Morgunblaðið - 05.05.1966, Qupperneq 3
Fimmttlðagur 5. maí 1966
MORCUNBLAÐIÐ
3
Mjólkurfélag Reykjavíkur setur
kögglað varpfóður á markaðinn
legum þrýstingi í gegnum full-
blandað fóðurmjölið um leið og
það gengur í gegn um köggla-
vélina, sem pressar það í gegnum
hringlaga gataplötur. Úr press-
unni koma kögglarnir heitir og
fara í kögglalyftu inn í kæli
og þaðan til afsekkjunarvélar.
Kögglarnir eru 4,5 mm í þvermál,
sem er hæfilegt fyrir varphænur,
en hægt er að minnka þá með
því að láta þá á leiðinni fara í
gegnum sérstakan tætara. —
Smærri köggla má því fá fyrir
unga.
Að svo komnu er það aðallega
varpfóðrið, sem Mjólkurfélagið
hefur byrjað að köggla, en síðar
kemur væntanlega einnig til
greina kögglun á fleiri kjarnfóð
urtegundum.
Félagið 50 ára á lyæsta ári
Mjólkurfélag Reykjavíkur er
stofnað árið 1917 og er því 50 ára
á næsta ári. Eins og kunnugt er,
var það brautryðjandi hér á
landi um mjólkurmeðferð og sölu
á grundvelli nýrrar hreinsunar-
og gerilsneyðingartækni en mjölk
urstöð þess var reist 1920, og önn
ur fullkomnari 1930. Árið 1930
kom það einnig upp fóðurblönd
unarstöð með fullkomnum vélum
Starfsmaður saumar saman pokaop. Að baki honum er Leifur G uðmundsson, framkvæmdastjóri
JVIR og Ólafur Bjarnason, Brautarholti, stjórnarformaður (er með hatt á myndinni).
MJÓLKURFÉLAG Reykjavíkur
er nú að setja á markað hér köggl
að kjarnfóður fyrir varphænur,
sem inniheldur öll nauðsynleg
næringarefnl. Þarf ekki að gefa
hænunum aimað en vatn til við-
bótar. Framkvæmdastjórinn, Leif
ur Guðmundsson, hefur tjáð Mbl
að þetta sé fyrsta kögglaða kjarn
fóðrið, sem hér er sett á markað,
og sé það aðeins um 5% dýrara
en ókögglað.
Leifur sagði, að kögglun kjarn
fóðurs sé nú alls staðar að ryðja
sér til rúms, enda hafi það gefið
góða raun. Talið sé að fóður
rýrni um 10% að jafnaði, en sé
það kögglað er rýrnunin svo til
engin.
Um 600 félagsmenn
í Mjólkurfélagi Reykjavíkur
eru nú um 600 félagsmenn, flest-
ir bændur á svæðinu sunnan
Skarðsheiðar og vestan Hellis-
heiðar, en allmargir félagsmenn
eru búsettir í Reykjavík. Félagið
hefur jafnan átt mikil viðskipti
um allt land.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
lauk við að reisa á sl. ári nýtt
verksmiðju- og vörugeymsluhús
að Laugavegi 164, Brautarholts
megin, og er það þrjár hæðir,
alls 6300 rúmmetrar að stærð.
Er það nokkru stærra en verzl-
Sjálfboðaliðar
Sjálfstæðisflokkinn vantar
fjölda sjálfboðaliða við skriftir í
dag og næstu daga. Þeir sem
vilja leggja til liðs sitt hringi
í síma 22719 — 17100 eða komi
á kosningaskrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins Hafnarstræti 19 3.
hæð. (Hús HEMCO).
Seltjarnarnes
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
opnað kosningaskrifstofu fyrir
Seltjarnarnes að Melabraut 56.
Skrifstofan er opin alla daga frá
kl. 18 — 22. Sími skrifstofunnar
er 2-43-78.
Stuðningsfólk Sjálfstæðis-
flokksins er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna.
A T H U G I Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
unar- og skrifstofuhúsið, sem fé-
lagið hefur áður reist á sömu lóð.
Bæði húsin eru samtals um 12
þúsund rúmmetrar.
Fóðurblöndunarvélar af
nýjustu gerð.
í nýja húsinu hefur MR aðal-
vörugeymslu sína og fóðurblönd
un. Hefur félagið starfrækt þar
frá því í fyrra fóðurblöndunrvél
ar af nýjustu gerð. Eru þær smíð-
aðar af heimsþekktri verksmiðju
í Sviss, Biihler Gebruder í Uz-
wil, sem m.a. hefur byggt marg
ar fóðurverksmiðjur á Norður-
löndum. Borgarsmiðjan h.f. í
Kópavogi sá um smíði á því, sem
gera þurfti hér á landi, m.a. gufu
ketils, og annaðist uppsetningu
tækja.
Byrjað á framleiðslu kögglaðs
varpfóðurs
Á þessu ári hefur Mjólkurfélag
ið bætt við kögglapressu frá
sömu verksmiðju með tilheyr-
andi útbúnaði, og hefur nú byrj
að framleiðslu á kögglafóðri fyr-
ir varphænur. Er það heilfóð-
ur, sem inniheldur öll nausyn-
leg næringarefni, sölt, steinefni
og vítamín, og þarf ekkert annað
að gefa hænsnunum, nema hreint
vatn.
Þótt aðeins séu fá ár síðan far
ið var að köggla varpfóður al-
mennt, er nú orðið langmest not
að af því fóðri köggluðu í ná-
grannalöndunum, enda eru kostir
þess miklir. Öll hænsnin fá sama
Guðbrandur Guðbrandsson, sem starfað hefur hjá MR í meira en
þrjá áratugi og er elzti starfsma ðurinn, lætur fóðurkögglana
renna í poka.
fóður, með svo fullkominni sam-
setningu sem unnt er samkvæmt
núverandi þekkingu. Þau geta
ekki valið úr og ekki afétið hvert
annað. Nýting fóðursins er betri
og minni fyrirhöfn að gefa það.
Allt þetta stuðlar að hagkvæm-
ari rekstri og auknu varpi
Kögglarnir 4,5 mm í þvermál
Kögglunin gerist þannig, að
gufa frá katli er leidd með hæfi- 1
eftir því sem þá var, þótt nú sé
önnur fullkomnari tækni tekin
við.
Stjórnarformaður Mjólkurfé-
lags Reykjavíkur er Ólafur
Bjarnason, Brautarholti, en aðr-
ir stjórnarmenn eru Jónas Magn
ússon, Stardal; Erlendur Magnús
son, Kálfatjörn; Ólafur Andrés-
son, Sogni og Sigsteinn Pálsson,
Blikastöðum. — Framkvæmda-
1 stjóri er Leifur Guðmundsson.
SMSTHNíUi
Neyðarúrræði
Kommúniistablaðið birti i gær
viðtal við sálfræðing, sem skipar
annað sæti á lista kommúnista-
flokksins við borgarstjórnarkosn-
ingarntar í vor. í viðtali þessu
skýrir hann, hvers vegna hann
sé kominn í „slagtog“ með komm
únistum, eins og hann orðar það,
og segir:
„Við getum byrjað á því að
útiloka Sjálfstæðisflokkinn, fyrst
hann hefur talið mig ónothæfan
sem ópólitiskan starfsmann til
ráðgefandi starfa i uppeldismál-
um, er sjáanlegt, að einskis sam-
starfs er þar að vænta. Getum
við ekki reiknað Alþýðuflokk-
inn til Sjálfstæðisflokksins? Mér
hefur lengi skilizt, að þeir væru
samvaxnir. Um Framsókn Vieit ég
ekkert, hefur alltaf leiðzt hún,
og þá er Alþýðubandalagið eitt
eftir“.
Greinilegt er að sálfræðingur-
inn hefur hér notað gömlu góðu
útilokunaraðferðina, og að vera
hans á framboðslista kommúnista
er algjört neyðarúrræði í hans
augum!
Sterkt minni!
Þegar Einar Olgeirsson flutti
ræðu sína í útvarpsumræðunum
í fyrra kvöld, varð einum út-
varpshlustanda að orði: „Mikið
hefur hann Einar sterkt minni,
hann kanin ennþá utan að ræð-
una, sem hann flutti fyrir 30
árum!“
111 útivist
Vistin utan stjórnarráðsins fell
ur Framsóknarmönnum greini-
lega sífellt ver. í eldhúsdagsum-
ræðunum og einnig í vantrausts
umræðunum fyrir nokkru luku
nær allir ræðumenn Framsókn-
arflokksins ræðum sínum með
því að leggja áherzlu á, að rikis-
stjórnin færi frá völdum. Greini-
legt er, að prófessor Ólafur Jó-
hannesson er farinn að örvænta
lun, að svo verði og hallast nú
að næstbeztu leiðinni. Hann lagði
sem sagt til í útvarpsumræðun-
um í fyrrakvöld, að mynduð
yrði þjóðstjóm, og sagði að þjóð-
in vildi það. Nú er það að vísu
svo, að þjóðin hefur tvívegis
kveðið upp þann úrskurð, að hún
vilji Framsóknarflokkinn ekki í
stjóm, en þessi ummæli prófess-
ors Ólafs sýna þó glögglega þá
örvæntingu og skelfingu, sem
breiðist út með vaxandi hraða
í herbúðum Framsóknarmanna
um það, að hin langa útivist
þeirra frá ráðherrastólunum eigi
eftir að verða enn lengri, og er
sá ótti ekki ástæðulaus.
Alfreð og for~
r -
dæmi Olafs
Furðulegt er að Alfreð Gísw
son læknir ^kyldi ekki láta séi
fordæmi ólafs Jóhannessonar að
kenningu verða. Óiafur fómaði
embættisheiðri sínum fyrir póli-
tíska tækifærismennsku. Greini
legt er að Alfreð Gíslason hyggsl
gera það sama. Fullyrðingar hana
um eiturverkanir álbræðslunnai
em úr lausu lofti gripnar og
ákvæði álsamninganna um þessi
atriði tvímælalaus.
Kdpavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
heldur basar sunnud. 8. maí n.
k., kl. 3 s.d. í Sjálfstæðishúsinu
Kópavogi. Þeir, sem vilja
styrkja basarinn, hafi samband
við Guðrúnu Gísladóttur, Alf-
hólsv. 43, Kópav., sími: 40167 og
Sigríði Gísladóttur, Kópavogs-
braut 45, Kópav., sími: 41286.