Morgunblaðið - 20.09.1966, Síða 4
4
MORGUNBLADIÐ
Þriðjudagur 20 sept. 1966
■jfc- Æskan
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílalelgon
lugólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Simí 14970
Bifreiðaleigan VegferB
SÍMI ■ 23900
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundiaugaveg 12. Sími 35135.
Pósturinn var að bera
mér barnablaðið Æskuna. Mér
þykir alltaf vænt um þetta
blað — og þótt ég geri ekki
mikið meira en að fletta því
nú orðið — hef ég alltaf
ánægju af Æskunni, þykir
gaman að sjá hve ung hún
alltaf er — að hún eldist ekki
eins og ég. Stundum finnst mér
samt of mikið af leikaramynd-
um og samtíningi en of lítið af
ævintýrum í blaðinu, en það
sýnii* e.t.v. bezt, að við erum
ekki lengur á sama aldri, Æsk-
an og Velvakandi.
í þessu síðasta blaði er heil
síða með nöfnum stúlkna og
Pilta, sem óska eftir bréfavið-
skiptum við jafnaldra. Foreldr-
ar ættu að hvetja börn sín til
að stofna til bréfaskipta við
jafnaldra í öðrum landshlut-
um, eða öðrum löndum, þegar
þau byrja á málanámi. Slíkt
víkka sjóndeildarhring þeirra,
er þroskandi, hjálpar til og
venur þau við að setja hugsan-
ir sínar á blað, er heilbrigt við
fangsefni. Þótt Æskan gerði
ekki annað en að styðja að
myndun slíkra vinabanda, þá
væri það eitt nóg til þess að
gera hana mikils virði. En það
er ótalmargt fleira, sem hún
flytur — og hvernig væri, að
mæðurnar leyfðu stúlkunum
að spreita sig á mataruppskrift
unum? Það gæti orðið skemmti
legt, ekki aðeins fyrir stúlkurn
ar, heldur fyrir alla fjölskyld-
una.
Að týna lífinu
„Velvakandi góður.
Peli skrifar:
Ekki virðist mér vanþörf á,
að betur sé vakað yfir íslenzk-
unni í fréttalestri útvarpsins
en gert er. Nefni ég hér aðeins
tvö dæmi af mörgum, sem ég
hef nýlega hnotið um, en oft
hafa komið fyrir áður. Frétta-
þulir segja, að svo og svo marg
ir hafi „týnt lífi“ hér eða þar,
(d. tabte Livett, í stað þess að
segja, að menn hafi farizt,
látizt eða beðið bana. 1 öðru
lagi tala þeir um „hafsnauð'*
(d. havsnöd), þegar átt er við
sjávarháska eða jafnvel skips-
strand. Þar sem slíkt fjölmiðl-
unartæki sem útvarpið er á
drýgri hlut en margur hyggur
í því að móta daglegt mál hlust
endanna þarf að standa betur á
verði um móðurmálið en raun
ber vitni.
— Peli.“
í umferðinni
Hlustandi skrifar:
„Velvakandi sæll!
Ég er að hlusta á hinn ágæta
þátt í Ríkisútvarpinu, umferða
þáttinn. Þá dettur mér í hug,
hve mörg og margvísleg eru
slysin á mannlífinu. „Forðist
slysin“ heyri ég sagt. Þá gjöri
ég mér í hugarlund, að á eftir
komi t.d. — Hjónaskilnaðir eru
slys sem bitna á mörgu fólki,
sérstaklega börnunum. Glæpir
og önraur brot gegn guðs og
manna lögum, eru einnig slys.
Óhófleg neyzla áfengra
drykkja og hættulegra lyfja,
eru líka slys, sem valda þján-
ingum í ómælanlegri vídd.
Slysin í mannlífinu eru ótelj-
andi, og óhamingjan, sem þau
valda hræðileg. „Endirinn
skal í upphafi skoða.“ Nú er
mikið talað um mannsæmandi
líf, um áhrif „fullkomins ástar-
lífs“ í hjónabandi, um uppbygg
ingu, verzlunarvit, hagfræði,
raunvísindi og tækni, — sem
sjálfsagt er mikils virði, ef
með fylgir vinátta, tryggð, holl
usta, réttlæti, skapstilling, hátt
vísi, skyldurækni, sannleiksást,
heiðarleiki, hjálpsemi og dreng
skapur. Þessi upptalning er
víst mjög úrelt. Eða hvað?
Góðir hálsar, menn og konur!
Hvaða eiginleika á mann-
fólkið að rækta með sér, til
þess að geta gjört sjálfa sig og
aðra hamingjusama? og hvern-
ig?
„Forðist slysm“. Gætið yðar
í umferð mannlegs lífs! Hrind-
ið ekki konum yður, mönnum
og börnum út í hættur mann-
lífsins, með ógætni, vanmati á
verðmætum og hættum.
Lögmál mannlífsins er ein-
falt, en óumflýjanlegt. Það
hljóðar svo: „Eins og maður-
inn sáir, mun hann og upp-
skera.“ Væri ekki hægt að leið
beina „hlustendum", um þessa
ræktun.
Þátturinn: „Gætið yðar í um
ferð mannlífsins“ væri þarfur.
— Hlustandi."
Hrossin í Hljóm
skálayarðinum
Halldór Jónsson, verkfr.,
skrifar:
„Svo er að sjá, að sauðahöld
ar í Reykjavík og nágrenni
auki nú umsvif sín. Hvarvetna
í Reykjavíkurlandinu blasa við
sauðahjarðir á beit. Jafnvel á
graseyjunum á Miklubraut
ganga rollurnar sjálfala. Fyrir
skemmstu spurði ég lögreglu-
þjón, sem var nærstaddur, er
sauðahópur stöðvaði umferð á
Elliðaárbrúnum, hvort sauðbeit
væri leyfileg svona inn í miðj-
um bæ. Vörður laganna yppti
öxlum, kvað erfitt að ráða við
þetta og hélt síðan áfram að
horfa á sauðina með heimspeki
legri þolinmæði. Fróðlegt væri
að vita hvort lögreglan í heild
telur sig sigraða af yfirgangi
sauðahölda.
Við feðgar eigum kartöflu-
garð fyrir ofan bæ. Hafandi
orðið fyrir búsifjum vegna
Upplýsingar gefur
ágangs sauðfjár, girtum við
garðholuna með gildum gadda-
vír. Fyrir nokkru komum við
að garðinum fullum af sauðfé.
Hafði hliðið verið vandlega
skorið úr til þess að sauðir ættu
greiðan aðgang að þeim grös-
um, sem hafa betur vaxið inn-
an vírs en utan.
Skyldi mér eftir þessu verða
heimilt að beita hrossum mín-
um í Hljómskálagarðinn á
vetri komanda? Slíkt myndi
spara mér þó nokkurt fé og tæp
lega myndi væsa um hrossin,
því sjálfsagt myndu einhverjir
verða til þess að gefa þeim
brauðmola með öndunum. Ég
beini hér með þeirri spurningu
til yfirvaldanna, hvort þau
hafi nokkuð á móti þessu. En
ég tek fram, þar sem mér leið-
ast sauðkindur, að ég óska að
fjárbændum verði gert að
halda kindum sínum annars
staðar, til dæmis í kirkjugörð
unum, Austurvelli eða
Klambratúni, verði mér úthlut
að beitinni í Hljómskálagarð-
inum.
Tónlistarskóli
Kópavogs
Skólinn tekur til starfa 1. október n.k. Innritun fer
fram í Félagsheimili Kópavogs mi'li kl. 5 og 7 alla
virka daga, sími: 41066. Kennt verður á þessi hljóð-
færi: píanó, orgel, fiðlu, celló, gitar, blokkflautu
og á öll hljóðfæri lúðrasveitar, auk þess verður tón-
fræði kennd sem aðalnámsgrein. Kórfólk' og öðrum,
skal bent á. að veitt verður tilsögn i nólnalestri.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 24. þ.m.
SKÓLASTJÓRI.
— Halldór Jónsson, verkfr.“
Stúíka óskast á
Hótel Borg
Vestmannaeyingar
Forðist óþarfa rafmagnseyðslu og snertingu af bil-
uðum raflögnum. Látið okkur setja í hús yðar hinn
svokallaða lekastraumrofa sem kemur í veg fyrir
leka á rafmagni og hættu við sneitingu. Tökum
einnig að okkur nýlagnir og viðgerðir ásamt heim-
ilistæk j aviðgerðum.
Rafvirkinn sf.
Landagötu 4, Vestmannaeyjum
Símar 1956 og 2295.
Húsnæði
til leigu nú þegar: í vel staðsettu verzlunar og iðn-
aðarhverfi í Reykjavík, 2 hæðir og kjallari. Gólf-
flötur hverrar hæðar ca. 140 ferm. Heppilegt fyrir
teiknistofu, skrifstofu, saumastofu, eða ýmsan
smærri iðnað. Þurr og rúmgóður kjallari.
Keflavlk - Suðurnes
Til sölu gott einbýlishús í Sandgerði. Stærð 121
ferm. 50 ferm. bilskúr. Frágengin lóð. 4ra herb.
íbúð í Ytri-Njarðvík, verð 680 þus. Útb. 180—200
þús.
FASTEIGNASALAN Hafnarstræti 27
Keflavík, sín.i 1420.
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæs taréttar íögmaður
Laufásvegi 8, Reykjavík
Sími 1 11 71.
B O S C H
ÞOKULUKTIR
‘ÍT
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmúla 9. — Simi 38820.