Morgunblaðið - 10.05.1966, Side 12

Morgunblaðið - 10.05.1966, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 10. maí 1966 12 Herbergi helzt með húsgögnum óskast til leigu fyrir útlend- ing frá nk. mánaðamótum. — Frekari upplýsingar í síma 24204. G. Helgason & IVielsted hf Rauðarárstíg 1. — Sími 11644. Vinna Vantar nokkra röska verkamenn til loft- pressuvinnu. — Gott kaup. Loftþjappan sf Sími 13536. Verktakar Tilboð óskast í stéttir og frágang á lóð við fjölbýlishús. — Útboðslýsingar afhentar á skrifstofu félagsins. Byggingasamvinnufélag Reykjavíkur Elín R. Tómasdótfir, Þing- eyri — Minning í DAG verður til grafar borin vestur á Þingeyri við Dýrafjörð frú Elín Rannveig Tómasdóttir, húsfreyja, á 87. aldursári. Hún var norðlenzk að kyni, faedd að Stærra Árskógi á Árskógsströnd 11. desember 1879. Voru foreldrar hennar prests- hjónin þar, sr. Tómas Hallgríms- son Tómassonar bónda á Steins- stöðum í Öxnadal, og konu hans, Rannveigar, systur Jónasar skálds Haligrímssonar. En kona sr. Tómasar og móðir Elínar var Valgerður Þórunn Jónsdóttir, prests að Steinsstöðum Jónsson- ar. Var sr. Tómas Hallgrímsson síðastur presta í Stærra Árskógi, en fékk Velli í Svarfaðardal 1884 og sat þann stað til dauðadags, 24. 3. 1901. Þótti hann hið mesta glæsimenni og hún fríðleikskona og mikil mannkostakona. Var prestur skáldmæltur vel, hafði fagra söngrödd og þótti jafnan hinn mesti gleðimaður hvar sena hann kom. Og hjálpsöm voru þau hjón bæði og hin drenglyndustu, en fátæk jafnan. Þau eignuðust 5 börn, sem til aldurs komust og er nú aðeins éin dóttir á lífi, Rannveig, ekkja Magnúsar Jó- hannssonar, sem lengi var hér- aðslæknir á Hofsósi. Elín Rannveig ólst upp á Völl- um í glöðum systkinahópi, að sjálfsögðu við fábreyttar að- stæður þeirra tíma, en heilbrigð- ar venjur í lífsháttum öllum, iðjusemi og nægjusemi. Var þó betur sett en margir jafnaldrar því að á Akureyri var þá frænka hennar, gáfuð kona og fjöl- NYTTJ Diplomat vindill: Glæsilegur mjór vindill, sem i einu hefur fínan tóbaksiim og þægilega mildi. Lengd: 130 mm. - Danisb Whiffs smá- vindill: Sérstaklega mildur, mjór smá- vindill, sem er reyk- tur og virtur víða um lönd.Lengd: 95 mm. SKANDINAVISK TOBAKSKOMPAGNI Leverandor tii Det kongelige danske Hof 224 Málmur Kaupi alla málma, nema járn, hæsta verði. Staðgreiðsla. — Málmamóttaka alla rúmhelga daga í Rauðárárporti (Skúlagötu 55). A R I N C O sími 12806 og 33821. Barna regnfatnaður Regnúlpur; regnbuxur; regnsett. Pollabuxur. R. O. Búðin Skaftahlíð 28. — Sími 34925. Vinna Okkur vantar lagtæka menn til vinnu í verksmiðju okkar. — Upplýsingar ekki gefnar í síma. Gler hf Brautarholti 2. Rösk og ábyggileg stúlka óstkast strax til afgreiðslustarfa. — Þarf að vera vön. — Upplýsingar á staðnum. Álfheimabúðin Álfheimum 4. Hús — Lóð 800 ferm. eignarlóð og gamalt timburhús til sölu í Vesturbænum. — í húsinu eru tvær 3ja herb. íbúðir og 2 herbergi í risi. — Upplýsingar gefur Haraldur Gunnlaugsson, Laufásvegi 10 eftir kl. 7 á kvöldin í síma 18536. Bíll til sölu FIAT-Multipla, árgerð 1961. Tækifærisverð. íslenzka verzlunarfélagið hf. Sími 19943. menntuð, Rannveig, kona Egg- erts Laxdal verzlunarstjóra, merkismanns á þeirri tíð. Hjá þessari föðursystur sinni dvaldist Elín nokkuð og naut þar margs hins bezta, sem sú samtíð átti í menningarlegum efnum, á fyrir- myndar kaupstaðarheimili. Var frú Elín jafnan minnug þessarar frænku sinnar og heimilis þeirra hjóna, er hún taldi sig í þakkar- skuld við. Hinn 7. maí 1902 giftist Elín jafnaldra sínum, Angantý Arn- grímssyni búfræðingi, syni Arn- gríms málara Gíslasonar og Þór- unnar Hjörleifsdóttur, ljósmóður frá Tjörn. Var hann þá talinn i hópi hinna glæsilegustu ungra manna þar um slóðir og prests- dóttirin ekki síður. Fluttu ungu hjónin brátt heimili sitt til Dal- víkur, sem þá tók að byggjast, og áttu þar heima hátt á annan áratug. Þar fékkst maður Elínar við verzlunarstörf, en síðar út- gerð. Þetta heimili þeirra hjóna, Sandgerði á Dalvík, varð brátt allsérstætt í sinni röð. Það varð einskonar miðdepill alls félags- lífs þar á þeim árum. Og gest- risnin í Sandgerði varð einstök og á orði höfð. Þar voru allir velkomnir, áttu allir athvarf og hin hjartahlýja húsfreyja tók þar hverjum gesti vel. Mátti segja að þar væri „opið“ hús, ekki sízt fyrir þá, sem með þeim unnu að ýmsum félagslegum verkefnum, iðkuðu söng og sjón- leiki o. fl., sem að skemmtilífi og framvindu félagsmála laut. Þá va 'kið líf og fjör í hinu litla en vaxandi þorpi. Það var því mikill sjónarsvipt- ir er þau fluttu burt 1923, til Þingeyrar við Dýrafjörð. Þar var þá Anton Proppé með umsvifa- mikinn atvinnurekstur, en Anton var kvæntur Elísabetu, systur Elínar. Þar gegndi Angan- týr ýmsum störfum meðan heils- an leyfði, en síðar voru þau hjón í skjóli Ingunnar, dóttur sinnar, og manns hennar, Magnúsar Amlín forstjóra. En ekki gleymdust þau göml- um vinum nyrðra. Fyrir mörg- um árum var þeim boðið heim á æskustöðvarnar til dvalar í nokkra daga. Gerðu það gamlir vinir og samherjar í Svarfaðar- dal. Var þá tekið á móti þeim sem ástsælum fyrirmönnum, þótt í öllu látleysi væri, og þeim sýnd ur margskonar sómi, sem þau höfðu vissulega unnið til á sinni tíð. Á Þingeyri var önnur aðstaða en nyrðra, en þar kunnu þau vel við sig. Og alltaf fylgdi heimili þeirra hin einlæga gestrisni og góðvild. Og einnig þar stóðu vin- sældir þeirra djúpstæðum rótum. En nú eru þau bæði horfin af sviðinu. Og gömlum vinum finnst að þeim sjónarsviptir og skarðið vandfyllt. Angantý kvöddum við fyrir meir en ári. Og í dag kveðjum við Elínu Rannveigu, konu hans, hina glæsilegu og gáfuðu konu, hjálp- sömu og hjartahlýju, sem öllum vildi gott gera — hina mann- kostaríku konu og vinsælu. Þökk sé henni og þeim hjónum báðum. Og blessuð sé minning þeirra. Og dóttur þeirra, og öllum vandamönnum, sendi ég einlæga samúðarkveð j u Sn. S.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.