Morgunblaðið - 31.03.1966, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 31. marz 1966
Hluti kvikmyndar úr
Völsungasögu tekinn hér
Verður dýrasta kvikmynd Þjóðverja eftir stríð
SKÝRT yar frá í blaðinu í gær,
að hér á landi væru staddir leik-
stjóri og framkvæmdastjóri
þýzka kvikmyndafyrirtækisins
CCC, sem hefur aðsetur sitt í
V-Berlín. Menn þessir munu
dvelja hér í viku og velja heppi-
lega staði til töku kvikmyndar
um Völsungasögu, en ætlunin er
að kvikmynda þriðjung fyrri
hluta myndarinnar hér. Þeir fé-
lagar hafa þegar ráðið tvo
íslenzka aðstoðarmenn, þá Gísla
Alfreðsson leikara, sem verður
til aðstoðar leikstjóra, og Þor-
geir Þorgeirsson, sem aðstoða
mun við kvikmyndun.
Á fundi með fréttamönnum
sagði hinn þýzki leikstjóri dr.
Reinl, að þessi mynd yrði sú dýr
asta, sem Þjóðverjar hafa gert
eftir stríð, og er kostnaður við
hana áætlaður um 8 milljónir
marka. Myndin verður tekin í
tveimur þjóðlöndum auk íslands,
Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu.
Þegar hefur verið skipað í aðal-
hlutverk myndarinnar. Mun Uwe
Beyer leika Sigurð Fáfnisbana,
en Beyer hlaut bronz-verðlaunin
í sleggjukasti á síðustu Olympíu-
leikum. Með hlutverk Brynhild-
ar Buðladóttur fer Karin Dor,
fræg þvýzk kvikmyndastjarna og
eiginkona dr. Reinl. Konu Sig-
urðar Fáfnisbana, Grímhildi,
leikur Maria Marlowe, sem
einnig er fræg þokkagyðja, bú-
sett í Múunchen. Atla Húnakon-
ung leikur hinn bandaríski Jack
Palance, sem íslenzkum kvik-
myndahúsgestum er að góðu
kunnur.
Framkvæmdastjóri kvikmynda
fyrirtækisins CCC, Karytowski,
tjáði fréttamönnum, að leikarar
og kvikmyndatökumenn mundu
koma hingað í lok ágústmánað-
ar og stendur kvikmyndatakan
5 af 7 nefndarmönnum
vilja samþ. bjórfrumv.
í 3 vikur. Sagði Karytowski, að
kvikmyndúnin færi að öllum lík
indum fram í Vík í Mýrdal, Dyr-
hólaey, á Þingvöllum og ef til
vill við Mývatn. Höfðu þeir fé-
lagar heimsótt alla þessa staði,
nema Mývatn, og þótti mikið til
koma fegurðar þeirra. í fylgd
með leikurum og kvikmynda-
tökumönnum til fslands í sumar
verða þýzkir blaðamenn og sjón
varpsmenn.
Upphaflega var ráð fyrir gert,
að sá hluti myndarinnar, sem
tekinn verður á íslandi, yrði tek-
inn á írlandi, en fyrir atbeina
Dieter Wendler og Flugfélags ís-
lands komu þeir dr. Reinl og
Karytowski hingað til lands, og
kváðust þeir ekki sviknir af för-
inni hingað.
Dr. Reinl hefur sjálfur gert
kvikmyndahandritið að Völs-
ungasögu, en stef úr óperu Ric-
hard Wagners verða notuð til
uppfyllingar í textann.'
Þeir félagar gerðu sér vonir
um, að kvikmyndin yrði frum-
sýnd annan dag jóla á þessu ári,
í Múnchen.
Maríus Helgason
Hjörtur Jónsson
Umdæmisstjóraskipti á
Isafirði og Akureyri
BLAÐIÐ Vesturland á ísafirði
skýrir hinn 25. marz sl. frá því
að umdæmisstjóraskipti hafi orð-
ið við póst og síma á ísafirði.
Kemst blaðið síðan að orði á
þessa leið:
„Nýlega lét Maríus Helgason
af embætti umdæmisstjóra lands
hér í bæ. Vesturland býður Hjört
símans hér á ísafirði, en því
embætti hefr hann gegnt undan-
farin ár. Maríus hefur nú tekið
við embætti umdæmisstjóra
landssímans á Akureyri. Vestur-
land árnar Maríusi allra heilla
í hinu nýja starfi og óskar hon-
um og fjölskyldu hans velfarn-
aðar á ókomnum árum.
Þá hefur Hjörtur Jónsson ný-
lega verið skipaður umdæmis-
stjóri landssimans hér á ísafirði
og mun hann taka við því starfi
innan skamms. Hjörtur er bor-
inn og barnfæddur ísfirðingur,
sonur hjónanna Ásu og Jóns
Grímssonar málafærslumanns
velkominn til starfa hér“.
Frakkar gefa
NATO ársfrest
til oð flyfja á broft frá Frakklandi
í GÆR var lagt fram á Alþingi
nefndarálit frá meirihluta alls-
herjarnéfndar neðri deildar um
Samningur við
Norðmenn
HINN 30. marz var undirritaður
samningur milli Islands og Nor-
egs uffl að komast hjá tvískött-
un og koma í veg fyrir undan-
skot frá skattlagningu á tekjur
og eignir. Samningurinn undir-
skrifuðu settur utanríkisráðherra
dr. Gylfi Þ. Gíslason, fyrir ís-
land og ambassador Noregs á ís-
landi, hr. Tor Myklebost, fyrir
hönd Noregs.
(Frétt frá utanríkisráðun.).
Akranes
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Akra-
ness heldur almennan fund í
félagheimili templara föstudag-
inn 1. apríl n.k. kl. 8.30 síð-
degis. Fundarefni:
Efnahagsmál, tolla- og skatta-
mál. Magnús Jónsson fjármála
ráðherra.
Öllum er heimill að gangur.
frumvarpið um breytingu á
áfengislögunurp. Fimm nefndar-
manna af 7 mæla með samiþykkt
frumvarpsins. Þeir eru Matthías
Bjarnason, Pétur Sigurðsson,
Birgir Finnsson, Óskar E. Levý
og Bjöm Fr. Björnsson. Einn
þeirra, Björn Fr. Björnsson flyt-
ur þó breytingartillögu þess efnis
að heimild 1. greinar frumvarps-
ins öðlist því aðeins lagagildi, að
á urdan gangi þjóðaratkvæða-
greiðsla. Skúli Guðmundsson vill
að frumvarpið verði fellt og
Ragnar Arnalds var fjarverandi
þegar miálið var afgreitt í nefnd-
inni.
Kosningar
í S-Afríku
Jóhannesarborg, 30. marz (AP).
ÞINGKOSNINGAR fóru fram
í Suður Afríku í dag. Kjörstaðir
voru opnaðir klukkan sjö í morg
un, og N'ifðu þá þegar myndast
langar biðraðir við suma þeirra.
Voru Hendrik Verwörd, forsæt-
isráðherra og kona hans meðal
þeirra fyrstu, er greiddu at-
kvæði.
Það eru aðeins hvítir menn,
sem hafa atkvæðisrétt, og eru
um 1,7 milljónir á kjörskrá. En
14 milljónir blökkumanna fá
hvergi nálægt kosningunum að
koma.
Kosnir verða 170 þingmenn, og
er flokki Verwörds spáð yfir-
burða sigri.
París, 30. marz — (AP-NTB)
í D A G tilkynntu Frakkar
öðrum aðildarríkjum Atlants
hafsbandalagsins að flytja
verði alla starfsemi banda-
lagsins frá Frakklandi fyrir
1. apríl 1967. Kemur þetta
fram í orðsendingum frönsku
stjórnarinnar til stjórnahinna
aðildarríkjanna, að því er
haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í París.
Þessar sömu heimildir
segja að tilkynning Frakka
feli ekki í sér neina úrslita-
kosti, því ef erfitt reynist að
verða við þessum kröfum um
brottflutninginn, megi semja
um framlengingu á frestin-
um. —
Orðsendingar til hinna aðildar-
ríkjanna 14 eru allar samhljóða,
nema til Bandaríkjanna, Kanada
og Vestur Þýzkalands. I þeim
orðsendingum er sérstaklega
rætt um vandamál varðandi
bandarískar og kandadískar her-
stöðvar í Frakklandi, og um
franskar herstöðvar í Vestur
Þýzkalandi. f orðsendingunni til
Vestur Þýzkalands er gefið í
skyn að frönsku hersveitirnar
geti áfram verið staðsettar á
vestur þýzku landsvæði eftir 1.
I GÆR var birtur framboðslisti
Alþýðuflokksins við borgarstjórn
arkosningarnar í Reykjavík. 15
efstu sæti listan skipa þessir
menn:
Óskar Hallgrímsson, rafvirki,
Páll Sigurðsson, tryggíngarlækn-
ir, Björgvin Guðmundsson, deild
arstjóri, Bárður Daníelsson, verk
fræðingur, Jóhanna Sigurðardótt
if, flugfreyja, Eiður Guðnason,
apríl 1967, ef um semst á milli
stjórnanna.
Vestur Þjóðverjar hafa þegar
svarað þessu atriði orðsending-
Framh. á bls. 27
HIÐ ÍSLENZKA bókmennta-
félag sendir frá sér þessa dag-
ana ársbækur sínar fyrir árið
1965. Eru það Skímir, tímarit
Hins íslenzka bókmenntafélags,
og bókin Ritunartími íslendinga-
sagna, rök og rannsóknaraðferð
eftir Einar Ól. Sveinsson.
Er þetta 139. ár Skírnis ,sem
nú er undir ritstjórn Halldórs
Halldórssonar, prófessors. Er
efni hans f./ólbreytt, og af efni
eftir islenzka höfunda má nefna:
Handritamálið á lokastigi, eftir
ritstjórann, greinarnar Upphaf
íslandsbyggðar og Fyrsta mál-
fræðiritgerðin og upphaf íslenzkr
blaðamaður, Jóna Guðjónsdóttir,
form. verkakv.fel. Framsóknar,
Guðmundur Magnússon, skóla-
stjóri, Óskar Guðnason, prentari,
Sigfús Bjarnason, varaform. Sjó
mannafél. Reykjavikur, Þóra Ein
arsdóttir, frú, Jónas Ástr'áðsson,
form. FUJ, Þormóður Ögmunds-
son, bankafulltrúi, Torfi Ingólfs-
son, verkamaður, og Emilía
Samúelsdóttir, frú.
Auglýst eftii
vitnwn
BROTIZT var inn í skúr i
Hvassahraunslandi, sennilega á
tímabilinu frá hádegi á sunnu-
dag til mánudagskvölds s.l. Þeir
sem gætú gefið upplýsingar um
mannaferðir á þessum slóðum á
umgetnum tíma, eru vinsamlega
beðnir að snúa sér til lögreglunn-
ar i Hafnarfirði.
ar sagnaritunar eftir Hermann
Pálsson, lektor í Edinborg.
Bjarni Guðnason, prófessor skrif
ar þanka um siðfræði íslend-
ingasagna, Ólafur Halldórsson,
cand. mag. greinina Úr bréfum
Fjölnismanna; Finnbogi Guð-
mundsson, landsbókavörður um
eina jarlsvísu og konungsbréf;
Sveinn Einarsson, leikhússtjóri
greinina Helgileikir og herra-
nætur; Selma Jónsdóttir, list-
fræðingur um gamla krossfet-
ingarmynd og Aðalgeir ICristjáns
son cand. mag um Gísla sögu
og samtíð höfundar. Er þetta
Skirnishefti 219 bls.
Ritunartími íslendingasagna
eftir Einar Ól. Sveinsson, pró-
fessor er íslenzk útgáfa á bók,
er höfundur gaf út um þetta
efni í Lundúnum 1958 og nefnd-
ist Dating the Icelandic Sagas.
Var útgefandi þar The Viking
Society. í þessari islenzku út-
gáfu hefur ýmsu verið breýtt
og einnig bætt við nýjum köfl-
um, sumum skemmri öðrum
lengri, sem höfundi þótti vanta
í upphaflegri útgáfunni. Er bók-
in 165 bls. að stærð.
Báðar eru bækurnar prentað-
ar í Prentsmiðj unni Leiftri.
Afgreiðslu ársbókanna annast
-Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Austurstræti 18.
VINDUR var við norðrið og 10 stig á Bretlandseyjum en
él norðanlands og austan en um 5 stig í Suður Svíþjóð og
víðast þurrt og léttskýjað á Danmörku, en hér var frost
Suður og Vesturlandi þegar um allt land.
leið á daginn. Hiti var um
Listi Alþýðuflokksins við
borgarstjórnarkosningar
Skírnir og Ritunar-
tími íslendingasagna
Árbækur Hins íslenzka bókmennta-
félags komnar út