Morgunblaðið - 17.03.1966, Page 19

Morgunblaðið - 17.03.1966, Page 19
Fimmtudagur 17. marz 1966 MORGU N B LAÐIÐ 19 — Alþingí Framhald af bls 1 Hagráð skal vera vettvang- ur, þar sem fulltrúar stjórn- arvalda, atvinnuvega og stétta samtaka geta haft samráð og skipzt á skoðunum um meg- instefnuna í efnahagsmálum hverju sinni, í frumvarpinu um fisk- veiðisjóð kemur fram að hlut verk fiskveiðisjóðs skuli vera að efla framleiðslu og fram- leiðni í fiskveiðum, fiskiðn- aði og skyldri starsfemi með því að veita stofnlán gegn veði í fiskiskipum, vinnslu- stöðvum, dráttarbrautum, við gerðarverkstæðum, veiðar- færagerðum og verbúðum. Auk eigna Fiskveiðasjóðs íslands tekur sjóðurinn við öllum eignum Stofnlána- deildar sjávarútvegsins. Á sama hátt tekur sjóðurinn við eignum Skuldaskilasjóðs útvegsmanna. Auk stofnfjár þessa skal fjáröflun til Fisk- veiðasjóðs vera með eftir- töldum hætti: a. vextir af lánum og öðrum kröfum, b. útflutningsgjöld af sjávar- afurðum, sem renna til sjóðsins lögum samkvæmt. c. til viðbótar framlagi til sjóðsins skv. b-lið greiðir ríkissjóður honum jafnháa fjárhæð árlega. d. lántökur innan lands og erlendis. f frumvarpi um Stofnlána- deild verzlunarfyrirtækja seg ir að bankaráði Verzlunar- banka íslands h.f. skuli heim- ilt að stofna sérstaka deild við bankann, er nefnist Stofn lánadeild verzlunarfyrir- tækja. Stofnfé stofnlánadeild- arinnar er árlegt framlag frá Verzlunarbanka íslands h.f. samkvæmt ákvörðun aðal- fundar ár hvert, og skal það ekki vera lægra en tvær millj. króna árlega fyrstu fimm ár- in, sem stofnlánadeildin starf- ar. Önnur fjáröflun stofnlána deildarinnar er sem hér seg- ir: 1. Fé, sem fengið er með út- gáfu vaxtabréfa, að fengnu samþykki Seðlabankans. 2. Vextir. 3. Fé, sem fengið kann að vera að láni til endurlána. Hér á eftir verður rakið nán- ar efni frumvarpanpa og birtir kaflar úr greinargerðum er þeim fyigja. Framkvæmdasjóður fslands. Framkvæmdasjóður tekur við öllum eignum Framkvæmda- banka íslands, eins og þær eru Ihinn 1. janúar 1967. Þá tekur Framkvæmdasjóður að sér greiðslu allra skulda bankans, svo og efndir á öllum skuld- bindingum hans, þar með töldum ábyrgðum, sem bankinn hefur á sig tekið, frá sama tíma að telja. Framkvæmdasj óður tekur við lollu fé Mótvirðissjóðs, sem nú er í vörzlu Framkvæmdabank- ans, að undanskildu því fé, sem bundið er á sérreikningi í Seðla- bankanum, og skal hann lána það, ásamt vaxtartekjum af því, að hálfu til framkvæmda í þágu landbúnaðarins og að hálfu til annarrar starfsemi sinnar. Framkvæmdasj óði er heimilt að taka lán til starfsemi sinnar, bæði innan lands og erlendis, sbr. þó ákvæði 7 greinar laga frá 1960 um skipan innflutnings og gjaldeyrismála. Hlutverk stjórnar Fram- kvæmdasjóðs, sem er skipuð 7 mönnum er kosnir eru með hlut- fallskosningu á Alþingi skal vera: a. Hún tekur ákvarðanir um lánveitingar Framkvæmdasjóðs og ráðstöfun á fjármunum hans. b. Hún tekur ákvarðanir um heildaráætlun, er gera skal á ári hverju ráðstöfunarfé Fram- kvæmdasjóðs, bæði eigið fé og lánsfé, og heildarútlán hans og skiptingu þeirra á milli fjárfest- ingarlánastofnana og einstakra framkvæmda.. Heimilt er henni að setja fjárfestingarlánastofnun lánsfjár, er þær fá úr Fram- um skilyrði um notkun þess kvæmdasjóði. c. Hún tekur ákvarðanir um vexti og önuur útlánskjör Fram- kvæmdasjóð að höfðu samráði við fjármálaráðherra og Seðla- bankann, enda séu vextirnir ekki hærri en Seðlabankinn ákveður vexti hæsta af sambærilegum skuldum. d. Hún úrskurðar reikninga sjóðsins og tekur ákvarðanir um ráðstöfun tekjuafgangs, svo og um afskriftir af kröfum sjóðs- ins. 1 greinargerð frumvarpsins kemur m.a. eftirfarandi fram: Með því skipulagi, sem hér er lagt til, að komið verði á fót, er í veigamiklum atriðum horfið að því skipulagi, sem upphaflega var ætlunin, að yrði á Fram- kvæmdabanka Islands, og Fram- kvæmdasjóðnum er einnig ætlað það meginhlutverk, sem Fram- kvæmdabankanum var úpphaf- lega ætlað, að hafa forystu um fjáilöflunarhlið fjárfestingar- mála, útvega og miðla fé til fjárfestingarstarfseminnar. Þeg- ar stofnun Framkvæmdabankans var undirbúin, voru til athugun- ar tiUþgur um stofnun sjálf- stæðs seðlabanka, og var þá ráð fyrir því gert, að Framkvæmda- bankinn væri í nánum tengslum við hann. Af stofnun seðlabanka varð þó ekki í það sinn, og var þá ráð fyrir því gert, að Fram- kvæmdabankinn stæði í nánu sambandi við Landsbanka Is- lands, er þá gegndi hlutverki seðlabanka og átti að annast dagleg afgreiðslustörf fyrir Fram kvæmdabankann. Slík samvinna komst hins vegar ekki á, og hef- ur skortur á tengslum við aðra hluta bankakerfisins torveldað Framkvæmdabankanum að leysa af hendi það meginhlutverk, sem honum upphaflega var ætlað. Efnahagsstofnunin í greinargerð þess kafla frum- varpsins sem fjallar um efna- hagsstofnun segir svo: Efnahagsstofnunin var sett á fót á árinu 1962 með sérstökum samningi á milli ríkisstjórnar- innar, Framkvæmdabanka ís- lands og Seðlabanka íslands. Verkefni hennar var að undir- búa framkvæmdaáætlanir fyrir ríkisstjórnina, semja þjóðhags- reikninga og áætlanir um þjóð- arbúskapinn og framkvæma aðr- ar hagfræðilegar athuganir. Hag deild Framkvæmdabankans flutt ist til hinnar nýju stofnunar. J afnframt var ef nahagsmála- ráðuneytið, sem stofnað hafði •verið 1959, lagt niður og störf þess falin Efnahagsstofnuninni. Þeir þrír aðilar, sem að stofnun- in.ni stóðu, hafa skipt að jöfnu með sér kostnaði af rekstri henn ar og skipað stjórn hennar. I stjórninni hafa átt sæti þrír full trúar ríkisstjórnarinnar, einn full trúi Seðlabanka íslands og einn fulltrúi Framkvæmdabanka fs- lands. Auk formanns stjórnar- innar sem jafnframt hefug verið forstjóri stofnunarinnar, hafa full trúar ríkisstjórnarinnar verið ráðuneytistjórinn í fjármálaráðu neytinu, sem verið hefur vara- formaður stjórnarinnar, og hag- stofustjóri. Sérmenntað starfs- fólk stofnunarinnar hefur haldizt svipað að tölu til og var í hag- deild Framkvæmdabankans. Þau ákvæði um Efnahagsstofn unina, sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, miða að því að festa skipan hennar. Efna- hagsstofnuninni eru ætluð sömu verkefni og áður. Framkvæmda- sjóður kemur í stað Fram- kvæmdabanka íslands og stend- ur ásamt ríkisstjórninni og Seðla bankanum að stofnuninni á grundvelli samnings, er þessir aðilar gera um stjórn stofnun- arinnar og fjármál. Forsætisráð- herra skipar forstjóra stofnun- arinnar, eins og áður var. A þeim tæpum fjórum árum, sem Efnahagsstofnunin hefur starfað, hafa verkefni hennar reynzt umfangsmikil og vaxandi. það frumvarp, sem hé liggur fyrir, gerir ráð fyrir sérstökum verkefnum stofnunarinnar í sam bandi við starfsemi Fram- kvæmdasjóðs og Hagráðs. Verzlunarlánasjóður Gert er ráð fyrir að stofn- lánadeild verzlunarfyrirtækja veiti stofnlán sem hér segir: 1. Til öflunar búnaðar og á- halda fyrir verzlunarfyrirtæki. 2. Til byggingar verzlunar- og skrifstofuhúsnæðis, svo og til meiri háttar endurbóta á slíku húsnæði. Heimilt er, ef sérstak- ar ástæður mæla með að mati sjóðsstjórnar, að veita verzlun- arfyrirtækjum lán til kaupa á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði. Fjárhæð lána má nema allt að fimmtíu af hundraði kostnaðar- verðs, enda sé það eigi að dómi stjórnar stofnlánadeildar hærra en eðlilegt má teljast samkvæmt verðlagi á þeim tima, er í fram- kvæmdir var ráðist. Lánstími má eigi vera lengri en 12 ár, og ekki nema til 5 ára til kaupa á ál/>ldum, nema sérstakar ástæð- ur mæli með, að dómi stofn- lánadeildarinnar. í greinargerð frumvarpsins kemur m.a. eftirfarandi fram: Meðal forvígismanna verzlun- arsamtaka hér á landi hefur um árabil verið uppi sú skoðun, að brýn þörf sé á að koma á fót stofnlánadeild í þágu verzlunar- reksturs landsmanna. Eiga hér við svipuð rök og þau, sem ráðið hafa stofnun lánadeilda til hags bóta fyrir atvinnugreinar þær, sem nefndar voru. Stofnkostn- aður við að koma upp verzlunar- fyrirtækjum er orðinn geysimik- ill. Er mikil þörf á auknu fjár- hagslegu liðsinni í þessu efni, ekki sízt við unga og framtaks- sama menn, sem hyggjast koma á fót fyrirtækjum. Þjóðhagslega séð er slíkt liðsinni mikilvægt því að aukin samkeppni er vissu lega veigamikið úrræði til eðli- legrar ákvörðunar á vöruverði og verðlagi ýmis konar þjónustu. Óskir kaupsýslumanna um, að koma á fót stofnlánadeild hafa einkum verið ræddar á aðalfund um Verzlunarbanka Islands hf., og vænta verzlunarmenn forystu frá bankanum um að koma þessu máli fram. Á aðalfundum bankans síðustu árin hafa verið gerðar samþykktir um þetta mál og lýsa þær og umræður um tnálið miklum áhuga hjá verzl- unarmönnum á þessu nauðsynja- rnáli. Á aðalfundi bankans 1964 var gerð svofelld ályktun „Aðalfundur Verzlunarbanka íslands hf., haldinn 4. apríl 1964, samþykkir að fela stjórn bank- ans að vinna að undirbúningi að því, að komið verði á fót stofnlánadeild við bankann.“. Þá hafa einstök félög kaup- sýslumanna og samtöik þeirra lýst eindregnu fylgi sínu við málið. Það frumvarp, sem hér liggur fyrir, er að mestu sniðið eftir ’l'ógum hér á landi um stofn- lánasjóði eða stofnlánadeildir, og er helzta fyrirmyndin lögin um Iðnlánasjóð nr. 45/1963. Hér er samt sá veigamikli munur, að ekki er óskað ríkisábyrgðar eða neins konar fjárhagslegrar fyrir- greiðslu rikisvalds. Stofniána- deildin er hugsuð sem sjálfstæð deild í Verzlunarbanka íslands hf., með sjálfstæða fjárábyrgð, sérstakar fjárreiður og sjálfstætt bókhald. Tengslin við bankann eru allt að einu skýr. Stjórn bankans er jafnframt stjórn stofnlánadeildarinnar og tekur ákvarðanir um lán úr deildinni. Stofnlánadeildin verður til húsa í bankanum og nýtur fyrir- greiðslu bankans í hvívetna. Leitast verður að finna stofn- lánadeildinni öruggan fjárgrund- völl. Kemur þar bæði til fram- lag Verzlunarbanka íslands hf* svo og fé, sem fengið verður með sölu vaxtarbréfa, og enn fremur lán. Fiskveiðasjóður 1 frumvarpinu um fiskveiði- sjóð kemur m.a. fram, auk þess sem áður er getið, að verkefni stjórnar Fiskveiðasjóðs, sem skip uð verði fimm mönnum, verði: a. Ákvarðanir um lántökur og aðra fjáröflun til starfsemi sjóðs ins og útgáfu skjala í því sam- bandi. b. ákvarðanir um útlán og lánskjör sjóðsins. c. ákvarðanir um rekstrará- ætlun Fiskveiðasjóðs, er gerð skal fyrirfram fyrir eitt ár í senn. d. úrskurður reikninga sjóðs- ins og ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs, svo og ákvörðun um afskriftir af kröfum hans. e. ráðníng forstjóra sjóðsins. f. skipun matsnefndar. Öll lán Fiskveiðasjóðs til fiski skipa skulu tryggð með 1. verð- rétti í skipunum. Til nýrra fiski- skipa, sem smíðuð eru innan- lands, mega lán nema % hlut- um kostnaðar eða matsverð, þess er lægra reynist, en allt að 2 hlutum kostnaðarverð eða matsverð með sama hætti, séu skipin smíðuð erlendis. Hámarks lánstími má vera sem hér segir: Lán út á fasteignir 20 ár og lán út á skip 15 ár. Umsækjendur um lán úr Fisk- veiðasjóði geta valið um, hvort heldur þeir leggi lánbeiðnir sín- ar fyrir Fiskveiðásjóð eða við- skiptabanka sinn. Þær lánbeiðn- ir, sem lagðar eru fyrir viðskipta banka umsækjenda, skal við- skiptabankinn senda Fiskveiða- sjóði ásamt umsögn sinni. Fisk- veiðasjóður skal á sama hátt leita umsagnar viðskiptabanka umsækjenda um umsóknir þær, er honum berast beint, áður en þær eru afgreiddar. I greinargerð frumvarpsins kemur m.a. eftirfarandi fram: I frumvarpi þessu er lagt tjl, að Fiskveiðasjóður íslands og Stofnlánadeild sjávarútvegsins verði sameinuð í einn sjóð, sem heiti Fiskveiðasjóður íslands. Verði hann undir sameiginlegri stjórn Seðlabanka íslands, Lands banka íslands og Útvegsbanka íslands. Dagleg störf sjóðsins verði í höndum Ú t v egtí>a nk an s. Frumvarpið er að öðru leyti í meginatriðum svipað að efni og lög og reglugerðir, sem fram að þessu hafa gilt um sjóðina. Sameining þessara tveggja stærstu lánasjóða sjávarútvegs- ins í einn öflugan sjóð hefur í för með sér, að auðveldara er að koma við hagkvæmri skipt- ingu ráðstöfunarfjárins milli þarfir þeirra eru mjög mismun- ýmsu greina sjávarútvegsins, en' andi frá ári til árs. Eftirlit með notkun lánsfjárins ætti einnig að geta orðið virkara og meira samræmi en nú í útlánum. Loks hefur sameiningin í för með sér sparaað í rekstri og ýmislegt hagræði, sem ekki verður rakið hér frekar. Oft hefur verið um það rætt að sameina þessa sjóði. Segja má, að spor í þá átt hafi verið stigið með samstarfi því, sem tekið var upp milli Seðlabank- ans, Landsbankans og Útvegs- bankans að lánamálum sjávarút- vegsins á árinu 1961, er lausa- skuldum sjávarútvegsins var breytt í löng lán á vegum Stofn- lánadeildarinnar. Reynslan af þessu samstarfi hefur ótvírætt sýnt, að lánamálum sjávarút- vegsins er bezt komið undir sameiginlegri stjórn þeirra banka, sem til þessa hafa séð um mestöll lánamál sjávarút- vegsins, bæði rekstrarlán og stofnlán, jafnframt því sem dag- leg störf verða í höndum Út- vegsbankans, er farið hefur með stjórn Fiskveiðasjóðs til þessa. Ftamkvœmdabankinn hefur veitt 207 millj. kr. lán til iðnaðarins Framkvœmdasjóður mun taka við skuld- bindingum hans og árlegt ráðstöfunarfé aukast verulega I GÆR var getið um Það í blað- inu að lagt hefði verið fram á Allþingi stjórnarfrumvarp um eflingu iðnlánasjóðs og að af- staða hans til styrktar iðniþróun verði stór efldur. Er það fram- hald á þeirri eflingu Iðnlána- sjóðs sem átt hefur sér stað hin síðari ár sem m.a. kemur fram í eftirfarandi: Framlög ríkissjóðs til Iðnlána sjóðs hafa verið sem hér segir: 1935—1937 .. 25 þús. kr. á ári 1938—1939 .. 23 —----------- 1940—1941 .. 25 — — - — 1942—1946 .. 66 —----------- 1947—1954 . . 300 — — - — 1955—1956 .. 450 — — - — 1957—1958 .. 1450 —----------- 1959 . . 1378 — — - — 1960—1965 .. 2000 —----------- Samtals kr. 20074 þús. Innborgað iðnlánasjóðsgjald í sjóðinn hefur verið sem hér segir: 1968 .............. 4200 þús. kr. 1964 ............. 12919 — — 1965 ............. 15900 — — Samtals kr. 33019 — — Þá hefur sjóðnum að forgöngu ríkisstjórnarinnar verið útvegað- ar frá árinu 1961 50,5 miilj. kr. af PL 480 fé og 16 millj. kr. úr bankakerfinu eða samtals 66,5 millj. kr. Útlán Iðnlánasjóðs frá 1936 hafa verið sem hér segir (í þús. kr.): Sam- Meðal- tals tal á ári 1936—1940 .. 136,4 25,3 1941—1945 258,4 51,7 1946—1950 . . 2161,4 432,3 1951—1955 '>8,4 979,7 1956—1959 . . ,7,0 2209,4 1960 4420,0 1961 9719,0 1962 13931,0 1963 38847,0 1964 50610,5 1965 58878,3 Hér við kemur til atihugunar, að Framkvæmdabanki Islands hefur hin síðari ár stóraukið lán- veitingar sínar til iðnaðarins. Lánveitingar til iðnaðar hafa verið sem hér segir á fimm ára tímafoili: 1962 ............. 24,1 millj. kr. 1963 ............. 42,9 — — 1964 ............. 31,2 — — 1965 ............. 29.9 — — 1966 ............. 24,0 — — (lánsloforð) Alls er þetta 152,1 millj. kr., en heildarlán bankans til iðnaðar frá byrjun eru 207,8 millj. kr. Fram til ársloka 1961 og frá upp hafi 1953, hafði bankinn lánað samtals til iðnaðar tæpar 80 milljónir kr. Verður þetta sjónarmið haft i huga þegar nú er ráðgert að leggja Framkvæmdabankann nið ur og Framkvæmdasjóður ís- lands taki við eignum hans og skuldfoindingum, en sá sjóður veiti lánsfé til fjárfestingarsjóða atvinnuveganna og þar á meðal Iðnlánasjóðs. Árlegt ráðstöfunar- fé sjóðsins rnundi þá enn aukast til verulegra muna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.