Morgunblaðið - 13.12.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1966, Blaðsíða 10
10 MORGU N BLAÐIÐ Þriðjudagur 13. des. 1968 í GÆR var mör.gum mann- inum sem leið átti fram hjá húsi Kr. Kristjánssonar h.f. við Suðurlandslbraut star- sýnt á bifreið, sem (þar er niú til sýnis almenningi í Sýn- ingarsal fyrirtaekisins. Er hér um að ræða kappa k s t u rsb i f- reið Sverris Þóroddssonar, sem hann flutti hingað frá Bretlandi og hefur unnið að viðgerð á undanfarna mán- uði. Óþarft er að kynna Sverri fyrir lesendum Mbl., því fyrir skömmu birtist í bla'ðinu ýtarlegt viðtal við hann, þar sem hann skýrði frá reynslu sinni sem kapp- akstursmanns. Blaðamaður MbL hitti Sverri að máli í gsermorgun og spurði hann hver væru til- drög þessarar sýningar. Sagði Sverrir að sig hefði langað Sverrir í kappakstursbilnum. A hliðinni má sjá auglýsingar, sem hann hefur selt á bílinn. Fyrsti kappaksfursbillinn á Islandi að kynna Íslendingum þessa íþrótit og hvað er betur fail- ið til þess en að sýna almenn- iingi raunverulega kappakst- ursbifreið. — Þtí sagðir í viðtali vfð MtíL Sverrir, að iþú hygðist nú reyna að afla þér fjár á íslanli og annars staðar til kaupa á nýrri og fúUkamnari bifreiða. Hvernig hefur þér gengið? — Eriendis tíðkast það mjög að kappakstursmenn selja fyrirtækjum þeim, sem fram- leiða hina ýmsu hluti í bílinn og það sem varðar rekstur hans, auglýsingarétt. Þ.e.a.s. að líma auglýsingar á bílinn og ef viðkomandi ökumaðúr nær góðum árangri, hafa fyr- irtækin rétt á að nota nafn hans í auglýsingaskynL Ég hef farfð til ýmissa fyrirtækja í Reykjavik, sem hafa umboð fyrfir ýmsa íhluti sem eru í bílnum, og hafa þau yfirieitt tekið mér vel og sýnt mála- leitun minni góðan skilning. — Hefurðu gert ráðstafan- ir til að kaupa nýjan bíl? — Já, ég hef lagt inn pönt- un hjá Brabham, þessi bíly sem hér er er einnig frá þeim. SHkur bíll kostar í Bretlandi um £2500 með því sem til þarf, og ég vona -að ég geti selt þann gamla fyrir £ 1200 —1500. — Geturðu lýst fyrir okk- ur þessum nýja bíl? — Hann er að flestu leyti eins og sá gamlL Vélin er úr Ford Cortina, en nokkuð breytt og framleiðir hún 108 hö við 10000 snúninga. — Hvenær hyggstu halda utan aftur til keppni? — Ég geri ráð fyrir að það verði í endaðan febrúar. — Hefurðu ekkert hugsað þér að gefa Reykvíkingum kost á að sjá þig aka bifreið- inni? — Jú, ef leyfi viðkomandi yfirvalda fæst mun ég reyna að gefa almenningi kost á að sjá bílinn í akstri. Það er ekki vel að marka að sjá bélinn svona í glugga. Hann virðist ef til vill ekki Mklegur til stór ræða, en þegar vélin er kom- in í gang og menn skynja kraftinn sem í bílnum býr, horfir málið öðruviísi við. ár er danskt er postulín ií er eldfast Fæst í kaffi- og matarstellum, einnig stökum hlutum svo sean diskar, föt og margs konar leirpottar, sem nota má á rafmagnshelliur. rár er falleg og sérstök gæða- vara. Laugavegi 6. Sími 14550. HÁKON h. kristjónsson lögfræðingur Þingholtsstræti 3 Sími 13806 kL 4,30—6 RAGNAR JÓNSSON Lögfræðistörf og eignaumsýsla. hæstaréttarlögmaður. Hverfisgata 14. — Sími 17752. Málflutningsskrifstofa Magnús Thorlacius Aðalstræti 9. — Sími 1-18-75. hæstaréttarlögmaður Framkvœmdir við Land- símahúsið hafnar FYRIR SKÖMMU tilkynnti kirkjum.ráðun. Pósti og sima, að teikningar fyrirhugaðrar viðbót- arbyggingar við Landsímahúsið hefðu hlotið viðurkenningu og samþykki og eru framkvæmdir hafnar. Skipulagsnefnd kirkju- garða hafði haft málið til með- ferðar, en eins og kunnugt er, er elzti kirkjugarður Reykvíkinga í garðinum, sem gengið hefur und- ir nafninu Bæjarfógetagarður. MbL hafði tal acE Baldri Möller ráðuneytisstjóra á dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og sagði hann þá að Skipulagsnefnd kirkjugarða, sem í eiga sæti b i sk u p , þjóðminjavörður og húsameistari ríkisins, hefði sam- þýkkt teikningar hússins og legði bún til að framkvæmdir yrðu leyfðar samkvæmt þeim breyttu teikningum, sem fram hefðu verið lagðar. Samkvæmt teikningunum verð ur sama og enginn grunnur graf- inn undir húsið og í því verður eklki kjallari. Grunnflötur fyrstu hæðar verður minni en annarra hæða hússins, þ. e. fyrsta hæð hússins verður inndregin. Ekki liggur ljóst fyrir, hve Jangt jaðar hins forna kirkju- garðs nær, en við gröft fyrir súlum verður að gæta þess sér- staklega að raska ekki líkams- leifum og mun þá koma í ljós, hve langt garðurinn nær. Þegar fyrstu teikningar af við- bótarbyggingunni voru lagðar fram kom í ljós, að Landsskninn hafði ekki gert ráð fyrir að htuti hins forna kirkjugarðs var lagður niður og afhentur apótekara Reykjavíkiurapóteks undir skrúð- garð. Upphafleg lóð apóteksins var mæld út 1833, en tvisvar er bætt við hana fyrst árið 1879 og síðar 1883. 1 fyrra skiptið var lóðin stækkuð um 10 álnir til vesturs og í seinna skiptið um 2 álnir. Á hluta þessara 12 álna spildu mun hús Landsímans standa. Mbd. hafði tal af dr. Kristjáni Eldjárn, þjóðminja- verði og bar þessa frétt undir hann. Dr. Kristján sagði, að að svo miklu leyti, sem rasika þyrfti við grafreitum, þá yrði það gert undir eftirliti Þjóðminjasafnsins. Arkitektar og verkfræðingar landsímans hefðu gengið það vel frá teikningum, að tiltölulega lít- ið horn hins gamla kirkjugarðs færi undir húsið. „VINYL" GÖLFFLÍSAR AMERÍSKAR „NAIRN“ og „KENTILE“ ÞÝZKAR „DLW“ FINYLFLÍSAR í MIKLU ÚRVALI. J. Þorláksson & Norðmann hf Bankastræti 11 — Skúlagötu 30. Verndið sjónina! Þar sem góðra lýsinga er þörf þá notið LUXO-LAMPA Vari/.t eftirlýkingar. Ábyrgðarskírteini fylgir hverjum lampa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.