Morgunblaðið - 19.04.1966, Page 5
T>r?ðjudagur 19. apríl 1966
MORGUNBLAÐID
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
EINS og skýrt hefur verið
frá í fréttum hafa niu tækni-
menn fslenzka sjónvarpsins
verið á þriggja mánaða tækni
námskeiði í Kaupmannahöfn
frá því í byrjun desember sl.
árs. Var námskeiðið bóklegt
framan af, en síðan hlutu
tæknimennirnir verklega
þjálfun. Námskeiðið var hald
ið í hinu glæsilega sjónvarps-
veri Dana í Giadsaxe, og
höfðu íslenzku tæknimennirn
ir stærsta upptökusalinn til
afnota. Síðasta hálfa mánuð-
inn unnu tæknimennirnir
sjálfstætt að verkefnum í sam
vinnu við dagskrármenn sem
komið höfðu til fundar við þá
að heiman. Voru þetta fyrstu
upptökur íslenzka sjónvarps-
ins. Var svo háttað til, að að-
stæður voru allar hinar sömu
og verða munu, er upptökur
hefjast að Laugavegi 176.
Þess má og geta, að í lok
námsskeiðsins var íslenzku
sjónvarpsmönnunum falið að
annsist sjónvarpsútsendingu
frá dönsku bæjarstjómankosn
ingunum. Var Ihér um beina
útsendingu að ræða, og komu
útsendingar þeirra níu sinn-
um inn í sjónvarpsdagskránna
að kvöldi kosningadags og
stóðu þær yfir nokkrar min-
útur í senn. Sjónvarpað var
frá Ráðhúsinu í Kaupmanna-
höfn og tókst svo vel til, að
íslendingarnir fengu allir
þakkar- og viðurkenningar-
skjal frá danska sjónvarpinu
fyrir vel unnið starf.
Fréttamenn blaðsins höfðu
tal af félögunum níu í Sjón-
varpsdeild Ríkisútvarpsins að
Laugavegi 176.
Við hittum að máli Jón
Hermannsson, fyrirliða hóps-
ins, og innum hann eftir því,
hvemig vprkaskiptingu hafi
verið háttað við sjónvarps-
upptökumar.
— Myndatökumenn eru
þeir Þórarinn Guðnason, Örn
Sveinsson og Siguiiliði Guð-
mundsson. Hljóðupptöku ann-
ast Úlfar Sveinbjörnsson,
kvikmyndasýningarmaður er
Sverrir Kr. Bjarnason og í
myndstjórn (C.C.U.) er Guð-
mundur Eiríksson. Ljósameist
ari er Ingyi Hjörleifsson, um
sjónannaður myndsegulibands
er Sigurður Einarsson og út-
sendingum stjórnar Andrés
Indriðason.
Þess má geta, að í ofanverð
um næsta mánuði er væntan-
legur sjónvarpsupptökuvagn,
sem Svíar lána okkur, en það
er einmitt sami vagninn og
við notuðum í Kaupmanna-
höfn. Við höfum af innbornu
skopsyni okkar kallað vagn
þennan „Þóru“ og því til sam
ræmingar kallað sjónvarps-
upptökuvélarnar, sem „Þóru“
fylgja „Bellu“, „Maríu“ og
„Rósu“. Upptökuvagninn verð
ur notaður meðan beðið er
eftir nýjum taskjaútíbúnaði,
sem Sjónvarpið mun eignast.
Þrátt fyrir það, að Þóra sé
elzti sjónvarpsvagn Svía, inn-
réttuð 1957, er hún enn í
fullu fjöri. Eitt sinn man hún
raunar sinn fífil fegri; þá var
hún almenningsvagn á götum
Stokkhólmsborgar.
— Og þið tókuð upp sjón-
varpsþætti á eigin spýtur?
— Jú, síðustu tvær vikur
námskeiðsins unnum við sjálf
stætt að upptöku klukkutjma
sjónvarpslþátta á dag og nut-
um í þeim efnum m.a. góðrar
fyrirgreiðslu íslenzíkra stúd-
enta í Kaupmannahöfn, sem
komu fram með ýmis atriði.
Með okkur störfuðu þá
Andrés Indriðason, sem stjóm
andi, Markús Örn Antonsson
og Magnús Bjarnfreðsson sem
fréttaþulir tvo daga og Ólaf
ur Ragnarsson sem sviðs-
stjóri.. Þrír hinir síðastnefndu
eru nú á námskeiði fyrir
stjórnendur dagskrárliða í
Stokkhólmi.
Sjónvarpsmenn vinna nú af
kappi að undirbúningi Sjón-
varpsins, sem væntanlega hef
ur útsendingar á hausti kom-
anda. Hefur þegar borizt tals
vert af tækjaútbúnaði, sem
Svíar, Norðmenn og Finnar
lána okkur. Upptökusalurinn
verður að líkindum tilbúinn
í júní og ættu fyrstu upptök-
urnar, sem að sjálfsögðu
verða aðeins til reynslu, að
geta hafizt upp úr þvá. e.t.
Velheppnað námskeið tækni-
manna íslenzka sjónvarpsins
hárþurrkur með hettu, eru komnar aftur.
Hentug fermingargjöf.
Krups-Passat hárþurrkurnar fást í eftirtöldum
verzlunum:
Luktinni, Snorrabraut 44
Liverpool, raftækjadeild,
Laugavegi 18a
Raflampagerðinni, Suðurg. 3
Járnvöruverzl. Jes Zimsen h.f.
Hafnarstræti 21, og
Suðurlandsbraut 32.
Umboðsmenn fyrir KRUPS rafmagnstæki;
Jón Jóhannesson & Co.
Skólavörðustíg la — Sími 15821.
Siómenn
Matsvein vantar nú þegar á góðan trollbát. Upp-
lýsingar í síma 1-36-23.
LAUGAVEGI 59..slmi 18478
ítolskor kvenpeysur
N Ý SENDING.
E L F U R
Laugavegi 38 — Snorrabraut 38.
Rambler classic ’63
einkabifreið í mjög góðii ásigkomulagi til sýnis og
sölu í dag. Skipti á ódýrum bíl koma til greina
einnig skuldabréf. Upplýsingar í síma 16289 eða
Laugarnesvegi 43.
vantar nú þegar á Góðan trollbát.
Upplýsingar í síma 1-36-23.
Hefi til sölu
Stúlka óskast
til eldhússtarfa, sem kann að
búa til algengan mat. Uppl.
Smurbrauðsstofan Björninn,
Njálsgötu 49.
mjög skemmtilega íbúð á góðum stað við Efstasund.
íbúðin er 3 herbergi á hæð og 2 herbergi í risi.
Stór og vandaður bílskúr, ca. 50 ferm. fylgir.
SIGURÐUR REYNIR PÉTURSSON
hæstaréttarlögmaður
Óðinsgötu 4. — Sími 41414.
Með fótlagi ^
og innleggi
Skóhúsið