Morgunblaðið - 10.05.1966, Page 18

Morgunblaðið - 10.05.1966, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjuétegur 10. maí 1966 NÝJASTA gerð af BRILLO stálsvömpum með sápu, sem GLJAFÆGIR potta og pönnur jafnvel FLJÓTAR en nokkru sinni fyrr. SÆNSKAR KJÖRBÚÐAR- KÖRFUR STRANDBERG Heildverzlun - Hverfisgötu 76. Sími 16462. Starfsmaður óskast á skrifstofu stöðvarstjóra fé- lagsins á Reykjavíkurflugvelli. Góð málakunnátta nauðsynleg. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Nokkur reynsla í skipulagsmálum æskileg. — Kaupkröfur óskast. — Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif- stofum félagsins, sé skilað til Starfsmannahalds fyr ir 15. maí nk. í úrvali Ungbarnaskór með stíf- um botni. Lágir strigaskór á kven- fólk. Sumar kven- götuskór með litlum hælum. Skóverzlun og skóvinnustofa Sigurbjörns Þorgeirssonar, Miðbæ við Háaleitisbraut 58—60. Nýkomið SEÐLABANKI ÍSLANDS INNLENT LÁN RIKISSJÓÐSISLANDS1966,1.F1 ÚTBOÐ Fjármálaráðherra hefur á- kveðið að nota heimild í lögum frá 6. maí 1966 til þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán ríkis- sjóðs með eftirfarandi skil- málum: SKILMÁL AR fyrir verðtryggðum spari- skírteinum ríkissjóðs, sem gefin eru út samkvæmt lögum frá maí 1966 um heimild fyrir ríkisstjóm-. ina til lántöku vegna fram- kvæmdaáætlunar fyrir ár- ið 1966. 1. gr. Hlutdeildarbréf láns- ins eru nefnd spariskír- teini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í tveimur stærðum, 1.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í aðalskuldabréfi. 2. gr. Skírteinin eru lengst til 12 ára, en frá 20. sept- ember 1969 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini inn- Ieyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við inn- lausn. Fyrstu 4 árin nema þeir 5% á ári, en meðal- talsvextir fyrir allan láns- tímann ei'u 6% á ári. Inn- lausnarverð skírteinis tvö- faldast á 12 árum og verð- ur sem hér segir að með- töldum vöxtum og vaxta- vöxtum: Skírteini 1.000 10.000 kr. kr. Eftir 3 ár 1158 11580 _ 4 ár 1216 12160 _ 5 ár 1284 12840 _i 6 ár 1359 13590 —- 7 ár 1443 14430 — 8 ár 1535 15350 _ 9 ár 1636 16360 _ 10 ár 1749 17490 _ 11 ár 1874 18740 — 12 ár 2000 20000 Við þetta bætast verðbæt- ur samkvæmt 3. gr. 3. gr. Við innlausn skír- teinis greiðir ríkissjóður verðbætur á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlut- falli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísi- tölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skírteinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa Islands reiknar vísitölu bygging- arkostnaðar, og eru nú- gildandi lög um hana nr. 25 frá 24. apríl 1957. Spari- skírteinin skulu innleyst á nafnverði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnað- ar lækki á tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skírteini verða ekki inn- leyst að hluta. 4. gr. Fastir gjalddagar skírteina eru 20. septem- ber ár hvert, í fyrsta sinn 20. september 1969. Inn- lausnarfjárhæð skírteinis, sem er höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verð- bóta, skal auglýst í júlí ár hvert í Lögbirtingablaði, útvarpi og dagblöðum, í fyi’sta sinn fyrir júlílok 1969. Gildir hin auglýsta innlausnarfjárhæð óbreytt frá og með 20. september þar á .eftir í 12 mánuði fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem inn- leyst eru á tímabilinu. 5. gr. Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu verðbóta á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til nefnd- ar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki Islands tilnefnir einn nefndarmanna, Hæstirétt- ur annan, en hagstofu- stjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell- ir fullnaðarúrskurð í á- greiningsmálum, sem hún fær til meðferðar. Ef þreyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygg- ingarkostnaðar, skal nefnd þessi koma saman og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vísitölum. Skulu. slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnað- arúrskurðir. 6. gr. Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á sama hátt og sparifé, samkvæmt heimild í nefndum lögum um lántöku þessa. 7. gr. Handhafar geta fengið spariskírteini sín nafnskráð í Seðlabanka Is- lands gegn framvísun þeirra og öðrum skilríkj- um um eignarrétt, sem bankinn kann að áskilja. 8. gr. Innlausn spariskír- teina fer fram í Seðla- banka Islands. Eftir loka- gjalddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engar verðbætur eru greiddar vegna hækkunar vísitölu byggingarkostnað- ar eftir 20. september 1978. 9. gr. Allar kröfur sam- kvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekki lýst hjá Seðlabanka Islands innan 10 ára, talið frá 20. september 1978. 10. gr. Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðla- banka Islands. Spariskíiteinin verða til sölu í viðskiptabönkum, bankaútibúum, stærri sparisjóðum og hjá nokkr- um verðbréfasölum í Reykjavík. Yakin er at- hygli á því, að spariskír- teini eru einnig seld í afgreiðslu Seðlabankans, Ingólfshvoli, Hafnarstræti 14. Salan hefst 11. maí n.k. 7. maí 1966.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.