Morgunblaðið - 10.05.1966, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjuétegur 10. maí 1966
NÝJASTA gerð af
BRILLO
stálsvömpum með sápu, sem
GLJAFÆGIR potta og pönnur
jafnvel FLJÓTAR en nokkru
sinni fyrr.
SÆNSKAR
KJÖRBÚÐAR-
KÖRFUR
STRANDBERG
Heildverzlun - Hverfisgötu 76.
Sími 16462.
Starfsmaður óskast á skrifstofu stöðvarstjóra fé-
lagsins á Reykjavíkurflugvelli. Góð málakunnátta
nauðsynleg. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Nokkur
reynsla í skipulagsmálum æskileg. — Kaupkröfur
óskast. — Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif-
stofum félagsins, sé skilað til Starfsmannahalds fyr
ir 15. maí nk.
í úrvali
Ungbarnaskór með stíf-
um botni.
Lágir strigaskór á kven-
fólk. Sumar kven-
götuskór með litlum
hælum.
Skóverzlun og skóvinnustofa
Sigurbjörns Þorgeirssonar,
Miðbæ við Háaleitisbraut 58—60.
Nýkomið
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
INNLENT LÁN
RIKISSJÓÐSISLANDS1966,1.F1
ÚTBOÐ
Fjármálaráðherra hefur á-
kveðið að nota heimild í
lögum frá 6. maí 1966 til
þess að bjóða út 50 milljón
króna innlent lán ríkis-
sjóðs með eftirfarandi skil-
málum:
SKILMÁL AR
fyrir verðtryggðum spari-
skírteinum ríkissjóðs, sem
gefin eru út samkvæmt
lögum frá maí 1966 um
heimild fyrir ríkisstjóm-.
ina til lántöku vegna fram-
kvæmdaáætlunar fyrir ár-
ið 1966.
1. gr. Hlutdeildarbréf láns-
ins eru nefnd spariskír-
teini, og eru þau öll gefin
út til handhafa. Þau eru í
tveimur stærðum, 1.000
og 10.000 krónum, og eru
gefin út í töluröð eins og
segir í aðalskuldabréfi.
2. gr. Skírteinin eru lengst
til 12 ára, en frá 20. sept-
ember 1969 er handhafa í
sjálfsvald sett, hvenær
hann fær skírteini inn-
Ieyst. Vextir greiðast eftir
á og í einu lagi við inn-
lausn. Fyrstu 4 árin nema
þeir 5% á ári, en meðal-
talsvextir fyrir allan láns-
tímann ei'u 6% á ári. Inn-
lausnarverð skírteinis tvö-
faldast á 12 árum og verð-
ur sem hér segir að með-
töldum vöxtum og vaxta-
vöxtum:
Skírteini 1.000 10.000
kr. kr.
Eftir 3 ár 1158 11580
_ 4 ár 1216 12160
_ 5 ár 1284 12840
_i 6 ár 1359 13590
—- 7 ár 1443 14430
— 8 ár 1535 15350
_ 9 ár 1636 16360
_ 10 ár 1749 17490
_ 11 ár 1874 18740
— 12 ár 2000 20000
Við þetta bætast verðbæt-
ur samkvæmt 3. gr.
3. gr. Við innlausn skír-
teinis greiðir ríkissjóður
verðbætur á höfuðstól,
vexti og vaxtavexti í hlut-
falli við þá hækkun, sem
kann að hafa orðið á vísi-
tölu byggingarkostnaðar
frá útgáfudegi skírteinis
til gjalddaga þess (sbr. 4.
gr.). Hagstofa Islands
reiknar vísitölu bygging-
arkostnaðar, og eru nú-
gildandi lög um hana nr.
25 frá 24. apríl 1957. Spari-
skírteinin skulu innleyst á
nafnverði auk vaxta, þótt
vísitala byggingarkostnað-
ar lækki á tímabilinu frá
útgáfudegi til gjalddaga.
Skírteini verða ekki inn-
leyst að hluta.
4. gr. Fastir gjalddagar
skírteina eru 20. septem-
ber ár hvert, í fyrsta sinn
20. september 1969. Inn-
lausnarfjárhæð skírteinis,
sem er höfuðstóll, vextir
og vaxtavextir auk verð-
bóta, skal auglýst í júlí ár
hvert í Lögbirtingablaði,
útvarpi og dagblöðum, í
fyi’sta sinn fyrir júlílok
1969. Gildir hin auglýsta
innlausnarfjárhæð óbreytt
frá og með 20. september
þar á .eftir í 12 mánuði
fram að næsta gjalddaga
fyrir öll skírteini, sem inn-
leyst eru á tímabilinu.
5. gr. Nú rís ágreiningur
um framkvæmd ákvæða 3.
gr. um greiðslu verðbóta á
höfuðstól og vexti, og skal
þá málinu vísað til nefnd-
ar þriggja manna, er skal
þannig skipuð: Seðlabanki
Islands tilnefnir einn
nefndarmanna, Hæstirétt-
ur annan, en hagstofu-
stjóri skal vera formaður
nefndarinnar. Nefndin fell-
ir fullnaðarúrskurð í á-
greiningsmálum, sem hún
fær til meðferðar. Ef
þreyting verður gerð á
grundvelli vísitölu bygg-
ingarkostnaðar, skal nefnd
þessi koma saman og
ákveða, hvernig vísitölur
samkvæmt nýjum eða
breyttum grundvelli skuli
tengdar eldri vísitölum.
Skulu. slíkar ákvarðanir
nefndarinnar vera fullnað-
arúrskurðir.
6. gr. Skírteini þetta er
undanþegið framtalsskyldu
og er skattfrjálst á sama
hátt og sparifé, samkvæmt
heimild í nefndum lögum
um lántöku þessa.
7. gr. Handhafar geta
fengið spariskírteini sín
nafnskráð í Seðlabanka Is-
lands gegn framvísun
þeirra og öðrum skilríkj-
um um eignarrétt, sem
bankinn kann að áskilja.
8. gr. Innlausn spariskír-
teina fer fram í Seðla-
banka Islands. Eftir loka-
gjalddaga greiðast ekki
vextir af skírteinum, og
engar verðbætur eru
greiddar vegna hækkunar
vísitölu byggingarkostnað-
ar eftir 20. september
1978.
9. gr. Allar kröfur sam-
kvæmt skírteini þessu
fyrnast, sé þeim ekki lýst
hjá Seðlabanka Islands
innan 10 ára, talið frá 20.
september 1978.
10. gr. Aðalskuldabréf
lánsins er geymt hjá Seðla-
banka Islands.
Spariskíiteinin verða til
sölu í viðskiptabönkum,
bankaútibúum, stærri
sparisjóðum og hjá nokkr-
um verðbréfasölum í
Reykjavík. Yakin er at-
hygli á því, að spariskír-
teini eru einnig seld í
afgreiðslu Seðlabankans,
Ingólfshvoli, Hafnarstræti
14. Salan hefst 11. maí n.k.
7. maí 1966.