Morgunblaðið - 20.09.1966, Síða 1
32 síður
53. árgangur
214. tbl. — Þriðjudagur 20. september 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dick Gordon, geimfari, situr á nefi geimfarsins „Gemini 11“, hátt yfir jörðu, en hann yfirgaf
geimfarið um stund, meðan á stóð síðustu tilraun Bandaríkjamanna í geimnum. Myndin var
tekin sl. þriðjudag, en var birt fyrir helgina. — AP.
Kosningarnar í Sviþjóð:
Mesti ósigur jafnaöar-
manna í þrjá áratugi
— Rætf um, hvort jb/ng verð/ ro/Zd, jbor eð stjórnin njóti
ekki stuðnings almennings, — borgaraflokkarnir
unnu mikid á i kosningunum
Stokkhólmur 19, sept. — NTB
ÞAÐ, sem mesta eftirvænt-
ingu vakti í dag, daginn eftir
! Bonnstjórnin |
; endurskipu- j
lögð?
: Bonn, 19. september — NTB :
■ KANZLARI V-Þýzkalands, ■
; Ludwig Erhard, veitti í dag :
• einum nánasta samstarfs- ■
; manni sínum, Dr. Ludger :
I Westrick, lausn frá starfi, skv. ■
; eigin ósk. Dr. Westrick hefur ;
j átt sæti í stjórn Erhards, og ■
; farið með „sérstök mál“. |
: Talsvert hefur verið um :
■ það rætt undanfarið, að fyrir ■
; dyrum standi endurskipulagn :
• ing v-þýzku stjórnarinnar, og ■
; almennt er talið, að Dr. West;
: rick hafi viljað gera Erhard ■
; léttara fyrir með slíka breyt;
: ingu með því að segja af !
■ ■
■ sér. ■
: í 15 ár hefur Dr. Westrick :
■ verið mjög náinn samstarfs- ■
; maður kanzlarans núverandi. ;
að sænskir jafnaðarmenn
biðu mesta ósigur í þau 30
ár siðan þeir tóku við stjórn-
artaumunum, var, hvort
sænska stjórnin myndi
ákveða að rjúfa þing og efna
til' nýrra þingkosninga.
Mörg málgögn borgara-
flokkanna telja, að úrslit
fylkis- og sveitarstjórnar-
kosninganna í gær sýni, að
almenningur í Svíþjóð hafi
misst trúna á stjórnarflokk-
ana, og því verði stjórnin að
segja af sér.
Leiðtogar borgaraflokkanna
þriggja hafa þó ekkert vilj-
að láta hafa eftir sér um mál
þetta, því að enn eru ótalin
utankjörstaðaatkvæði, en þau
munu vera um 300,000 tals-
ins. Þeirri talningu líkur eft
ir viku.
(Sjá heildarúrslit aftast í
fréttinni).
Þó ihófust þegar í dag viðræð-
ur leiðtoga jafnaðarmanna um,
hvern lærdóm draga skuli af
kosningaúrslitunum, en jafnaðar
menn fengu nú um 8% færri
atkvæði en í sömu kosningum
fyrir fjórum árum, og 5% færri,
ef miðað er við þingkosningarn
ar 1964.
Tage Erlander, forsætisráð-
Framhald á bls 25
##
.•/#
Eins og rottur á
almannafæri
— segir málgagn Pekingstjórnarinnar
um borgarastéttina, viðfangsefni
menningarbyltingarinnar
Tokyo, 19. sept. — AP.
„RAUÐl FÁNINN“, málgagn
Peking-stjórnarinnar, réðst í
dag harkalega að þeim, sem
leyft hafa sér að gagnrýna
„menningarbyltinguna" svo-
nefndu, og beindi orðum sínum
í senn til Sovétríkjanna og
Vesturlanda.
Einn þeirra, sem málgagnið
gagnrýnir, er Páll páfi VI, en
blaðið telur páfa aðeins vera
„talsmann afturhaldsinna“. Um
þau orð að „rauðliðar"
(menningarsinnar) væru tákn
dauða en ekki lífs, segir „Rauði
fáninn: „Vissulega eru aðgerðir
byltingarsinnanna tákn dauða
óvina, bæði heima og erlendis.
Rauðliðar okkar eru merki al-
þýðubyltingarinnar; kjör alþýð
unnar batna og hún er vissu-
lega mjög lifandi".
í ritstjórnargrein blaðsins seg
ir m.a.: „Rauðliðarnir hafa
vissulega flett ofan af og ráðizt
til atlögu við úrkynjaða borg-
arastéttina. Þeir hafa beint dags-
ljósinu að réttu andliti hægri-
sinnaðra manna í þeirri stétt,
sem við það hafa orðið jafn
ráðvilltir og rottur á almanna-
færi“.
Greininni lýkur með þessum
orðum-, sem vikið er að gagnrýn
endum menningarbyltingarinn-
ar: „Við elskum einmitt það,
sem óvinirnir hata“.
Gefur U Thant
kost á sér á ný?
— Segist reiðubúinn að gegna starfi
sinu fram til jóla — lætur að jbvi
Hggja, að hann kunni að gegna
jbv/ lengur
New York, 19, september — NTB
U THANT, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
skýrði frá því á blaðamanna
fundi í dag, að hann væri
reiðubúinn að gegna starfi
sínu áfram, þar til haustfundi
Allsherjarþingsins lýkur, 20.
desember nk.
U Thant sagðist þó" setja
það skilyrði, að aðildarríki
samtakanna reyndu af
fremsta megni að koma sér
saman um eftirmann sinn
fram til 3. nóvember nk., er
starfstímabili hans lýkur.
Á fundi þessum með frétta-
mönnum voru lagðar margar
spurningar fyrir framkvæmda-
stjórann. Þá skýrði hann m. a.
frá því, að hann kynni að taka
Framhald á bls. 31
LESTARRÆNINGI HANDTEK-
INN.
London, 19. september. NTB.
Einn þeirra manna, sem grun-
aður er um að hafa verið höfuð-
paurinn í lestarráninu mikla,
sem framið var í Skotlandi 1963,
var í dag handtekinn í London.
Maðurinn er Reginald „Buster“
Edwards. Ekki er vitað, hvernig
handtöku hans bar að höndum.
Hann er talinn hafa dvalizt er- •
lendis, en orðrómur hefur verið
uppi um, að hann hafi verið
beittur fjárkúgun af mönnum,
sem þekktu til hans.
Stdr loftsteinn sundraðist
yfir NA-Bandaríkjunum
Lesbjart varð um miðja nótt á stórum svæðum
New York, 18. sept. - NTB:
STÓR loftsteinn sundraðist í
um 1600 km hæð yfir norð-
austurríkjum Bandaríkjanna
aðfaranótt sunnudags, og varð
þá uni stund sem á björt-
um degi á stóru svæði.
Á sumura svæðum, m.a. í
Sanilac í ríkinu Michigan,
varð svo bjart, að lesljóst
varð, og stokknaði á götuljós-
um, sem stjórnað er af sjálf-
virkum Ijósmælum.
Er loftsteinninn sundraðist,
féllu rnargir hlutar hans til
jarðar, án bess að brenna upp.
Steinar, allt að 45 cm í þver
mál, féllu til jarðar. Steinarn
ir voru rauðglóandi, er þeir
féllu á yfirborð jarðar, og
Framhald á bls. 25