Morgunblaðið - 22.11.1966, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. nóv. 1966
Hrelaa um /l#ómBS#©3imffl
eftir Hffllldér Lfflxsiess
— ágreiningsefni milli stjómar og rits tjóra norska
vikublaðsins „Dag og Tid"
NTB fréttastofan norska
greindi frá því í gær, að ris-
ið hefði upp deila milii stjórn
ar hins óháða vikurits „Dag
og Tid“ í Noregi — sem fyrst
og fremst fjallar um menning-
armál og er gefið út á ný-
norsku — og ritstjóra þess, Iv
ars Eskelands og ritstjórnar-
fulltrúa, Björns Herviks. —
Ágreiningsefnið er grein,
sem fyrir nokkru birtist í
blaðinu eftir Ivar Eskeland
um bókina „Atómstöðin“ eft-
ir Halldór Laxness. Eskeland
hefur íslenzkað þá bók und-
ir heitinu „Land til salgs“.
Umrætt blað mun eingöngu
hafa verið helgað bókmennt-
um.
JFrétt NTB var talsvert
trufluð, en eftir því sem næst
varð komizt, hefur stjórn
blaðsins gefið út yfirlýsingu
vegna ítrekaðra fyrirspurna
út af þessari grein. Segir í
yfirlýsingu blaðstjórnarinnar,
að hún telji greinina brot á
stefnu blaðsins og markmiði.
Hinsvegar vilji stjórnin ekki
að ritstjóri blaðsins eða rit-
stjórnarfulltrúi fylgi stefnu
blaðsins sé það andstætt sam
vizku þeirra og því líti hún
svo á, að þeir séu leystir frá
störfum. Þó segir ennfremur,
Ivar Eskeland.
að stjórnin hafi boðið Eske-
land að ritstýra öðru blaði,
sem einnig verði helgað bók-
menntum og gefið út í nokkru
stærra uppiagi en blað það,
er greinin birtist í — og það
hafi Eskeland þegið.
1 yfirlýsingu blaðstjórnar-
innar segir ennfremur, að
lengi hafi verið lýðum ljóst,
að „Dag og Tid“ ætti í fjár-
hagsörðugleikum — en þeir
séu ekki svo alvarlegir, að
hætta verði útgáfu blaðsins.
Stjórnin sé nú að undirbúa
nýjar ráðstafanir í fjármálum
blaðsins og verði þær lagðar
fram til umræðu á ársfundi
þess, sem haldinn verði innan
skamms.
Loks segir í yfirlýsingunni
að „Dag og Tid“ hafi mætt
miklum velvilja og áhuga
margra aðila, einstaklinga
sem stofnana og sé stjórnin
þakklát þeim“.
í samtali við NTB upplýsti
svo formaður stjórnarinnar,
Herbjörn Sörebö, að ágrein-
ingsefnið væri umrædd grein
um Atómstöð Halldórs Lax-
ness.
Ivar Eskeland er mörgum
íslendingum kunnur. Hann
hefur lengi haft áhuga á ís-
lenzkum málefnum, er sonur
íslandsvinarins Severins Eske
lands og skrifaði prófritgerð
frá háskólanum í Osló um
Halldór Laxness. Hann hef-
ur þýtt margar bóka Laxness,
m.a. Gerplu, Paradísarheimt
og Brekkukotsannál. Eske-
land hefur verið leikhúsráðu-
nautur við Det Norske Teat-
eret í Osló, ráðunautur Fonna
bókaútgáfufyrirtækisins og
formaður norska útvarps- og
sjónvarpsráðsins. Hann er
tæplega fertugur að aldrL
Veröur auka þing
saman nassta haust?
— til jbess að taka ákvörðun um
skipulagsbreytingu sambandsins
ASI hvatt
Á 30. ÞINGI Alþýðusamhands
íslands, sem hélt áfram í gær,
var lögð fram tillaga nefndar, er
skípuð var af miðstjórn ASÍ og
fjalla átti um skipulags- og laga
breytingu á Alþýðusambandinu.
Skal núverandi þing samkv.
tillögunni skipa milliþinganefnd,
sem skila á áliti í marz n.k.,
fjalla um málið og síðan skal
aukaþing, sem haldið verður í
október næsta haust taka endan-
lega ákvörðun um breytingu á
lögum sambandsins.
í nefndinni áttu sæti frá mið-
stjórn ASÍ þeir Eðvarð Sigurðs-
son, Björn Jónsson og Sveinn
Gamalíelsson, en frá stjórnarand
stæðingum Óskar Hallgrímsson
og Pétur Sigurðsson.
Tillagan er svohjóðandi:
„30. þing Alþýðusambands ís-
lands ítrekar fyrri samþykktir
sambandsþinga um skipulags-
mál. Á grundvelli þeirra og með
hliðsjón af fenginni reynslu sam
þykkir þingið eftirfarandi:
1. Alþýðusambandið verði
heildarsamtök verkalýðsins og
byggt upp af landssamböndum
stéttarfélaga í meginatriðum á
grundvelli fyrir samþykkta og
þeirrar þróunar, sem síðan hef-
ur orðið. Þeim núverandi sam-
bandsfélaga, sem ekki verður
skipað í landssambönd, skal
heimil áfamhaldandi bein aðild
að Alþýðusambandinu, en leit-
ast skal við að einnig þau geti
skipað sér í landssambönd.
2. Landssamböndin verði skipu
lögð eftir starfsgreinum og fari
þau með málefni starfsgreinar-
innar eftir því sem fyrir verður
mælt í lögum A.S.Í. og sam-
þykktum landssambandanna.
3. Núverandi sambandsfélög
verði aðilar að landssambandi
viðkomandi starfsgreinar og
kjósi fulltrúa á þing þess, eftir
nánar ákveðnúm regum.
ir aðilar að Alþýðusambandinu
og þing A.S.Í. verði skipað full-
trúum landssambandanna, kjörn
um eftir reglum, sem settar
verða í lögum Alþýðusambands-
ins.
5. Réttarstaða núverandi fjórð
ungssambanda og fulltrúaráða
verði ákveðin í lögum Alþýðu-
sambandsins.
6. Gerð verði eftirfarandi
breyting á lögum A.S.Í.: Ákvæði
til bráðabirgða: Þing Alþýðusam
bandsins, sem hvatt verður sam
an eigi síðar en fyrir lok októ-
bermánaðar 1987, skal haía
heimild til að ganga endanlega
frá breytingum á lögum - og
skipulagi Alþýðusambandsins.
7. Kosin verði milliþinganefnd
í laga- og skipulagsmálum Al-
þýðusambandsins er starfi í sam
ráði við miðstjórn. í nefndinni
eigi sæti 15 fulltrúar. Nefndin
geri tilögur um nauðsynlegar
breytingar á skipulagi og lögum
A.S.Í. og sendi meginefni þeirra
öllum sambandsfélögum fyrir
lok marzmánaðar 1987. Sam-.
bandsfélögin skulu hafa rætt og
tekið afstöðu til tillagnanna eigi
síðar en 2 mánuðum fyrir þing
það, sem um ræðir í 6. lið“.
Eðvarð Sigurðsson hafði örð
fyrir nefndarmönnum og rakti
í fyrstu þær óverulegu breyting-
ar sem gerðar hafa verið á ASÍ
þau 50 ár sem það hefur nú
starfað. Hann sagði, að allir
væru sammála um að breytinga
væri þörf, en ýmis framkvæmda
atriði hefðu alltaf staðið í vegi
fyrir samkomulagi, enda þyrfti
% hluta atkvæða til þess að
koma fram lagabreytingum,
Þróunin hefur verið sú, sagði
Eðvarð, að myndast hafa innan
ASÍ starfsgreinasambönd eða
landssambönd, þrátt fyrir að eng
in ákvæði væru um réttarstöðu
slíkra félaga innan sambandsins.
að ASÍ: Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna, Landssamband
vörubifreiðastjóra og Sjómanna-
samband íslands. í þessum sam-
böndum væri hvorki meira né
minna en 22000 félagsmenn af
34.400 félögum ASÍ. Eðvarð sagði
að ASÍ hefði dregist aftur úr í
atvinnuþróuninni, tækni- og sam
göngumálum.
Þau grundvallaratriði, sem sam
komulag hefur ávallt strandað á
er, hvernig skipta skuli félögun-
um niður. Bókagerðarmenn hafa
að mestu náð samkomulagi, sagði
Eðvarð, en hins vegar er spurn-
ing hvort skipa eigi Iðjufélögun-
um í eitt samband, þeim, er
vinna að þjónustumálum o.s.frv.
Þá er mikill vafi, hvað gera skal
við fjórðungssamböndin, þar eð
þegar um er að ræða starfs-
greinaskiptingu verða þau óvirk,
en hafa þó miklu hlutverki að
gegna, að því er Eðvarð sagði.
Þá stendur og mikill styr um
atriði, sem fjallað er um í grein
3 og 4, en það er atriðið um
kosningar til ASÍ-þings.
Nokkrar umræður urðu um
þessi mál, en að lokum var mál-
inu vísað til skipulags- og laga-
nefndar.
Svavar Pálsson kjör-
inn formaöur Varöar
A AÐALFUNDI Landsmála
félagsins Varðar í gærkvöldi,
var Svavar Pálsson, endur-
skoðandi, kjörinn formaður
félagsins. Sveinn Guðmunds
son alþm. sem verið hefur
formaður félagsins sl. 3 ár
baðst eindregið undan end-
urkjörL
Fundarstjóri var Baldvin
Tryggvason.
Sigurður Bjarnason, rit-
stjóri, flutti ítarlega ræðu á
fundinum um sjónvarp á
íslandi.
Sveinn Guðmunidsson, fráfar-
andi formaður félagsins, flutti
skýrslu stjórnar en starfsemi
Varöar var hin blómlegasta á
árinu. Haldin voru 5 spilakvöld,
sem öll voru vel sótt. A'lmenn-
ir félagsifundir voru tveir auk
aðalfund.ar.
40 ára afmæli Varðar setti
mjög svip sinn á starfsemi þess
sl. ár. Vandað og veglegt aifmæl-
jsrit kom út og fjölmennt 'hóf var
haldið í Sjálfstæðishúsinu fil
þiess að minnast afmælisins. Jóla
trésskemmtun var baldin fyrir
böm og Vörður efndi til hinnar
árlegu sumarferðar sem nær 900
manns tóku þátt í og komust
færri að en vildu.
Sveinn Guðmundsson þakkaði
að iokum samstarfsmönnum sán-
um í stjórn Varðar ánæigjulegt
samstarf á liðnum árum.
í stjórn Landsmálafélaigsins
Varðar fyrir næsta starfsár
voru kjörnir: Svavar Pálsson,
formaður. Meðstj.: Ágúst Haf-
berg, Bragi Hannesson, Benóný
Kristjánsson, Jón Jónsson,
Sveinn Björnsson og Þórður
Kristjánsson. í varastjórn:
Gunnar B. Guðmundsson, Hall-
dór Magnússon og Magnús L.
Sveinsson. Enduirsko’ðendur vom
kjörnir Már Jóhannsson og Ottó
B. Ólafsson. Varaendurskoð-
andi: Hannes Þ. Sigurðsson.
Ræða Sigurðar Bjarnasonar
Sigurður Bjarnason ritstjóri
flutti síðan ítariega og fróðlega
ræðu um sjiónvarp á íslandi, að-
draganda þess og framtíðar-
möguleika. Hann skýrði m.a. frá
því, að undanfarið hefði ákvörð-
un um afnotagjald af sjónvarpi
verið í undirbúningL Líkiegt
væri að það yrði um 2400 kr.
á ári og yr'ði greitt í þrennu
eða fernu lagL
Svavar Pálsson
Hlutfallslega lægra afnota-
gjald yrði greitt fyrir þann
tíma, sem útsendingar hafa stað-
ið á þessu ári og áður en reglu-
legar útsendingar sex daga vik-
unnar hefjast.
Hann ræddi einnig um dreif-
ingu sjónvarpsins út um landið
og varpaði m.a. fram þeirri hug-
mynd, að aliar fjórar eða fimm
5000 kw sjónvarpsstöðvarnar
yrðu boðnar út í einu. En þær
eiga eins og kunnugt er að vera
á SkálafellL í Stykkishólmi, á
Vaðlaheiði, Fjarðarheiði og ef
til vill á Hjörleifshöfða. Taldi
hann að þáð gæti komið í veg
fyrir ýmis konar tortryggni og
mieting miiii landshluta.
Sigurður Bjarnason lauk máli
sínu með þessum orðum: Tak-
mark íslenzka sjónvarpsins á að
vera að það verði þjóðleg menn-
ingarstofnun, 'hagnýt fræðslu-
stðfnun og alþijóðleg fróðleiks
og fréttastofnun.
Til máls tóku auk frummæl-
anida þeir Ólafur Einarsson, Ing-
ólfur Möller og Ólafur Haukur.
Bjöm Jónsson ^ k|ö: iim
þingforseti ASÍ
Þingfundir á 30. þingi Alþýðu , atkv. meirihluta, hlaut 173 atkv.
sambands íslands hófust í sam- en Björgvin Sighvatsson 161
komuhúsinu Lídó á sunnudag kl. atkv.
14,45. Fundurinn hófst á því að
forseti ASÍ, Hannibal Valdimars (
1 upphafi fundarins las forset.i
Hannibal Valdimarsson upp
son setti fundinn og stjórnaði skeyti, er ASÍ hafði borizt, m. a.
hann fundi þar til þingforseti frá Verkalýðssambandi Sovét-
var kjörinn. Kjörinn var Björn
Jónsson, alþingismaður og forrn
aður Verkalýðsfélagsins Einingar
Akureyri.
Við kjör 1. varaforseta þings-
ins var kosið á milli Óskars
Jónssonar, sem borinn var fram
af fráfarandi miðstjórn ASl og
Björgvins Sighvatssonar, sem
borinn var fram af lýðraeðissinn
um. Var Óskar kosinn með 12
4. Landssambönóin verði be'.n Nú eru 3 landssambönd aðilar
Ekki linnir uphleypingum. í fyrrinótt rigndi 70 mm í
í gær gekk yfir landið hlýtt Kvigindisdal, og hitinn var
lofthaf, sem fylgdi djúpri
lægð á Grænlandshafi, suð-
austan við hana. Stormur og
rigning var víða um land,
einkum vestan og norðan til.
10’ á Siglunesi um hádegið.
— Á eftir kuldaskilunum,
sem voru út af V.-landi kl.
11, var búizt við útsynningi
og élum.
| ríkjanna, en að því loknu voru
' lesnar kveðjur frá hinum ýmsu
hafði verið að senda áheyrnar
fulltrúa á þingið. Fyrir Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja
talaði formaður bandalagsins og
vakti athygli á þeirri ályktun,
er þing BSRB hafði sent frá sér
þar sem stungið er upp á því að
stofnuð verði efnahagsstofnun
launþega. Flutti hann ASÍ einnig
afmæliskveðjur, en svo gerði
einnig Kristján Karlsson, er tal-
aði fyrir Stéttarsamband bænda.
Kristján Karlsson gat þess, að
allt frá stofnun sexmannanefndar
innar hefði verið mjög gott sam-
starf með ASÍ og bændum, og
þakkaði hann það. Hins vegar
harmaði hann það að ASf skuli
hafa neitað að skipa mann í
nefndina á sl. vori. Hefði ASÍ þar
með svipt bændur landsins samn
ingsrétti.
Hannibal Valdimarsson forseti
ASf svaraði með nokkrum orð-
um og sagði að það hefði ekki
verið af illum hug í garð bænda,
sem ASÍ hafði neitað, heldur
hafi það ekki viljað vera lög-
skipaður andstæðingur bænda.
Þá flutti Helgi Guðmundsson
frá Iðnnemasambandi íslands
kveðjur sambandsins og þakkaði
ASÍ stuðning við málstað iðn-
Framhald á bls. 31