Morgunblaðið - 09.11.1966, Side 2

Morgunblaðið - 09.11.1966, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MWvikudagur 9. nóv. 1966 Aflinn fyrstu 6 mán. árs- ins heldur minni en í fyrra HEILDARFISKAFL.INN fyrstu 6 mánuði ársins var 625.726 lest ir eða um 3 þús. lestum minni en á sama tíma í fyrra. Öfluðu bátarnir 588.156 tonn af þessum afla, en togarar 37.570 tonna. Af bátafiskinum er síld nærri helm ingur eða 228.506 lestir, loðna 124.706 lestir, humar og rækja 3313 lestir og annar fiskur 231. 629 lestir. I>orskaflinn frá bátum og togur- um var fram til júlíloka 204.039 lestir, á móti 217.680 lestum á sama tíma í fyrra. Ýsuaflinn var 20.911 lestir og karfaaflinn 12.483 Af þorskaflanum fóru í fryst- Síldarverð sunn- ingu 119.500 tonn, í söltun 74.304 tonn, herzlu 49.838 tonn, niður- suðu 24 tonn, mjölvinnslu 1.242 tonn, innlenda neyzlu 6.511 tonn ísfisk 17.769 og reykingu 84 tonn. Humaraflinn var fyrstu 6 mánuði þessa árs rúmum 800 tonnum minni en á sama tíma í fyrra, en rækjuaflinn 715 tonn um meiri. Af þessum afla voru fyrst 3.295 lestir, soðnar niður 11 lestir og notaðar innanlands 6.438 lestir. Bílalestin komin niður af Breiðadalsheiði. anlands ákveðið Á FUNDI yfirnefndar Verðlags ráðs sjávarútvegsins í dag var ákveðið, að lágmarksverð á síld veiddri sunnan- og vestanlands í bræðslu tímabilið 6. nóvem- ber til 31. desember skuli vera hvert kíló.............. kr. 0,91. Verðir er miðað við að selj- andi skili síldinni á flutnings- tæki við hlið veiðiskips. Seljandi skal skila síld til bræðslu í verksmiðjuþró og greiði kaupandi kr. 0,05 pr. kg. í flutningsgjald frá skipshlið. Heimilt er að greiða kr. 0,22 lægra pr. kg. á síld í bræðslu, sem tekin er úr veiðiskipi í flutningaskip. Verðákvörðun þessi var gerð með atkvæðum oddamanns og fulltrúa síldarkaupenda gegn at- kvæðum fulltrúa síldarseljenda í nefndinni. í yfirnefndinni áttu sæti: Jón- as H. Haralz, forstjóri Efnahags stofnunarinnar, sem var odda- maður nefndarinnar. Guðmund- ur Kr. Jónsson, framkv.stj., Reykjavík og Ólafur Jónsson, framkv.stj. Sandgerði, fulltrúar síldarkaupenda og Guðmundur Jörundsson, útgerðarm. Reykja- vik og Tryggvi Helgason, for- maður Sjómannafélags Akureyr ar, fulltrúi síldarseljenda. iFrá verðlagsráði sjávarútvegsins Voru Jbrjá sólarhringa frá Reykjavík til ísafjarðar FRÉTTARITARI Mbl. Hallur Sigurbjörnsson í Bolungarvík, frétti af því um háðegi á laugar- dag, að von væri á lest þunga- flutningabíla, er lent hefðu í erfiðleikum vegna ófærðar á leið frá Reykjavík til ísafjarðar, og verið lengi á leiðinni. Hallur fékk að fljóta með bíl frá Bolungarvík til móts við lest ina og mætti hann henni á Breiðdalsheiði laust eftir kl. 1. Þar voru þá 9 þungaflutninga* bílar í lest, 3 frá Bolungarvik, 4 frá Gunnari og Ebenezer á ísa firði ,auk tveggja ölflutninga- bíla. Bílstjórarnir sögðust hafa lagt af stað frá Reykjavík á miðviku dag, nema Bolungarvíkurbílarn- ir, sem fóru frá Reykjavík á fimmtudag. ís'scd tapaði illa iyrlr Candaríkjunum Eru nú i næst neðsta sæti með Noregi EKKI blæs íslandi byrlega á Olympíuskákmótinu á Kúbu, en í fjóíðu umferð tapaði fsland fyrir Bandaríkjunum 314—%. Friðrik tapaði fyrir Fischer, Ingi gerði jafntefli við Benkö, Frey- steinn tapaði fyrir Evans og Guðmundur Sigurjónsson tapaði fyrir Addison. önnur úrslit í riðlunum urðu þau að Argentína vann Noreg 3—1, Tékkóslóvakía og Þýzka- Auglýsendur afhugið! Auglýsingaskrifstofan er opin frá kl. 9 f.h. til kl. 5 e.h. virka daga, nema laugardaga frá kl. 9—12. —★— Handrit að auglýsingum, sem eiga að birtast í blaðinu, þurfa að hafa borizt auglýsingaskrif- stofunni fyrir hádegi DAGINN ÁÐUR en þær eiga að birtast. —★— Handrit að STÓRUM AUGLÝSINGUM, sem birtast eiga í SUNNU- DAGSBLAÐI þurfa að hafa borizt auglýsinga- skrifstofunni FYRIR KL. 5 Á FIMMTUDEGI, en handrit að smærri aug- lýsingum í síðasta lagi kl. 4 á föstudögum. —★— Myndamót þurfa að fylgja auglýsingahandriti, ef mynd á að birtast í auglýsingu. — Við get- um séð um að láta gera hvers konar myndamót með ptuttum fyrirvara. —★— land 2—2; Spánn vann Kúbu 3%—%; Rússland vann Dan- mörku 4—0; Júgóslavía vann Rúmeníu með 2%—1%, og Ung- verjaland vann Búlgaríu IVz —1%. Rússland hefur enn forystu í riðlinum eftir sigurinn gegn Danmörku, en annars eru lín- urnar ákaflega óljósar ennþá, því að Júgóslavía, Argentína og Bandaríkin fylgja fast á eftir: Annars er staðan sem hér segir: Rússland 14 v., Júgóslavía IU2 v., Argentína og Bandaríkin 11 v. hvor; Búlgaría, Rúmenía og Ungverjaland 9*4 v. hvert; Tékk ar 9 vinninga; Spánn 6 v.; Dan- mörk og A-Þýzkaland 5% hvort; ísland og Noregur 4 vinninga hvort land, og Kúba 2 vinninga. — Erhard Framhald af bls. 1. unni, þar sem þessa var krafizt, en þingmenn stjórnarflokksins, sambandsflokks kristilegra demókrata og kristilegra sósíal ista voru á móti. Talið er, að þetta muni enn verða til þess að draga úr áliti Erhards, sem þegar hefur beðió mikinn hnekki undanfarið. Ef kanzlarinn hefði samþykkt, að fram færi atkvæðagreiðsla um traustsyfirlýsingu, hefðu úrslit hennar nær örugglega orðið hin sömu og í framangreindri at- kvæðagreiðslu, og kanzlarinn orðið í minni hluta. Engu að síður ríkir enginr. vafi á því, að samkvæmt stjórn arskránni hefur Erhard rétt til að fara eins að og hann gerði í dag, þvi að einungis er unnt að knýja kanzlarann til þess að láta af embætti gegn vilja sín- um með því að bera fram van- traustsyíirlýsingu, sem hefur að geyma tillögu um annað kanzl- araefni, sem verður að hljóta stuðning meirihluta pingn.anna, um leið og þeir samþykkja, að fyrrverandi kanzlari láti af em- bætti. Samvinna við sósíaldemó- krata og frjálsra demókrata er hins vegar ekki meiri en svo, að þeir hafa ekki komið sér saman um, hver koma eigi í stað Erhards sem kanzlari. I snjó á Frú Neðri deild fllþingls ENGINN fundur var í efri deild í gær. í neðri deild lagði sjáv- arútvegsmálaráðherra Eggert G. Þorsteinsson (A), fram frv. um breýtingu á siglingalögum. Lög þessi eru flutt til samræmis frv. um heimild til ríkisstjórn- arinnar að gerast aðili að al- þjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna, sem gerð var í Brússel 10. okt. 1957. Breiðadalslieiði. Var frv. vísað til annarrar umr. og sjávarútvegsmálanefnd- ar. Lýst eftir vitni RÁNNSÓKNARLÖGREGLAN biður manninn, sem vakti kon- urnar í húsinu á Laugarvegi 53 b, og gerði þeim viðvart um eldinn í húsinu, að hafa sam band við sig. Mikil bleyta tafði för þeirra um Barðaströnd og urðu þeir að bíða nær sólarhring í Gufudals- sveit, eftir frosti, svo að þeir gætu haldið áfram för sinni. Á Þingmannaheiði hrepptu þeir fárviðri, svairta bil og 8—10 stiga frost. Sögðu þeir það með versta veðri, sem þeir hefðu lent í og eru þeir þó ýmsu vanir. Á föstudagskvöld komu þeir að Breiðadalsheiði, en komust ekki yfir hana vegna snjóa. Sneru þeir þá til Flateyrar og voru þar um kyrrt um nóttina. Á laugardagsmorgun fór ýta og ruddi veginn og til ísafjarðar komu þeir kl. 3 á laugardag, eftir nær þriggja sólarhringa ferð. — Eimskip Framhald af bls. 28. reynslu skipsmanna af þessum mjólkura thugunum. Gunnlaugur sagði að undanfar- ið hefðu brytar skipanna fengið fyrirmæli um það að taka eins mikla mjólk á Akureyri og þeir teldu sér fært í hvert sinn er skipin koma þangað. Skógafoss tók mjólk til utanlandsferðar hinn 16. október sl. á Akureyri og kom hingað til Reykjavíkur í gær og var þá enn mjólk frá Akureyri um borð í skipinu. Okkur gafst tækifæri til að bragða þessa mjólk og gátum við ekki annað fundið en hún væri alveg eins og hún væri ný- sett í kassana. Mjólk sú, sem við brögðuðum á, var þegar í upphafi, eða hinn 16. okt., sett í frysti um borð í skipinu, en fyrir fimm dögum var þessi kassi tekinn úr frystinum og mjólkin þýdd í matarklefa þar sem engin kæling er, og tók það tvo daga. Síðan hefir hún venð geymd í kælii þar sem hún þó ekki frýs, og hefir hún verið þar í þrjá daga. Tryggvi Steingrímsson bryti á Skógafossi, lét mjög vel af þess- ari mjólk, sagði að hún hefði reynzt ágætlega í ferðinm og ómetanlegt væri, hve mjólkur- kassarnir rúmuðust miklu betur í geymslum skipsins, en grind- ur með hyrnum. Hann kvað hyrnurnar einnig hafa þann stóra galla, að þær tækju að leka, eftir að þær hefðu verið frystar og þýddar aftur, og svo vildi bera við að mjólkin að- skyldist í þeim, þannig að hún kæmi sem fitukorn og undan- renna, eftir að hafa frosið. Við sáum hvernig mjólkur- kössunum er komið fyrir í frysti klefum skipsins og matsveinn- inn á Skógafossi Gunnar Jóns- son, sagði, að það væri ekki sam bærilegt hve miklu þægilegra væri við þessa mjólk að eiga á allan hátt, heldur en hyrnur og brúsamjólk, sem oftast er um að ræða í skipunum. Hann kvað láta nærri að einn kassi væri not aður á dag um borð, eða rúm- lega það, en 27 manna áhöfn er á Skógafossi. Ennfremur sagði hann að engin þörf væri að frysta þó mjólk, sem notuð er í hálfan mánuð, hún héldi sér fullkomlega óskemmd í kæli. Gunnlaugur Ólafsson sagði, að nú væru fimm skip Eimskipa- félagsins með mjólk frá Akur- eyri og hin hefðu íyrirmæli um að taka þar mjólk, er bau kæmu þangað. Hann kvað bezt að skip in gætu tekið alla sína mjóik hér á landi. Bæði er hún á sam keppnisfæru verði og í þessum umbúðum miklu betri til allrar meðferðar en bæði hyrnumjólk og brúsamjólk. Þá er þessi mjólk fitusprengd og hefir það fram yfir brúsamjólkina, sem víða þarf að taka erlendis. Þá væri þess að geta um brúsa- mjólkina, að hún vildi oft, ein.k- um í sumarhitum, fúlna eftir aðeins einn sólarhring um borð í skipinu. Af þeim sökum þyrfti oft að henda af henni nokkru magni. Þá væri þess að geta að mjög óheppilegt væri að hafa brúsa í kæliklefum innan um annan mat, en kunnugt er hve mjólk er viðkvæm fyrir lykt., standi hún óvarin. Oft á dag þyrfti að fara í brúsann og í hann væru gjarna settir mjólk- I urafgangar, eftir að notkun í eldhúsi væri lokið. Frá sjónarmiði hreinlætis alls og heilbrigðis, þótt ekki væri minnst á hin miklu þægindi sem væru af því að fá mjólkina í þessum umbúðum, væri það staðreynd að þetta væru heppi- legustu umbúðir, sem fáanlegar væru í heiminum í dag. — Við getum einnig treyst því að þessi mjólk frá Ákureyri, og raunar íslenzka mjólkin öll, sem bezt er um búin, er heil- næm og góð fæða og því væri bezt að geta keypt alla mjólk hér heima, sagði Gunnlaugur. Þá hefir Eimskipafélagið keypt þrjá kassa mjólkur fyrir Gullfoss og látið flytja hingað með flugvél og setja um borð í skipið. Þar hefir mjólkin verið um borð í einni ferð skipsins og verður hún nú rannsökuð að ferðinni lokinni. f sambandi við kaup á hyrnu mjólk, sögðu þeir starfsmenn Eimskips, að í Finnlandi mætti ekki taka aðra mjólk til skipa en hyrnumjólk, sem yrði að vera í grindum. Þannig háttar með þessar grindur, að þær eru hvergi afsetjanlegar nema í Finnlandi, og færi skipið oang- að aðeins eina för, sæti það uppi með grindur, sem það gæti ekkert gert við. — Kassamjólkin er það sem koma skal sögðu þeir Gunnlaug ur og Tryggvi. — Hún hefur allt fram yfir aðrar umbúðir. Mjólk in geymist bezt í þeim umbúð- um. Það fer minnsi fyrir henni í geymslu og hún er handhæg- ust í meðförum um borð. Flutn- ingaskip Eimskips munu nota 10 lítra kassana, en Gutlfoss myndi einnig geta notað 25 lícra kassa, samskonar og notaðir eru á Keflavíkurflugvelli frá Mjólkur samsölunni í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.