Morgunblaðið - 16.08.1966, Page 1
28 síður
v
„Múrinn hefur aukið á
virðingu A-Þýzkalands“
— sagði Ulbricht við hátíðahöldin vegna 5 ára
afmælis illræmdasta mannvirkis veraldar
Berlín, 14. ágúst. NTB
ÞÚSUNDIR vopnaðra, aust-
ur-þýzkra hermanna gengu
fylktu liði um götur A-Berlín
ar í gær, laugardag, í tilefni
þess að fimm ár voru þá lið-
in frá byggingu Berlínarmúrs
ins. Frægasta breiðgata Ber-
línar, Under den Linden, þar
sem Þý^kalandskeisari og
Hitler efndu á sínum tíma til
risavaxinna hersýninga, end
urómaði nú enn einu sinni af
taktföstu stígvélatrampi
hermanna, „þjóðvarðar“ og
„alþýðulögreglu“.
Þessi tveggja tíma löngu há-
tíðahöld eru liin fyrstu sinnar
tegundar frá því að valdhaf-
arnir í A-Þýzkalandi vöktu
furðu alls heirasins með því að
hefja byggingu múrsins á mörk-
um hernámssvæðanna í Berlín
aðfaranótt 13. ágúst 1961.
Um 5,000 „þjóðverðir“ úr verk
smiðjum fóru fyrir fylkingunni,
og báru þeir vélbyssur og blóm
vendi í belti. Er múr var í bygg-
ingu stóð „þióðvörðurinn" vörð
við hann ásamt lögreglu og her-
mönnum úr „Hinum þjóðlega
alþýðuhei".
Á fjölmennum fundi í A-Ber-
lín sl. laugardag lýsti Walter
Ulbricht, æðsti maður kommún-
istaflokks A-Þýzkalands því
yfir, að múrinn hefði komið í
veg fyrir styrjöld og lagt sitt
af mörkum til þess að auka á
virðingu A-Þýzkalands. Hefði
múrinn komið í veg fyrir, að
óteljandi V-Þjóðverjar hefðu
týnt lífi í styrjöld, sagði Ulbricht
og bætti því við, að múrinn
hefði kornið í veg fyrir að V-
Þýzkaland hefði getað hrundið
árásaráformum sínum í fram-
kvæmd.
Yíirmenn herja Vesturveld-
anna í Berlín lýstu því yfir á
laugardag að hátíðahöldin í A-
Framhald á bls. 10.
Stórblai hættir
New York Herald Tribune lagt niður
New York, 15. ágúst
(AP-NTB).
EIGENDUR stórblaðsins New
York Ilerald Tribune tilkynntu
Morðingjanna enn
leitaö í London
Lögreglan biður undirheima
í dag að blaðið kæmi ekki úr
frainar. Astæðan ei sú að starfs-
menn við prentsmiðju og af-
greiðslu blaðsins hófu fyrir
nokkru verkfall til að mótmæla
sameinir.gu Herald Tribune og
tveggja annarra dagblaða í New
York, Journai American og
World Xelegram.
Við sameiningu blaðanna
þriggja var ákveðið að Herald
Tribune kæmi áíram út sem
morgunblað, en auk þess kæmi
út sameiginleg kvöldútgáfa
blaðanna þriggja og sérstakt
sunnudagsblað. Við blöðin þrjú
störfuðu áður ails um 5.700
manns, en talið var unnt eftir
sameininguna að komast af með
2.500 manna starfslið. Neituðu
30 fdrust er
bygging hrundi
Vopnaðir verkamenn tóku þátt í hátíðahöldunum í Austur-
Berlín á laugardag í tilefni fimm ára afmælis Berlínarmnrs-
ins. Hér sjást þeir ganga fylktu liðið framhjá skopmynd af
Ludwig Erhard, kanzlara Vestur-Þýzkalands, sem steytir hnef-
ana framan í austur-þýzkan landamæravörð. Fyrir ofan
myndina stendur. Fimm ára and-fasistískur varnarmúr.
)
stórborgarinnar um aðstoð
London, 15. ág. (AP-NTB).
UMFANGSMIKILLI leit er
haldið áfram í London að
mönnunum þremur, sem á
föstudag skutu til bana þrjá
óvopnaða lögreglumenn úti á
götu í höfuðborginni. Hefur
lögreglan í London birt lýs-
ingu á mönnunum þremur, en
ekki nöfn þeirra, og er talið
að hún njóti aðstoðar frá und
irheimum Lundúna við að ná
mönnunum. — Á sunnudag
fann lögreglan bifreið þá, sem
morðingjarnir þrír notuðu, og
kom í Ijós að þeir höfðu keypt
□ ------------------------u
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Lögrcglan í London til-
kynnti á mánudagskvöld að
36 ára atvinnuleysingi, John
Edward Whitney, hafi verið
ákærður fyrir morðið á lög-
reglumönnunum þremur s.l.
föstudag. Hefjast réttarhöld í
máli hans á þriðjudag.
f tilkynningunni segir að
Whitney hafi ásamt öðrum
myrt lögreglumennina Christ-
opher Head, David Womb-
well og Geoffrey Cox. Áður
hafði Robert Chitty, yfirmað
ur rannsókanrlögreglunnar,
lýst því yfir að einn og sami
I maðurinn hafi drepið alla
þrjá lögreglumennina.
bifreiðina aðeins um klukku-
stund áður en morðin voru
framin. — Morðin hafa vakið
mikinn óhug í Bretlandi, og
hafa m.a. þrír þingmenn lýst
því yfir að þeir muni hafa
forgöngu um að dauðarefsing
verði tekin upp að nýju fyrir
Framhald á bls. 10.
stéttarféiög starfsmanna blað-
anna að viðurkenna nauðsyn
þess að fækka starfsliðinu svo
mikið.
Stjórnarformaður World Journ
al Tribune, Inc, féiagssamsteyp
unnar sem á blöðin þrjú, sagði
að tilgangurinn með samsteyp-
unni haíi verið að gefa lesend-
Framhald á bls. 10
— í IMýju Delhí — Eigandanum
hafði áður verið skipað
að ryma húsið
Nýju Delhí 15. ágúst — NTB.
UGGLAUST er talið að meira en
30 manns hafi látið lífið er fjög-
Hér eru brezkir lögreglumenn við rannsókn á morðstaðnum þar sem þrír lögreglumenn vorut
myrtir í London á föstudag. Við bílinn til hægri á myndinni liggur lík eins lögreglumanns-
ins.
urra hæða bygging í einu af
eldri hverfum Nýju Delhí
hrundi til grunna í dag. Vægur
jarðskjálfti og úrhellis rigning
eru talin hafa valdið húshruninu-
í kvöld höfðu lík 14 manns fund-
izt í rústunum. Er atburður þessi
varð, var frú Indria Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, að halda
ræðu skammt frá í tilefni þjóð-
hátíðardags Indverja.
Hermenn aðstoðuðu lögregl-
una og brunalið við að grafa í
rústunum, en talið er að um
60 manns séu enn grafnir þar.
í kvöld höfðu 24 slasaðir menn
fundizt.
Umrædd bygging stóð við
þrönga götu skammt frá helztu
mosku (bænahúsi Múhameðstrú- '
armanna) borgarinnar. í tveggja
km. fjarlægð dró frú Indrira
Gandhi indverska fánann upp í
tilefni 19. þjóðhátíðardags Ind-
lands.
Jarðskjálftinn í Nýju Delhí
stóð í um hálfa mínútu og fólk
sem stóð undir regnhlífum sín-
um til að hlýða á ræðu fr. Gandhi
ókyrrðist. Jafnskjótt og hátíða-
höldin voru á enda, kom frú
Gandhi á slysstaðinn og fylgdist
Framhald á bls. 10.