magn af rækju, sem er svo smá að ekki er hægt að nýta hana til vinnslu. Fiski- þing telur mikla nauðsyn á því að árlega fari fram leit að humar veiðum, þar sem aflinn fer minnkandi á þeim miðum, sem þagar eru stunduð. Viija afnema dauðarefsingu París, 11. febr. NTB.- 87 FRANSKIR þingmenn hafa lagt fram tillcgu um að dauða- refsirg verði afnumin í Fnakk- landi. Að tillögunni standa þingmenn úr öllum flokkum, þeirra á meðal Pierre Pflimlin, fyrrum forsætis ráðherra; Maurice Schumann, for maður utanríkismálanefndar þingsins og Maurice Fauxe, leið- togi Sosial-radikala. Dauðarefsingu er sjaldan beitt í Frakklandi. Á árunum 1962—64 voru 17 menn dæmdir til líf- láts, aðeins fjórir þeirra voru teknir af lífi, dómum hinna var breytt í ævilangt fangelsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.