Morgunblaðið - 20.09.1966, Side 32

Morgunblaðið - 20.09.1966, Side 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 214. tbl. — Þriðjudagur 20. september 1966 Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins ’íMf*' •VX<W«»»»»!yVMfjCM , « Byrjað á Sundahöfn um mánaðamótin Samið við sænska verktaka NÚ ER œ'Iunin að byrja íram kvæmdir við Sundahöfn um næstu mánaðamót. Hafa stað- ið yfir samninRar við sænska fyrirtækið Skansk Sement Gjuteriet. sem hafði lægsta tilboð í 1. áfanga verksins. Og er búizt við að þeir hefjist handa urn næstu mánaðamót, skv. upplýsingum frá Gunnari Guðmundssyni, hafnarstjóra. Þessi fvrsti áfangi er gerð 400 m hafnargarða í Vatna- görðum, dýpkun á hafnar- svæði og sprenging á blind- skeri út af Laugarnestöngum. Hljóðaði tilboð sænska fyrir- tækisins upp á að vinna þetta verk fyrir 81,7 millj. kr. Ekki hefur endanlega verið skrifað undir samningana, en verið að ganga frá þeim. Vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla. Lækkunarmerkið hefur verið tekið niður. Á myndinni eru m.a.: Ingólfur Jónsson, ráðherra, Snæbjörn Jónasson, yfirverkstjóri og Guðmundur Benedikts- son, yfirverkstjóri vegagerðar innar. Hvarf lögregl- unni á stoln- um bíl f FYRRINÓTT var bifreið stol- ið úr bílskúr í Kópavogi, þar sem hún var til viðgerðar. Mætti lögreglan bifreiðinni og þar sem hún var númerslaus, ætluðu lög- reglumennirnir að athuga hana nánar. Herti ökumaður þá ferð- ina og hvarf lögreglumönnunum. Var þetta um kl. 1.30 um nótt- ina. Skömmu seinna var tilkynnt að bíl hefði verið ekið út af á Hlíðarvegi á móts við nr. 146. Var þar komin stolna bifreiðin, en ökumaðurinn horfinn. >eir sem kynnu að geta gefið upplýsingar, eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi. Stolna bifreiðin er gulleit með rauðum skellum, Ford af árgerð 1957. Henni var stolið úr bílskúr, sem er á gryfju- bakkanum við Lækjarbakka. Hin mikla samgöngubót Úlafsfirðinga Olafsfjurðarvegur formlega opnaðor Ólafsfirði 19. september. KL. 16.30 S.L. laugardag gerð- ist sá merkisatburður í samgöngu málum Ólafsfjarðarkaupstaðar, að vegurinn fyrir Ólafsfjarðar- múla var formlega opnaður af Ingólfi Jónssyni samgöngumála- ráðherra. Ráðherrann kom með bifreið frá Akureyri ásamt Snæ- birni Jónassyni yfirverkfræðingi Vegagerðar ríkisins. Einnig voru Drengur undir dráttarvél hún vaít - s/asað/sf mikið er MJÖG alvarlegt slys varð í port inu bak við hús Jóns Loftssonar h.f. sl. laugardag, en þar hvolfdi dráttarvél með þeim afleiðing- um að ökumaðurinn, 15 ára pilt- ur, varð undir henni og slasaðist hann mjög alvarlega. Pilturinn var að aka steypu- jórni að þeim stað í portinu, þar sem steypan er hrærð. Urðu menn þá varir við að óeðlilega langt leið á milii ferða hjá pilt- inum. Þegar farið var að huga að honum fannst dráttarvélin á hvolfi, og drengurinn mikið slas aður. Var hann fluttur í sjúkra- hús, þar sem gert var að meiðsl um hans. Var líðan hans eftir at vikum góð, er Mbl. hafði sam- band við spítalann í gærkveldi. með honum í förum núverandi oddviti Dalvíkurhrepps, Jón Stefánsson svo og fyrrverandi oddviti Dalvíkur, Kristinn Jóns- son. Þá voru einnig þarna Guð- mundur Benediktsson yfirverk- stjóri Vegagerðarinnar á Mið- Norðurlandi og Sveinn Brynjólfs son verkstjóri við Múlaveg, en þeir tóku upp lokunarmerkið við Brimnesá í ólafsfirði. Þar tók bæjarstjórn Ólafsfjarðar á móti ráðherranum og fylgdariiði hans og bauð til kaffidrykkju í félagsheimilinu Tjarnarborg. Þar flutti ráðherra ræðu og færði kveðjur og árnaðaróskir frá ríkisstjórninni og rakti sögu Múlavegarins. Upphaf þessarar vegagerðar mun hafa verið það að árið 1951 fluttu þingmenn Eyfirðinga þeir Magnús Jónsson og Bernharð Stefánsson þingsályktartill. um Framhaid á bls. 31 Eggert sýnir á Akureyri Akureyri, 19. september: —j EGGERT Guðmundsson opnaði málverkasýningu í Landsbanka- salnum á Akureyri á laugardag- inn. Eggert sýnir þar 38 mál- verk og 3 teikningar og eru 30 myndir til sölu. 10 myndir seld ust strax fyrsta daginn. Sýningin verður opin ki. 3—10 síðdegis til sunnudagskvölds 25. september. — Sv. P. Sjóðir stofnaðir til hagræðingar i landbúnaði og kaup á jörðum, sem fara í eyöi Lán til jarðakaupa tvöfölduð SVO SEM skýrt hefur verið frá í fréttum, komst á sam- komulag innan sexmanna- Wtm í morgun lögðu átta íslenzkir flugbjörgunarmenn af stað til Grænlands með bandaríska ís- brjótnum Atka, og hyggjast þeir ná í lík 12 bandarískra flugmanna, sem fórust á Krónborgar- jökli árið 1962. Ásamt íslenzka leiðangrinum fara 6 menn frá varnaliðinu. Sjá nánari frásögn á bls. 3. (Ljósm. Sv. Þorm.). nefndarinnar s. 1. laugardag um tæplega 11% hækkun til bænda á framleiðsluverði landbúnaðarvara, frá því sem var í fyrrahaust. Um 5% af þessum hækkunum er þegar komið inn í verðlag til neyt- enda og óvíst er enn hvert verður útsöluverð landbún- aðarvara, en í gær sat sex- mannanefnd fundi um það mál. Hliðarráðstafanir hafa verið gerðar, þar sem m. a. er gert ráð fyrir stofnunum sjóða til að kaupa jarðir, sem fara í eyði, og hinsvegar hagræðingarsjóður. — Einnig verði hækkuð lán til jarðakaupa um helming og aukin lán til vinnslustöðva og slátur- húsa. Hinir einstöku liðir þessara hliðarráðstafana eru sem hér segir: 1. Veðdeild Búnaðarbankans verði útvegað að láni veruleg upphæð á árinu 1967 og að því stefnt, að deildin geti lánað til jarðakaupa allt að 200 þúsund kr. á býli, í stað 100 þús. kr., eins og nú er gert. 2. Gert er ráð fyrir að Stofn- lánadeiid landbúnaðarins veiti lán til vinnslustöðva og slátur- húsa á þessu hausti, ekki lægri upphæð en 30 milljónir króna, en það er mun meira en áður hefir verið lánað. 3. Stofnaður verði jarðakaupa- sjóður til þess að kaupa jarðir, sem af þjóðhagslegum ástæðum er talið æskilegt að fari í eyði. Er þar um að ræða jarðir, sem illa eru í sveit settar og ekki hafa nægileg jarðræktarskilyrði. 4. Veittar verði 30 milljónir króna til hagræðingar í land- búnaði og stofnaður Hagræðing- arsjóður. Af upphæð þessari verði veittar 20 milljónir sem framlag til hagræðingar og end- urbóta í vinnslustöðvum land- búnaðarins. Gert er ráð fyrir að sjóðir þessir verði stofnaðir með lögum frá Alþingi í vetur og mun verða skipuð nefnd til að semja frum- vörp um þá. Skagaströnd, 19. september: GAMALT býli, yzt hér í þorp- inu, Réttarholt, brann á sunnu- dagskvöld. Var þetta gamalt timburhús, sem flutt var úr, en aðeins notað fyrir geymslur á vetrum. Brar.n það til ösku. Raf- magn var enn á húsinu, og talið að það hafi orsakað brunann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.