Morgunblaðið - 05.05.1966, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. mai 1966
Eiginkona mín og móðir
SVANHILDUR HJARTAR
andaðist miðvikudaginn 4. maí.
Grímur Kristgeirsson,
Ólafur Ragnar Grímsson.
Útför eiginkonu minnar og móður okkar
HELGU ÁSDÍSAR WALDORFF
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 7. maí kl. 10,30
fyrir hádegi. — Athöfninni verður útvarpað.
Lúther Kristjánsson og börn.
Eiginmaður minn
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON
Auðunarstöðum, Víðidal,
sem andaðist þann 26. apríl s.l. verður jarðsunginn frá
Víðidalskirkju, laugardaginn 7. þ.m. kl. 2 e.h.
Kristín Gunnarsdóttir.
GUÐMUNDUR SKÚLASON
verður jarðsunginn að heimili sínu Keldum, laugardag-
inn 7. maí kl. 2 e.h.
Lýður Skúlason, Jónína Jónsdóttir.
Minningarathöfn um móður okkar,
RAGNHEIÐI GUÐRÚNU KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Straumfjarðartungu,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. þ. m. kl. 3
Jarðsett verður að Fáskrúðarbakka í Miklaholtshreppi
laugardaginn 7. þ.m. kl. 2,30.
Fyrir hönd vandamanna.
Alexander Einbjörnsson, •
Vigdís Einbjörnsdóttir.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
KARITAS JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin föstudaginn 6. maí kl. 2 e.h. frá
Neskirkju.
Ari Arason,
Helga Aradóttir, Eggert Ó. Jóhannsson,
Katrín Aradóttir, Gunnar H. Eyjólfsson,
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður
okkar og bróður,
ÁGÚSTS STEFÁNSSONAR
Þingholtsstræti 16.
Sérstakar þakkir flytjum við systrum og starfsfólki
Landakotsspítala fyrir umhyggju og alúð við hinn látna.
Synir og systkini hins látna.
lunilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
SIGRÍÐAR DAVÍÐSSON
Fyisr hönd vandamanna.
Lena Hallgrímsdóttir.
Þökkum hjartanlega samúð og vinarhug við andlát og
útför fósturföður okkar
JÓNS JÓNSSONAR
frá Þinganesi.
Ingibjörg Jónsdóttir og systkini.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför móður okkar
PETREU A. JÓHANNSDÓTTUR
ljósmóður.
Þórólfur Sæmundsson, Rögnvaldur J. Sæmundsson,
Ingibjörg Sæmundsdóttir,
fósturbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
NIKULÁSAR GUÐJÓNSSONAR
frá Hæli, Gnúpverjahreppi.
Sérstaklega viljum við þakka þeim hjór.unum á Hæli
Steindóri Gestssyni og Steinunni Matthíasdóttur. Sömu-.
leiðis starfsfólki sjúkrahússins og þeim er heimsóttu
hann á sjúkrahúsið.
Systkini hins látna.
— Dagur Evrópu
Framhald af bls. 5
hliðsjónar í kennslustundum.
Megináherzla er lögð á
verklega kennslu, en hún er
frábrugðin annarri verklegri
kennslu í því að kennarinn
lætur nemandann finna út
sjálfa, hvernig hann á að
vinna verkið, en leiðréttir
hann síðan, og lætur hann
Vita, hvað hefði getað leitt
af hugsanlegum mistökum,
sem hann gerði í upphafi. Síð
an lætur hann nemandann
endurtaka verkið á réttan
hátt.
Að lokinni kennslustund
fær hver nemandi stutt yfir-
lit yfir meginatriði hennar.
— Ég sagði hér áðan að
kennarinn væri eins konar
• leiðsögumaður fyrir nemend-
ur sína, það sem ég á við er,
að ef kennarinn leggur spurn
ingu fyrir nemandann, sem
hann getur ekki svarað, þá
svarar hann ekki spurning-
unni beint, heldin- flokkar
hana niður i smáatriði og
spyr síðan aftur. Á þennan
hátt lærir nemandinn ekki
einungis hvernig á að vinna
verkið, heldur einnig hvers
vegna það á að gera það þann
ig.
— Ég sagði einnig að
kennslubækur væru aðeins
hafðar til hliðsjónar. Með því
að hafa kennslubækur sem
aðalkennslutæki er utanað-
bókarlærdómur óhjákvæmi-
legur, og vill það þá oft verða
að nemandinn lærir lexíur
sínar eins og þulu, sem þeir
skilja ekki meininguna í og
gleyma fljótt og sóa þannig
dýrmætum tíma. En ef nem-
andinn aftur á móti skilur
meiningu þess, sem hann er
að læra, gleymir hann því
ekki, eða eins og Déscartes
sagði: Það er ekki það, sem
kennarinn kennir, heldur
hvað nemandinn lærir sem
máli skiptir og læt ég útrætt
um virku aðferðina. Aðrar
kennslugreinar, sem við lærð
um, voru hótelfræði, sem er
almennt inngrip í allar grein
ar hótelfagsins, ferðamenn
landfræðilega séð, efna- og
heilsufræði, franska og
ítalska.
Einnig voru verklegar æf-
ingar og var þeim skipt í
tvennt. í fyrsta lagi höfðum
við umsjón með nemendum,
sem voru að hefja nám, og í
öðru lagi sóttum við verklega
tíma hjá Benvenuto Currá, en
hann er álitinn mjög framar-
lega í sínu fagi, og heíur
hann t.d. skrifað allar náms-
bækur fyrir framreiðslu-
menn, sem notaðar eru til
kennslu við alla ítölsku ríkis-
skólana. Kenndi hann okkur
meðferð vína, fyrirskurð og
matargerð við borð gestsins.
Einnig var kynnt fyrir okkur
hótel úr öllum flokkum og
starfsaðferðir þeirra, t.d.
Cavalieri Hilton hótelið, sem
hefur upp á að bjóða einn
stærsta veitingasal í Evrópu.
Einnig eitt af Massimo Dáz-
eglio Hotel, sem hefur yfir að
ráða einum frægasta vínkjall
ara á Ítalíu. Fæst til dæmis
þar árgangsvín frá 1919. Við
tókum prófið síðustu dagana
í júlí og var því þannig fyrir
komið, að hver nemandi
kenndj eina kennslustund.
— Prófdómarar vöru auk
skólastjóra og aðalkennara,
sendinefnd frá Evrópuráðinu,
sendinefnd frá ítalska mennta
málaráðuneytinu, hóteleig-
andí frá Róm og hr. Palla-
vicino, sem hefur mesta
menntun og þekkingu á
virkri aðferð í dag. Við stóð-
umst báðir prófig og hlutum
viðurkenningu, sem kennarar
bæði frá italska ríkinu og
Evrópuráðinu.
A T H U GI Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er iangtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Lokað í dag
frá kl. 12 — 3 vegna jarðarfarar Stefáns Árnasonar
fyrrverandi forstjóra.
ALMENNAR TRYGGINGAR H.F.,
Pósthússtræti 9.
Jörð í Ölfusi
með veiðiréttindum í Ölfusá er til sölu. — Uppl. gefa
VAGN E. JÓNSSON
GUNNAR M. GUÐMUNDSSON
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9 Símar 21410 og 14400.
Tilboð 'óskast
í Chevrolet station ágerð 1960, skemmdan eftir
árekstur. Bifreiðin er til sýnis á Bifreiðaverkstæði
lögreglunnar við Síðumúla. Tilboð sendist skrifstofu
vorri, Borgartúni 1, fyrir hádegi á laugardag.
VÁTRYGGINGAFÉLAGIÐ H.F.
íslenzk firmu mteð inn og
úfflufningsviðskipti við USA
Skandinavískt firma með skrifstofur í mörgum
löndum Evrópu og U.S.A., sem flytur aðeins með
íslenzkum skipum, getur annast flutninga í og frá
U.S.A. fyrir yður á lægra verði en því sem þér
áreiðanlega greiðið nú. Gjörið svo vel að hafa sam-
band við mig á Hótel Loftleiðir eftir kl. 6 í dag
(fimmtudag) og á morgun.
Staffan Kuylenstierna
Nordisk Transport Inc.
79 Wall Street
New York N. Y.
50 ára reynsla
Við framleiðum heimsins fullkomnustu
höggdeyfa MONROE — MATIC,
SUPER DUTY og SUPER 500.
Einnig fram og aftur LOAD-LEVELER
(Með gormum).
Höfum þessa frábæru höggdeyfa ávallt
fyrirliggjandi í flestar tegimdir bifreiða.