Morgunblaðið - 19.05.1966, Síða 20
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. maí 1966
Hiff nýja vistheimili viff Dalforaut, sem opnaff var í gæ>r.
— Visfheimili
f ' Framhald aí bls. í.
nýja dagheimili til reksturs
og lýsti því jafnframt yfir,
að vistheimilið við Dalbraut
yrði nú opnað til starfrækslu.
Borgarstjóri ræddi um hin
miklu verkefni, sem framund
an eru á þessu sviði og kvaðst
vona að haldið yrði áfram
uppbyggingu barnaheimila
borgarinnar með viðunandi
hætti. Hann óskaði starfs-
fólki hinna nýju heimila til
hamingju og kvaðst vona, að
heill fylgdi störfum þeirra til
hagsældar fyrir þau börn sem
hér ættu eftir að njóta góðs
af.
Ásgeir Guðmundsson, for-
maður Sumargjafar, veitti
dagheimilinu viðtöku og jafn
framt undirrituðu borgar-
stjóri og hann samning milli
Reykjavíkurborgar og Sumar
gjafar um rekstur dagheim-
ilisins. Ennfremur flutti ÓI-
afur Jónsson, formaður barna
vemdarnefndar, stutta ræðu
og fagnaði þessum mikil-
væga áfanga.
Ræffa borgarstjóra
Árið 1962 fól ég þeim Jón-
asi B. Jónssyni, fræðslustjóra
og Jónasi Pálssyni, forstöðu-
manni Sálfræðideildar skóla að
gera tillögur um ráðstafanir
vegna barna, sem geta ekki dval-
izt á heimilum sínum af ýmsum
orsökum. I marzmánuði 1963
voru þessar tillögur lagðar fram
og var þar m. a. gert ráð fyrir
byggingu upptöku- og vistheim-
ilis, sem jafnframt yrði rann-
sóknarstöð og miðstöð, þar sem
fjallað yrði um vandamál barn-
anna og reynt að skapa þeim sem
bezta og öruggasta framtíð.
í umsögn barnaverndarnefnd-
ar um tillögurnar var talið að
brýnasta þörfin væri bygging
slíks heimilis. Ákvað borgarráð
því að hefjast handa þegar um
byggingu heimilisins og er nú
verið að vígja það hér í dag.
Heimili þessu er ætlað að vera
eins konar miðstöð til upptöku
• og fyrirgreiðslu heimilislausra
eða illa staddra bama og
unglinga í borginni. Þetta heimili
má helzt aldrei vera íullskipað
þannig að hér sé alltaf rými fyr-
ir börn, sem þurfa snögglega að-
hlynningar við.
Þetta heimili hlýtur vegna
etærðar sinnar að hafa á sér
nokkum stofnunarsvip. Hins veg
ar er gert ráð fyrir því með stað-
eetningunni, að heimílisbörn geti
•ótt skóla í grenndinni, bæði al-
mennan bama- og unglingaskóla
og leikskóla eftir því sem aldur
•egir til um. Þau heimilisböm
hér, sem munu dvelja um lengri
túna geta því átt kost á að eign-
ast vini meðal jafnaldra í grennd
inni og ef til vill komið á heim-
Ui þeirra eða boðið þessum vin-
um heim til sín.
Þetta heimili mun einnig
verða miðstöð fyrir öll önnur
vistheimili barna í borginni og
ef til vill æskilegt að tengja það
með einhverjum hætti skóla, sem
muni helzt annast menntun fólks
til starfa á þessum vettvangi.
Með byggingu þessa heimilis
er stigið stórt skref til bættrar
aðstöðu í bamaverndarmálum
borgarinnar. Hér er gert ráð fyr-
ir fullkominni læknis- og sál-
fræðiþjónustu, sem á að koma
börnunum að miklu gagni við
ráðstöfun á framtíðarheimili. Víð
bindum miklar vonir við þetta
beimili. Til þessa hefur verið
vandað eftir föngum og allt gert
til þess, að starfsemin geti borið
góðan árangur.
í greinargerð fræðslustjóra Og
formanns Sumargjafar frá 1963,
varðandi þörf fyrir dagheimili
hér í borginni, er gert ráð fyrir,
að um 10 böm af hverjum 1000
íbúum þurfi vist á dagheimili.
í samræmi við það hefur verið
gert ráð fyrir því, að eitt dag-
heimiii, sem tekur 80 böm, komi
í hvert hverfi þar sem eru 8—10
þúsund íbúar.
Við íslendingar höfum mjög
tekið Norðurlönd til fyrirmyndar
um skipan félagsmála. Er það
eðlilegt, þau eru okkur skyldust
og standa mjög framarlega í
þessum málum. Það er því fróð-
legt að gera nokkum saman-
burð á dagheimilaplássum í höf-
uðborg Svíþjóðar og íslands,
Stokkhólmi og Reykjavík. Sam-
kvæmt nýlegum skýrslum eru til
eitt pláss á dagheimili í Stokk-
hólrni fyrir hverja 179 ibúa. Sam-
svarandi tölur fyrir Reykjavík
nú er eitt pláss fyrir hverja 173
íbúa.
I nýju úthverfi Stokkhólms er
gert ráð fyrir því, að 16 dag-
heimiiispiáss komi á hverja 2000
íbúa eða 7—8 pláss á hverja 1000
íbúa eða nálægt því, sem stefnt
er að hér.
Þó að mikið hafi áunnizt í
barnaheimilamálum er þó enn
ekki hægt að fullmægja eftir-
spum um pláss á dagheimilum.
Meðan svo er verður að hraða
byggingu nýrra heimila, eins og
gert er ráð fyrir í framkvæmda-
áætlun borgarinnar.
Um leið og ég afhendi Barna-
vinafélaginu Sumargjöf dag-
heimiiið til rekstrar, vil ég þakka
félaginu fyrir mikið og heilla-
ríkt starf þess í þágu yngstu
borgara Reykjavíkur og óska því
til hamingju með þetta nýja og
glæsilega dagheimilL
Dagheimiliff viff Dalbraut.
Jónas B. Jónsson skýrði frá
byggingaframkvæmdum við vist-
heimilið og dagheimilið. Hann
sagði:
Samkvæmt tillögu frá barna-
heimila- og leikvallanefnd, sem
samþykkt var á fundi nefndar-
innar 25. nóv. 1963, ákvað borgar-
ráð að byggja skyldi dagheimili
við Rauðalæk og framkvæmdir
hefjast á árinu 1964. Vegna
skipulagsvinnu drógst það fram
yfir áramótin 1965. Síðan hefur
verkið gengið mjög vel.
Heimilið er byggt 9kv. teikn-
ingu Bárðar Daníelssonar, arki-
tekts.
Áður hefur verið byggt eftir
sömu teikningu dagheimilið
Hamraborg við Grænuhlíð sem
var vígt haustið 1964.
Húsið er 583 m* og 3824 m*.
Kostnaður við húsið 3. maí var
alls kr. 10.330.416.03, þar af við
lóðarlögun og búnað kr.
780.355.96.
Barnavinafélagið Sumargjöf
mun annast- rekstur heimilisins
eins og annarra dagheimila og
leikskóla í Reykjavík og hefur
sem forstöðukonu ráðið Guðrúnu
Guðjónsdóttur.
Á heimili þessu munu geta ver
ið um 70 börn daglega. Það starf
ar í fjórum deildum, tekur yngst
3ja mánaða gömul börn og elzt
6 ára.
Eru þá dagheimili x Reykjavík
orðin sjö og geta samtals tekið
á móti um 450 börnum.
Dagheimilin eru þessi: Laufás-
borg, Vesturborg, Steinahlíð,
Hlíðarendi, Hagaborg, Hamra-
borg og svo þetta nýja heimilL
Næsta dagheimili verður reist
í Vogahverfi. Það verður byggt
eftir teikningu arkitektanna
Skarphéðins Jóhannssonar og
Guðmundar Kr. Guðmundssonar,
en sú teikning hlaut 1. verðlaun
í verðlaunasamkeppni, sem fram
fór sl. ár. Það mun verða heldur
stærra en þetta, taka um 80 börn.
Verið er að undirbúa fram-
kvæmdir, sem hefjast munu
næsta ár.
Einnig hefur verið ákveðið að
hefja á næsta ári byggingu nýs
dagheimilis í Árbæjarhverfi.
Ég vil flytja öllum, sem að
þessu verki hafa unnið beztu
þakkir.
Upptöku- og vistheimiliff
við Dalbraut
að hefja skyldi byggingu upp-
töku- og vistheimiiis, lögðu borg
arritari og fræðslustjóri til £
bréfi til borgarstjóra í marz 1963,
að heimilinu skyldi valinn stað-
ur neðan Dalbrautar. Þar sem
aðrir aðilar, sem málið var skylt,-
svo sem barnaverndarnefnd,
taldi staðinn ákjósanlegan, var
sú tillaga samþykkt í borgarráðL
Skarphéðni Jóhannssyni, arki-
tekt, var síðan falið að teikna
húsið og þann 14. nóvember 1963
voru teikningarnar lagðar fyrir
barnaheimiia- og leikvallanefnd,
sem þá var nýstofnuð. Nefndin
samþykkti tillögurnar fyrir sitt
leyti og 16. október samþykkti
borgarráð teikningarnar. Þorkell
Kristjánsson. fulltrúi barna-
verndarnefndar, og Jónas Páls-
son, forstöðumaður sálfræði-
deildar skóla, voru ráðunautar
arkitektsins um teikningu húss-
ins.
Verklegar framkvæmdir hóf-
ust 18. nóvember 1964, og er nú
fyrsta áfanga lokið, nema ióðar-
lögun, sem nú stendur yfir og
ekki var hægt að hefja fyrr ea
nýlega vegna jarðklaka.
Húsið er, þ.e. þessi fyrri á-
fangi, 948 m2 og 4014 ms. Kostn-
aður var 3. maí sL kr. 17.047.779.-
99, þar af búnaður og lóð kr,
1.657.888.49.
Við þetta heimili er nú eftir að
byggja tvær íbúðarálmur fyrir
börn á aldrinum 8—16 ára. Mun
því verki verða lokið seint á
næsta ári og verður þá hægt að
hafa hér samtímis a.m.k. 45 börn,
Næstu daga munu fyrstu börnin
koma hingað til dvalar og verð-
ur þeim smám saman fjölgað,
eftir því sem barnaverndamefnd
ákveður.
Börn þau, sem hér á að vista,
munu aðeins dvelja hér um óá-
kveðinn tíma, meðan verið er að
útvega þeim frambúðarheimilL
Á þeim tíma munu þau verða
rannsökuð af sálfræðingi og
læknL sem hafa hér bækistöð.
Sú rannsókn leiðbeinir um val
heimila fyrir börnin.
Forstöðukona heimilisins verð
ur Kristín Pálsdóttir.
Vistheimili þau, sem borgin
rekur eru hú fimm að tölu og
þar geta dvalið 110—120 börn.
Heimilin eru, auk þessa nýja
heimilis: Silungapollur, Reykja-
hlíð, Vöggustofa Thorvaldsensfé-
lagsins og Fjölskylduheimilið
SkáiL
Ég vil flytja arkitektunum,
Framhald á bls. 25
Þegar borgarráð hafði ákveðið
Frá v. Ásgeir Guffmundsson, form. Sumargjafar, Ólafur Jónsson, formaffur barnavemdarnefndar,
Geir HaHgrimsson, borgarstjóri, Kristín Pálsdóttir, forstöðukona hios nýja vistheimilis og Jónas
B. Jónsson, fræðslustjóri