Morgunblaðið - 19.05.1966, Síða 28

Morgunblaðið - 19.05.1966, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. mai 1966 Mary Raymond: STÚLKA MEÐ GBÍMP Næsta dag kom Steve íheim til hádegisverðar. Þetta var óvenju- legt og eg vissi, að Amelia og Piero komust í hálfgerð vand- rseði út af því, en einhvern veginn tókst beim samt að koma með steik og salat handa honum og méff líka. Ungfrú E>aly hafði farið tram á að vera laus hálf- an daginn, og fór um hádegið. Við Steve borðuðum því há- degwverðinn ein saman. Þarna va‘r enginn annar viðstaddur, nema Piero, sem gekk um beina, en, hann skildi ekki nema litið í ensku. Þetta virtist vera taeki- færi af himnum sent, en samt rar ég nokkra stund að hleypa 1 mig hugrekki til að spyrja Steve um það, sem var efst í huga mínum. En loksins kom lamt spurningunni út úr mér. — Hvað var það, sem olli þessu missætti ykkar Toms? spurði ég. Steve leit á mig eins og stein- hissa. Við höfðum verið að tala «m hestana hans, svo að þarna var nokkuð snöggt slegið út í aðra sálma. Það var andartak áður en hann svaraði: — Ég ætla mér nú ekki að fara að rifja upp gaml- ar væringar, sagði hann. — En hvað hef ég gert til þess, að yður þurfi að vera svona lítið um mig? spurði ég. Steve rak upp ofurlítinn óeðli legan hlátur. — Að mér sé lítið um yður? Góða Júlía, ég þekki yður alls ekki, og hvernig æ-tti mér þá að vera lítið um yður? — Já, þar komum við einmitt að því. Þér þekkið mig alls ekki, og samt finn ég andúðina hjá yður koma streymandi til mín eins og þoku. — Ég hef gert mitt bezta til að láta fara vel um yður hérna í húsinu........ — Það veit ég vel......... — Þér getið ekki ætlazt til, að ég íári með yður eins og ein- hverja langþráða mágkonu........ — Ég ætlast heldur alls ekki til þess, en hvað hef ég gert á hluta yðar? Þér hafið aldrei hitt mig áður. —Nei, einmitt, sagði Steve, — en eigum við að segja, að ekkert, sem ég hef um yður heyrt hefur vakið neina löngun hjá mér til að hitta yður. — Þetta hlýtur að vera Kay að kenna, sagði ég. — Það var hún ,sem kom í brúðkaupið mitt. Hvað hefur Kay sagt yður um var nú ekki sem nákvæmust, sagði Steve. Hann fékk sér eina ferskju og fór að dunda við að afhýða hana. — Þér eruð alveg ólík þvi, sem ég gerði mér í hugmynd um — nema þá að höfuðhöggið hafi gjörbreytt allri persónu yðar. Og hún lýsti held ur ekki útliti yðar rétt. Hún sagði, að þér væruð lagleg — en hún nefndi ekki, að þér væruð undurfögur. Nú kom að mér að verða hissa. — Ég er hrædd um, að þér séuð að gera gys að mér. — Nei, og ég er heldur ekki að reyna að smjaðra fyrir yður. Röddin var köld og tilfinningar- laus. — Sú Júlía, sem Kay lýsti hefði látið sér á sama standa, hvort ég væri hrifinn af henni eða ekki — og það munuð þér líka gera, þegar þér fáið minnið aftur. — Þér hatið Tom og allt, sem hans er...... n---------------------------□ u □---------------------------□ — Nei, það er ekki hatur. Til- finningar mínar eru of marg- slungnar til þess að hægt sé að lýsa þeim með orðum. Við erum bræður og við urðum ósáttir. En ég ætla ekki að fara að róta upp í fortíðinni, .aðeins til að full- nægja yður. Þér hljótið að muna það seinna. En ég get ekki skil- ið, hversvegna þér eruð hingað komin. Ég held, að það hljóti bara að vera tilviljun, að þér voruð á ferð hérna í nágrenninu. Ég trúi því ekki, að þér hafið verið að koma og heimsækja mig. Röddin var einbeitt og ég vissi alveg, að ég mundi ekki hafa meira upp úr honum, varð- and Tom og sjálfa mig. Piero kom nú inn með kaffið. Meðan ég setti sykur í bollann minn og hrærði í honum, var mér ákaflega þungt í skapi. Ég var að gráti komin, gat fundið tárin titra undir augnlokunum, og bráðum mundu þau faila og niður í kaffibollann minn. En það var Steve, sem rauf þögnina. — Vel á minnzt, sagði hann. — Ég er búinn að finna ágæta hár- greiðslukonu handa yður. Það heitir Chez Michelle í High Street. Þér getið hringt þangað og aftalað tíma, og svo skal ég finna einhvern, sem getur ekið yður þangað á morgun. Ég tautaði eitthvert þakklæti, án þess að líta á hann og tár féll úr auga mínu og á fægða borðið fyrir framan mig. Ég var vitanlega eins og einhver bjáni, en'mig langaði mest til að leggj- ast fram á hendur mínar og fara að hágráta. Gráta vegna sjálfr- ar mín og vegna Toms og vegna bræðranna, sem urðu ósáttir, og vegna allra fjölskyldna, sem vaxa upp og tvístrast. En ég gat mig? — Lýsingin hennar á yður C1405 sendibifreidir lögreglubifreidir sjúkra bif reidi r a|||a Leitid upplýsinga Jrgtgft Ármúla 3 CHEVROLET ekki hugsað mér að fara að vola framan í Steve Gerard. Ég stóð snöggt upp frá borðinu, tautaði eitthvað óskiljanlegt og hljép út úr stofunni. Eg hljóp upp í her- bergið mitt — annað gat ég ekki farið — fleygði mér á rúmið og fór að gráta. Það var þar, sem Steve fann mig eitthvað hálfri klukkustund síðar. — Það er engin ástæða til að fara úr jafnvægi, sagði hann. Ég reis upp úr rúminu, þegar hann kom inn og greip höndum fyrir augu. — Ég er bara bjáni, sagði ég. Látið þér eins og þér sjáið það ekki. Steve fór ekki út, heldur gekk út að glugganum og leit út. Ég fann mér bréfþurrku og þerraði á mér augun og snýtti mér. Steve sneri að mér baki, og sagði. — Munðuð þér kæra yður um að koma út með mér seinni partinn 1 dag? Ég ætla að aka út á einn búgarðinn minn — og þér gætuð haft betra af því en að kúra svona alein yðar liðs. — Það er engin ástæða til að gera yður ómak min vegna, sagði ég. — Það verður allt 1 lagi með mig. Ég býst við, að ég sé bara svona viðkvæm, eftir þetta slys mitt. — Ég geri mér ekkert ómak yðar vegna. Hann sneri frá glugg anum og leit á mig. — Hamingj- an skal vita, að ég hélt ekki, að ég mundi nokkurn tíma fara að vorkenna yður, en það geri ég nú samt. Þvoið þér yður nú I framan, og ég skal bíða yðar niðri. Hálftreg gerði ég eins og hann sagði, þvoði mér um augun og lagaði á mér ahdlitið, setti svo upp sólgleraugu og batt klút um höfuðið. Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofur utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum: AKRANESI Vesturgötu 47, sími: 2240 opin kl. 10—12 og 14—22. ÍSAFIRÐI Sjálfstæðishúsinu II. hæð, sími 537 og 232 opin kl. 10—19. SAUÐÁRKRÓKI Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18. SIGLUFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 71154 opin kl. 13—19. AKUREYRI Hafnarstræti 101, sími 11578 opin kl. 10—12,14—18 og 20—22. NESKAUPSTAÐ Hafnarbraut 24. Sími 249. Opin kl. 16—18 og 20—22. VESTMANNAEYJUM Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 2233 opin kl. 10—12,14—19 og 20—22. SELFOSSI Hafnartúni, sími 291 opin kl. 9—17 og 19,30—21. KEFLAVÍK Sjálfstæðishúsinu, simi 2021 opin kl. 10—19. NJARÐVÍK Skrifstofan er í gamla biðskýlinu við Reykjanesbraut. Sími 2434. HAFN ARFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, simi 50228 opin kl. 9—22. GARÐAHREPPI Lyngási 8, sírni: 51690 — 52340 — 52341 opin kl. 15—18 og 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. KÓPAVOGI Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708 opin kl. 9—22. SELTJARNARNESI Melabraut 56, simi 24378 opin kl. 18—22. HVERAGERÐI Breiðamörk 20, Varmalæk. Sími 97 opin 2—6 og 8—10.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.