Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 11
Laugardag'ir 17. sept. 1968
MORCU N BLAÐIÐ
11
Raftækjaiðnaðurinn í erfiðleikum
vegna tollalækkana og fjárskorts
Fyrsti rafallinn sýndur á Iðnsýningunni
i dag — á degi raftækjaiðnaðarins
tora“), og sitthvað fleira, sem
hér verður látið staðar numið. í
mörgum tilvikum er framleiðsla
að meira eða minna leyti fólgin í
því að setja saman og fullvinna
hluti, sem fluttir eru inn erlend-
is frá.
Lokaorð.
Af þessu stutta yfirliti sést, að
rafmagnið, sem á undanförnum
áratugum hefur orðið æ ríkari
þáttur í lífi og starfi þessarar
þjóðar, hefur haft í för með sér
ýmsan iðnað, þótt allt verði það
eðlilega að teljast í fremur smá-
um stíL
Eins og að framan segir, er
Rafha stærsta iðnfyrirtækið á
þessu sviði. í riti, sem gefið var
út í tilefni af 25 ára afmæli
Rafha 1961, er þess getið, að
starfsmannafjöldi hafi að meðal-
tali verið 54 manns, en síðustu
5 árin 80 manns.
Hjá öðrum þeim fyrirtækjum,
sem hér hafa verið talin upp,
hefur starfsmannafjöldinn verið
um 10—20 manns, og hjá sumum
þeirra ennþá færri.
Sum þessara fyrirtækja hafa
einatt átt við ýmsa örðugleika
að etja, svo sem gjaldeyrisskort,
þröngan markað og, einkum síð-
ustu árin, harða samkeppni við
erlenda innflutta framleiðslu.
Guðmundur Marteinsson.
DAGUR raftækjaiðnaðarins er
í dag á Iðnsýningunni. 1 þvi til-
efni hafa forráðamenn 6 fyrir-
tækja, er sýna í deild raftækja-
iðnaðarins, átti tal við blaða-
menn. Fyrirtæki þessi eru Ljós-
virki hf., Stálumbúðir hf., Raf-
geymir h.f., Radióverkstæðið
Hljómur, Rafgeymaverksmiðjan
Pólar h.f., Raftækjaverksmiðj-
an hf. (Rafha).
í tilefni dags raftækjaiðnaðar
ins verður sýndur á Iðnsýning-
unni fyrsti rafallinn, sem sett-
ur var upp hér á landi, en það
gerði Jóhannes Reykdal í Hafn-
arfirði árið 1904. Þá verður einn
ig sýndur 500 kva (kílóvolt-
amper) spennir frá Rafha.
Efnt verður til ókeypis happ-
drættis um 6 vinninga, Rafha-
eldavél, 3 flúrlampa frá Stálum
búðum, rafgeymi frá Pólum hf.
og Kentár-rafgeymi frá Raf-
geymi hf. í Hafnarfirði.
Forstjóri Rafha, Axel Kristj-
ánsson, hafði orð fyrir fulltrú-
um raftækjaiðnaðarins og hann
sagði, að þessi iðngrein hefði
ekki hvað sízt orðið fyrir barð-
inu á auknum innflutningi og
hefði framleiðslan dregizt sam-
an innanlands vegna hans.
Axel kvað tollvernd þessa iðn
aðar vera langt frá því að vera
jafnmikil og sagt væn. Eítir
síðustu tollalækkanir væri to)l-
ur á innfluttum, fullunnum raf
tækjavörum oft lægri en tollur
á hráefni því, sem notað væri
til framleiðslunnar innanlands,
og það á hráefni fyrir vörur, sem
framleiddar hefðu verið á ís-
landi með góðum árangri.
Loks sagði Axel Kristjánsson,
að rekstursfjárskorturinn hái
mjög raftækjaiðnaðinum. Ekki
hafi verið staðið við fynrheit
um aðlögunartíma, sem iðnað-
inum hafi verið gefin. Sumar
tollalækkanir hafi skollið a fyr-
irvaralaust.
Raftækjaverksmiðjan í Hafn-
arflrði, Rafha, hefur starfað í
28 ár og hefur framleitt á þeim
tíma um 40 þúsund neimiliselda
vélar, sem enn eru að miklu
leyti í notkun. Verkstniðjan
hefur frá upphafi framleitt um
100 þúsund rafmagnstæki af
ýmsum gerðum.
Forstjóri Rafha, Axel Kristj-
ánsson, sagði, að breytingar
hefðu verið gerðar á rekstri fyr-
irtækisins vegna síaukins inn-
flutnings á raftækjum. Hætt
væri alveg framleiðslu ísskapa
og þvottavéla, þótt verðið hafi
verið vel samkeppnisfært við
innflutt tæki. Enn væri þó fram
leidd eldavélasett og nokkuð af
þvottapottum.
Þá framleiðir Rafha, sagði
Axel, spenna og dreifistöðvar
fyrir rafveitur, málmglugga og
málmhurðir, svo og ýmsar gerð
ir af flúrlömpum.
Hjá Rafha starfa um 70-75
manns að jafnaði, en starfslið-
ið er heldur færra nú en áður.
Axel kvað hagnað af rekstr-
inum 1965 hafa numið kr.
1.494.000.00, en þar af hefðu kr.
1.448.000.00 farið í skatta og
gjöld.
Rafgeymir hf. í Hafnarfirði
hefur starfað í 15 ár. Forstjóri
þess, Jón Magnússon, sagði atf
5-6 manns störfuðu við fyrir-
tækið, sem framleiddi Kentár-
rafgeyma.
Hann kvað innflutning ekki
hafa háð rekstrinum til þessa,
enda verið lítill, en í júlimánuði
sl. hefði innflutningur tilbúinna
rafgeyma verið gefinn frjáls.
Enn væri ekki komið á daginn,
hvaða afleiðingar sú ráðstöfun
hefði á rafgeymaiðnaðinn hér.
Rafgeymaverksmiðjan Pólar hf.
hefur starfað í 15 ár. Forstjóri
fyrirtækisins, Magnús Valdi-
marsson, sagði að það hefði fram
leitt á annað hundrað þúsund
rafgeyma frá upphafi.
Kvað hann markaðinn vaxa
jafnt og þétt með aukinni vél-
væðingu og bílaeign og islenzka
rafgeyma vera samkeppnisfæra
um verð og gæði við hina er-
lendu, þrátt fyrir litla tollvernd.
Hjá Pólum starfa mn 14 manns.
Ljósvirki hf. nefndist áður
Rönning hf. Forstjóri fyrirtæk-
isins, Hannes Sigurðsson, kvað'
Framhald á bls. 25
V I Ð
ÓÐ INSTORG
S í M I 2 0 4 9 0
SÆNSKIR
RAFMÓTORAR
J0HAN RÖNNING HF.
Skipholti 15. — Símar 10632 — 13530
• Öruggir í rekstri
9 Mál samkvæmt
alþjóðastöðlun IEC
• Léttbyggðir
• Öruggir í ræsingu
• Ryk- og rakaþéttir
(S43)
• Hagstætt verð
Fyrirliggjandi þrífasa mótorar 1500 og 3000 snún-
inga málspenna 220 og 380 V 50 Hz, afl. 0,17 — 10 hk.
Verð og tæknilegar upplýsingar veitir: