Morgunblaðið - 05.05.1966, Blaðsíða 10
10
MORGU N BLAÐID
Fimmtudagur 5. mai llfe#
GIWI
BORGIIMMI
BORGIMM II
Guðmundur Svavarsson bætir net.
IJR BORGIMIMI U R BORGIMMI U
Þar læra þeir
seglasaum og
að splæsa víra
og tóg
Heimsókn í sjóvinnudeild Gagnfiæða-
skólans við Lindargötu
lands, sem á vorin iánar
okkur báta til róðraræfinga.
Flokkar úr sjóvinnudeildinni
hafa tekið þátt í róðrar-
keppni á Sjómannadaginn.
— Inntökuskilyrði í sjó-
vinnudeild eru þau sömu og
í aðrar 3. bekkjar deildir
gagnfræðaskóla í Reykjavík.
Þarf nemandinn að hafa lok-
ið unglingaprófi með lág-
markseinkunninni 5.00.
— Námsgreinar, sem kennd-
ar eru í 3. og 4. bekkjum
sjóvinnudeildar, auk sjóvinnu
eru íslenzka, danska, ensxa,
stærðfræði, félagsfræði (í
3. bekk), heilsufræði (í 3.
bekk), saga (í 4. bekk) og
leikfimi. Valgreinar eru vél-
ritun og bókfærsla.
— Tímafjöldi í sjóvinnu
eru 10 stundir á viku hvorn
vetur. í verklegum greinum
læra nemendur siglingafræði
alls konar hnúta, netahnýt-
ingar og netabætingar, segla-
saum, víra- og tógsplæsingar,
hjálp í viðlögum, froskköfun
og róður.
— Nemendur ljúka skips-
stjórnarprófi á skipi allt að
30 tonnum að stærð.
;— Drengirnir úr sjóvinnu-
deild hafa hlotið lofsamleg
ummæli skipsstjórnarmanna,
sem þeir hafa verið í skips-
rúmi hjá. Deildin hentar vel
þeim drengjum, sem hyggja
á sjómennsku og nám í Stýri
mannaskólanum verður þeim
auðveldara síðar.
— Drengjunum úr sjó-
VIÐ Gagnfræðaskólann við
Lindargötu í Reykjavík er
starfrækt sjóvinnudeild, þar
sem nemendum eru kennd
ýmis handbrögð sem sjó-
mönnum er nauðsynlegt að
kunna.
Skólastjóri Gagnfræðaskól
ans við Lindargötu er Jón
A. Gissurarson og hefur
Morgunblaðið spjallað stutt-
lega við hann um sjóvinnu-
deildina. Jón sagði:
— Sjóvinnudeildin hér við
skólann var stofnuð árið
1959 og fyrstu gagnfræðing-
arnir úr þeirri deild luku
prófi vorið 1961. Er þetta
eina sjóvinnudeildin í
Reykjavík og voru tildrögin
að stofnun hennar, að fyrir
um það bil 15 árum var efnt
til sjóvinnunámskeiða í skóI-
anum, en á þeim tímum vant
aði mjög menn á togaraflot-
ann.
— Reynslan af sjóvinnu-
námskeiðunum sýndi, að full
þörf var á því að hefja reglu-
bundna kennslu á þessu sviði
Borgaryfirvöldin í Reykjavík
hafa frá upphafi sýnt skiln-
ing á starfi og gagnsemi sjó-
vinnudeidlarinnar og hið
sama má segja um samtök
útgerðarmanna og sjómanna.
— Má geta þess, að Lands-
samband ís. útvegsmanna
hefur sýnt mikla lipurð ug
hjálpsemi varðandi útvegun
á efni til kennslunnar og æf-
inga. Skólinn er einnig þakk
látur Slysavarnarfélagi Is-
Ari Guðmundsson splæsir vír. Myndirnar tók Ól. K. M.
Nokkrir nemendanna splæsa tóg.
Nemendurnir, sem ljúka gagnfræðaprófi úr sjóvinnudeild nú í vor, ásamt skólastjóra, Jóni
A. Gissurarsyni (5. frá vinstri), Herði Þorsteinssyni, stýrimanni og kennara (6. frá vinstri
og Sigurði Óskarssyni, prófdómara.
vinnudeildinni hafa ætíð
staðið opin skipsrúm, þar
sem þeir kunna mikið af
handbrögðum, sem annars
þyrfti að læra úti á sjó.