Morgunblaðið - 13.09.1966, Page 4

Morgunblaðið - 13.09.1966, Page 4
4 MORGU NBLAÐIÐ ÞriSjudagur 13 sept. 1968 BILALEIGAN FERÐ Daggjald kr. 400. Kr. 3,50 per lun. SÍMI 34406 SEN DUM IMAGINUSAR skipholti21 símar21190 eftir lokun slmi 40381 Hverfisgötu 103. Síml eftir lokun 31160. BiLALEICAN r f f n h R4UÐARARSTÍ6 51 SÍMI 22022 LITLA bíloleigan Ingólfsstræti II. Volkáwagen 1200 og 1300. Simi 14970 Bifreiðaleigan Vegferð SÍMI - 23900 BILALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. BOSCH Þurrkumótorar 24 volt 12 volt 0 volt / mt Brœðurnir Ormsson Laágmúla 9. — Sími 38820. •jí íþróttir Bítlarnir frá Keflavík hafa staðið sig vel enn einu sinni — og jafnvel KR hefur ekki roð við þeim. Hvernig er það — eru engir bítlar í KR? Fleira athyglisvert hefur gerzt á íþróttasviðinu hér síð- ustu dagana. Bandarískur kúluvarpari hefur leikið listir sínar — og hónum veitist létt að þeyta kúlunni fram fyrir 19 metra markið, gæti það senni- lega blindandi. Hann kastar u. þ. b. þremur metrum lengra en Huseby okkar gerði, þegar hann var upp á sitt bezta — og samt þótti Huseby gera það gott. Vonandi hafa heimsóknir sem þessar einhver áhrif á unga fólkið, hvetur það til dáða — eða öllu heldur til þess að leggja meiri stund á íþrótta- iðkanir, þvi afrekin koma ekki strax. Að baki þeim liggur mikil vinna, mikil og ströng þjálfun. í rauninni þyrftum við líka að fá einhverja erlenda til þess að synda með okkur 200 metr- ana hér heima. því betur má ef duga skal. Áróðurinn fyrir þátttöku hefur ekki verið rek- inn af nógu kappi — og áróð- ursvélin er gamaldags. Það vantar þennan ferska blæ, sem aldrei er til skaða. ■Jr Þjóðskráin Kona nokkur hefur skrif- að Velvakanda og beðið hann að benda sér á leið til þess að hafa uppi á manni, sem nún vissi hvar heima átti fyrir 35 árum — en ekki síðan. Hefur hún skrifað manntalsskrifstof- unni í Reykjavík, en ekki fengið svar — og leitar nú ann arra ráða. „ Þetta er einkamál svo að ekki get ég auglýst eftir honum í blöðunum“ — segir bréfritari. Eðlilegast væri að leita upp- lýsinga hjá Þjóðskránni. Utan- áskriftin er: Hagstofa íslands, Þjóðskráin, Arnarhvoli, Reykjavík. 'Jr Mjólkurpokar Hér kemur bréf frá Sel- fossi: „Kæri Velvakandi. Nú hefur Mjólkurbú Flóa- manna byrjað að selja mjólk í plastpokum og er það vel. Fáir sjá eftir hyrnunum. Þess- ar nýju umbúðir eru mjög hentugar og sterkar og hafa þær líkað mjög vel á Sauðár- króki — þar sem þær hafa verið í notkun í nokkurn tíma. En tvennt er það, sem okk- ur Selfossbúum líkar miður. í fyrsta lagi eru könnurnar, sem ætlaðar eru mjólkurpok- unum, of víðar. Pokarmr geta dottið úr þeim. Á Sauðárkróki eru könnurnar það þröngar, að pokarnir sogast fastir og varla er mögulegí að ná þeim upp úr köanunum fyrr en pokinn er tæmdur. í öðru lagi er verðið á pokamjólkinni það sama og á hyrnumjólkinni, eða kr. 8.05. Á Sauðárkróki kostar líterinn kr. 8.00. Talið er, að þessar umbúð ir séu ódýrari en hyrnurnar. Hvers vegna fáum við ekki að njóta þessarar lækkunar hér á Selfossi á sama hátt og fójkið á Sauðárkróki? Ég vænti þess, að hægt sé að fá skýringu á þessu — og ennfremur, að okkur verði gefinn kostur á að kaupa sams konar könnur og eru á boð- stólum á Sauðárkróki. Selfossbúi." Kirkjan Lesandi skrifar: „Undanfarna nokkra sunnu- daga hefur síra Erlendur Sig- mundsson prédikað við árdeg- ismessu í Hallgrímskirkju, en af því vék ég máls á þessu, að mér finnst ræðuflutningur þessa kennimanns vera með þeim ágætum, að athyglisvert er. Ég legg ekki út í það, að út- skýra þetta nánar en vil hvetja þá sem unna kirkju og kristindómi, að sækja kirkjj til þessa hugljúfa, og ágæta kennimanns, og sannfærast sjálfir um sannleiksgildi orða minna. Að endingu vil ég biðja séra Erlend Sigmundsson um að láta prenta í víðlesnu blaði ræðu þá er hann flutti í Hall- grímskirkju sunnudaginn 11. þ.m. Þakklátur kirkjugestur." '+r Skógurinn og landið. Lesandi skrifar: „Ég var áðan að lesa bréf XXX til Velvakanda, sem svar til Hákonar Bjarnasonar, þar sem XXX vill ekki trúa að landið hafi verið skógi vaxið fyrrum, heldur kjarri. Ég er nú enginn sérfræðing- ur á þessu sviði frekar en öðru, en ég ætla að segja ykk- ur sögu. í fyrra kom ég aust- ur í Landssveit. Þar hafði ný- lega verið grafinn djúpur skurður, líklega til framræzslu og upp úr honum komu stórir viðardrumbar, ekki einn, held- ur margir.. Þarna hafði greini- lega verið skógur fyrrum, og það engin smátré. Bændurnir geyma suma drumbana, a.m.k, á þessum bæ, sem ég kom á. og gætu sýnt þá. Þetta sannar að á þessum stað a.m.k. hefur verið skógur, hvað sem annars staðar hefur verið. H.“ Hjúknniarkona áskast að Hrafnistu Upplýsingar á skrifstofunni, sími 38440. Starfsstúlka óskast strax í kaffistofuna, Austurstræti 4. — Frí á sunnudögum. — Afgreiðslustúlka óskast nú þegar í kjörbúð. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m., merkt: „Kjörbúð — 4718“. Viljum ráða búðarmann. — Upplýsingar í Radíóbúð inni, Klapparstíg 26. Við Reynimel Til sölu eru 2ja og 3ja herb. íbúðir á hæðum í sam- býlishúsi við Reynimel. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk og sameign úti og ínni fullgerð. Hitaveita. — Malbikuð gata. — Örstutt i Miðbæinn. Teikning til sýnis á skrifstofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala. Suðurgötu 4. — Simi 14314. ©PIB ATVINNA Duglegar stúlkur geta fengið vinnu strax í verksmiðju vorri. FRIGG Garðahreppi. Blaftburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Meistaravelli Ránargata Laugarásveg Laufásveg 2—57 Tjarnargötu Grettisgata II Laugaveg frá 1—32 frá 36—98 Barónsstígur Lynghagi Grettisgata I Grettisgata 36—98 Fálkagata Túngata Laugavcg 33—80 Þingholtsstræti Bergstaðastræti Hverfisgata I Aðalstræti Flókagata neðri Kleppsvegur I Freyjugata Blesugcóf Vesturgata 2—44 Snorrabraut Háteigsvegur Talið við afgreiðsluna sími 22480.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.