Morgunblaðið - 13.09.1966, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.09.1966, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 13 sept. 19©® MORGUNBLADIÐ 11 KAUPUM ISLENZKA IDNAÐARVÖRU IÐNISÝNINGIN w A /Isbjörn Signrjónsson, framkvæmdastjóri: Iðnsýningin fram lengd um viku 40 þúsund höfðu séð sýninguna á sunnudag MIKIL aðsókn var að Iðnsýning- unni um helgina, og á sunnudag skoðuðu 6790 manns sýninguna. H.fðu 39 þúsund manns komið á sýninguna á sunnudag frá því að hún var opnuð. Vegna þessarar miklu aðsókn- ar og fjölda tilmaela hefur venð ákveðið að framlengja syning- una til sunnudagsins 18. septem- ber. Er því óhætt að benda fólki á, sem enn hefur ekki séð sýn- inguna, á áð notfæra sér dag- ana til helgarinnar til að koma og skoða, og forðast þrengsli þessa síðustu daga. Sérstaklega skal tekið fram að ekki verður unnt að framlengja sýninguna frekar, þar sem Iðn- sýningin hefur ekki ráð á hús- 'næðinu lengu'- Vefjaiðnaður VEFJARTHNAÐUR á íslandi á sér jafnlanga sögu og landnám, og skiptist fram á okkar dag í fjögur megintímabil. Fyrsta tímabil er frumstæð iðn ullar, annað tímabil er virðingarverð tilraun Skúia Magnússonar með innréttingar í Reykjavík, þriðja tímabilið er afturhvarf til al- gjörrar handiðnaðar og vöru- skipta fyrir ullarvoðir og prjón les. Fjórða tímabilið hefst rétt fyrir aldamótin með vélvæðingu, sem byggðist á vatnsafli og seinna rafmagni. Fyrstu tóvinnu vélarnar vofa settar upp að Ála fossi 1896, cg um sama leyti hjá Gefjun á Akureyri, Reykjafossi í Ölfusi um 1908, Framtíðinni í Reykjavík 1922 og seinna hjá Kaupfélagi á Reyðarfirði og Kaupfélagi á Húsavík, Ó.F.Ó. í Reykjavík og nú síðast hjá Teppagerðirmi h.f í Reykjavík. Ullarþvottastöðvarnar hafa aðal lega verið á Akureyri, Álafossi, Hveragerði og hjá Garðari Gísla syni í Reykjavík. Ullarframleiðsla landsins hef- ur að öllu jöfnu verið flutt út óunnin og gengið erfiðlega að selja hana án vöruskipta eða uppbóta. Nú á síðasta ári var gerð tilraun með útflutning á ullarbandi og flutt út um 150 tonn, en vegna launa- og ann- arra kostnaðarhækkana á þessu ári, auk verðlagningar íslenzku ullarinnar varð að hætta við út- flutning á ullarbandinu, þó hún gæfi 50% hærra verð en á ó- unninni uli. Ársframleiðslu á hreinni ull árið 1966 má áætla um 900 tonn. og samkvæmt lauslegri áætlun munu íslenzku verksmiðjurnar nota um 1—500 tonn til fram- leiðslu fyrir innanlandsmarkað. Auk þess munu Gefjun og Hekla á Akureyri nota um 130 tonn í værðarvoða og peysuútflutning sinn til Rússiands. 350 tonn verð ur því að flytja út sem óunna ull, þrátt fyrir það að hér á landi séu verksmiðjur, sem gætu við eðlilegar aðstæður unnið þessa ull í verðn'eiri vöru til útflutn- ings. Vefnaður og prjónaiðnaður hefur þróast nokkuð jafnt og þétt síðan um 1922 og hafa á þessu tímabili starfað um 18 stærri prjónastofur og 9 vefnað- arverksmiðii’r. Nú eru starfandi 14 prjónast.ofur og 7 vefnaðar- verksmiðjur. Ullariðr.aður hefur lengst af búið við erfið skilyrði. Hann varð að láta sér nægja kaup á gömlum vélum og starfa í ófull- komnu húsræði. Þó komu fimm stríðsárin 1940—1945, þegar all- ar tóvinnuvélar og prjónavélar voru keyrðar dag og nótt og nægði hvcgi til að sjá lands- mönnum fyrir hluta af þeirra þörfum af þessum neyzluvörum, sem var meira að segja skammt að um tíma. Á árunum 1945 til 1949 minnk aði framleiðslan nokkuð jafnt þar til fyrirvaralaus innflutning ur var gefinn frjáls haustið 1949. Eftir það hefur ullariðn- aður aldrei náð sér aftur að nokkru marki, að undantekinni framleiðslu á gólfteppum, sem voru ekki á frílista fyrr en nú um síðustu áramót og hefur á þeim tíma bvggst upp nokkur gólfteppaiðnaður eða 4 verk- smiðjur. Ullariðnaður er mjög fjár- frekur iðnaður, sem þarf mikið af sérbyggðum og dýrum vélum, mikið húsnæði. vandvirkt og velþjálfað starfsfólk. Fjármagns þörf ullarverksmiðju er sérstak- lega há vegna árstíðabundinna innkaupa á hráefnum og einnig árstíðabundmnar sölu fram- leiðslunnar, sem selzt mest að hausti og fram á vetur. Ofan- ritað gefur því augljósa skýr- ingu á þeim erfðileikum, sem yfirstandandi fjárleysi íþyngir ullariðnaði sérstaklega. íslenzka ullin er sterk og fjaðurmögnuð og þessvegna eru grófari flokkar hennar vel til fallnir í gólfteppaframleiðslu. Hér á landi hefur notkun gólf- teppa aukizt svo mjög að við notum árið 3965 rúma 140 þús- und fermetra af gólfteppum, inn- lendum og erlendum, og sam svarar það um 3 fermetra á heimili, meðan Danir nota 2.7 fermetra og Svíar 2.1 fermeter. Segir þetta nokkuð um velmeg- un þjóðarinnar. Verkefni gólf- teppaframleiðenda virðast því vera næg framundan meðan kaupgetan helzt. Ýmsar ullarvörur hafa unnið góðan markað erlendis meðal erlendra ferðamanna, sem heim- sækja okkur Þessar vörur eru margar hverjar handunnar, svo sem lopapeysurnar, en værðar- voðir og giuggatjöld hafa einnig selzt nokkuð og munu þessir liðir, ef vei er á haldið, verða djúgur útflutningsliður ullar- iðnaðarins. Prjónavéiar komu fyrst til iandsins u-n 1880 og nú seinni árin hefur myndast hér nokkuð öflugur prjónaiðnaður hjá Heklu á Akureyri, sem flytur út mikið af peysum til Rússlands og víðar. Einnig eru nokkrar prjónastotur í Reykjavík, sem nota eingöngu erlent band. Nylonsokkaverksmiðjan Eva á Akranesi og herrasokkaverk- smiðjan Kolibri í Reykjavík hófu framleiðslu fyrir nokkrum árum, en r.ota báðar erlent hrá- efni. V eiðarf æraiðnaður Frá því að Skúli Magnússon varð að leggja innréttingar sínar niður og þar með kaðla og hand- færagerð sína, og allt fram að árinu 1927, er Sigurjón Péturs- son á Álafossi flutti inn neta- hnýtingavél. hefur ekkert verið vélunnið af veiðarfæraefni hér á landi. Veiðarfæraverksmiðjur hafa verið 6 að tölu þegar flest var en nú er eftir aðeins ein, sem nokkuð kveður að, en það er Hampiðjan í Reykjavík. Veiðarfæra’ðnaði hefur farið mikið fram og tæknilegar breyt- ingar orðið örari en í öllum vefj- ariðnaði, vélakostur gengið fljótt úr sér og hráefni orðið öll önnur nú síðari árin. Hefur þetta haft þau áhrif, að ekki hefur tekizt að fylgja hinni öru þróun til jafns við fjársterkan og jafnvel ríkisstyrktan veiðar- færaiðnað stórþjóðanná, sem í skjóli máttar síns undirbjóða og hagræða viðskiptum við hér- lenda kaupendur. Stríðsárin sönnuðu okkur, að við megum ekki vera án eigin veiðarfæra- iðnaðar. Eftirtalin fyrirtæki sýna hálf- unnar og fullunnar vörur vefj- ariðnaðarins á iðnsýningunn> 1966: Axminster h.f. stúka 311 deild IV. Axminster framleiðir ein- göngu gólfteppi, tvær gerðir af venjulegum gólfteppum, einlit og í tweediitum og Röggva gólf- teppi. Álafoss h.f. stúka 313 deild IV. Helztu vörutegundir er Ála- foss framleiðir eru meðal annars gólfteppi, áklæði, gluggatjöld, ferðateppi, band og lopi. Teppagerðin h.f. stúka 312 deild IV. Teppagerðin framleiðir gólf- teppi úr ull og nælon, kokos- dregla, lopa og band. tíltíma h.f. stúka 219 deild II. Af vefjariðnaði sýnir fyrir-tt tækið alullaráklæði og glugga- tjöld. Ásbjörn Sigurjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.