Morgunblaðið - 01.03.1966, Side 5
Þriðjudagur T. marz 1966
MORGUNBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
I GÆR kom einn fegursti góð
viðrisdagur, sem Reykvíking-
ar hafa fengið á nýja árinu.
Sólin skein glatt á aiheiðum
himni þær átta klukkustund-
ir, sem hún vermdi Reykvik-
ingum í lok febrúar, Menn
höfðu jafnvel við orð, að fara
í sólbað, allavega settu margir
upp sólgleraugu og spókuðu
Skúli Hjalbason og Bjami Ein.arsson í flakinu af Rán við Reykjavíkurflugvöll.
Með hækkandi sdl
sig í veðurblíðunni, lifsreynd-
ir á svip.
í Skerjafirðinum var fagurt
um að litast þennan blíðviðris
dag. Fjörðurinn var ísi lagður
og í flæðarmálinu glóðu klaka
brynjaðir steinar í sólskininu.
Skammt fyrir ofan léku sér
tvö síðhærð ungmenni í flak-
inu á sjóflugvélinni Rán, sem
hvolfdi í óveðrinu mikla á
dögunum. Við klifruðum ó-
trauðir upp á flakið og köllum
til piltanna:
— Er gaman í flugvélaleik?
— Já, já, svara þeir einum
rómi og skríða eftir gangin-
um frá stjórnklefanum í átt
til okkar.
— Hvað heitið þið strákar?
— Skúli Hjaltason.
— Bjarni Einarsson.
— Ætlið þið að verða flug-
menn.
— Já, svara þeir enn
ákveðnÍT á svip.
— Ég hef flogið áður í al-
vöruflugvél, bætir Skúli við
og er ekki laust við að hreykni
gæti í röddinni.
— Er Rán ekki alvöruflug-
vél?
— Nei, ekki lengur, segir
Bjarni og horfir dapur á
brotna vængi vélarinnar og
brak, sem liggur nú eins og
hráviði í kringum hana.
Við óskum þesum dugandi
heiðursmönnum gæfu og geng
is á láði og í lofti og yfirgefr
um Skerjafjörðinn.
Við Ægissíðuna rekumst við
á nokkur börn, sem dunda við
að kveikja í sinu, en gengur
heldur treglega vegna frerans
í grassverðinum. Við heilsum
upp á litla, rauðhærða telpu,
sem situr á hækjum sínum og
reytir sinuna upp í barnslegri
ákefð.
— Heldurðu að þú megir
kveikja í sinunni? spyrjum
við.
Hún lítur á okkur stórum
augum: — Eruð þið löggur?
Henni léttir sýnilega, þegar
við fullvissum hana um, að
ekki séum við löggur.
— Ég má vel kveikja í sin-
unni, eins og stóru strákarnir,
segir hún svo og missir áhug-
ann fyrir okkur.
Stóru strákarnir eru þrír
piltar á að gizka sjö til átta
ára gamlir. Við göngum úr
skugga um, að enign hætta
stafar a-f þessum tiltektum
barnanna, enda sinan á litlu
einangruðu svæði.
Leið okkar lá næst í frysti-
húsið ísbjörninn, þar sem
vinna var í fullum gangi og
ísaður fiskur í snyrtilegum
röðum á gólfi móttökusalar-
ins. Frá ísbirninum höfum við
gott útsýni yfir Skerjafjörð-
inn og komum fljótlega auga
á tvo pilta, sem standa á ís-
jaka u.þ.b. 300 metra frá
landi, og virðast vera í áköf-
um samræðum. Við höldum í
fyrstu að drengirnir séu þarna
í voða staddir, og vissulega
hefði getað farið illa fyrir
þeim, en brátt sjáum við þá
stökkva um borð í litla skektu
og róa lífróður til lands, þar
sem nokkrir ungir piltar bíða
þeirra í ofvæni, til að fá lika
að róa í góða veðrinu.
Afbrýðisemi gæti þessi skemmtiiega mynd heitið.
(Ljósm.: Ól.K.Mag.) Tvö börn í sinunni við Ægissíðu.
Heimsmeistararnir í handknattleik keppa á íslandi
ISLAIMD
RDIVIEIMÍA
Landsleikir í handknattleik fara fram í íþ róttahöllinni í Laugardal, laugardaginn
5. marz kl. 17:00 og sunnudaginn 6. marz kl. 17:00.
Hómari: Knut Nilsson frá IMoreiji
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlunum Lár usar Blöndal í Vesturveri og við Skólavörðu-
stíg og í íþróttahöllinni frá kl. 14 á laugard ag og sunnudag. Húsið opnað kl. 15 báða
dagana og kl. 15.45 fara fram leikir ungling alandsliðs H.S.Í.
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR LEIKIJR FRÁ KL. 16.30 BÁÐA DAGANA.
KOMIÐ OG SJÁIÐ rúmensku heimsmeistarana.
STÆRSTI ÍÞRÓTTAVIÐBURÐUR Á ÍSLANDI.
Handknattleikssamband íslands
Verð aðgöngumiða:
Stæði kr. 125.—
Barnamiðar kr. 50.—