Morgunblaðið - 09.11.1966, Page 5
Miðvikudagur 9. nóv. 196B
MORGUNBLAÐIÐ
5
Jólin nálgast
IVlest keypt af íslenzkri ulðar-
vöru handa vinum erlendis
Giugginn hjá Gjafaveri.
okkur á jólin, allskonar
skraut og jólagreinar og einn
ig vörurnar. Þetta eru að vísu
ekki neinir nauðsynjahlutir,
sem maður verður að kaupa,
heidur fallegar vörur, sem
keyptar eru til gjafa. Við
göngum inn í þessa verzlun
og spyrjum unga afgreiðslu-
stúlku hvort jólaösin sé byrj-
uð. Hún kveður já við. Við
spyrjum hana, hvað sé íielzt
keypt til jólagjafa. — Það eru
gærur, segir hún, við seljum
alltaf mest af þeim.
Við höldum áfram göngu
okkar eftir Hafnarstrætinu í
leil að gluggum þar sem
búið er að silla út fyrir jólin
og komum að Rammagerð-
inni. í glugganum er falleg-
ur jólasveinn sem brosir til
okkar og býður okkur að
ganga inn fyrir. Við þiggjum
boðið, förum inn og hittum
að máli framkvæmdastjóra
verzlunarinnar. Hann segir
okkur að fyrstu jólagluggar
ársins hafi verið hjá Ramma-
gerðinni eins og undanfarin
ár. — Við stilltum út 1. nóv-
ember, þetta er tíminn. Nú
fer fólk að senda gjafir til
vina og vandamanna erlend-
is. Þeir, sem senda með skipi,
þurfa að fara að lita í kring
um sig. Við sendum gjafir
um allan heim fyrir við-
skiptavini okkar, án auka-
gjalds og berum fulla
ábyrgð á hverri sendingu,
þar til hún er komin í hend-
ur móttakanda.
— Hvað kaupir fólk nú
helzt til gjafa fyrir jólin af
því sem þiðhafi ð á boðstól-
um?
— Það má segja að sala á
íslenzkri ullarframleiðslu og
annari minjagripaframleiðslu
hafi aukizt mjög á undanförn
um árum, enda sú vara nú
orðin hin vandaðasta.
Þá bregðum við okkur yfir
götuna og lítum í gluggann
hjá Gjafaveri í Hafnarstr. 16.
Einnig þar er fallegur „Jóla-
gluggi“ með jólasveinum, sem
lýsa, því þeir munu vera lamp
ar. Við göngum inn í verzl-
unina og tökum tali eigendur
hennar, hjónin Helga Zoega
og frú, sem eru bæði við af-
greiðsluna og virðast hafa nóg
að gera. Helgi tekur sér frí
frá störfum og rabbar við okk
ur smástund. Hann segir okk-
ur að þau hjónin hafi unnið
að útstillingunni um síðustu
helgi, laugardag og sunnudag
og hafi það verið þó nokkurt
verk en skemmtilegt.
— Hvernig gengur salan, er
ekki jólaösin byrjuð?
— Sala gengur vel og jóla-
ösin er að byrja.
— Hvað er það sem fólk
kaupir helzt?
— Það er þetta sama og
undanfarin ár, skinn, prjóna
vörur, og alls konar smávarn-
ingur, skeiðar og íslenzk spil.
— Hvernig gengur salan í
lituðu gærunum?
— Ágætlega, enda er sútun
in nú orðin mjög góð, og ekki
er hægt að segja annað en
gærurnar, þessar rauðu,
grænu og gulu, séu fallegar.
Þá segir Helgi okkur að
þau pakki gjöfunum inn og
sendi út fyrir viðskiptavin-
ina og stundum sendi þau
varning með, sem ekki er
keyptur hjá þeim.
Við kveðjum Helga og höld
um út í Austurstræti í leit að
enn fleiri „jólagluggum“. En
þar eru engir ennþá, og því
er sagan úti.
Winston er bezt
— eins og af vinsældum sézt
Lang-mest seldu
filter sígarettur Ameríku
Ávallt nýjar og ferskar frá U.S.A.
Reynið Winston strax í dag
Glugginn hjá Min jagripadeildinni.
„ALLUR er varinn góður“,
segir jólasveinninn í glugga
Minjagripadeildarinnar í Hafn
arstræti 5, þegar við stönd-
um þar fyrir utan og virðum
fyrir okkur allt það sem
verzlunin hefur upp á að
bjóða, en sem að vísu kostar
sinn skilding. Jólasveinninn
heldur á stórri blöðru og á
henni stendur letrað „Jól“.
Allt í þessum glugga minnir
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
\
*
i
\
\
\
(
i