Morgunblaðið - 17.09.1966, Side 10

Morgunblaðið - 17.09.1966, Side 10
10 MORGU N BLAÐIÐ Laugardagur 17. sept. 1966 KAUPUM ÍSLENZKA IDNAÐARVÖRU Guðmundur Marteinsson fyrrv. rafmagnseftirlitsstjóri: InngangsorS. >AÐ er augljósara en frá þurfi að segja, að til þess að hagnýta á ótal vegu það töfraafl sem raf- magn kallast, svo sem gert er, þarf ótal tegundir og stærðir af vélum, búnaði og tækjum, til þe’ss að framleiða rafmagn, flytja það og nýta á hinn margvísleg- asta hátt. Enda er það svo, að hjá miklum iðnaðarþjóðum skipar rafmagnsiðnaður veglegan sess. Á íslandi lætur þessi grein iðnaðar skiljanlega lítið yfii *■ sér. Fyrsti vísir að rafmagnsiðn- aði hlaut þó að myndast hér á landi um leið og byrjað var að taka rafmagn í notkun, en það var á fyrsta áratug þessarar ald- ar (að því undanskildu, að sími var innleiddur á takmörkuðu svæði nokkru áður). Allt efni til raflanga var að sjálfsögðu innflutt, en rafvirkj- inn þurfti þó að hafa verkstæði, m.a. til þess að smíða rafmagns- röflur fyrir raflagnir og litlar rafstöðvar, og von bráðar kom að því, að hann þurfti að geta gert við raftæki, svo sem hita- tæki og hreyfla. Fyrsta rafstöðin. Fyrsta rafstöð hér á landi var sett upp seint ,á árinu 1904, og komu þar við sögu tveir braut- ryðjendur, þeir Jóhannes Reyk- dal, upphafsmaður og eigandi þessa mannvirkis, og Halldór Guðmundsson, raffræðingur, ' sem setti upp vélar og lagði raf- lagnir, bæði í trésmíðaverk- stæði Reykdals, Dverg, og síðar í mörg hús í Hafnarfirði. Á þessum áratug og þeim næsta voru settar upp rafstöðvar á ýmsúm stöðvum á landinu, bæði í kauptúnum og á einstök- um sveitabýlum, og raflagnir lagðar í fjölda húsa á sömu stöðum. Elliðaárvirkjun. Árið 1921 var fyrsta stig Elliða árvirkjunarinnar fullgert, og Rafmagnsveita Reykjavíkur tók til starfa. Vertiur það ávallt tal- inn merkur viðburður í sögu raf væðingar á íslandi. Ennþá var ekki um neinn raf- magnsiðnað að ræða, sem kall- burstar fengust að vísu smíðaðir áður á rafmagnsverkstæðum, en um kerfisbundna framleiðslu var ekki að ræða, og skorti oft 4 fullnægjandi þjónustu, í þess- um efnum. Er verkstæði þetta, þótt lítið sé, hið þarfasta fyrir- tæki. Dósir og hólkar. Af raflagnaefni eru dósir og hólkar til samskeyta á pípum næstum hið eina sem framleitt hefur verið hérlendis, en fram- leiðsla á þessum hlutum hófst hér fyrir um það bil hálfum öðr- um áratug. (Blikksmiðja J. B. Pétursson, og seinna smiðja Jón- asar Guðlaugssonar). Rafmagnstöfiur. Fyrir nokkrum árum var, að tilhlutan Rafmagnseftirlits ríkis ins, gerð gagnger breyting á raf- magnstöflum, og varð það til þess, að þessi hluti raflagna varð iðnaðarframleiðsla og innlendur iðnaður. (Blikksmiðja J. B. Pét- ursson). nefndi Viðgerðavérkstæði fyrir rafvélar og mæla. Árið eftir gerð ist Jón meðeigandi fyrirtækisins, og varð það þá nefnt Bræðurnir Ormsson, og hefur það nafn haldizt á því fyrirtæki síðan. Fleiri viðgerðaverkstæði fyrir rafmagnsvélar og tæki komu til sögunnar á næstu árum, en um nýsmíði var ekki að ræða. Raftækjaverksmiðjan Rafha, var stofnuð árið 1936, og hóf árið eftir smíði á rafmangselda- vélum eftir norskri fyrirmynd. Nokkru eftir að heimsstyrjöld- in skall á rófnaði sambandið við Noreg og varð Rafha eftir það að sigla sinn eiginn sjó. Fram að styrjaldarlokum takmarkaðist framleiðslan nær eingöngu við eldavélar af ýmsum stærðum og ofna, en eftir styrjöldina varð smátt og smátt meiri fjölbreyttni í framleiðslunni, og hefur Rafha á umliðnum árum, auk eldavéla og ofna, framleitt þvottavélar, þvottapotta, kæliskápa og kist- ur, spenna fyrir orkudreifingu um sveitirnir, ryksugur og flúrskins lampa. Raftækjaverksmiðjan í Hafn- arfirði er þannig lang-atkvæða- mesti fulltrúinn á sviði íslenzks rafmagnsiðnaðar. Rafgeymar. Rafgeymaverksmiðja var sett á stofn í Reykjavík árið 1951 og önnur í Hafnarfirði um svipað leyti, og eru þær báðar starfantíi ennþá, (Pólar hf. og Rafgeymar hf.). Og á Hellu á Rangárvöil- um er þriðja fyrirtækið í þess- ari grein (Tækniver). Rafhreyflar. Árið 1953 var seu a stofn í Reykjavík verksmiðja eða yerk- stæði, til þess að smíða raf- hreyfla. Sama ár var samskonar fyrirtæki stofnað í Hafnarfirði. Það fyrirtæki mun nú lagt nið- ur, en rafhreyflaverkstæðið í Reykjavík er í fullum gangi. Eru þar framleiddir riðstraums hreyflar, allt að 30 hö að stærð (Jötunn, eign S.ambands ísl. sam- vinnufélaga). Kolburstar. Árið 1961 var stofnað verk- stæði í Reykjavík, þar sem ein- göngu eru smíðaðir kolburstar fyrir rafala og rafhreyfla. Kol- Virkjaskápar. Þá má geta þess, að fyrir 12 árum var farið að smíða hér- lendis virkjaskápa fyrir há- spennu- og lágspennuvirki i orkuverum og spennistöðvum og stórum iðjuverkum. Eru skápar þessir smíðaðir úr plötu- járni, og búnir mæli- og stýri- tækjum, ásamt öllum nauðsyn- legum tengingum, Var Ólafur Tryggvason verkfræðingur sá er fyrstur hóf smíði slíkra skápa hér, en síðar hafa fleiri farið inn á þessa braut (Rafha, Ljós- virki). Lampar. Fyrsta fyrirtækið hér á landi, sem eingöngu bjó til rafmagns- lampa mun vera Raflampagerðin í Reykjavík, stofnuð 1934, en eftir að flúrskinslampar komu til sögunnar, er lampasmíði orðin allveruleg iðngrein. Flúrskins- lampar eru smíðaðir í Hafnar- firði (Rafha), í Reykjavík (Stál- umbúðir hf. o.fl.) og á Akureyri (Gefjun, rafdeild). Neonljós. Smíði Neon-ljósaskilta er einn ig orðin allveruleg iðngrein, þótt aðeins eitt fyrirtæki stundi hana, (Neon rafljósagerð) var stofnað árið 1961. Talstöðvar, stofnvarakassar o.fl. Fleira mætti telja upp, svo sem smiði talstöðva á radíóverk- stæði Landssímans, smíði á köss um fyrir stofnvör og rafmagns- töflur (málmsteypa), vindinga- verkstæði, þar sem eingöngu eða nær eingöngu eru undnar vefjur og settar í rafhreyfla og skipt um straumvenda („kommúta- azt gæti því nafni, en rafvirkjar fengu mikið að starfa, ný raf- virkjafyrirtæki voru mynduð og verksviðið víkkaði. Koma þar við sögu meðal ann- arra bræður tveir, Eiríkur og Jón Ormssynir, sem höfðu lært rafvirkjun hjá Halldóri Guð- mundssyni. Viðgerðaverkstæði fyrir rafvélar og mæla. Seint á árinu 1922 stofnaði Eiríkur, að lokinni námsdvöl í Danmörku, fyrirtæki, er hann Raftækjaverksmlðjan i Hafnar- firði. Það var fyrst á fjórða tug ald- arinnar, með stofnun Raftækja- verksmiðjunnar í Hafnarfirði, sem telja má, að hér á landi hefj- ist rafmagnsiðnaður, í þeim skilningi, sem venjulega er lagð ur í það orð. Forsendan fyrir upphafi slíks iðnaðar var stóraukin almenn rafmagnsnotkun, með tilkomu raforku frá Sogi, en fyrsta stig Sogsvirkjunarinnar var virkjun Ljósafoss 1935—37. ■w Stutt yfirlit yfir þróun rafmagnsiinaiar á fslandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.