Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 16

Morgunblaðið - 17.09.1966, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Laugardlagur 17. sept. 1966 Jtgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. r'ramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Ejarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 7.00 eintakið. LÁNSTRA UST /SLENDINGA egar vinstri stjórnin hrökkl aðist frá völdum fyrir átta árum mátti heita að lánstraust íslendinga erlendis væri gersamlega þrotið. íslenzk króna var fall in og var hvergi skráð. Þýð- ingarlaust var að sýna íslenzs an gjaldeyri í nokkrum er- lendum banka. í þessum efnum hefur orð ið stórkostleg og heillavæn- leg breyting. íslendingar geta nú gengið inn í hvaða er- lendan banka sem er og keypt erlendan gjaldeyri fyr ir íslenzkar krónur. Láns traust þjóðarinnar út á við hefur verið endurreist. Hvert stórlánið hefur verið tekið i fætur öðru til uppbygginga'- og umbóta í landinu. Einstakl ingar og fyrirtæki kaupa skip og önnur framleiðslu- tæki erlendis með gjald- fresti. Nú síðast hefur stórlán ver ið tekið til Landsvirkjunar hjá Alþjóðabankanum í Washington. íslendingar eiga gilda gjaldeyrissjóði og verzi un og viðskipti færist stöð- ugt í frjálslegra horf. Al'lar búðir eru fullar af varningi og vöruúrval er meira en nokkru sinni fyrr. Jafnframt er kaupgeta almennings til að kaupa þessar vörur meiri en nokkru sinni áður. Al- menn velmegun ríkir í land- inu. Allur almenningur get- ur veitt sér lífsþægindi, sem aðeins fáir útvaldir nutu áð- ur. Dýr heimilistæki eru txl á flestum heimilum og óðum stefnir að því að hver fjöl- . skylda eigi sína eigin bif- reið. ★ Þetta eru staðreyndirnar um árangur þeirrar stefnu, sem mörkuð var við mynd- un núverandi ríkisstjórnar. Þrátt fyrir þessar stað reyndir þrástagazt Framsókn armenn á því að viðreisnar- stefnan hafi leitt böl og harð æri yfir íslenzku þjóðina. Er það hugsanlegt að nokk ur heilvita maður taki minnsta mark á slíkum mál- flutningi? Það er ákaflega ótrúlegt. • Kjarni málsins er að láns- traust þjóðarinnar út á við hefur verið endurreist, fram leiðslan aukin að miklum mun, gildum gjaldeyrissjóð- um safnað og grundvöllur lagður að fjölþættum um- bótum og framförum í hinu íslenzka þjóðfélagi. Hvert sem litið er standa yfir stói- Vitanlega verður ekki öllu lokið í einu nú, frekar en endranær. 1 ungu og vax- andi þjóðfélagi skapast stöð- ugt ný verkefni, sem verð- ur að leysa. Ýmis vandamál knýja og dyra. Eitt þeirra er verðþenslan, sem oft fylgir í kjölfar mikilla framkvæmda og almennrar velmegunar En slíka verðþenslu á að vera hægt að lækna með hyggileg um ráðstöfunum og á grund- velli ábyrgðartilfinningar og skilnings fólksins. Mestu máli skiptir að þjóðin þekki stað- reyndirnar og dragi af þeim réttar ályktanir. ÞJÓÐNÝTINGAR- DRAUGUR ALÞÝÐU- BLAÐSINS ^lþýðublaðinu virðist ganga erfiðlega að skilja, að sú þjóðnýtingarstefna, sem jafn aðarmenn börðust fyrir fyrr á árum hefur löngu gengið sér til húðar og jafnaðar- mannaflokkar um heim allan fellt hana niður úr stefnuskrá sinni að meira eða minna leyti. Þjóðnýtingar- stefnan hefur gefizt illa á ís- landi enda hafa þeir flokkar sem fyrir henni hafa barizt *agt litla áherzlu á hana á undanförnum árum. Á for- síðu Alþ.blaðsins í gær er þessi gamli og úrelti þjóð- nýtingardraugur vakinn upp á ný og sagt að „síðustu að- gerðir olíufélaganna hljóti að endurvekja þá hugmyni, hvort ekki sé rétt að þjóð- nýta alla olíusölu og dreif- ingu í landinu og fá dug- mikinn kaupsýslumann til að stjórna einu öflugu olíufél- agi, sem að verulegu eða öllu leyti er eign ríkisins“. Því er fljótsvarað að Alþýðublað ið mun ekki finna mikinn stuðning í iandinu við þessi nýju þjóðnýtingaráform. ís- lendingar hafa reynt þjóð- nýtingu og haft af henni slæma reynslu og það er ekk- ert annað en spor aftur á bak til hins gamla tíma að j tala nú um þjóðnýtingu olíu ; framkvæmdir verzlunarinnar í landinu. Skipan öfgamannsins Vorsters í embætti forsætisráðherra S-Afríku Kjör Balthazars Johannes- ar Vorsters í embætti for- sætisráðherra S-Afríku, að Verwoerd föllnum, boðar að margra dómi, sízt betri kjör til handa blökkumönnum þar en áður og virðist nú, sem aðstaða þeirra sé harla von- laus orðin. Vorster er lýst sem einum öfgafyllsta stuðningsmanni Apartheid stefnunnar, fyrr- verandi nazista, sem meiri sé dugnaðar og framkvæmda maður en vits og djúprar hugsunar. Hann hefur getið sér orð fyrir að fylgja eftir og framkvæma með hörku allar hugmyndir Verwoerds um viðhald Apartheid stefn- unnar og fylgir að málum þeim allra róttækustu í hægri armi þjóðernissinnaflokksins. Ekki kom á óvart, að fyr- ir valinu yrði maður úr hægri armi flokksins — því hann hefur lengi haft ráðandi að- stöðu í stjórninni og þing- flokknum — hins vegar kom nokkuð á óvart, að Vorster skyldi valinn svo einróma að gagnframbjóðandi hans Ben Schoeman, samgöngumála- ráðherra, sem ekki er tal- inn nær því eins öfgafullur og Vorster, skyldi draga framboð sitt til baka. Mogens Kofod Hansen skrifar í Berlingske Tidende að ein ástæðan til þess, að kjör Vorsters var svo ein- róma — sé tilræðið við ræð- ismann S-Afríku í London, skömmu eftir morðið á Ver- woerd. Segir Kofod Hansen „Meirihluti hinna þriggja milljóna hvítu íbúa S-Afríku telja sig — hvort sem þeir viðurkenna það eða ekki — í örvæntingarfullri aðstöðu, og líta svo á, að þeir geti aðeins viðhaldið forréttindar aðstöðu sinni og valdi með því að beita hinum hörku- legustu aðferðum. Vorster hefur lengi verið einn helzti talsmaður þess- arar skoðunar og sýnt það í orðum og verkum — eink- um þó í verkum því að hæfi leikar hans liggja ekki bein- línis á gáfnasviðinu. Hann er maður fátækur í orðum en því athafnasamari. Það var Verwoerd sem mótaði hugmyndafræði Apartheid stefnunnar og leitaðist við að útskýra hana á rökfræðileg- um grundvelli. Eftir að Vorst er var skipaður dómsmála- ráðherra 1961 var það hann, sem skapaði þær aðstæður, sem gerðu kleift að fylgja Apartheid stefnunni eftir í framkvæmd. Fyrirrennarar hans í stjórninni, m.a. Swart, forseti, höfðu hafið þetta starf og miðuðu fyrst og fremst að því að auka vald lögreglunnar og tryggja rétt indaleysi þeirra, sem andvíg- ir voru aðskilnaðarstefnunni. En Vorster gerði dómsmála- ráðnuneytið að því tæki í höndum hinna hvítu vald- hafa, sem þurrkaði út síð- ustu leifar lýðræðis í S- Afríku. Lögreglan hafði vissulega áður beitt fangelsum án dóms úrskurðar og pyndingum. Hún hafði oft skotið á blökku menn, er þeir fóru í mót- mælagöngur — en nú gerði Vorster slíkar löglegar og þær urðu hin opinbera stefna stjórnarinnar. Hann kom á hinum illræmdu 90 daga lög um, sem gerðu lögreglunni kleift að handtaka hvern sem var, hvaða litarháttar sem var, og halda föngnum í 90 daga án dómsúrskurðar. Var hægt að endurtaka þessa 90 daga fangavist jafnóðum og menn áttu að verða lausir. Hann kom einnig á and- kommúnistalögum, sem kváðu svo á, að kommúnist- ar væru afbrotamenn. Síð- an voru allir andstæðingar kynþáttastefnunnar einfald- lega kallaðir kommúnistar og þar með voru þeir af- greiddir. Allar þessar lagasetningar og framkvæmd þeirra voru í ; samræmi við lífsskoðun og Z feril Vorsters. Hann er af • gamalli harðneskjulegri Búa ; ætt — fæddist í Jamestown ■ í Höfðahéraði 1905, einn af ; þrettán börnum foreldra I sinna. Hann var alinn upp í ; þeirri trú, að Búar væru guðs 1 útvalda þjóð og hinir hvítu ; væru til þess ætlaðir af Guði 1 að stjórna heiminum. Hann nam lögfræði við ;j Stellensbosch háskólann • eins og Verwoerd og fleiri ; boðberar Apartheid stefnunn " ar og heillaðist skjótt að hug myndum, sem mjög sóru sig ;j í ætt við nazismann. 1 síðari Z\ heimsstyrjöldinni barðist ; hann með oddi og egg gegn Z því, að S-Afríkumenn berð- ;j ust við hlið Breta gegn Þjóð Z| verjum og lýsti ríkisstjórn ;j Smuts hann þá beinlínis ‘ hættulegan ríkinu, er hann •! sagði: „Við berjumst fýrir ; kristilegri þjóðernisstefnu j sem er nátengd nazismanum ;! — á ítalíu heitir stefnan fas- Z ismi, í Þýzkalandi nazismi ;j og í S-Afríku kristileg þjóð- Z ernisstefna. I| Vorster hefur frá unga Z aldri verið meðlimur í leyni ; félagi róttækra hægri þjóð- l ernissinna Ossewa Brand- • wag, sem telja má allsráð- : andi í skipulagi og viðskipta- j lífi landsins. John Danstrup skrifar í : Politiken, að afleiðingar af ; kjöri Vorsters séu ljósar — : kúgun, og meiri kúgun fyrir ; hina blökku íbúa landsins, : sem telja þrettán milljónir. ; Segir hann, að Verwoerd hafi ; þó alltaf reynt að breiða yfir '• valdbeitingu og kúgun, er ; henni var beitt, og lagt á- : herzlu á að sannfæra menn ;j um kosti Apartheid stefnunn : ar fyrir báða aðila — en ; Vorster hafi beinlíms hælzt Í um á þingfundum ynr ; ýmsum kúgunaraðgerðum, : er hann lét framkvæma. ; Framhald á bls. 23. :j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.