Morgunblaðið - 15.11.1966, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.11.1966, Qupperneq 12
12 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 15. des. 196t G reinargerð frá Sambandi veitinga- og gistibúsaeigenda Á YFIRSTANDANDI Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp til laga um breytingar á áfengis- lögum nr. 58 frá 24. apríl 1954. Ljóst er, að nefnd sú — sjö- mannanefndin —, sem unnið hef ur að endurskoðun á áfengis- lögunum seinustu 2 árin, hefur með ýmis konar gagnaöflun unnið verulegt starf og að mörgu leyti merkilegt, en úrvinnsla úr þeim gögnum og upplýsingum, sem nefndin hefur safnað sam- an, hefur enn eigi farið fram nema að mjög litlu leyti. Það er ekki hægt að gera kröfu til, að sjömannaalþingisnefndin hafi getað unnið úr nefndum gögnum nema þá að litlu leyti, enda eru fylgiskjöl með fram- lögðu frumvarpi það margþætt, bæði á sviði vísinda, félagsmála og talnafræði, að óhugsandi er, að nefndin hafi haft tíma né þekkingu til að kanna til hlítar allar þær upplýsingar ,sem henni hafa borizt. Án efa á þó gagnasöfnun nefndarinnar eftir að koma að notum hér á landi við frekari rannsóknir á viður- kenndu vandamáli, sem er of- neyzla áfengra drykkja. Gildandi áfengislög frá 1954 hafa engum breytingum tekið frá því þau voru samþykkt á Alþingi hinn 12. apríl 1954. Efnisbreytingar sjömanna- nefndarinnar eru litlar, en þær eru fyrst og fremst þessar: (a) Ungmennum yngri en 18 ára er óheimil dvöl eftir kl. 8 á kvöldi á veitingastað, þar sem vínveitingar eru leyfð- ar, nema í fylgd með foreldr um sínum. Rétt er að benda j á, að samkvæmt lögreglusam þykktum mega ungmenni yfirleitt í dag, niður í 16 j ára aldur, almennt sækja alla veitingastaði og þar með vínveitingastaði. Þessi breyt ing er til bóta. Þó verða á- vallt erfiðleikar á því að veita 18 ára ungmennum að gang að vínveitingahúsum en meina þeim jafnframt að kaupa þær veitingar, sem þar eru á boðstólum, þ.e. j vínföng. Slík ákvæði hljóta að vera sköpuð til að vera brotin. (b) Leigubifreiðum er bannað að aka ungmennum undir 21 árs aldri ölvuðum, nema í sérstökum tilfellum. Einn- ig skal heimilt að gera upp- tækt áfengi, er ungmenni undir 21 árs aldri hafa undir höndum. (c) „Hvert veitingahús, er vín- veitingaleyfi hefur, skal halda uppi fullkominni þjónustu án vínveitinga, a.m.k. eitt laugardagskvöld af hverjum fjórum eftir kl. 8 síðdegis". Samband veitinga- og gisti- húsaeigenda vill skýra og gera grein fyrir skoðunum veitinga- manna á síðastnefndu breyting- unni. Að áliti S.V.G. getur vín- veitingahús ekki haldið uppi „fullkominni þjónustu" án vín- veitinga. Grillið á Hótel Sögu, Hótel Holt, Naustið, Hótel Borg, Hótel Loftleiðir, — allt viður- kenndir matstaðir — sem hafa opið frá morgni til kvölds, geta ekki veitt „fullkomna þjónustu'1, þar sem vínglas má ekki hafa um hönd fjórða hvert laugar- dagskvöld hjá hverju framan- taldra veitingahúsa eftir klukk- an 8 síðdegis, nái þessi liður frumvarps sjömannanefndarinn- ar fram að ganga. Það er stað- reynd, að skemmtanavenjur al- mennings eru með þeim hætti, að fólk sækir skemmtistaðina fyrst og fremst á laugardögum, enda er það eini dagur vikunnar, t.d. í Reykjavík, sem flest veitinga- hús eru þéttsetin, þar sem hins vegar önnur kvöld vikunnar er ekkert vínveitingahús fullsetið. Stærsti og glæsilegasti veitingg- salurinn hér á landi, Súlnasalur- inn á Hótel Sögu, getur aðeins verið opinn reglulega á föstu- dögum, laugardögum og sunnu- dögum sökum allsendis ónógrar aðsóknar aðra daga. Laugardag- arnir á þessu vínveitingahúsi og öllum öðrum vínveitingahúsum eru þeir tekjuöflunardagar þess- ara fyrirtækja, sem standa bein- línis undir rekstrinum, og eru þá um leið þeir dagar, sem sveit- arfélag og ríkissjóður njóta mestra tekna af í mynd sölu- skatts, skemmtanaskatts, vín- veitingaskatts, veltuskatts, út- svars tekjuskatts o. fl. i í frumvarpi sjömannanefndar- innar kemur ekki fram og held- ur ekki í athugasemdum með frumvarpinu nein skýring á því, hvers vegna 1. flokks veitingahús skuli hafa salarkynni sín opin fjórða hvert laugardagskvöld án vínveitinga. Frumvarpsmenn hljóta að ætlast til og vilja að sjálfsögðu, að þessi „kvöð“ gangi jafnt yfir öll vínveitingahúsin, annað kæmi að sjálfsögðu ekki til greina, en þessi „kvöð“ er svo mikil skerðing á athafna- frelsi einstaklingsins eins og við Vesturlandabúar höfum vanizt því, að hún ein er nægileg á- stæða til að hafna henni af- dráttarlaust. Nái þessi þáttur frumvarpsins fram að ganga, þá getur þú, les- andi góður, ekki boðið þínum gestum til matar á Hótel Sögu Hótel Holt eða í Naustið og fleiri staði, fjórða hvern laugardag, ef þú vildir hafa á borði þínu létt vín (hvítvín) eða sterka drykki. Samþykki á framanrituðu á- kvæði (e) myndi koma í veg fyrir slíkt. Spurt er: Hver er tilangur sjö- mannanefndarinnar með því að ætla að banna með lögum neyziu á vínum fjórða hvern laugardag hjá hverju einstöku vínveitinga- húsi á landinu, Akureyri með- talin. Yrði þetta ákvæði sam- þykkt myndi aldrei rísa 1. flokks vínveitingahús í Keflavík, Vest- mannaeyjum eða öðrum stöðum. Tillagan um fleiri „þurr“ kvöld í viku fyrir fólk eldra en 21 árs, þ.e.a.s. önnur en miðvikudags- kvöld, getur ekki vakið fyrir sjö- mannanefndinni, því reynslan hefur sýnt og sannað, að vínveit- ingahús eru ýmist hálftóm á miðvikudagskvöldum eða lokuð vegna alls engrar aðsóknar. Dæmi: Komi gestur á miðviku- degi og vilji snæða mat kl. 9 að kvöldi í Grillinu, Hótel Holt eða Naustinu, skyldar löggjöfin hann fýrst til að greiða kr. 10,00 í skattgjald, sem gestinum er sagt að sé nokkurs konar vínveitinga- skattur til ríkisins. Hins vegar bannar núgildandi áfengislöggjöf sama gesti að kaupa sér glas af léttu víni eftir kl. 9 að kvöld, og alls enga sterka drykki má hann fá „serveraða" á mið- vikudögum. Þetta telja nú ýmsir ólog og vilja ekki auka á slíkan hringilandahátt. Það getur naumast vxakað fyrir sjömannanefndinni að skapa fleiri „dauð“ kvöld í veitinga- húsum ætluðu fólki eldra en 21 árs. Þá virðist ekki geta leg- ið fyrir nema ein ástæða og það er áð gefa unglingunum, fyrst og fremst í Reykjavík, kost á því að leggja undir sig 3 vín- veitingahús hvern laugardag allt Sárið um kring. Unglingar og fólk 21 árs og eldra skemmtir sér ekki saman á veitingastöð- um, það er staðreynd. Fólk eldra en 21 árs kæmi alls ekki inn á vínveitingastaði þá laugardaga, þar sem vínveitingar yrðu bann- aðar. Vínveitingahúsin eru alls ekki útbúin með það fyrir augum að skermmta unglingum, og á það bæði við vegna ýmissa dýrra tækja og innréttinga, svo sem vínstúka, hljómsveita o.fl. Ungl ingarnir myndu ekki kaupa mat á umræddum laugardögum á vínveitingahúsum. Þó gerir frum varpið ráð fyrir því, að veit- ingamenn verði skyldáðir til að halda uppi fullu starfsmanna- haldi í eldhúsum. Hætt er við, að slík útgerð yrði dýr t.d. á Hótel Sögu eða Hótel Loftleið- um. Unglingar hér á landi hafa lært að drekka vín löngu áður en þau kynnast persónulega vín vínveitingahúsum. Skemmtanir í unglingaskólum höfuðborgarinn- ar eru ekki alltaf vínlausar og ennþá síður skemmtanir fram- haldsskólanemenda. Ef gera á tilraun (hættulega tilraun ungl- inganna vegna) til að laða ungl- ingana á aldrinum 16-20 ára að öllum vínveitingahúsum, bæði í Reykjavík og á Akureyri vissa daga, jafnvel þótt vín eigi ekki að hafa um hönd opinberlega (aðeins í felum), þá er hrein- lega verið a'ð lyfta undir þessa sömu unglinga til að sækja vín- veitingahúsin aðra daga. Frek- ari útskýringa er ekki þörf, þetta er svo augljóst mál. Sjömannanefndin hefur ætlað að gera vel og ætlað að leysa visst vandamál, en þá um leið á kostnað 1. flokks veitingahúsa, en nefndin skýtur yfir markið. Nái umræddum þáttur frum- varpsins fram að ganga, yrði það eingöngu til þess að 3 vínveit- ingahús myndu ekki vera not- uð af fólki eldra en 21 árs hvern laugardag hér í Reykja- vík. Fólk þetta kemst ekki inn á önnur veitinga- eða danshús í borginni, þar sem þessi hús eru öll þéttsetin einmitt á laugar- SNÆBJÖRN J. Thoroddsen bóndi og oddviti í Kvígindisdal í Rauðasandshreppi í Barða- strandarsýslu, á í dag 75 ára af- mæli. Hann er fæddur í Kvíg- indisdal 15. nóv. árið 1891. Voru foreldrar hans Jón Árnason Thoroddsen bóndi þar og út- gerðamaður, og Sigurlína Sig- urðardóttir kona hans frá Vest- urbotni, dugnaðar og myndar- fólk. Snæbjörn Thoroddsen tók við búi á föðurleifð sinni og hefur búið þar með myndarbrag og snyrtimennsku í fjölda ára. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarStörfum fyrir byggðalag sitt og hérað. Meðal annars hef- ur hann verið gjaldkeri og fram kvæmdastjóri Sparisjóðs Rauða- sandshrepps um áratuga skeið. Hann hefur verið og er nú odd- viti hrepþs síns og sýslunefndar maður. Öll störf Snæbjarnar Thorodd- sens mótast af sérstæðri reglu- semi og snyrtimennsku. Hann er einstaklega hagsýnn maður, hygginn og ráðdeildarsamur. dögum. Hvað á að gera vi'ð þetta fólk? Skemmta því á strætum úti? Nái ákvæðið um „vínlaus" laug ardagskvöld fram að ganga myndi það hafa þveröfug áhrif miðað við það, sem til var ætl- azt. Það myndi auka drykkju- læti á almannafæri og í heima- húsum. Feluleikur með áfengi og rasspeladrykkja myndi auk- ast, bæði utan við vegg, í bíl- um, í snyrtiherbergjum og ólög- legum stöðum. , Lögregluyfirvöld viðurkenna, að framlenging lokunartíma á vínveitingastöðum um helgar hafi sett betri brag á borgarlíf- i'ð en áður var. Tveir veitingaaðilar hafa reynt að reka mjög vistlegan og skemmtilegan veitingasal ein- göngu fyrir æskufólk,þ.e.a.s. í Lídó. Báðir þessir aðilar urðu að gefast upp á rekstrinum, þar sem hann bar sig ekki með þeim rekstrarmáta, sem yfirvöld gætu sætt sig við. Ungmennin eiga fyllsta rétt á að skemmta sér, en það er ekki rétt að laða þau að vínveitinga- húsum fyrir aldur fram. Framanrituð sjónarmið telur S.V.G. rétt, að komi fyrir al- menningssjónir, en allur almenn ingur hefur reyndar þegar átt- að sig á því, að þessi „lausn“ á skemmtunum ungs fólks leysir engan vanda, — hún yrði í fram kvæmdinni til vandræðaauka. Samband veitinga- og gistihúsa- eigenda. í allri framkomu er hann hið mesta prúðmenni, og farsæll og duglegur að hvaða starfi, sem hann gengur. Nýtur hann fyrir þau almenns traust og virðing- ar. Heimilið í Kvígindisdal er hið mesta myndarheimili, en kona Snæbjarnar er Þórdís Magnúsdóttir frá Hóli í Tálkna- firði, mannkosta- og dugnaðar kona. Eiga þau hjón mannvæn- leg og vel gefin börn. Hefur sonur hans fyrir nokkru reist ný býli í Kvígindisdal. Snæbjörn Thoroddsen hefur unnið mikið og gott starf fyrir byggðalag sitt og hérað. Nú síð- ast hefur hann haft forgöngu um að koma upp glæsilegum heima- vistarbarnaskóla fyrir Rauða- sandshrepp í örlygshöfn. Er þar um að ræða myndarlega og nauð synlega stofnun, sem verða mun æsku byggðalagsins drjúg til giftu í framtíðinni. Snæbjörn Thoroddsen ber aldur sinn vel. Hann er maður fríður sýnum, stilltur en örugg- ur í fasi, og býður jafnan af sér góðan þökka. Vinir og samstarfs- menn þessa merka bónda og hér- aðshöfðingja senda honum hug- heilar árnaðaróskir og kveðjur á þessum tímamótum í lífi hans. S. Bj. Aukaviiina fyrir húsmæður Óskum eftir nokkrum konum til að selja happ- drættismiða í ákveðnum borgarhverfum. Góð sölulaun. STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA Laugavegi 11 — Sími 15941. BLAUPUHKT BLAUPUNKT SJÓNVÖRP, tnargar gerðir þekkt fyrir m.a.: + Langdrægni + Tóngæði ^ Skarpa mynrl. Hagstætt verð. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — Afsláttur gegn staðgreiðslu. / unnai k.f. Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Simnefni: i>Volver« - Simi 35200 75 ára i dag: Snæbjörn J. Thorðdc!- ssn í Kvípndisial

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.