Morgunblaðið - 17.09.1966, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 17.09.1966, Qupperneq 21
Laugardagur 17. sept. 1966 MORGUNBLAÐIÐ 2! Jón Betúelsson — Minningororð — Faeddur 29. ágúst 1903. Dáinn 8. september. 1966. í DAG fer fram jarðarför Jóns skósmíðameistara Betúelssonar Bræðrafborgarstíg 34, Reykjavík. Hann dó fyrstur af 8 sonum hjónanna í Höfn, Hornavik, Betú els Betúelssonar og Önnu Guð- mundsdóttur. Dætur áttu þau 4, en éin þeirra dó á æskuskeiði. Betúel Betúelsson var bóndi, póstafgreiðslumaður og verzlun- arstjóri lengi í Hornvík. Verzi- unina átti Ásgeir Ásgeirsson á ísafirðL Viðskipti voru að veru legu leyti við fiskiskip, sem oft ast leituðu þar lands, og var því einatt gestkvæmt á bænum Œíöfn og þar miki'ð umleikis, þar sem fyrir var fjölmenn fjöl skylda. Betúel var orðlagður hag leiks- og dugnaðarmaður, af- bragðs sjómaður og naut trausts og virðingar allra. Heimilisbragur var þannig í Höfn, að systkinin mörgu hafa búið að því sér til góðs. Minn- isstæð er mér frásaga vinar míns Jóns Betúelssonar um þá fræðslu og trúarlega mótun, sem hann naut á heimili foreldra sinna. Húslestrar voru honum ógleym- anlegar helgistundir. Á æskuár- um öðlaðist hann lifandi trú, eem allt hans lif helgaðist af, mörgum til vitnisburðar. Væri hann einn, talaði hann við Guð upphátt og eins eðlilega og barn við föður, og var þá tamast að krjúpa á kné. Og draumur hans og þrá var að verða prestur með því að hann hélt að hann gæti ekki helgað Guði líf sitt ai- gerlega með öðru móti. Prestur varð hann ekki. Þó rættist æskudraumur hans, en mjög á annan veg en honum hafði komið tilhugar. Honum voru allar leiðir lokað- ar til framhaldsnáms, eins og tfleiri jafnöldrum hans bæði í sveit og við sjó. Þegar hann hafði þroska til fór hann — eflaust að ráði föður síns — til ísafjarðar og lærði þar skósmíði. Varð sú iðn hans ævistarf. Jón Betúelsson settist að í Reykjavík 1931. Hann kvæntist eítirlifandi konu sinni, Elísabetu. 29. ágúst 1933. Reyndist hún hon um í hvívetna hin ágætasta kona. Til hjónabandsins var stofnað á grundvelli sameiginlegrar trúar og löngunar til að lifa Drottni til dýrðar og öðrum til bless- unar. Foreldrar Elísabetar voru hjón in Þorbjörg Sigurgeirsdóttir og Friðrik Sigurgeirsson, bæði inni- lega trúuð og vönduð. Höfðu þau flutt frá Akureyri til Reykja- víkur 1828. Þorbjörg lifir mann *inn og býr hjá dóttur sinni, Elísabet. Árið sem þau Jón og Elísa- bet giftust keyptu þau lítinn bæ, nr. 34 við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Jón setti þar upp ekósmíðaverkstæði. Þeim nægði ekfki að sækja kristilegar sam- komur hjá öðrum, heldur stofn- uðu þau til samkomuhalda a sínu eigin heimili. Það mun hafa verið 1938. Nokkrum árum síð- ar, eða undir stríðslok, reistu þau myndarlegt þriggja hæóa hús á grunni litla bæjarins. Og í því húsi héldu þau almennar samkomur og barnasamkomur í full 20 ár. Jón var einstaklega barngóður maður. Og nú eru þeim sendar innilegar kveðjur, börnunum, sem var beðið með og beðið fyrir á Bræðraborgarstíg 34. Alloft fór Jón prédikunarferð ir út um land. Skósmíðin stóð undir kostnaðinum í sambandi við prédikunarstarfið, sem hann fórnaði sér, bæ'ði heima og að heiman. Sá er sannur prestur, er gef- ut sig að þjónustu Orðsins. Á aðalhæð hússins Bræðra- borgarstíg 34 er skósmíðaverk- stæði i suðurenda, samkomu- salur í norðurenda, en i miðið er bænaherbergi. Þar sjást á gólfi för eftir kné biðjandi manns. Jón lagði frá sér áhöldin þeg- ar að samkomutíma leið, skipti um föt og fór rakleitt í ræðu- stólinn. Hann var vel lesinn * biblíunni og tók sér daglega næðistund í bænaherberginu. Til ræ’ðuundirbúnings mun hann oft 'hafa fengið sín beztu tæki- færi við vinnuna. Nafn Jóns Betúelssonar mun varðveitast í kirkjusögum ís- lands vegna hans einstæða þátt- ar í kristilegu sjálfboðastarfi leikmanna. Hann og hans góðu konu munu trúaðir vinir lengi minnast með þakklæti til Guði. Ólafur Ólafsson t Jón Betúelsson, kristniboði, er dáinn. — Andi hans er farinn til sinna heilögu heima. En við sem þekktum þennan mann, höf um minninguna um hans ein- læga kristindóm, gott hugarfar og sérstaka gætni í allri hegð- un. Jón var fyrirmynd sem við munum ávallt þakka guði fyr- ir, og mætti segja að þá væri þjóð vorri borgið, ef þúsundir breyttu eins. Jón Betúelsson fæddist að Höfn í Hornsvik, 29. ágúst, árið 1900, dó 8. september 1966. For- eldrar hans voru Betúel Betúels son og Anna Guðmundsdóttir. Þau hjónin eignuðust 12 börn og ólu þau öll upp heima hjá sér með guðs hjálp. 10 þeirra barna lifa enn, öll vandað, ágætis fólk. Jón kom til Reykjavíkur 1933 og giftist hér góðri konu sem 'heitir Elísabet Friðriksdóttir. Hún var manni sinum dygg og sterk stoð, svo sem ætterni henn ar og eðli vísuðu til. Það er ég viss um að Jón hefur beðið Guð um að gjöra sig „hvorki fátækan né ríkan“. En gefa sér heiðar- lega afkomu og lei'ðbeining í allri breytni við aðra menn. Oft sá ég gestrisni þeirra hjóna, hvað glöð þau gáfu öllum, það er þau áttu til. Tóku stundum drykkjumenn, illa stadda, fæddu þá og hýstu inn í kristniboðs- salnum. Og víst eru til fleiri menn og félög sem muna orð síns misk- unnarsama frelsara sem lagði fram sína denara og sagði: „A1 þú önn fyrir honum og það sem þú kostar meira til, skal ég borga þér þegar ég kem aftur“. Jón Betúelsson var skósmiður að iðn og vann það verk mjög dyggilega. Svo þegar þar kom að fólk vildi borga, sagði hann oft eins og Kristján Sveinsson og fleiri læknar: — Nei, við skulum sleppa því, ég hugsa að ég eigi meiri peninga en þú“. Vi'ð þökkúm konungi kærleik- ans fyrir alla góða menn og miskunnarverk þeirra sem hlýða boðum herra síns og vita að þeir geti ekkert án hans. Þann máttuga miskunnsama guð, prédikaði Jón Betúelsson alvarlega og treysti algjörlega á hann að eilifu. Svo er hér þakklát hjartans kveðja frá ekkju Jóns, ætting- um þeirra hjóna og fleiri vinum Jóns Betúelssonar. Kristín Sigfúsdóttir, frá Syðri-Völlum. Jakarta, 15. september AP. Subandrio, fyrrverandi utanríkisráðherra Indónesíu verður leiddur fyrir rétt 10. okt. n.k. ákærður fyrir land- ráð og fyrir samstarf við kommúnistaflokk Indónesíu. Subandrio sem ekki dró neina dul á samstöðu sína með kinverskum kommúnistum, var handtekinn í marz s.l. Sveinbjörn mnður — SVEINBJÖRN Einarsson, útgerð- armaður og skipstjóri, andaðist á Landsspítalanum hinn 3. sept. s.l., 71 árs að aldri. Sveinbjörn var fæddur að Endagerði við Sandgerði hinn 17. marz 1895. Er hann var fjögurra ára missti hann föður sinn 1 sjóslysi. Sveinbjörn hóf sjósókn 10 ára gamall og hætti ekki útgerð fyrr en á s.l. ári, þá þrotinn að heilsu. Hann stundaði því sjómennsku og útgerð alls í full sextíu ár. Mannsaldurinn er skv. íslenzkri málvenju þriðjungur aldar. Starfsævi Sveinbjarnar við sjáv- arútveginn spannar því nærri tvo mannsaldra. „Sagt hefur það verið um Suður- nesjamenn að fast þeir sæktu sjóinn og sæki hann enn.“ „Austan kaldinn á oss blés upp skal faldinn draga. Vaggar aldan vargi hlés við skulum halda á Siglunes.“ Sveinbjörn sótti sjóinn í fjóra tugi ára og einum vetri betur, þar af sem skipstjóri í 29 ár. Hann kunni „að aka seglum eftir vindi“ en hélt þó sínu „striki". Hann vissi „að kapp er bezt með forsjá." Ætíð fylgdi honum fararheill og farnaðist honum svo vel, að hann missti hvorki mann né skip. Sveinbjörn var mjög aflasæll á öllum veiðum. Hann hafði kjark og forsjá til þess að fara sinar eigin leiðir. Þegar honum hafði vaxið fiskur um hrygg í þjónustu dugmikilla útgerðar- manna sem Lofts Loftssonar í Sandgerði og Ingvars Guðjóns- sonar í Siglufirði, keypti hann m.b. Geir goða árið 1929 og var skipstjóri á honum á annan tug ára. Minnist ég þess frá þessum árum, að Sveinbjörn var oft, ýmist fyrstur eða meðal hinna fyrstu, til að finna nýjar síldar- göngur, sem hann og aðrir nutu svo góðs af. " Sveinbjörn lét sér mjög annt um skipverja sína, enda var hann mannsæll mjög. Hann hætti sjómennsku árið 1946, en tók eftir það þátt í út- gerð með öðrum allt til ársins 1965. Eftir að Sveinbjörn hætti sjó- mennsku stundaði hann fisk- verkun fyrir sjálfan sig og aðra allt til ársins 1961, og síldarsölt- un rak hann á Siglufirði í 9 sumur. Sveinbjörn tók verulegan þátt I félagsmálum útvegsmanna, eftir að hann hætti sjósókn. Hann var rökfastur og vel máli farinn. Hann átti sæti í Verð- lagsráði Landssambands ísl. út- vegsmanna og var fulltrúi Reykjavíkurdeildar Fiskifélags- ins á Fiskiþingum allt til ævi- loka. Hann var búsettur í Reykja- vík frá árinu 1927, síðustu 10 árin að Grænuhlíð 3. Sveinbjörn Einarsson var karl mannlegur sýnum, meðalmaður að hæð, grannholda, kvikur í hreyfingum og augun gráblá. All ur svipur mannsins og framkoma bar vott um skörungsskap og góða greind. Sveinbjörn var maður áreiðan legur í öllum viðskiptum og naut almenns trausts og vinsælda hjá þeim, sem af honum höfðu nokk ur kynni. Faðir Sveinbjarnar var Einar bóndi í Endagerði við Sandgerði, sonur Jóns útvegsbónda í Grinda vík Hafliðasonar hreppstjóra að Hópi í Grindavík Sigurðssonar. Móðir Sveinbjarnar var Margrét Hannesdóttir, Hannessonar pósts Gottsveinssonar. Sveinbjörn kvæntist hinn 18. júní 1932 etfirlifandi konu sinni Guðmundu Jónsdóttur, skósmiðs á Eyrarbakka Guðbrandssonar, bónda að Arnarstöðum. Synir Einarsson Minning þeirra eru tveir, hinir mestu efnismenn: Ingimar Kristinn, flugstjóri, f. 25. des. 1933, kvænt ur Helgu Zoega, dóttur Geirs Zoéga, framkvæmdastjóra í Reykjavík, og Einar Grétar fiðlu leikari, f. 22. des. 1936, konsert- meistari í Synfóníuhljómsveit- inni í Málmey í Svíþjóð, kvænt- ur Hjördísi Vilhjálmsdóttur Hjart ar, framkvæmdastjóra á Siglu- firði. Fyrir milligöngu séra Sigur- björns Ástvaldar Gíslasonar tóku þau Sveinbjörn og kona hans að sér að standa straum af kostnaði við uppeldi tveggja ára barns í Finnlandi, sem misst hafði föð- ur sinn í ófriðnum. Barn þetta er nú uppkomin stúlka, Tellevo Haapamöki, hjúkrunarkona, gift finnskum manni og eru þau búsett í Gautaborg. Árið 1960, er hún var 19 ára, dvaldi hún um eins árs skeið á heimili Sveinbjarnar. Er gagnkvæmt ástríki milli þess arar stúlku og fjölskyldu Svein- bjarnar og sjálfur lét hann svo um mælt, að sér þætti vænst um þetta góðverk af öllu því, sem hann hefði gert um dagana. Megi íslenzka þjóðin eignast sem flesta syni líka Sveinbirni Einarssyni útgerðarmanni. Að lokum sendi ég fjölskyldu Sveinbjarnar innilegar samúðar- kveðjur vegna andláts hins mæta manns. Sveinn Benediktsson. t í DAG er kvaddur hinztu kveðju í Dómkirkjunni í Reykja- vík Sveinbjörn Einarsson skip- stjóri og útgerðarmaður Grænu- hlíð 3 Reykjavík. Sveinbjörn var fæddur 17. marz 1896 í Endagerði á Miðnesi. Foreldrar hans voru Einar Jónsson Hafliðasonar hreppstjóra að Hópi í Grindavík og kona hans Margrét Hannesdóttir frá Steinum undir Eyjafjöllum. Sveinbjörn byrjaði ungur að vinna við sjávarsíðuna og á sjónum, og allt hans lífsstarf var tengt sjósókn og framleiðslu og sölu sjávarafurða. öruggur hélt hann um stjórnvölinn og áfram var haldið og stærri verkefni tekin fyrir. Hann var jafn áræð- inn en þó gætinn. Heiðarleikinn og dugnaðurinn héldust í hendur í lífi hans og lífsviðhorfi. Svein- björn kvæntist 1932 eftirlifandi konu sinni Guðmundu Jónsdóttur frá Eyrarbakka. Þau eignuðust tvo sonu, Ingimar flugstjóra hjá Flugfélagi íslands kvæntan Helgu Zoéga og Einar konsertmeist- ara við sinfóníuhljómsveitina í Malmö kvæntur Hjördísi Vil hjálmsdóttur. Meðal fjölskyld- unnar hefur ætíð ríkt gagnkvæm umhyggja, og frændur og vinir hafa þar mætt einstakri gestrisni og góðvild, sem aldrei gleymist. Atvinnu sinnar vegna þurfti Sveinbjörn að vera langdvölum Norðanlands yfir síldveiðitímann. Fylgdi þá frú Guðmunda jafnan manni sínum á þessum ferðum hans og bjó þeim hverju sinni útgerðar vistlegt heimili þar sem gleðin og gestrisnin ríktu þó ekki væri þar hátt til lofts né vítt til veggja. Sveinbjörn Einarsson andaðist 3. þ. m„ að okkar dómi sem þekktum hann bezt, fyrir aldur fram. Mynd hans geymist skýr í hugum okkar sem áttum því láni að fagna að eiga hann að vin. Hann var heilsteyptur persónuleiki, mikill drengskapar- maður sem vildi hvers manns vandræði leysa. Hans er sárt saknað af vinum og kunningjum, en sárast þó af eiginkonu, sonum, tengdadætrum og barnabörnum, en huggun er þó harmi gegn, að minningin um góðan dreng geymist í huga og hjörtum allra þeirra er þekktu hann. Ég og fjölskylda mín vottum aðstandendum Sveinbjarnar inni- legustu samúð okkar. Guð blessi minningu hans. Ólafur Stefánsson. — Mirming Framhald af bls. 22 t F. 26. 5. 1880 — D. 9. 9. 1966. ÉG átti því láni að fagna að vera sendur í sveit 1919, sem fylgifiskur kaupakopu. Eins og títt er um 8 ára snáða, fylgdi því nokkur kvíði og söknuður að fara í fyrsta skipti að heim- an. Mér er enn í minni, er heim skyldi halda að hausti, eftir fyrstu sumardvölina að Beig- alda, hjá frú Þóru og Hans Grönfeldt, að þá fylltist ég aftur trega og söknuði yfir því að þurfa að skilja við þetta góða fólk. Þetta varð til þess að sumrin urðu sjö í röð og hefðu eflaust getað orðið fleiri, ef annað hefði ekki komið til. Hjónin bæði, heimafólk og heimilisbragur allur bar svip menningar og manndóms. Þetta heimili var í fremstu röð á sín- um tíma og mundi enn í dag vera til fyrirmyndar á mörgum svið- um. Þrátt fyrir takmörkuð efni, var þar mikil reisn yfir öllu. Þar var alltaf gnægð matar og góður matur. Hreinlæti var mikið, bæði utan húss og innan. Fornar dyggðir voru þar í heiðri hafðar. Þá var gerður dagamunur, hvíldardagurinn haldinn heil- agur og gjarnan sprangað um á gljáfægðum dönskum skóm á sunnudögum, með þvegið hár og skjanna. Oft var það á sunnu- dagsmorgnum að Þóra hóaði okkur krökkunum saman, settist að orgelinu og voru þá leikin og sungin íslenzk þjóðlög. í gömlu baðstofunni var það siður að lesa upphátt Faðir vor og meðfylgjandi blessunarorð, áður en boðin var „góða nótt“ og snúið sér til veggjar. Þetta var gert til skiptis og áður en gengið var til sængur var spurt: „Hver á að lesa í kvöld?“ ' Hjónin voru hjálpsöm, máttu ekkert aumt sjá eða vita, án þess að rétta hjálparhönd. í skjóli þessa heimilis leið öll- um vel, bæði mönnum og mál- leysingjum. Ég veit að ég mæli einnig fyrir munn annarra, er dvöld- ust að Beigalda um lengri eða skemmri tíma hjá Þóru og Grönfeldt, er ég læt í ljós þakk- læti mitt og blessa minningu þessara ágætu hjóna. Jón Á. Bjarnason Ósló, 15. septnnber NTB. Gert er ráð fyrir, að verð- mæti norskra sildveiða í ár muni alls nema nær 1 millj. norskra kr„ sem verður meira en nokkru sinni fyrr. I byrj- un september höfðu verið veiddir alls um 16 millj. hl. af síld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.