Morgunblaðið - 13.09.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.09.1966, Blaðsíða 28
28 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 13. sépt. 1966 FÁLKAFLUG EFTIR DAPHNE DU MAURIER Aftur steig ég á bak fyrir aft- an Paolo, og næstu klukkutím- ana hefði ég þá vafasömu skemmiun, sem stúdentafrí er. Við þutum fram og aftur, fram með ströndinni framhjá gisti- húsunum, eftir Trie^teveginum, stundum í kappakstri við Gino og Mario, stundum að elta skemmtiferðavagna. Við sóttum kaffihúsin, þar sem tónlistin var háværust og þrengst var við skenkiborðin, og lukum ferðinni í matsöluhúsum, þar sem við hesthúsuðum heilar skálar af súpu — fisksúpu alveg eins og Marta mallaði ofan í okkur þeg- ar ég var lítill. Loksins fórum við, undir klukkan níu, og fylgd um Caterinu i áætlunarbílinn, og hún var enn með fataböggul- inn minn, og síðan fylgdum við vagninum sinn hvorum megin, ökumanninum og vagnverðinum til mikillar gremju, og þannig var ekið aftur til Ruffano. Hvað framtíðin bar í skauti sé_r, hugs- aði enginn lengur um. Ég hafði alveg hætt að kæra mig nokk- urn hlut um _ það þegar fyrir nokkrum klukkustundum, í fjör- unni í Fano. Ég hélt mér nú bara í beltið á Paolo og þannig fylgd um við vagninum, sem einskon- ar meðreiðarsveinar, yfir' hæð- irnar á leiðinni. Sú himneska borg, Ruffano, blasti bráðlega við okkur með öll sín hundruð blikandi ljósa, og flóðlýst dómkirkjan skein sem bjartur blettur milli hæð- anna tveggja. Héðan, að austan séð, var hertogahöllin í hvarfi bak við aðrar byggingar, en ljósbjarminn upp yfir henni minnti á tilveru hennar og há- skólans, lengra burtu, og bráð- um mundi ég sjá ljósin frá gamla heimilinu mínu, þar sem Butali- hjónin mundu nú sitja að kvöld- verði. Frá einum þessara glugga, sem ekki varð enn greindur sérstak- lega, höfð 'm við Aldo horft yfir dalinn, þegar við vorum strák- ar, og þóttumst meiri menn en hinir, sem áttu heima niðri í dalnum, á sveitabæjunum, og um leið og mér datt þetta í hug, hangandi í beltinu á Paolo, kom- um við að Malebranche-hliðinu, og ég leit upp og á ljósaraðirnar, beinar og tilbreytingarlausar, sem voru á munaðarleysingja- spítalanum á norðurhæðinni. í þessari gömlu byggingu, hefði Aldo orðið að lifa lífi sínu, ein- mana og yfirgefinn, ef ekki hefði verið faðir minn og Luigi Speca. íklæddur gráum samfestingi, og með snoðkilpptan kollinn, hefði hann verið munaðarleysingi, og fullorðinn hefði hann borið allt annað nafn. Og ég, sem var raun verulegur sonur foreldra minna, hefði orðið skirður Aldo í hans stað. Þessi tilhugsun var í senn ró- andi og áminnig um leið. Ég hefði líka orðið annar en ég var. í stað þess að vaxa upp í skugg- anum af Aldo, hræddur, lotn- ingarfullur og hlýðinn hverri skipan hans, hefði ævi mín orð- ið allt önnur. Þegar við fórum gegn um Malebranche-hliðið vissi ég með sjálfum mér, að ég óskaði ekki þeirra breytingar. Það kynni að vera, að hann væri ekki sonur foreldra minna, en engu að síður átti hann mig, með líkama, sál og hjarta, og svo var enn. Hann var guð minn gg djöfull, hvorttveggja í senn. Öll þessi ár, sem ég hélt hann dauðan, hafði líf mitt verið autt og tómt og tilgangslaust. Vagninn ískraði og stanzaði innan við ftliðið. Við Paolo og svo hin skellinaðran líka, þutum áleiðis til norðurhæðarinnar og Carlotorgs. Hér var Carlo her- togi, alveg eins og þegar at- burðurinn gerðist þarna um dag- inn, og horfði náðarsamlega nið- ur á mannfjöldann, sem fyrir neðan hann var. Stúdentar og borgarbúar stikuðu fram og aft- ur yfir torgið og gegn um garð- ana, sem þar voru, kring um styttuna. Þeir nýútskrifuðu spók uðu sig með heiðurspeninga á keðjum, eins og siður var, að því er Paolo sagði mér, en á eftir þeim kom hópur aðdáunar- fullra stúdenta. Hraðsamin tón- list fyllti loftið — þarna voru bæði munnhörpur, blístrur og gítarar. Stilltir foreldrar gengu um og horfði á með aðdáun. Og svo var hringlað í hinum óum- □-------------□ 66 □-------------□ flýjanlegu söfnunarbaukum. Púð urkellingar sprungu og hundar flúðu ýlfrandi. Þeir, sem bíla áttu, óku hægt kring um torgið, en skellinöðrurnar — þar á með al okkar — þutu um allt og reyndu að gera sem mestan háv aða. — Hvað sagðí ég þér? sagði Paolo, þegar tveir vopnaðir lög- reglumenn gengu hægt og rólega framhjá okkur, uppstroknir og fínir í einkennisbúningunum sín um. — Hvorki þessir né hve margir, sem vera skal í venju- legum fötum, mundu líta á þig. Nei, í kvöld ertu einn af oss. Stærsti stúdentahópurinn, lík- lega einir hundrað, höfðu safn- azt saman fyrir utan hús Elia prófessors, og voru nú að æpa til hans. — Elia .... Elia .... rauluðu þeir, og svo þegar hann kom sem allra snöggvast fram í dyrnar og veifaði til þeirra, rak hópurinn upp fagnðaróp. Að baki honum, í hóp, voru starfsbræður hans úr deildinni og mér fannst, þar sem hann stóð þarna, hefði hann endurheimt sjálfsöryggi sitt og kæti — en þó ekki til fulls. Of- urlítið hik, þegar yzt utan úr hópnum kom ópið: „Hvar eru baðbuxurnar þínar?“, og svo sprakk púðurkelling strax á eftir og allir fóru að skelli- hlæja, þá gaf það til kynna, um leið og hann veifaði í síðasta sinn, að atburðir þriðjudagsins væru enn ekki að fullu gleymd- ir. Hver sagði þetta? sagði Gino reiðilega og sneri sér, ásamt mörgum öðrum út að útjaðrin- um á hópnum, þaðan sem ópið hafði komið, og samstundis heyrðist kliður allt í kring um okkur: — Það er einhver úr Listadeildinni af hinni hæð- inni. Takið hann og drepið hann! Eftir andartak var komin ringul- reið á allan hópinn, hann dreifð- ist og allir fóru að hlaupa. — Þetta er forsmekkur þess, sem koma skal, sagði Paolo í eyrað á mér. Til hvers er að fást um það í kvöld. Við mölum hóp- inn á morgun. Aftur setti hann skellinöðr- una í gang, og Caterina, sem virt ist koma innan úr miðjum hópn um, þaut að og settist í þrönga sætið uppi á stýrinu. — Fljótir nú, sagði hún laf- móð. — Hún tekur okkur öll þrjú. Við skulum sjá, hvað geng- ur á uppi á hinni hæðinni. Við beygðum út af Carlotorg- inu og Gino og Mario á eftir okk ur, ókum svo hringbrautina við suðvestur j aðar bæjarins, undir borgarmúrunum. Nú Ijómaði framhliðin á hertogahöllinni í allri sinni dýrð, með turna tvo gnæfandi yfir, og það var rétt eins og. hin mikla bygging héngi í lausu lofti, berandi við stjörnu himininn. Við ókum niður í dal- inn og upp hina hæðina, en þeg- ar við komum upp á hrygginn milli stúdentagarðsins og nýju háskólabygginganna, sáum við strax, að vegirnir á milli voru lokaðir. Þar var hópur stúdenta og ekki einungis fjölmennur heldur einnig vopnaður. — Hvað er þetta? Eru Lista- bjálfarnir að æfa sig? sagði Gino er við sáum blika á sverðin. En þeir hlupu bara niður hæðina til okkar þegjandi, en ekki æp- andi, og þegar Gino hemlaði með fætinum, og beygði við, kom spjót fljúgandi í áttina til okkar og stakkst í jörðina, rétt hjá okkur. — Ef þið haldið áfram, er það á ykkar eigin ábyrgð! æpti rödd. Guð minn góður! æpti Paolo, — þetta er sannarlega engin æfing, og svo sneri hann við eins og Gino, áður en annað spjót kæmi til okkar, á eftir hinu fyrra. Við þutum niður brekkuna, sömu leið og við höfðum komið,'’ niður í dalinn við borgarmúr- inn, og stönzuðum lengst burtu, og stigum af hjólunum, og störð- um hvert á annað, en uppljómuð hertogahöllin stóð á sínum stáð, róleg og tíguleg Öll andlitin fjögur voru náföl. Caterina skalf, og ekki af spenningi, heldur af hræðslu. — Jæja, þá vitum við það, sagði Gino. — Það er þetta, sem þeir ætla okkur á morgun. — Við fengum aðvörun, sagði Paolo rólega. — Donati aðvaraði okkur á leikhúsfundinum á mánudagskvöldið. Hér gildir bara að verða fyrri til, það er allt og sumt. Ef við komumst að framlínunum þeirra með grjót- kasti og þær gefa sig, þá getum við komizt að þeim í návígi, svo að þeir komi ekki við spjótun- um eða sverðunum. — Við ættum nú samt að segja foringjunum okkar, hvers við höfum orðið vör, sagði Mario. Ætla þeir ekki að koma á fund í kvöld í Píslarvottagötu? — Jú, sagði Gino. Paolo sneri sér að mér. — Það kann nú að vera, að þetta sé ekki þitt stríð, en þú ert bara orðinn þátttakandi í því núna, sagði hann. — En hvað er með hann bróður þinn? Er hann nokkuð tengdur háskólanum? — Óbeint, sagði ég. — Þá ættirðu heldur að segja honum, á hverju hann getur átt von, ef hann verður úti við á morgun. ■— Ég held að hann viti það, sagði ég. Caterina stappaði niður fæti í óþolinmæði. — Til hvers er' að vera að eyða tímanum í kjaft- æði? sagði hún — Ættuð við ekki heldur að láta boð út ganga til félaga okkar? Litla andlitið á henni, fölt og ofsafeiigið, varð allt í einu eins og afmyndað undir skýi af hári. — Ekkert okkar ætti að hátta í kvöld, sagði hún. — Heldur ættum við að safna liði hérna út fyrir bæ- inn og grafa upp steina. Þá fá- um við aldrei nægilega innan borgarinnar. Þeir ættu að vera brúnóttir og á stærð eitthvað þessu líkt. Hún dró hring með höndunum — og með bandi utan um, svo að við getum sveiflað þeim með nægilegum krafti. — Catte hefur á réttu að standa, sagði Gino. — Við skul- um koma okkar af stað. Fyrst t Píslarvottagötu til að segja for- ingjunum frá þessu — það kann að vera, að þeir vilji gefa út nýjar skipanir. — Komdu Mario. Hann sveiflaði sér upp á hjól- ið, og Mario fyrir aftan hann og svo óku þeir áleiðis til Písl- arvottahliðsins. Paolo leit á mig. — Jæja, hvað nú? Viltu, að við förum með þig til hans bróður þíns. — Nei, sagði ég. Meira í flöskunni • aftur f glösin KÓNGA-FLASKAN Ný flöskustærd af Coca-Cola er komin ó markaðinn fyrir þó sem vilja fó meira í flöskunni fyrir tiltölulega hagkvæmara verð. Biðjið um stóru kónga-flöskuna. Ætíð sami Ijúffengi drykkurinn, svalur og hress- andi, sem léttir skapíð og gerirstörfin önægjulegri FRAMLEITT AF YERKSMIÐJUNNI VÍFIIFELIÍUMBODI THE COCA*COLA.EXPORT C O R P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.