Morgunblaðið - 19.04.1966, Page 12
MORGU N BLAÐIÚ
?>r!8Judtagur 19. aprfl 1966
( 12
UTAN AF LAIMDI LTAIM AF LAIMDI IJTAIM AF LAIMDI LTAIM AF LAIMDI
IITAIM AF I A\DI IITAIM AF LAIMPI LTAIM AF LANPI LTAN AF LAIMPI
Miklar byggingafram kvæmdir
ÚR Hrunamannahreppi. - Hér
í sveitinni hafa átt sér stað
miklar framkvæmdir á árinu
sem leið. Ber þar fyrst að
nefna nýjan barnaskóla, sem
hefur verið í smíðum undan-
farin tvö ár og er eran hvergi
nærri lokið. Húsið er sagt um
1200 fermetrar að flatarmáli.
Gamla skólahúsið var bæði
orðið of lítið og ónothæft að
öðru leyti. Þess vegna hefur
nú í tvo vetur verið kennt
í félagsheimili sveitarinnar.
Hafa því bömin verið sótt og
ekið aftur heim daglega. Þetta
hefur gengið allvel, þótt ýms-
ir agnúar séu þar á, eirakum.
hvað lestrartíma barnanna
snertir. Nú er 'byggingin hins-
vegar kömin það langt, að
skólastjórinn hefur fengið þar
íbúð og einni deild barna er
kennt þar. Þrír kennarar
starfa nú við skólann.
Á Flúðum má segja að
upp muni rísa þorp, enda hef-
ur verið ráð fyrir því gert.
Jarðhiti er allmikill á svæð-
Vatnsborinn að starfL
inu, en þó ekki nógur með
vaxandi byggð. Þess vegna
hefur verið ráðizt í borun eft-
ir meira vatni. Náðist með
því mikið heitt vatn, en sá
galli var á gjöf Njarðar, að
vatnið hvarf úr ölluim nálæg-
um hverum, þar á meðal
Grafahver. Kom hér upp
vandamál, sem óráðið er
hvernig leyst verður.
Byggingaframikvæmdir hafa
verið miklar, bæði íbúðarhús
og peningshús og áformað
mun að byggja mikið á þessu
ári. Jarðræktarframkvæmdir
voru einnig miklar. Jarðýta
vann fleiri stundir en nokk-
urntíma áður. Finnski plógur-
inn ræsti fram mýrar um
600 km. Skurðgrafa gróf um
100 þúsund rúmmetra. Hefur
þá verið grafið í sveitinni
alls um tvær milljónir rúm-
metra. Það sem hér hefur ver-
ið sagt frá má vera sem dæmi
um það, hvaða stórhugur ríkir
meðal þess fólks, sem í sveit-
unum býr, en ekki til þess að
sýna hvað þessi sveit skari
fram úr öðrum.
Hinn 28. nóvemiber sl. átti
Hrunakirkja aldarafmæli. Yið
Nýreist peningsliús í Götu.
Nýtt íbúðarhús í MiðfellL
það tækiifæri bárust henni
eftirtaldar gjafir:
Hökull til minningar um sr.
Kjartan Helgason og frú Sig-
ríði Jóhannesdóttur frá börn-
um þeirra hjóna.
Kristín Gunnlaugsdóttir frá
Gröf færði kinkju sinni 20
þúsund kr. að gjöf til minn-
ingar um mann sinn Arnór
Gíslason. Ljósakróna barst
herani frá Kvenfélagi Hruna-
mannahrepps. Ennfremur
blómavasi úr silfri til minn-
ingar um hjónin Ástríði Jóns-
dóttur og Hróbjart Hannesson
Grafarbakka, frá dóttur þeirra
Jóhönnu. Frá Bjarna Hall-
dórssyni Gilsbakka kr. 3000,-,
frá Þóru Loftsdóttur Grafar-
bakka kr. 4000,- og frá Jóiý
Briem kr. 1000,-. S. Síg.
Nýi barnaskólinn í byggingu.
Samstarf og einhugur
Tíðum níðum verölð vér
vægjum samt því tetri;
hún er vond, en hluturinn er:
Vér höfum ei aðra betri.
Steingrímur Thorsteinsson.
Á ÍSLANDI er gefinn út fjöldi
blaða, dagblöð, vikublöð og mán-
aðarblöð. Þessi blöð flytja marg-
víslegt efni og fylgja alls kyns
stefnum og skoðunum. En eitt
eiga þau flest sammerkt, en það
er kvörtunardálkar fyrir almenn
ing. í þessum dálkum birtast bréf
frá almenningi, og mega þau í
flestum tilfellum fjalla um hvað
*em er milli himins og jarðar.
En í miklum meirihluta eru alls
konar kvartanir í þessum bréf-
um, og heyrir það til undan-
tekninga ef einhverju er hrósað.
Þetta minnir mig á sögu, sem
ég las einhvern tíma. Þessi saga
var um englana, sem voru í
eendiferðum milli himins og
jarðar. Englarnir skiptust í tvo
hópa. Annar hópurinn var all-
stór, en þó voru englarnir í hon-
um alltaf á þönum. Þessir engl-
ar fluttu bænir mannanna til
Guðs. Hinn hópurinn var öllu
minni, og oft var rólegt hjá
þeim englum, sem þar störfuðu.
Þeirra verk var að flytja þakkir
mannanna til Guðs.
Það er oft og einatt, þegar fólk
vill úrbætur á einhverju, að það
heimtar og heimtar, en gerir á-
kaflega lítið til að koma á móts
við þann, sem á að koma með
úrbótina. Stundum fær þetta
fólk vilja sínum framgengt, en
þá vill bregða við, að þakkirnar
gleymist.
Það er áreiðanlega margt í
þessum heimi, sem hægt er að
kvarta yfir og þarf lagfæringa
við. En stærsta vandamálinu vill
almenningur oft gleyma, eða
hugsar að minnsta kosti lítið um.
Þetta vandamál er hungrið. Það
er reyndar mikið á dagskrá hjá
vissum aðilum, og stundum dett-
ur fólki í hug, að það ætti nú að
láta fé af hendi rakna til hjálpar
fátæklingum, en svo gleymist
þetta í dagsins önn.
Ég ætla að segja smá sögu,
sem við flest höfum einhvem
tíma upplifað sjálf. Hugsum
okkur, að við komum þar að,
sem móðir á í stríði við börnin
sín, sem ekki vilja borða ein-
hvern ágætan mat. Hvað gerir
•hún þá? Jú, það getur verið
margt, en í mörgum tilfellum
segir hún eitthvað á þessa leið:
„Hugsaðu um öll litlu börnin í
heiminum, sem aldrei £á neitt að
borða“. Svo, þegar hún hefur
loksins belgt börnin sín út af
kynstrunum öllum af mat, þá
sezt hún sjálf niður og innbyrðir
ekki minna. En litlu, svöngu
börnunum gleymir hún og hugs-
ar ekki meir um þau fyrr en
hennar börn neita næst að borða
matinn sinn.
Einhver vís maður hefur sagt,
að þeir, sem ekki deyi úr hungri,
deyi úr ofáti. Áreiðanlega gætu
margir lengt líf sitt um nokkur
ár með því, meðal annars, að
leggja fé og vinnu af mörkum í
baráttunni gegn hungrinu. Ef al-
menningur stæði saman, mætti
gera geysilegt átak. Þó hver ein-
- Ur ýmsum áttum
Framhald af bls. 16
Það var þó ekki fyrr en
fyrir tveimur vikum að þeir
félagar tilkynntu um fund
sinn, en menn eru ekki á eitt
sáttir um það hver fjársjóð-
inn eigi. Þeir skildingar, sem
náðst hafa upp af hafsbotnin-
um, hafa verið settir í banka-
geymslu. Fjöldi skildinganna
hefur ekki verið gefinin upp,
en Storm álítur að þeir séu
minnst 30 milljónir ísl kr. að
verðmæti. Fylkisstjórnin í
Nova Scotia heldur því fram,
að samkvæmt gömlum samn-
ingi, eigi hún að fá 10% af
fjársjóðinum. Kainadastjórn
heldur því hinsvegar fram,
að henni beri fjársjóðurinn
allur, þar sem telja beri hann
sem herfang. Eitt atriði enn
sem mikið hefur verið um
rætt, er það hvort þeir félag-
ar hafi grúskað í áðurnefnd-
um skjölum í vinnutíima sín-
um eða ekki! Til að gera mál
þetta ennþá flóknara, hefur
komið fram kæra á hendur
Storm frá fimm ílbúum í Nova
Scotia, sem telja, að þeir hafi
á sínum tíma fengið leyfi
stjórnarinnar til að leita að
franska fjársjóðnum. Til þessa
dags hafa Storm og félagar
hans ekiki hagnazt neitt á
þessum fundi. Ef heppnin
verður þeirra megin, hyggst
Storm nota sinn hluta til að
kosta leit að fjársjóði í
spænsku skipi, sem sagt er að
solokið hafi nokkuð norðar við
strönd Kanada.
staklingur gæfi ekki nema ör-
lítið brot af launum sínum,
kæmi fljótlega gífurleg fjárupp-
hæð, sem gæti orðið til mikilla
framfara í þessari baráttu.
Svo sem menn rekur minni til,
var á öndverðum þessum vetri
hafin mikil fjársöfnun að til-
hlutan Herferðar gegn hungrL
Það var myndarlegt átak, en sér-
staklega var aðdáunarvert, hve
almenningur brást vel við. Þar
.gannaðist, hvað mikið má gera,
éf við erum einhuga og stöndum
saman.
Einar Ólafsson.
Ms.
Kronprins Frederik
fer frá Reykjavík miðviku-
daginn 27. apríl n.k. Tilkynn-
ingar um flutning óskast sem
fyrst.
Skipaafgr. Jes Zimsen.
Síimi 13025.
Orðsending til
félagsmanna
Simi á ljósastillingastöð fé-
lagsins, Langiholtsvegi 171, er
3 11 00.
Félag ísl. bifreiðaeigenda.
HLJÖÐFÆRAHÚS REYKJAVÍKUR, HAFNARSTRÆTI 1