Morgunblaðið - 05.05.1966, Blaðsíða 1
32 síður
Hallar undan fæti
fyrir Sukarno
— mótmælt skipun 18 manna í æðsta ráð;
mótmælendur áttu sjálíii að taka þar sæti
Djakarta, 4. maí — NTB
í DAG jókst enn andstaðan
gegn Sukarno, forseta Indó-
nesíu, er 18 framámenn, sem
Sukarno hafði skipað í æðsta
ráð það, er hann hefur ný-
lega sett á laggirnar, neituðu
að taka í því sæti. Menn þess-
ir eru sagðir fulltrúar áhrifa-
mestu samtaka Indónesíu.
Samkvæmt fregnum þeim,
sem fréttastofan „Antara“ lét
frá sér fara í dag, hafa þeir
18 menn, sem hér um ræðir,
farið þess á leit, að frestað
verði skipun í æðsta ráð þetta
þar til löggjafarþing þjóðar-
innar — æðsta stofnun heiin-
ar, skv. stjórnarskránni —
kemur saman á nýjan leik.
Það sé löggjafarþingið, ekki
forsetinn, sem ráða eigi skip-
un ráðsins.
Þá hafa þessir menn enn frem-
ur farið þess á leit, að séð verði
til þess, að tækifærissinnar og
aðrir óábyrgir aðilar, sem for-
setinn hafi ætlað sæti í ráðinu,
verði ekki látnir sitja í því.
Meðál þeirra, sem andmælt
hafa skipun Sukarnos, er utan-
rikisráðherra Indónesíu, Maiik,
sem þekktur er fyrir andstöðu
sína við kommúnista. Hafa þess-
ir menn haldið því fram, að skip-
an Sukarnos sé ógild, þvi að for-
setinn hafi ekki lengur nein völd,
Framhald á bls. 31.
Gullfundur
í flugvél
■Geimrannsóknastöðin í Bochum í V-Pyzkalandi, hefur látið þessa mynd frá sér fara. — Var
hún tekin um borð í veðurathu ganahnettinUm „Essa-2“ og sýn ir (gott) veður yfir Evrópu 1.
maí. Örin „1“ bendir á Gíbraltar, en örin 11“ á Bretland. Myndin var tekin, er hnötturinn var í
um 1800 km. hæð. — (AP).
Stikker vilf að ný samtök komi í stað
Atlantshaf sband alagsins
— Segii ákvörðun de Gaulle ryðja úi vegi meiriháttar hindrun,
sem staðið haíi í vegi íyrir eðlilegri þróun bandalagsins
Amsterdam, 4. maí — AP:
DIRK STIKKER, fyrrum fram
kvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, hefur lagt til, að
ný stofnun verði iátin koma í
stað núverandi bandalags.
Stikker lýsti því yfir í dag,
að DeGauIle, Frakklandsfor-
seti, hefði gefið „Gromyko (ut
anrikisráðherra Sovétrikj-
anna) og félögum hans góða
ástæðu til að gleðjast“. Hins
vegar sagði Stikker, að ákvörð
un Frakklandsforseta þyrfti
ekki að hafa áhrif, nema um
skamman tima. Vega mætti
upp á móti þeirri ákvörðun
DeGauile og stjórnar hans að
segja Frakkland úr Atlants-
hafsbandalaginu.
„Ákvörðun Frakka er góð
að því leyti, að með henni er
rutt úr vegi meiri háttar hindr
un, sem staðið hefur í vegi fyr
ir eðlilegri þróun Atlantshs>:-
bandalagsins", sagði Stikker.
Ummæli framkvæmdastjór-
ans fyrrverandi birtust í dag
í blaðinu „Algemeen Handels-
blad“.
Stikker sagði enn fremur,
að hann væri hlynntur þeirri
hugmynd, sem komið hefði
fram, að önnur ríki bandalags
ins, 14 að tölu, svöruðu ókvörð
un DeGaulle með því að
mynda með sér ný samtök,
„The North Atlantic Treaty
Integrated Organization'*.
Þá væri fenginn grundvöll
ur fyrir því, að bandalagsþjóð
irnar 14 tækju til meðferðar
þau atriði varnarmála, sem
skipta þau mestu máli. Mætti
þá æskja samstarfs við Frakka
sem miðaði að því, að skipzt
yrði á nauðsynlegum upplýs-
ingum.
Stikker sagði enn fremur,
að grípa ætti það tækifæri,
sem nú hefði gefizt, til þess
að bæta skipulag yfirherstjórn
arinnar. Hefði nú gefizt tæki-
færi til að auka á verkaskipt-
ingu aðildarríkjanna, þ.e.
þeirra, sem legðu sameigin-
legum her lið.
Þá sagði Stikker að stjórn
Bandarikjanna ætti að fá
SACEUR (yfirherstjórninni í
Evrópu) í hendur smærri
kjarnorkuvopn sem þörf væri
á í álfunni.
Afhyglisverðar fiilögur ungra SjálfsfæðisKnanna:
Stefnt að gagnge rðum umbótum á
lánakerfi húsnæðismála
• Húsbyggjendui eigi kost á lánum allt
að 807® af kostnaðarveiði íbúða
• 10 liðii um lækkun byggingarkostnaðai
UNGIR Sjálfstæðismenn í
Reykjavík hafa sent frá sér
nýjar tillögur í húsnæðismál-
um. sem gera ráð fyrir gagn-
gerðum umbótum á því lána-
kerfi húsnæðismála, sem nú
er fyrir hendi. í samþykkt
sem ráðstefna Heimdallar um
húsnæðismál gerði sl. laugar-
dag er lýst tveimur megin-
markmiðum ungra Sjálfstæð-
ismanna í húsnæðismálum,
sem stefna beri að á nokkru
árabili:
♦ Byggt verði upp lána-
kerfi, sem veiti hús-
byggjendum kost á hag-
kvæmum lánum allt að
80% af kostnaðarverði
íbúða.
ý Til þess að lækka kostn-
aðarverð ibúða verði á
skipulagsbundinn hátt,
með vísindalegum rann-
sóknum og tæknilegum
aðgerðum unnið mark-
visst að lækkun bygg-
ingarkostnaðar í land-
inu.
, »
I tillögum ungra Sjálfstæðis-
manna er bent á eftirlarandi
skiptingu fjáröflunar til húsbygg
inga, sem æskilegt markmið á
næstu árum:
♦ Húsnæðismálastjórn veiti
\ lán allt að 50% kostnaðar-
verðs meðalíbúðar.
♦ Lífeyrissjóðir veiti lán alit
að 30% kostnaðarverðs
slíkra íbúða.
Til þess að afla fjár til slíks
lánakerfis benda ungir Sjálf-
stæðismenn í Reykjavík á eftir-
farandi ieiðir:
á Innlent skuldabréfaútboð
með verðtryggingu til al-
mennings og stofnana.
t Innlánsdeild verði starf-
rækt á vegum Bygginga-
sjóðs ríkisins (Húsnæðis-
málastjórnar) skv. heimild
í lögum. Skv. þeim eiga þeir
sem spara ákveðna fjárupp-
hæð rétt á hærri lánsupp-
hæð.
Þá er í titlögum ungra Sjálf-
iramhald á bls. 31.
Kaupmannahöfn, 4, maí. —
NTB: —
VÉLAMAÐUR hjá flugfélagasam
steypunni SAS fann í gær tvo
gullklumpa í salerni einnar af
flugvélum félagsins. Hvor um
sig vegur um 1 kg., og eru þeir
báðir um 250 þús. ísl. kr. virði.
Flugvél sú, sem gullið fannst í
hefur að undanförnu verið í ferð
um til Asíu, og veit enginn, hver
hefur falið það, eða hver eigand-
inn er. Lögreglan telur, að gullið
sé stolið, en stimpill, sem á því
er, kann að leiða í ljós, hvort»
svo er, og hver er réttur eigandi.
•
Sekur eða j
saklaus?
■
■
■
París, 4. maí — AP:
LUCIEN Leger, 29 ára gamall ;
hjúkrunarmaður, lýsti því yfir í
í gær, á fyrsta degi réttar- ;
halda yfir honum, að hann ;
hefði ekki myrt 11 ára gamlan ;
dreng, sem hann hefur verið ■
ákærður fyrir að hafa stytt :
aldur. Segir Leger, að óþekkt- •
ur maður, Henri að nafni, :
hafi di'ýgt glæpinn.
Morðmál þetta vakti mikla í**
athygli í París á sinum tíma, ;
og var öll Parísarborg á öðr- :
um endanum í 40 daga, en á ;
þeim tíma sendi Leger París- :
arlögreglunni mörg bréf, þar ;
sem hann Ij'sti því yfir, að ’
hann hefði myrt drenginn, Luc ;
Taron, og skoraði á yfirvöld- :
in að hafa hendur í hári sínu, ;
áður enn hann fremdi annað :
morð.
Leger játaði' í fyrstu, að ■
hann hefði myrt Taron, 27. t
maí 1964, en dró síðar játn- ;
ingu sína til baka. Sagði hann :
óþekktan mann, „Henri“, hafa ■
hringt til sin, og játað á sig ;
morðið. Segir Leger, að hann
hafi þá verið gripinn óviðráð- I
anlegri hvöt til þess að villa :
yfirvöldunum sýn og „ná sér ■
niðri ó þjóðfélaginu", og því :
hafi hann ritað áðurnefnd •
bréf, og játað á sig glæpinn. :
„Ég brá mér í gervi morðingj ;
ans“, sagði Leger, „án þess :
að hafa drýgt ódæðið“.