Morgunblaðið - 09.11.1966, Page 6

Morgunblaðið - 09.11.1966, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 9. nóv. 1966 Fannhvítt frá Fönn Fönn þvær skyrturnar. Ath. Rykþéttar plastum- búðir. Sækjum — sendum. Fannhvítt frá Fönn Fjólugötu 19 B. Sími 17220. Rafmagnsmótorar Nokkrir notaðir rafmagns- mótorar, 1 til 24 hestafla, til sölu. Upplýsingar í síma 122 23. Sjómaður óskar eftir tveggja herb. íbúð. Tveir í heimili. Tilb. sendist Mbl. fyrir 11. nóv., merkt: „Tveir 8073“. Stór vatnskassi til sölu með tilheyrandi viftu. Uppl. í síma 1435 í Keflavík. Góður fyrir verk stæði eða þurrkhús. Tveggja herbergja íbúð til leigu nú þegar á góðum stað í Vesturborginni. Að- eins reglusamt fólk kemur til greina. Tilboð merkt: „4411“ sendist Mbl. Atvinna óskast Ungur maður óskar eftir góðri vinnu. Hefur umráð yfir bíl. Sími 35527. i Chevrolet Til sölu Chevrolet, árg. 1952. Fólksbifreið í ágætu standi. Til sýnis að Flóka- götu 14, kl. 4—8 e.h. Til sölu rafmagnsþilofnar, stærð 250—1200 volt. Uppl. í síma 52345. Vélstjóri til sjós óskar eftir atvinnu í landi í Reykjavík eða ná- grenni, margt kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „8072“. Hef verið beðin að útvega notaða mið- stöðvarkatla, 3ja—15 ferm. ásamt tækjum. Uppl. í síma 21703 kl. 10—^-12 f. h. Barnavagn sem nýr til sölu vegna brottflutnings, vandaður, Verð kr. 3.900,-. Upplýs- ingar í síma 1-28-60. Hafnarfjörður Mann vantar í byggingar- vinnu strax. Upplýsingar í síma 50658. Gólfteppahreinsun Húsgagnahreinsun og hrein gerningar. Fljót og góð afgreiðsla. Sími 37434. íbúð óskast Óska eftir 5ra herb. íbúð til leigu sem fyrst. Upplýs ingar í síma 22150. Húsmæður Gólfteppahreinsun; véla- hreingerning; húsgagna- hreinsun. — Ódýr og góð þjónusta. — Þvegillinn, sími 36281. Bórgðrsfúkrahúsið í Fossvogi yy.y/XWOVP | *&%& *&&& '&&& ftVSSSf fS&vs .......... Borgarsjúkrahúsið í Fossvogi rís hátt og setur mikinn svip á umhverfið. Ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd með gleið- hornalinsu um daginn, þegar hann var þarna á ferð. að hann hefði á dögunum brugðið sér á slöngusýningu, rétt til að vita, hvernig þesskon- ar kvikindi tækju sig út hérna á Fróni. Jú, ekki bar á öðru en náttúran væri söm við sig í Kongó og Kjósinni, því að okk- ur höfðu fæðst hvorki meira né minna en 47 agnarlitlir snákar, og svo er eftir að vita, hvort þeir fá íslenzkan þegnrétt með þessu, en þar á eftir bíður svo hin brennandi spurning, hvort þeim verði gert að taka upp ís- lenzk nöfn, eins og öðrum út- lendingum. En á þessari sýningu hitti ég mann, sem leit með hryllingi á þessi eiturkvikindi, og sagði upp úr eins manns hljóði: „Skelfing eigum við íslending- ar gott, að ala ekki svona snáka við brjóst okkar á þessu landi. Svo er mér líka sagt, að hvergi sé hægt í útlöndum að drepa niður hendi eða setjast niður í skógarrjóðri, eins og hér í Vagla skógi og austur á Hallormsstað, fyrir allskyns kvikindum. Nei, við íslendingar kunnum áreiðan lega ekki að meta réttilega þau hlunnindi, sem íslenzk náttúra, þótt harðbýl sé, veitir okkur. Eða allir þessir hvirfilvindar og flóð út í heimi. Víst höfum við eldgos og hafís, en hvað er það á móti öllum hinum ósköpunum, sem t.d. nú hrjá fólkið á Ítalíu“. Mér varð rétt sem snöggvast hugsað til Lapi, listamannakrár- innar í Florens, sem Davíð gerði fræga með kvæði sínu og Jakob samdi fallegt lag við. Bucca Lapi eins og hún heitir á máli þar- lendra, er í djúpum kiallara, sem sjálfsagt er allur á floti um þessar mundir. Auðvitað eru önn ur og meiri verðmæti í hættu í Florens, því að segja má, að borgin sé eitt herlegt safn list- muna og gamalla minja, en samt rennur mér til rifja örlög Lapi, kjallarans, sem allur var þakinn innan með ferðaskrifstofuaug- lýsingum, „því að Lapi er og Lapi verður listamannakrá“. Ég heyri á öllu, sagði storkur, að þú ert tilfinninganæmur mað ur, manni minn, og ég samhrygg ist okkur báðum með Flórens, þann dýrindisstað. Ég hef komið þar við á ferðum mínum suður í Egyptó, og þar leið mér vel. Með það flaug storkur upp á næpuna NU VEIT ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honura frá sínum helga himni (Sálm. 20,7). í DAG er miðvikudagur 9. nóvem- her og er það 313. dagur ársins 1966. Eftir lifa 52 dagar. Árdegisháflæði kl. 2:36. Síðdegisháflæði kl. 14:54. Upplýsingar um læknaþjón- ustu í boiginni gefnar í sím- svara Læknafélags Reykjavíkur, Síminn er 18888. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni. Opin allan sólarhring inn — aðeins móttaka slasaðra — sími: 2-12-30. Kvöldvarzla í lyfjabúðum í Reykjavík vikuna 5. nóv. — 12. nóv. Laugavegs Apótek og Holts Apótek. Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 8. nóv. er Eiríkur Björnsson sími 50235 . Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 10. nóv. er Ársæll Jóns- son sími 50745 og 50245. Næturlæknir í Keflavík 4. þm. er Guðjón Kiemenzson sími 1567, 5—6 þm. er Kjartan Ólafsson, sími 1700, 7—8 þm. er Arnbjörn Ólafsson síml 1840, 9—10 þm. er Guðjón Klemenzson sími 1567. Apótek Keflavíkur er opið 9—7 laugardag kl. 9—2 helgidaga kl. 1—3. Hafnarfjarðarapótek og Kópa- vogsapótek eru opin alla daga frá kl. 9 — 7 nema laugardaga frá kl. 9 — 2, helga daga frá kl. 2 — 4. Framvegls verður tekíð á mótl þelm, er gefa vilia blóð i Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl **—11 f.h. og 2—4 eJ&. MIÐVIKUDAOa frá kL 2—8 e.h. Laugardaga frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli skal vakin á mið- vikudögum, vegna kvöldtímans. Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja- víkur á skrlfstofutíma 18222. Nætur- og helgidagavarzla 18230. Reykjavíkurdeild A.A.-samtakanna. Fundir alla miðvikudaga kl. 21 að Smiðjustíg 7, uppi. Orð lifsins svara t síma 10000. I.O.O.F. 9 = 1481198^ = Sk. ^ HELGAFELL 59661197 VI. 2 I.O.O.F. 7 = 1481198»^ = Fl. á gamla landshöfðingjahúsinu, setti sorgmsaddur haus undir væng og reyndi að sofna hænu- blund frá öllum þessum hörm- ungum. SÖFN Ásgrímssafn: Opið þriðju- daga, fimmtudaga og sunnu- daga kl. 1,30 — 4. Listasafn Einars Jónssonar er opið á sunnudögum og miðvikudögum frá kl. 1.30 — 4. Listasafn fslands: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laug ardaga og sunnudaga kl. 1,30 til 4. Þjóðminjasafn fslands: Er opið á þriðjudögum, fimmtu- dögum, laugardögum og sunnu dögum frá 1,30 — 4. Minjasafn Reykjavíkurborg ar, Skúlatúni 2, opið daglega £rá kL 2—4 e.h. nema manu daga. Landsbókasafnið, Safna- húsinu við Hverfisgötu. Lestr- arsalur er opin alla virka daga kl. 10—12, 13—19, og 20—22. Útlánssalur kl. 13—15 alla virka daga. Opinberað hafa trúlofun sína nýlega, ungfrú Karen Sigurðar- dóttir, Álfheimum 40, og Örn Jóhannsson, Hjallavegi 6, einnig ungfrú Marta Elisabet Sigurðar- dóttir, Álfheimum 40, og Gylfi Örn Guðmundsson, Hagamel 35. sá MÆST bezti Það þótti sjálfsagt áður, að menn hefðu hvíta hanzka, er þeir voru í hátíðabúningi á dansleikjum. Ólafur Haukur Benediktsson tók þetta ekki hátíðlega. Hann kom eitt sinn hanzkalaus á dansleik og bauð stúlku upp. Stúlkan sneri upp á sig, skoraðist undan að dansa við hann og bar það fyrir sig, að hann væri hanzkalaus. „Það gerir ekkert til,“ sagði Ólafur, „ég þvæ mér á eftir“. Háskólinn er vísinda og kennslu- stofnun en ekki pólitísk stofnun - ■j5fcMú0- Sænska friðardúfunni Söru Lidman hefur verið neitað um afnot á salarkynnum Háskólans til fyrirlestrahalds á þeim forsendum að Háskólinn sé ekki pólitísk stofnun. Virðast Lidmanns sinnar hafa leitað „langt yfir skammt" að heppilegu húsnæði!!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.