Morgunblaðið - 10.05.1966, Qupperneq 3
trfójUdagur 10. maí 1966
MORCU N BLAÐIÐ
3
STAKSTMMAR
Hefði 'dtt að vita
Fyrsti maður á framboðslista
Framsóknarflokksins hefur ritað
greinarstúf í Tímann. Kemur
þar í ljós að hann er ekki vel
kunnugur borgarmálefnum, og
er það e.t.v. ekki óeðlilegt. Hins v.
vegar hefði hann átt að vita bet
ur, því að honum bar sem aðaT-
fulltrúa að sækja borgarstjómar
fundi sl. kjörtímabil, þótt nokk-
ur misbrestur hafi þar á orðið.
Þessi frambjóðandi segir, að
ýmis mannvirki í borginni hafi
verið leyfð, sem torveldað hafi
mjög skipuiagningu þá, sém nú
hefur verið gerð. Hann hefði
átt að vita, að skipulagsfræðing
ar þeir, sem að aðalskipulaginu
hafa unnið, lýstu því yfir, og
kom það m.a. fram á blaða-
mannafundi, að óvenjulega litill
kostnaður yrði hér í Reykjavík
við að ná góðu framtíðar-um-
ferðarkerfi og skipulagi, miðað
við aðra bæi, þar sem aðalskipu
lag hefði verið gert. Og í hinni
miklu bók um aðalskipulagið er ,
einmitt um það rætt, aSS fyrir-
hyggja borgaryfirvalda hafi
mjög auðveldað starfið. En um
1 þetta veit frambjóðandinn ekk- •
ert.
Þetta eru þá 18 milljarðarnir,
sem borgarfulltrúinn segir að
slóðaskapur „íhaldsins“ kosti.
18 milljarðar
Og Framsóknarframbjóðand-
inn hefur fleira að segja, m.a.
þetta:
„Jafnframt skyldu menn hafa
hugfast, að lausleg kostnaðará-
ætlun borgarstjórnar við fram-
kvæmd skipulagsins er 18 mUlj-
arðar króna, og sjá þá allir að
ýmislegt hlýtur að mega laga
fyrir þá risafjárhæð. Sjálfstæðis
menn ættu að spara að hrósa sér
af því að framkvæma sjálfsagða
hluti, en viðurkenna í staðinn
það sem allir vita, að með að-
gerðarleysi f skipulagsmálum
samfara því að leyfðar hafa ver
ið einstakar stórbyggingar
flokksgæðinga eftir geðþótta
þeirra, hefur meirihlutinn bakað
borgarbúum stórfellt tjón, sem
greiðast verður af útsvörum
Reykvíkinga á komandi árum.“
Já, minna má nú gagn gera.
Hvorki meira né minna en 18
milljarðar eru að dómi fram-
bjóðandans kostnaður við skipu
lagið, en maðurinn virðist vita
heldur lítið um þetta eins og
fleira.
Hvei er
kostnaðurinn?
Áætlunin, sem hér um ræðir,
birtist í skipulagsbókinni, og er
á þessa leið:
Götur og vegir (hér aðeins
reiknað með 90% heildar kostn-
aðar, sem greidd eru af borg-
inni ........... 5.0 milljarðar.
Rafmagnsveita (þ.á.m. ný orku
ver) hitaveita, vatnsveita, hol-
ræsi ........... 6.6 milljarðar.
Fullbygging, núverandi hafn-
ar, fyrstu áfangar Sundahafnar
og endurnýjun strætisvagna
............... 1.2 milljarðar.
Skólar, (hér er aðeins talinn
hluti borgarsjóðs af heildar-
kostnaði, 50%), barnaheimili
o.þ.h. svo og leikvellir . ...
............... 1.2 milljarðar.
Vistheimili, sjúkrahús, (að-
eins hluti borgarsjóðs, 40%),
íþróttamannvirki, sundhallir,
(aðeins hluti borgarsjóðs, 60%),
almenningsgarðar, kirkjugarðar,
framlög til kirkjubygginga ojs.
frv............. 1.0 milljarðar.
Borgarstofnanir, ráðhús, bóka-
safn, leikhús, listasafn, félags-
heimili o.s.frv. . . 1.0 milljarðar.
Framlög borgarsjóðs til íbúðar
bygginga (þar með til íbúða
aldraðs fólks), endurbygging
eldri borgarhverfa, kaup hús-
eigna or iarða . . 2.0 milliarðar.
Fjölmennur fundur unga fólksins í Sigtúni
Þessi mynd var tekin á hinum fjölmenna fundi unga fólksins í Reykjavík, sem Heimdallur FUS efndi til sl. laug-
ardag. Fundurinn var haldinn í Sigtúni og var húsfyllir á fundinum. Níu ungir menn og konur fluttu stuttar ræð-
ur og ávörp en Geir Hallgrímsson borgarstjóri flutti lokaorð á fundinum. Hinn fjölmenni og þróttmikli fundur
unga fólksins í Sigtúni sýndi ljóslega að unga fólkið í borginni skipar sér í vaxandi fylkingum undir merki
Sjálfstæðisflokksins. Nánar verður sagt frá fundinum síðar.
elzta árgangi skólans er enn á
lífi, Ottó N. Þorláksson. Hef-
ur hann oft verið viðstaddur
skólaupþsögn, en gat ekki
komið að þessu sinni. Af 50
ára prófsveinum talaði Loft-
ur Bjarnason útgerðarmaður.
Þeir færðu skólanum að gjöf
líkan af fslandi og landgrunn-
inu smíðað af Baldri Ásgeirs-
syni eftir frumgerð Páls Ragn
arssonar, sjómælingamanns.
Nikulás Jónsson, skipstjóri,
hafði orð fyrir 45 ára próf-
sveinum. Þeir færðu skólan-
um fjárhæð í Styrktarsjóð
nemenda. Af 25 ára prófsvein
um talaði Halldór Sigurlþórs-
son. Þeir gáfu skólanum
kennslutæki í siglingareglum.
20 ára prófsveinar færðu skól
anum nýjustu útgáfu af ensku
alfræðiorðabókinni, Encyclo-
pædia Britannica. Orð fyrir
þeim hafði Einar Guðmunds-
son. Forseti Farmanna- og
fiskimannasambands íslands
flutti kveðju frá samibandinu,
og Einar Thoroddsen, yfir-
hafnsögumaður flutti kveðju
frá skipstjóra og stýrimanna-
félaginu Ægi.
Skipstjóri þakkaði hinar
góðu og hagnýtu gjafir og
þann vinarhug til skólans,
sem að baki þeim lægi. Síðan
þakkaði hann gestum kom-
una og sagði skólanum slitið.
Að lokinni skólauppsögn
höfðu menntamálaráðlherra,
doktor Gylfi Þ. Gislason, og
frú boð inni í ráðherrabú-
staðnum fyrir alla viðstadda.
Þar ávarpaði menntamálaráð-
herra gesti og flutti skólanum
þakkir fyrir starf hans í þágu
íslenzku þjóðarinnar á liðn-
um árum og óskaði honum
velfarnaðar í framtíðinni.
Þessir luku prófi:
Eggert Andrésson. Reykjavík.
Elv<ar Þór Valdimarsson, Skaga-
strönd. Friðrik Björnsson, Siglu-
Framhald á bls. 25
einkunn er 8.
Bókaverðlaun úr Verðlauna
og styrktarsjóði Páls Halldórs
sonar fyrrverandi skólastjóra
hlutu eftirtaldir nemendur,
sem allir höfðu hlotið ágætis-
einkunn: Úr farmannadeild:
Pálmi Pálsson. Úr fiskimanna
deild: Aðalsteinn I. Guðmunds
son, Finnbogi II. Magnússon,
Jónas K. Björnsson, Ólafur G.
Gíslason, Óskar Þ. Karlsson,
Þórir II. Stefánsson og Ægir
Bjömsson. Þá veitti Skip-
stjórafélag íslands bókaverð-
laun í fyrsta sinn fyrir há-
markseinkunn 8 í siglinga-
reglum í farmannaprófi. Þau
verðlaun hlaut Friðrik Björns
son frá Siglufirði. Verðlaunin
afhenti í þetta sinn formað-
ur Skipstjórafélags íslands,
Jón Eiríksson.
Skipstjóri ávarpaði síðan
nemendur og óskaði þeim til
hamingju með prófið. Benti
hann þeim á ábyrgð og skyld-
ur- yfirmanna á skipum, hvatti
þá til að viðhalda þeim fræð-
um, sem hefðu lært við skól-
ann og að rækja störf sín af
samvizkusemi. Að lokum
þakkaði hann nemendum sam
veruna og árnaði þeim heilla
í framtíðinni.
Viðstaddir skólauppsögn
voru margir af eldri nemend-
um skólans, meðal þeirra
tveir, sem brautskráðust fyrir
60 árum, þeir Bernharður
Guðmundsson og Guðmund-
ur Guðmundsson. Bernharður
tók til máls og rifjaði upp
gamlar minnnigar. Einn úr
75. skólaári Stýrimanna—
skolans lauk á laugardag
STÝRIMANNASKÓLANUM
í Reykjavík var sagt upp hinn
7. þm. í 75- sinn. Viðstaddir
skólauppsögn voru forsætis-
ráðherra, menntamálaráð-
herra, sjávarútvegsmálaráð-
herra, borgarstjóri og margir
fleiri gestir, en meðal þeirra
voru margir af eldri nemend-
um skólans.
í upphafi minntist skóla-
stjórinn, Jónas Sigurðsson
tveggja nemenda skólans, sem
látist höfðu af slysförum á
skólaárinu, þeirra Steinars R.
Elíassonar úr Reykjavík, nem
anda úr 3. bekk farmanna-
deildar, og Óla Gunnars
Halldórssonar, nemanda úr 1.
bekk fiskimannadeildar.
í tilefni af 75 ára afmæli
skólans á þessu skólaári rakti
skólastjóri nokkuð aðdrag-
anda að stofnun skólans og
starfsemi hans á þessum 75
árum. Gat hann þess að alls
hefðu brautskráðst frá skól-
anum frá upphafi 2879 skip-
stjórnarmenn og auk þess 494
á námskeiðum skólans úti á
landi. Því næst flutti hann
skýrslu um starfsemi skól-
ans á þessu skólaári.
Að þessu sinni luku 15 nem
endur farmannaprófi og 74
fiskimannaprófi, en í janúar-
lok höfðu 7 lokið hinu minna
fiskimannaprófi. Við far-
mannaprófið hlaut 1 ágætis-
einkunn, 10 fyrstu einkunn
og 4 aðra einkunn. Við fiski-
mannaprófið hlutu 7 ágætis-
einkunn, 48 fyrstu einkunn,
17 aðra einkunn og 2 þriðju
einkunn. Efstur við farmanna-
prófi var Pálmi Pálsson með
7:46 og hlaut hann verðlauna
bikar Eimskipafélags íslands,
farmannabikarinn. Efstur við
fiskimannapróf var Þórir H.
Jónas Sigurðsson
Stefánsson með 7:52, og hlaut
hann verðlaunabikar Öldunn-
ar, Öldubikarinn. Hámarks-
Hef ur brautskráð2879skip
stjórnarmenn frá upphafi