Morgunblaðið - 31.03.1966, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 31.03.1966, Qupperneq 27
Fimmtudagur 31. marz 1966 27 MORGU NBLAÐIÐ Sverrir Haraldsson. Franska ríkið kaupir mál- verk eftir Sverri Haraldss. — Kosið Framhald af bls. 1. iherrann ástæðu til að vera mjög bjartsýnn. Aðallega virðist hon- um hafa tekizt að vinna hylli ungs miðstéttarfólks, en þessar fjölskyldur studdu margar hverj- ar íhaldsflokkinn við kosningarn ar 1959, Frjálslynda flokkinn 1964 og sennilega Verkamanna- llokkinn nú. Hinsvegar virðist hækkandi verðlag, takmörkun lána og hækkun húsaleigu hafa skapað einhvern glundroða hjá ófag- lærðum verkamönnum, sem hing að til hafa verið eindregnir fylg- ismenn Verkamannaflokksins. Næstu fimm árin má búast við að ákvörðun verði tekin um að- ild Breta að Efnahagsbandalagi Evrópu, og að mikilsverðar á- kvarðanir reynist nauðsynlegar varðandi efnahag Bretlands. Einnig má reikna með breyttri afstöðu til varnarmála. Sigri Verkamannaflokkurinn, eins og sennilegt virðist, má búast við að hann snúi sér meira að áætl- unarbúskap, og auknu eftirliti með iðnaði landsins. Leiðtogi íhaldsflokksins, Edward Heath, hefur hinsvegar lýst því yfir að flokkur hans muni berjast fyrir auknu einstaklingsframtaki, þótt ekki hafi hann hugsað sér breyt- ingar á grundvallaratriðum nú- verandi velferðarríkis. Kosningarnar hefjast klukkan sex í fyrramálið eftir staðartíma og verður kjörstöðum lokað kl. 20. Talning hefst strax eítir lok- un, og er búizt við úrslitum úr 425 kjördæmum fyrir klukkan tvö aðfararnótt föstudags (þ.e. kl. eitt eftir ísl. tíma). Á föstu- dagsmorgun hefst svo talning klukkan níu í kjördæmum þeim sem eftir verða. Búizt er við að heildarúrslit verði kunn á föstu- dag, en hugsast getur að eitt eða tvö kjördæmi verði eftir til laugardags. Leiðtogi þess flokks, sem fer með sigur af hólmi í kosning- unum, mun svo mynda nýja rík- isstjórn áður en næsta þing kem- ur saman í fyrsta sinn hinn 21. apríl n.k. Alls eru frambjóðendur nú 1707, og keppa sem fyrr segir um 630 þingsæti. íhaldsflokkur- inn býður fram í öllum kjör- dæmum, Verkamannaflokkurinn í 621, og frjálslyndir í 311. — Körfubolti Framhald af bls. 26 víkur skoruðu Agnar og Einar Matth. 16 hvor, Birgir 15, Gunn- ar 8, Hólmsteinn 6, Kristinn og Kolbeinn 5 hvor, og Hallgrímur 4. Hvort lið um sig tók 16 víti og hittu liðin H hvort. Dómarar í leiknum voru Finnur Finnsson og bandariskur dómari, og dæmdu þeir vel. — Takmarkið Framhald á bls. 10 ingarframkvæmdir hjá ykkur undanfarið? —• Svo mun ekki hafa verið, þar sem athafnalífið hefur verið heldur dauft framan af í vetur sökum aflaleysis, sem vonlegt er í fiskveiðabæ, þegar lítið sem ekkert veiðist. En þetta stendur allt til bóta núna. — En lítið þið Sjálfstæðiskon- urnar ekki björtum augum á framtíðina? — Að sjálfsögðu. Við vonumst alltaf eftir að fá fleiri konur til þess að efla starfsemi okkar og að okkur takist að koma konum að í bæjarstjórnina. Sem stend- ur á engin kona sæti þar. STJÓRN FÉLAGSINS Stjórn Sjálfstæðiskvennafé- lagsins „Bárunnar" skipa eftir- taldar konur, ásamt formannin- um, frú Ragnheiði Þórðardóttur, Valgerður Sigurðardóttir, vara- formaður, Fríða Proppé, gjald- keri, Helena Halldórsdóttir, rit- ari, og meðstjórnandi Sigríður Auðuns. í varastjórn eru Svana Þorgeirsdóttir og Stefanía Sig- urðardóttir. Á ALÞJÓÐLEGRI málverkasýn- ingu (Biennal), sem haldinn var í París í lok síðasta árs á verk- um ungra mélara (undir 35 ára aldri), keypti franska ríkið mál- verk eftir Sverri Haraldsson. Blaðið hefur frétt, að málverk ið verði sett upp í Musé des Arts í París. Málverk þetta var ekki til sölu á sýningunni, þar sem það var í einkaeign, en eigandi myndar- innar heimilaði listamanninum engu að síður að selja myndina. Málverk þetta, er var á síðustu sýningu Sverris hérlendis nefn- ist „Landslag“, málað 1963, stærð 88x120, og seldist það á 18 þús- und kr. Sverrir ótti þrjár myndir á þessari sýningu í París. Blaðið hefur fregnað, að Sverrir Haraldsson muni setja — Frakkar Framhald af bls. 2. arinnar með því að gefa í skyn að frönsku hersveitirnar þar í landi verði að vera undir sam- eiginlegri yfirstjórn Atlantshafs- bandalagsins. Að loknum fundi vestur þýzku stjórnarinnar í Bonn í dag sagði talsmaður hennar að dvöl franskra her- sveita í landinu væru samkvæmt samningum margra ríkja. Og að þessir samningar væru ein heild, svo ekki væri unnt að útkljá málið með einkasamningum Frakka og Vestur Þjóðverja. Fulltrúar hinna aðildarríkj- anna 14 komu sáman til fundar í París í gær. Skýrði Joseph Luns, utanríkisróðherra Hol- lands frá því í Amsterdam í dag að fundurinn hafi orðið til þess að efla mjög einingu ríkjanna, og að þau mundu í framtíðinni koma sameiginlega fram í mál- um, er varða Frakkland og ákvörðun Frakka um að segja sig úr Atlantshafsbandalaginu. Haft var eftir óstaðfestum fréttum í París að fulltrúar ríkj- anna 14 hafi á fundi sínum í gær ákveðið að láta Frakka greiða fullu verði ákvörðunina um úrsögn úr NATO. Var ákvörð unin tekin eftir að fulltrúarnir höfðu hlýtt á ræðu Georges Balls, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkj anna. Var samþykkt fulltrúanna á þá leið að skora á Frakka á að greiða hluta hluta af kostnaðinum við flutningana. Einnig var ákveðið að Frakkar skyldu ekki lengur hafa aðgang að sameiginlegu varnarkerfi bandalagsins, sérstaklega að því er varðar loftvarnir. Einnig er það haft eftir George Ball að Bandaríkjamenn muni krefja Frakka um þau kjarnorkuvopn, er þeim hafa verið lónuð í varn- arskyni, ef de Gaulle Frakklands forseti stendur við hótanir sínar um úrsögn úr NATO. Benda heimildirnar á að með þessum aðgerðum Bandaríkjanna standi Frakkar uppi varnarlausir. upp stóra sýningu á nýgerðum málverkum og „tréskúlptúr" í lok næsta mánaðar. — Flokksþingið Framhald af bls 1 flokksins, sem er bannaður i heimalandi sínu. Fulltrúar Alsír, þeir sem heim fóru, eru hins vegar félagar þjóðfrelsisfylking- arinnar. Fulltrúi Norður Vietnam, Le Duan, flutti Leonid Brezhnev þakkir fyrir ummæli hans frá í gær um baráttu Vietnambúa gegn Bandaríkjunum. Sagði hann að stuðningur flokksþings- ins við baráttuna væri Vietnam- búum mikils virði. Hélt hann því fram að tilraunir „heims- valdasinna“ til að undiroka Viet nambúa væru fyrirfram dauða- dæmdar. Þá lýsti hann því yfir að kommúnistar í Norður Viet- nam væru trúir þeim grundvall- arreglum byltingarinnar, er fram kom í Moskvu-yfirlýsing- unum 1957 og 1960, og mundu vinna af einhug að einingu í al- þjóða kommúnistahreyfingunni. Wladyslav Gomulka, leiðtogi pólskra kommúnista, sagði að Bandaríkjamenn hefðu tekið að sér hlutverk alheimslögreglu auðvaldsstefnunnar. Fordæmdi hann „árásarstefnu" Bandaríkj- anna gagnvart Vietnam, og sagði að Pólland mundi halda áfram, ásamt öðrum kommúnistaríkj- um, að veita Vietnam hugsjóna- legan og efnahagslegan stuðning. Þá veittist Gomulka að Vestur Þjóðverjum, sem hann sagði vilja endurskoða og breyta nú- verandi landamærum Póllands í vestri og „afmá“ Austur Þýzka- land. Sagði hann stefnu Vestur Þjóðverja hættulega heimsfrið- inum. Ferming í Sauðárkrókskrrkju á pálma- sunriudag kl. 10,30 og 13,30. — Prestur sr. Þórir Stephensen. Piltar: Árni S. Ingimundarson, Ketu, Rípurhreppi. Einar I. Gíslason, Hólavegi 18. Erlingur Viðar Sverrisson, Skagfirðingabraut 39. Finnbogi J. Rögnvaldsson, Skagfirðingabraut 5. Guðmundur Örn Ingólfsson, Hólavegi 21. Jóhann Aadnegard, Skógargötu 1 Kristján M. Kárason, Hólavegi 23 Magnús H. Rögnvaldsson, Skagfirðingabraut 11. Marteinn R. Guðmundsson, Skagfirðingabraut 35. Matthías H. Angantýsson, Hólmagrund 1. > Stefán Árnason,- Skagfirðinga- braut 1. Stefán S. Guðjónsson, Skólastíg 1 Vilhjálmur Egilsson, Bárustíg 1. Stúlkur: Alda J. Skarphéðinsdóttir, Gili, Skarðshreppi. Anna Kristín Gunnarsdóttir, Hólavegi 17. Anna S. Friðriksdóttir Öldustíg 9 Elín J. Hansen, Ægisstíg 1. Elín H. Sæmundsdóttir, Skógargötu 18. Guðbjörg Marteinsdóttir, Ægisstíg 5. Guðbjörg S. Pálmadóttir, Ægisstíg 3. Guðlaug R. Jónsdóttir, Hólavegi 26. Guðrún Marteinsdóttir, Ægisst. 5 Guðrún Pálsdóttir, Hólma- grund 11. Hanna Björg Halldórsdóttir, Skólastíg 1. Jóhanna S. Björnsdóttir, Aðalgötu 13. Karlotta Evertsdóttir, Bárustíg 10 Kristín D. Árnadóttir, Hólmagrund 4. Kristín S. Ögmundsdóttir, öldustíg 13. María J. Valgarðsdóttir, Skagfirðingabraut 4. Sigurlaug H. Jónsdóttir, Skógargötu 24. Sigurlaug S. Pálsdóttir, Freyjugötu 21. Svava S. Hjaltadóttir, Öldustíg 3. Tilkynniny til hluthafa í Ht Eimskipafélagi Islands Með því að enn eiga allmargir hluthafar í H.f. Eimskipa- félagi íslands eftir að skipta hinum eldri hlutabréfum sínum fyrir jöfnunarhlutábréf með tíföldu verði, sam- kvæmt auglýsingu félagsins dags. 12. júlí 1963, er hér með eindregið skorað á þessa hluthafa að framvísa hluta- bréfunum hið fyrsta, þareð nauðsynlegt er að unnt verði að ljúka hlutabréfaskiptunum eigi síðar en um næstu áramót. Hlutabréfin ásamt stofnum og arðmiðaörkum skulu af- hent aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík, en hlutabréfun- um er veitt viðtaka á 4. hæð í húsi félagsins, Pósthús- stræti 2. (Ekki er nóg að afhenda eða senda aðeins stofninn og arðmiðaörkina, heldur verður að afhenda sjálft hluta- bréfið). Þeir hluthafar, sem ekki geta komið því við að afhenda skrifstofunni hlutabréf sín, geta sent þau í ábyrgðárpósti, eða afhent þau afgreiðslumönnum félagsins úti á landi, sem síðan senda hlutabréfin áfram til aðalskrifstofunnar. Með því að hlutabréfin eru nafnskráð, er nauðsynlegt að skrifa á bakhlið þeirra greinilegt nafn og heimilisfang þess, sem hlutabréfin skulu nafnskráð á. Hafi orðið eig- endaskipti að hlutabréfi, skal útfyllt sérstakt eyðublað með tilkynningu um eigendaskiptin. Eyðublöð þessi má fá á skrifstofu félagsins í Reykjavík og hjá afgreiðslu- mönnum þess um land allt. Nú hefur hlutabréf glatazt eða eyðilagst á einhvern hátt og skal það þá tilkynnt skrifstofu félagsins eða afgreiðslu- mönnum þess. Eyðublöð fyrir Slíkar tilkynningar má fá á skrifstofu félagsins og hjá afgreiðslumönnum þess úti á landi. Glötuð hlutabréf. Til þess að unnt sé að gefa út nýtt hlutabréf í stað hlutabréfs sem hefur glatazt, verður samkv. 29. gr. laga nr. 77, 27. júní 1921 um hlutafélög, svo og 5. gr. samþykkta Eimskipafélagsins að fá ógild- ingardóm á hinu glataða hlutabréfi. Þarf þá að höfða mál til ógildingar á hlutabréfinu, en með því að slíkt hefur í för með sér bæði fyrirhöfn og nokkurn kostnað fyrir hvern einstakan hluthafa, hefur stjórn Eimskipa- félagsins samþykkt að veita þeim hluthöfum, sem þess óska, aðstoð félagsins við útvegun ógildingardóms, þeim að kostnaðarlausu. Hafa margir hluthafar nú þegar not- fært sér aðstoð félagsins í þessu efni, og hafa þegar verið gefnar út stefnur þeirra vegna og birtar í „Lög- birtingablaði“. Þeir hluthafar, sem enn hafa eigi framvísað hluta- bréfum sínum eða tilkynnt félaginu að þau séu glötuð, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins í Reykjavík, eða afgreiðslumenn þess úti á landi, og framvísa hlutabréfunum, eða tiikynna að séu talin glötuð. Eyðublöð fyrir tilkynningar um glötuð hlutabréf, svo og eyðublöð fyrir umboð til handa Eimskipafélaginu til þess að höfða mál til ógildingar á hlutabréfum, sem talin eru glötuð, fást einnig á skrifstofu félagsins í Reykjavík og hjá afgreiðslumönnum þess úti á landi. Ennfremur má fá þar upplýsingar um númer þeirra hlutabréfa, sem talin eru glötuð og þegar hefir verið birt stefna út af, ásamt nafni og heimilisfangi upphaf- lega eiganda þeirra og þess hluthafa, sem óskað hefur eftir ógildingu hlutabréfanna. Séu hlutabréf talin glötuð og ekki er vitað um númer þeirra, mun skrifstofa félagsins veita aðstoð sína við að afla upplýsinga um það, ef getið er nafns og heimilis- fangs hins upphaflega eiganda hlutabréfanna, eða nafn og heimilisfang núverandi eiganda þeirra, hafi þau verið framseld síðar og eigendaskiptin skráð hjá félaginu. Reykjavik, 25. marz 1966. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS (Hlutabréfaskipti).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.