Morgunblaðið - 20.09.1966, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 20 sept. 1966
MORGU NBLAÐIÐ
31
Dr. Hallgrímur
prófessor í Kanada
DR. HALLGRÍMUR Helgason,
tónskáld, er farinn til Kanada,
þar sem hann hefur verið ráðinn
prófessor við háskólann í Saska-
tchewan í Regína og er ráðning-
artími hans 1 ár, frá 1. júlí að
telja. Eru kennslugreinar Hall-
gríms hljómfræði, kontrapuntur,
greining tónsmíða, stílfræði og
tónsmíði.
Við háskólann í Saskatchewan
eru um 200 kennarar, þar af 14
við músikdeildina. í nánum
tengslum við háskólann og sum-
part í sömu húsakynnum er
konsertvatorium með fjölmörg-
um undirbúningsdeildum og 40
kennurum. Og við háskólann er
Síðastliðið sunnudagskvöldl
kom 60. þúsundasti gesturinní
á Iðnsvmnguna 1966 og hlaut’
hann a3 gjöf tvær dýnur frái
Dúna. Hinn heppui var Þor-^
varður Magnússon, Erlu-
hrauni 4, Haínarfirði. Hér af-
hendir Arinb.jörn Kristjáns-1
son, framkvæmdastjóri sýningt
|l arinnar 60, þúsundasta gestini
um dýnurnar.
- íþróttir
Framh. af hls. 30
miðað við það sem hann á bezt
til.
Kári skapaði með sínum hraða
mikla hættu — en honum tókst
ekki að nýta sín tækifæri og litl-
ar og lélegar voru tilraunir fé-
laga hans til hjálpar. Karl Her-
mannsson barðist bezt þeirra
framlínumanna, en í ljós kom
áþreifanlega að enginn er hann
vinstri kantmaður.
Aftasta vörnin komst í heild
bezt frá leiknum. Þar var Sig-
urður Albertsson mestur og bezt-
ur baráttumaður — að Árna
Njálssyni ekki gleymdum. Anton
kom vel frá leiknum — með
hjálp hinna og átti á köflum
mjög góðan leik. óskar nýliði
stóð sig vorium framar í bak-
varðarstöðunni, fékk að vísu erf-
iðasta og leiknasta mótherjann —
en tókst heldur ekki að trufla
hann í hvorugu markinu sem
hann skoraði.
Franska liðið virðist í sama
„klassa“ og hið íslenzka. Þó var
miklu meiri hraði í leik fram-
herjanna en tæknin af svipuðu
tagi. Beztir voru að mínum dómi
útherjinn blakki og afturliggj-
andi framvörðurinn nr. 4, Lemp-
ereur. Þessir frönsku áhugamenn
sýndu líka „sjentilmennsku“ eins
og við var að búast af Frökkum,
ef undan er skilið atvik milli
Planta bakvarðar og Karls Her-
mannssonar.
Dómarinn O’Neill var lélegur
eins og allir þeir eru sem reyna
að verða aðalpersónur á vellin-
um og vægast sagt fékk hann lé-
lega aðstoð hjá línuvörðunum —
ekki sízt er til ákvörðunar kom
um rangstöðu.
— A. St.
Scuðfjárslátrun
i Hafnarfirði
SAUÐFJ ÁRSLÁTRUN hófst í
Sláturhúsi Hafnarfjarðar (Guð-
mundi Þ. Magnússyni) í Víði-
stöðum fyrir síðustu helgi. Að
þessu sinni hefur hann í hyggju
að slátra 10 þúsund fjár en í
fyrra urðu það G.500.
Féð fær Guðmundur m.a. úr
Kjósinni, Þingvallasveitinni, Ölf
usi, Grafningi og Mosfellssveit,
og segir hann það lita vel út sem
komið er. — í sláturhúsinu, sem
hann byggði fyrir nokkrum ár-
um, er aðst.aða ágæt, og nægur
vinnukraftur er þar.
Alls sóttu 61,788 gestir
linsýninguna 1966
ALLS sóttu 61778 gestir Iðnsýn-
inguna 1966, sem lauk sl. sunnu-
dagskvöld, þar af um 12 þúsund
um helgina. Formaður Iðnsýn-
ingarnefndar, Bjarni Björnsson,
tjáði Morgunblaðinu í gær, að
þetta væri mun betri aðsókn, en
menn hefðu búizt við í upphafi.
Bjarni kvaðst vona, að sýning-
argestir og forráðamenn þjóðar-
innar hefðu fengið góða yfirsýn
á fjölbreytni íslenzks iðnaðar og
að öllum hefði skilizt, hversu
iðnaðurinn sé nauðsynlegur og
- Ólafsfjörður
Framhald af bls. 32.
athugun á vegarstæði fyrir Ólafs
fjarðarmúla. Árið 1953 byrjuðu
nokkrir Ólafsfirðingar vegargerð
fyrir heimafengið fé. Fyrsta íjár
veiting hins opinbera var 1956,
en sumarið 1957 var ekkert unn-
ið við veginn. Samtals er nú bú-
ið að vinna við veginn í 10 sum-
ur. Nú síðustu árin hefir fjár-
veiting til vegarins verið 3 !4
milljón króna á ári og er kostnað
ur við vegargerðina nú um 18
milljónir króna. Vegurinn til
Dalvíkur er 18 km. langur. Eftir
er að endurbyggja 3 km. frá
Karlsá til Dalvíkur. Ráðherrann
óskaði Ólafsfirðingum og öðrum
til hamingju með þessa miklu
samgöngubót, sem styttir leið-
ina frá Siglufirði til Akureyrar
um 70 km. Þakkaði hann verk-
stjórum og verkamönnum vel
unnin störf. Gat ráðherra þess að
sérstök heppni hefði fylgt þessu
verki, því ekkert slys hefði hent
meðan það var framkvæmt. Ósk
aði ráðherra þess að sama g;tfa
myndi fylgja veginum í framt.'ð-
inni.
Snæbjörn Jónsson yfirverk-
fræðingur lýsti verkinu og tók
fram að því væri ekki lokið, m.a.
vegna þess, að Landsíminn er að
leggja jarðstreng meðfram veg-
inum milli Dalvíkur og Ólaís-
fjarðar. Þegar því verki lýkur
fær Ólafsfjörður sjálfvirkan síma
og einnig er í undirbúningi að
hér verði sett upp endurvarps-
stöð fyrir ríkisútvarpið. Aðrir
ræðumenn voru Jón Stefánsson
frá Dalvík og Ásgrímur Hart-
mannsson bæjarstjóri í Ólafs-
firði. Ræddu þeir um þessa
miklu samgöngubót og þá ger-
breytingu, sem hún hefði í för
með sér fyrir þessa kaupstaði.
Yfirverkstjóri frá upphafi hefir
verið Guðmundur Benediktsson
en verkstjóri við Múlaveginn
lengst af Sveinn Brynjólfsson.
— Jakob.
mikilvægur þáttur í þjóðarfram-
leiðslunni.
„Það er enginn vafi á því“,
sagði Bjarni, „að sýningin hefur
orðið iðnrekendum og iðnaðar-
mönnum hvatning, m. a. vegna
mikillar eftirspurnar á fram-
leiðsluvörum þeim, sem sýndar
voru, jafnt með beinum kaupum
á kaupstefnunni og á annan hátt.
Árangur varð svo góður hjá
fjölda fyrirtækja, að þau munu
eiga fullt í fangi með að anna
eftirspurn".
Bjarni kvað Ijóst, að ekki hafi
orðið halli á sýningunni og sýn-
ingarnefndin væri jafnvel von-
góð um, að nokkur ágóði hafi
orðið.
Bjarni sagði, að sýnendur
hefðu þegar byrjað á því í gær-
morgun, að rýma sýningarstúkur
sínar, en því verki ætti að vera
lokið á þriðjudagskvöld. Um
næstu helgi eigi sýningarnefnd
að afhenda húsið.
Hann sagði, að sýningarnefnd
væri mjög þakklát almenningi
fyrir þann áhuga, sem sýning-
unni hafi verið sýndur. Og að
lokum kvaðst Bjarni vilja þakka
sýnendum, starfsmönnum þeirra,
starfsfólki sýningarinnar og öðr-
um, sem þátt hafi átt að henni,
fyrir framúrskarandi gott sam-
starf og áhuga á því að gera Iðn-
sýninguna sem glæsilegasta og
bezta.
Iðnsýningin hófst þann 30.
ágúst sl. og stóð því , tæpar þrjár
vikur.
| HUNDRUÐ manna, þar á
meðal fjöldi vændiskvenna og
bareigenda, voru handteknir í
Grikklandi í gærkvöldi í her-
ferð, sem lögregla helztu borg
anna fór í í því skyni að út
rýma spillingu úr næturiífi
þeirra og draga úr nætur-
göltri unglinga.
Dr. Hallgrímur Helgason
70 manna hljómsveit. Nemendur
í tónlistardeildum skólans eru
um 1600, þar af 40—50, sem búa
sig undir háskólapróf í músik.
Vistmenn
Hrnfnistn d
Iðnsýningunni
í GÆR hringdi Au'ðunn Her-
mannsson og bað blaðið fyrir
þakkir til forráðamanna Iðn-
sýningarinnar 1966 frá vistmönn-
um á Hrafnistu, en þeim var
boðið að skoða sýninguna, þar
sem þeir þágu og kaffiveitingar.
Þá bað Auðunn blaðið og að
flytja Bæjar.leiðum þakkir vist-
fólksins, en þeir óku vistmönn-
unum til sýningarinnar og heim
aftur.
— U Thant
Framhald af bls. 1
til endurskoðunar þá ákvörðun
sína að gefa ekki kost í sér
í embætti framkvæmdastjóra
samtakanna á ný, ef stjórnmála-
ástandið í heiminum batnaði. U
Thant var beðinn um að gera
nánari grein fyrir því, hvað hann
ætti við með þessum orðum, en
frekari skýring fékkst ekki.
Hins vegar sagði framkvæmda
stjórinn, að hann óskaði eftir
því að fá síðar tækifæri til að
svara ýmsum spurningum frétta
manna. Margir þeirra, er fund-
inn sátu í dag, eru þeirrar skoð-
unar, að U Thant eigi í vök að
verjast nú, þar sem svo hart
hafi verið að honum lagt að
gegna áfram starfj sínu.
Það var 1. september, sem U
Thant tilkynnti, að hann myndi
Gufubaðstofan
Hótel Loftleiðum
lokuð þriðjud. vegna viðgerða. Opin aftur miðviku-
dag, bæði karladeild og kvennadeild.
Opið frá kl. 8—8 mánudaga, unðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Laugardaga kl. 8—5.
Sunnudaga kl. 9—-12.
Frú HALLA BRIEM
andaðist á Landakotsspítala þann 19. þ. m. — Jarðarförin
auglýst síðar. — Fyrir hönd stjúpbarna og ætt.ingja.
Eiríkur Briem.
hætta störfum 3. nóvember. Frá
því hefur þeim tilmælum hvað
eftir annað verið beint til hans,
að hann gegni áfram starfi sínu,
og hafa þar lagzt á eitt komm-
únistaríki og vestræn.
1. september rakti U Thant
fjöldamörg vandamál, sem hann
sagði, a'ð Sameinuðu þjóðunum
hefði ekki auðnazt að finna lausn
á. f dag sagði hann hins vegar,
að ekki mætti telja, að ákvörð-
un hans um að draga sig í hlé
stæði í neinu sambahdi við þessi
vandamál.
Hins vegar sagði hann í dag,
að hann ætti erfitt með að sætta
sig við, að framkvæmdastjóri
S. þ. ætti að gegna nokkurs kon
ar skrifstofustarfi, en fengi hins
vegar ekki að taka raunhæfan
þátt í alþjó'ðlegu stjórnmála-
starfi.
Þá sagði U Thant, að hann von
aðist til þess, að bæði opinber-
ar viðræður og viðræður einka
aðila, meðan á stæði fundi Alls-
herjarþingsins, myndi leiða til
þess, að nýjar leiðir fyndust til
þess að leysa Vietnamdeiluna.
S. Þ. gætu ekki gripið í taum-
ana, eins og stæði, en vonanrti
yrðu samtökin þess megnug sfð-
ar.
Enn fremur sagði U Thant, að
hann fengi ekki séð, að kosn-
ingar þær, sem hefðu nú farið
fram í S-Vietnam, hefðu verið
frjálsar. Þeim mætti helzt líkja
við kosningar þær, sem fóru
fram í heimalandi hans, Burma,
1947, en þá stóð borgarastyrjöld
í landinu.
Framkvæmdastjórinn sagðist
gera sér fulla grein fyrir þvi,
að stórveldin vildu ekki ræða
Vietnam vandamálið. Afstaða
Kína til heimsóknar sinnar til
Moskvu nýlega sýndi, að Alþýðu
lýðveldi'ð greindi ekki lengur
mun vinar og óvinar. Kínverj-
ar ásökuðu Sovétmenn fyrir að
tala máli Bandaríkjamanna í
Vietnam. Hins vegar sagði U
Thant, að menn yrðu að greina
á milli yfirlýsinga Kínverja og
aðgerða þeirra.