Morgunblaðið - 01.03.1966, Síða 21

Morgunblaðið - 01.03.1966, Síða 21
j Þriðjudagur T. marz 1966 MORGUNBLAÐIÐ 21 Erlendur Pálmason Minning ,[ F. 17. desember 1895 ■! d. 22. íebrúar 1966. Erlendur Pálmason, Skipstjóri var fæddur að Nesi við Norð- fjörð, 17. desember 1895, sonur hjónanna Ólafar Stefánsdóttur og Pálma Pálmasonar, sem bjuggu þar. Hann byrjaði sjómennsku á og á milli okkar féll aldrei ó- samkomulagsorð, í leit að lausn þeirramála, sem við unnum sam- eiginlega að. Eftir að Erlendur hætti að gera út réðst hann til Sænsk-ísl. frystihússins og hafði á hendi umsjón með útgerð á vegum þess. Hann gegndi því starfi, þar til sl. hausti að hann lagðist v^ikur, þeirrar legu, sem dró hann til dauða. Þar eins og áður gætti samvizku hans og hollustu í garð húsbænda sinna, sem mér er kunnugt um, að þeir kunna honum fyllstu þakkir fyrir. Erlendur kvæntist Í7. júní 1917 eftirlifandi konu sinni, Hrefnu Ólafsdóttur, ættaðri frá Fjalli á Skeiðum. Þau áttu 7 börn, sem eru: Haukur giftur Ágústu Ahrens, Guðlaug gift Þórði Sigurðssyni, Guðmunda gift Gunnari Val Þorgeirssyni, Erna var gift Ól- afi Bjarnasyni, sem er látinn Ólafur Pálmi giftur Dagmar Gunnlaugsdóttur, Hrefna gifit í Ameríku James Hollan og Mar- grét gift Magnúsi Guðmúnds- syni. Þau Erlendur voru samhent um að búa sér indælt heimili og þrátt fyrir barnahópinn tókst þeim að koma börnum sínum vel til manns. Erlendur unni böm- um sínum og barnabörnum og fyrsta áhugamál hans var ávallt að búa fjölskyldu sinni í haginn. Að lokum seinna stríðsins eign uðust þau hjónin hús að Barma- hlíð 19, bjuggu það vel að inn- an, en prýddu það að utan með fallegum blómagarði og fengu fyrir hann fegurðarverðlaun Fegrunarfélagsins í Reykjavík, Baldur Guðmundsson. inni. Erlendar verður ávallt minnst af öllum sem þekktu hann, sem góðs drengs. Ég votta konu hans og öðrum ástvinum innilega samúð. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Baldur Guðmundsson. Ingibjörg Kristjónsdóttir Eldjórn UM aldamótin síðustu ólust upp á Tjörn í Svarfaðardal þær þrjár systur, sem ég bar síðar gæfu til að kynnast. Foreldrar þeirra voru Petrína Hjörleifsdóttir og Kristján Eldjárn Þórarinsson, sóknarprestur. Ingibjörg var elzt þessara þriggja, fædd 9. ágúst 1884, þar næst kom Ólöf, sem látin er fyrir nokkrum árum, en Sesselja var þeirra yngst. Ólöfu þekkti ég minnst systr- anna. Hún fékkst lengst við verzl unarstörf, auk þess sem hún gætti barna góðra manna hér í bæ. Hún var kvenna skemmtileg- ust, sagði sögur af snilld og var mikill húmoristi. Sá hæfileiki er ríkur í ættinni. Um Sesselju ætti að skrifa bók, þá hlýju höfðingskonu og skör- ung. Hún er þekktust þeirra systra. Ingibjörg fór snemma að vinna að búinu á Tjörn og sparaði sig hvergi. Hún skrapp í kaupa- vinnu sem ung stúlka, en brátt slóst það í félag við Sesselju systur sína, og eftir það skildu þær ekki í marga áratugi. Þær skildu aldrei. Á þriðja tug aldarinnar var Sesselja ráðskona við heimavist Gagnfræðaskólans á Akureyri, sem nú er menntaskóli. Var Ingi- björg þar sem annars staðar hennar hægri hönd, og sú hönd var styrk og hlý. Var systranna beggja mjög saknað, er þær fóru þaðan. Höfðu þær þá eignazt svo marga vini á fjórum vetrum, að með ólíkindum með telja. Skýr- ingin er þó einföld. Þær höfðu reynzt óstýrilátum unglingum hinar beztu mæður. Þær fyrir- gáfu alltaf allt. Slíkt verður ekki á vogirnar vegið, en það gleym- ist aldrei. Eftir þetta ráku þær systur matsölu sjálfar, meðal annars í Rósenborg, en svo nefnist hús hér á Akureyri, og svo að Brekku götu 9. Reyndar er orðið matsala ekki réttnefni. Þetta var heimili, þar sem glaðværð ríkti og velvild. Þangað voru allir hjartanlega velkomnir, hvort sem þeir gátu greitt eða ekki, og þeir umkomu- lausu áttu sér þar vísan griða- stað. Ég hef aldrei skilið, hvernig systrunum tókst að reka þetta „fyrirtæki“ í hálfan annan ára- tug. Auðvitað urðu þær ekki fjáðar, en það gekk kraftaverki næst, að þetta skyldi vera hægt. Þarna mun einhver hafa blessað brauðin og fiskana. Sautján síðustu árin áttu þær Ingibjörg og Sesselja heima að Þingvallastræti 10, og ætlunin mun hafa verið að eiga þar ró- lega daga, því að heilsu var tek- ið að hraka og ævidegi að halla. — Auðvitað fór þessi ráðgerð út um þúfur. Þær gátu ekki ann- að en gefið öðrum af sjálfum sér meðan þess var nokkur kost- ur. Þær vildu veita beina hverj- um, sem að garði bar — og helzt hýsa alla. Þær unnu geysimikið og fórnfúst starf Slysavanrafé- lagi kvenna. Þær þreyttust aldrei á því að gera gott. En er Ingibjörg var komin á níræðisaldurinn, var sýnt, að ekki myndi vegljóst miklu leng- ur. Hún lézt 22. febrúar á sjúkra húsinu á Akureyri. Ingibjörg var ekki fríð kona, Framh. á bls. 27 JAMES BOND Eftir IAN FLEMING Norðfirði 15 ára gamall, fyrst á árabátum og síðar á vélbátum. Árið 1915 fluttist hann til Reykja víkur og fór þá strax á togar- ana. Hann lauk prófi frá Stýri- mannaskólaum vorið 1921, en all an tímann að undanskildum námsárunum á stýrimannaskól- anum stundaði hann sjóinn frá 15 ára aldri, svo sem að framan segir og fram yfir síðari heims- styr'|öldina. Hann sigldi á tog- urum bæði stríðin og síðari styrj aldarárin, sem stýrimaður eða skipstjóri. Erlendur var dutgnaðarmaður, gekk með atorku að hverju því starfi sem hann tók að sér, en ósérhlífni hans og árvekni sam- fara góðri athyglisgáfu, færðu honum þá farsæld í störfum að hann kom skipi sínu ávallt heilu í höfn. Þrátt fyrir siglingu á fjölmörgum árum, oft við erfiðar og hættulegar aðstæður lauk þannig sjómannsferli hans, að hann varð aldrei fyrir verulegu óhappi. Allir sem með honum voru fundu, að þeir voru undir öruggri stjórn, og báru ávallt fullt traust til hans. Hann gætti hagsmuna þeirra, sem hann vann hjá af samvizku- serni og ávallt var hann hægri hönd þeirra skipstjóra, sem hann var með stýrimaður. Árið 1946 keypti Erlendur vél- bátinn Mars, sem var einn af nýsköpunar - Svíþjóðarbátnum. Hann gerði þennan bát lút fram itil ársins 1958 að hann seldi hann til Vestmannaeyja. Erlendi fórst útgerðin vel úr hendi og þrátt fyrir mörg efiðleika ár á þessu tímabili var Erlendur einn af þeim fáu, sem á þessum árum komust ómeiddur frá útgerðinni. Erlendur var einn af eigendum í Faxaver hf., sem rak fiskverk- un og leigði frystihúsið á Kirkju- sandi nökkur ár. Hann var stjórn arformaður þess fyrirtækis og gegndi því starfi með hagsýni og lipurð í hvívetna. Þau ár, sem Erlendur fékkst við útgerð hafði hann nokkur afskipti af félagsmálum útvegs- manna, Hann var um árabil í etjórn Útvegsmannafélags Reykjavíkur, var gjaldkeri þess, og þá ávallt fulltrúi fiélagsins á aðalfundum Landssambands ísL útvegsmanna. Á þessu tíma- bili kynntist ég Erlendi, þar sem við unnum saman bæði í Faxa- ver hf. og Útvegsmannafiélagi Reykjavíkur. Öll s*jörf hans mót- uðust af áhuga fyrir veiferð þeirra mála, sem við unnum sam Haun var samvinnuþýður maður Hann er búinn að rífa járnnetið af ioft- ræstingaropinu . . . og nú er hann að búa til einhvern oddhvassan hlut úr grindinni. J t? M B Ö -*■ Já , , , Dr. No hefur mikinn áhuga á þessum tilburðum . . . ég veit ekki hvers- vegna! Betra að beygja það saman og geyma það í buxnaskálminni þangað til ég þarf á því að halda . . . Þrjátíu sekúndum seinna klifrar Bond inn í loftræstingarrörið. Fágað málmrör, skeytt saman í hlutum. Teiknari: J. M O R A Skipstjórinn, sem var á leið inn í stýrishúsið til þess að gefa skipun um að snúa við, þreif kíki Júmbós. — Sjáðu þarna, hrópaði Júmbó sigri hrósandi gegn um storminn, — sjáðu þarna. Ég held að ég hafi örugglega séð fleka þarna. — Það virðist fremur ótrúlegt en leyfðu mér að sjá . . . muldraöi skipstjórinn efabland- inn. Hann horfði lengi á kíkinn, og alveg rétt — þarna mitt í grænólgandi hafinu byltist lítill, veikbyggður tréfleki með marga menn á. Þótt björgun þeirra virtist skammt undan var ennþá það erfiðasta eftir — nefnilega að ná þeim af flekanum og upp í skipið. KVIK SJÁ --K- -iK- ■*■ Fróðleiksmolar til gagns og gamans Eitt af þýðingarmestu augna- blikum í uppgangi jazzins var að kvöldi 16. janúar 1938, þegar Benny Goodman hált jazzhljóm leika í Carnegie höllinni í New York. Jazz var nú tekinn alvar- lega og álitinn nýtt listform. Goodman færði jazzinum það sem kallað var „swing“ og naut gífurlegra vinsælda frá upp- hafi. Nú urðu einstaka jazz- söngvarar heimsfrægir. Sú sem einna mestra vinsælda naut var Ella Fitzgerald. Fyrsta lagið, sem hún söng inn á plötu færði henni þjóðfrægð og hún hefur verið eftirsóttasta jazzsöngkona heims síðan. Hún hefur komið fram á hljómleikum í Banda- ríkjunum og víðar ásamt Benny Goodman, Duke EUington og fleiri þekktum jazzhljómsveit- um. „Jam session" var óform- leg samkoma jazzhljómsveitar- manna og átti sér stað snemma á morgnana, þegar þeir höfðu lokið næturlöngum leik. Þarna léku þeir sér til ánægju og skiptust á hugmyndum og fundu upp nýja tækni. Þar hittn þeir einnig aðra og frægari lista menn, sem þeir gátu lært af.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.