Morgunblaðið - 15.01.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1567.
Nýr framkvœsndastjóri
ráðinn við Kísiliðjuna
— Gert er ráð fyrir að verksmibjan
taki til starfa i haust
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn 1
í SÍÐTJSTU viku var haldinn
stjómarfundur Kísiliðjunnar h/f.
Var þar m. a. ráðinn nýr fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, og
og mun hann taka við af Pétri
Péturssyni núverandi fram-
kvæmdastjóri, er rekstur hefst.
Hinn nýi rfamkvæmdarstjóri er
Vélsteinn Guðmundsson, fram-
kvæmdarstjóri Hjalteyri. Hann
er fæddur 14. ágúst 1914 að
Hesti í Önundarfirði. Uaug prófi
í efnaverkfræði frá Khöfn 1940
og hefur unnið við síldarverk-
smiðju Kveldúlfs h/f á Hjalt-
eyri frá 1941, verksmiðjustjóri
frá 1947. Hann hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
ríki og sveit, m. a. unnið mikið
að tilraunum í sambandi við síld
veiðar og síldarflutninga.
Morgunblaðið haíði tal af
Pétri Péturssyni og spurði hann
tíðinda um framkvæmdir Kísil-
iðjunnar h/f.
Pétur sagði, að nú ynnu sjö
manns við Mývatn og gengi
verkið nokkuð vel eftir atvikum.
Væri u. þ. b. helmingi fram-
kvæmda lokið, að því er snerti
innlenda vinnu, öll tæki pönt-
uð, væru þau að byrja að berast.
Yrði stefnt að því að þau komi
Í vetur og verða þau þá flutt
frá Húsavík til Mývatns, eftir
því sem tíð leyfir, þannig að
hægt verði að byrja framkvæmd
ir í apríl og af fullum krafti í
tnaí.
Öll steypuvinna er búin, lokið
er við að reisa skrifstofuhús-
næði, efnarannsóknarstofu og
34 metra stálturn, en í hon-
um mun þó nokkur hluti vinnsl-
unnar eiga sér stað. Þá er einnig
lokið byggingu tveggja húsa fyr-
ir starfsmenn svo og er lokið við
gerð geysistórrar efnisþróar.
Búið er að ganga frá dælukerfi,
dælupramma, dælustöð, flot-
leiðslu og 3,5 km. langri leiðslu.
Á stjórnarfundinum nú í vik-
unni mættu framkvæmdastjóri
Johns Mannville og sölustjóri
þess í Englandi, og var á fund-
inum gert grein fyrir loknum
framkvæmdum og gerðar áætl-
anir um frekari framkvæmdir.
%Var ákveðið að byggja tíu
starfsmannahús, og verða þau
boðin út á næstunni og verður
miðað við gæði og verð. Munu
bæði innlendum og erlendum
aðilum gefast kostur á að bjóða
í verkið.
Þá voru einnig gerðar áætlan-
ir um undirbúning að rekstri
og upphafi hans og er gert ráð
fyrir því, ef ekki verða afgreiðslu
tafir á tækjum, og verksmiðjan
getið tekið til starfa 1. október
í haust. Verður fyrst um sinn
unnið allan sólarhringinn, sex
daga vikunnar, en síðar verður
Framleiðslan mun fara eftir
því, hve vel gengur að koma efn
inu á markað í Evrópu, en gert
er ráð fyrir einhverjum erfið-
leikum fyrst í stað, meðan kaup-
endur eru að sannfærast um að
gæði íslenzku vörunnar sé sam-
bærilegt við aðrar.
Allar rannsóknir sem gerðar
hafa verið, bæði hér í Evrópu
og Ameriku, benda til þess að [
gæðin séu eins og bezt gerist I
annars staðar. Gert er ráð fyrir |
að verksmiðjan geti framleitt 30
þús. tonn á ári.
Á stjórnarfundinum var og
tekin ákvörðun um byggingu.
vöruskemmu á Húsavík, og mun .
hún kosta 4,5 — 5 milljónir
króna. Hefur höfnin á Húsavík!
verið lagfærð til að auðvelda út j
skipun og mun skemman
standa á hafnarbakkanum. Ríkis j
stjórniri mun sjá um lagningu
vegar frá Reykjahlíð til Húsa?
víkur og hefur verið boðið út, I
Einnig mun ríkisstjórnin sjá um
byggingu gufuveitu, en verk-
smiðjan þarf um 20 tonn af gufu
á klukkutíma í fullri framleiðslu.
í sumar verður aðallega unnið
að uppsetningu tækja og ýmissi
rafmagnsvinnu, þannig að það
verða fyrst og fremst iðnaðar-
menn sem þörf er í sumar.
Aliar hugsanlegar varúðarráð-
stanfir hafa verið gerðar í sam
bandi við olíunotkun. Verk-
smiðjan verður staðsett þannig,
að hún sést lítið sem ekkert
Vésteinn Guðmundsson
frá vatninu, og verksmiðjustjóm
in gerir allt sem í hennar valdi
stendur til að samræma bygg-
ingar umhverfi. Hefur Náttúru-
verndarráð fylgzt með fram-
kvæmdum, og ekki gert neinar
athugasemdir, enda hafa ábend
ingar ráðsins allar verið teknar
til greina. Samvinna við íbúa
Mývatnssveitar hefur verið
framúrskarandi góð, og virðist
fyllsti skilningur rikja af hálfu
eigenda Reykjahlíðar og sveita-
stjórnar Skútustaðahrepps.
Á vegum sveitastjórnarinnar
er nú í undirbúningi by.ggða-
kjarni og hefur verið skipulagt
þorp, og Kísiliðjan h/f fyrir
hönd sveitastjórnar gert áætlun
um vatns- og skólplagnir. Mikill
áhugi er hjá íbúum Reykjahlíð-
ar að koma upp hitaveitu.
Samkvæmt áætlun mun verk-
smiðjan kosta 150 milljónir kr.
fyrir utan undirbúningskostnað,
þ. e. rannsóknir, tilraunir og
fleira, sem kostuðu um 18 millj-
ónir kr., og verður það endur-
greitt með hlutabréfum. Hlutafé
er 78 milljónir króna, þar af á
ríkissjóður 51, sveitafélög 1—2%
en Johns Manville afganginn.
önnur fjáröflun er 850 þús.
dollara lán hjá Export Import
bankanum í Washington vegna
tækjakaupa, 800 þús. dollara lán
frá Johns Manville og smærri
lán frá HolLandi, Kanada og Eng
landi.
Hingað til hafa allar kostnað-
aráætlanir staðist fullkomlega
og gangur verksins farið eftir
áætlun, og er gert ráð fyrir góðri
rekstrarafkomu. Lög um verk-
smiðjuna gera ráð fyrir að skatt-
ar hennar og sölufélagsins séu
í einu lagi 45% af tekjum áður
en arður hefur verið dreginn frá.
í stjórn Kísiliðjunnar h/f eru
Magnús Jónsson ráðherra for-
maður, Karl Kristjánsson alþm.,
Pétur Pétursson forstjóri auk
tveggja fulltrúa Johns Manville
Of þykkir 2 kr.
peninyar í umferb
Ráðuineytinu hafa borizt kvart
anir um, að í umferð sóu 2 kr.
peningar af annarri þykkt en
reglur mæla fyrir uim, og að
eigi sé unnt að nota þessa pen-
inga í bifreiðastöðumæla.
Þegar eftir að kvartanir þess-
ar bárust var sendiráði íslands
í London beðið að ræða málið
við Royal Mint í London, sem
annast myntsláttu fyrir íslend-
inga, og upplýsti, myntsláttan,
að vegna mistaka myndu nokkr-
ir 2 kr. peningar í síðustu send-
ingu hafa orðið of þykkir. Vart
gæti þó hér verið um að ræða
meira en 150—300 peninga, en
samtals var ein milljón 2 kr.
peninga í umræddri sendingu.
Að fengnum upplýsingum og
skýringum myntsláttunnar á
Mjólkursom-
sölunni úihluluð
lóð í Árbæjurhv.
MJÖLKURSAMSÖLUNNI hefur
verið úthlutað lóð fyrir fram-
tíðarstarfsemi í Árbæjarhverfinu
nýja. Stefán Björnsson, forstjóri
sagði Morgunblaðinu að nú
þegar væri orðið þröngt um
starfsemi samsölunnar þar sem
hún er til húsa, við Laugaveg
162. Ekki væru neinar stórfram-
kvæmdir fyrirhugaðar ennþá,
heldur yrði starfsemin flutt inn-
eftir smátt og smátt. Hinsvegar
hefði þótt rétt að tryggja góða
lóð í tíma.
þessum mistökum hefur ríkis-
féhirði verið falið að reyna að
sjá til þess að fleiri gallaðir
peningar fari ekki í umferð.
Ráðuneyttð biður þá, sem var-
ir verða við hina gölluðu 2 kr.
peninga að fá þeim skipt hjá
ríkisféhirði fyrir ógallaða mynt.
(Frá fjármálaráðuneytinu)
Greiðiært
við Djúp
UM nýársdag skipti um veður-
far og snjó tók að leysa mikið
í byggð. Er nú orðið nokkuð
greiðfært á vegum með sjónum,
en svellalög eru mikil, og fanð
viðsjáiverð. Þrátt fyrir oft vond
veður heldur Djúpbáturinn uppi
sínum áætlunarferðum tvisvar í
viku. Nokkrir örðugleikar voru
á ferðum skólafólksins í Reykja
nesi úr jólafríi, en allt komst
það með góðu móti með ýmis-
legri aðstoð. Er nú kominn hagl
fyrir sauðfé, allsstaðar sem áð-
ur var enginn. — PP.
Hann þarfnast hjálpar
ÞAÐ er drengur hér í bæ
fjögurra ára gamall, hlýlyndur,
fljótur í hugsun og hnyttinn í
tilsvörum, hrókur alls fagnaðar
í smádrengjaihóp. En eitt bagar
hann getur ekki hlaupið í leikj
um nema stutt, því þá mæðist
hann og verður að fara inn og
jafnvel blánar. Hann hefur al-
varlegan hjartagaUa, þessi fjör-
mikli og glaði drengur, sem
hemlar og vængstýfir alla hans
athafnaþrá.
Móðurinni var sagt frá þessu,
þegar hún fór heim með hann
frá fæðingarstofnuninni, en þá
var ekki búizt við að gripa
þyrfti til aðgerða fyrr en hann
færi að stálpast. En nú hefur
hjartasérfræðingurinn úrskurð-
að að sjúkdómur hans sé kom-
inn á það stig, að það þurfi að
senda hann til skurðaðgerðar
helzt nú í vor, það megi ekki
dragast lengi úr þesu.
Skurðstofan sú og sjúkrahúsið
er vestur í Chicago þar sem
fleiri íslenzk börn hafa gengið
undir sams konar aðgerð.
Foreldrarnir eru ung hjón,
sem einnig eiga annan dreng
fullfrískan. Þau berjast sinni lífs
baráttu með dug og dáð og kom
ast sæmilega af, en auðvitað
er hann þeim algjörlega ofviða
sá mikli kostnaður, sem slíkri
för og slíkri læknishjálp er sam
fara vestur í Ameríku.
Það hefur þurft að leita hjálp
ar almennings fyrir fleiri böm
í þessu skyni og undirtektir
ávallt orðið íslenzkri hjálpsemi
tii mikils sóma. Auðvitað er
leitt, að þurfa að knýja þannig
á hjá almenningi við slík til-
felli, og þyrfti sannarlega að
vera sjóður fyrir hendi að grípa
til í slíkum tilvikum. En meðan
svo er ekki er þetta eina úr-
ræðið ef góðir menn og konur
vilja hjálpa litlum dreng eða
lítilli stúlku til að fá heilsu og
njóta þess lífs, er bærist í brjóst
um þeirra. Og nú er heitið á all-
an almenning að bregðast vel
við til hjálpar þessum unga
sveini og foreldrum hans í
áhyggjum þeirra. Hefur Morg-
unblaðið góðfúslega heitið að
taka á móti gjöfum. Munum, að
margt smátt gjörir eitt stórt og
að það er andleg lyfting og sálu-
bót að geta orðið öðrum að liðL
Garðar Svavarsson.
Kvíknoði
í hyndistöð
ELDUR kom upp í kyndistöð-
inni, sem notuð er til að hita
upp hverfið við Digranesveg í
Kópavogi, í fyrrakvöld kl. 21,3».
Eldur var ekki mikill, en hins
vegar töluverðar skemmdir af
reyk. Slökkviliðið í Reykjavík
réð niðurlögum eldsins á skömm
um tíma. Orsök hans mun hafa
verið sú að múrsteinn í eld-
holinu losnaði og hálf stíflaði
brennarann. Lagfæring fór strax
fram á stöðinni þannig að íbú-
arnir við Digranesveg fá allan
þann yl sem þeir vilja.
Santa Monica, Kaliforniu,
14. jan. — NTB.
• Tilkynnt var í gærkveldi, að
stjórnir flugvélaverksmiðjanna
Douglas Aircraft og McDonnell
Companies, hefðu hafið samn-
ingaviðræður með það fyrir aug-
um að sameina fyrirtækin í eitt.
Sennilegt er að nýja fyrirtækið
verði kallað McDoxmelI Douglaa
Corp.
400 þátftakendur í ís-
landsmótinu í körfuholfa
t KVÖLD kl. 20:15 hefst íslands
mót körfuknattlekismanna í
íþróttahöllinni í Laugardal. Er
þetta 16. íslandsmótið í þessari
grein. Verða leikdagar eða leik-
kvöld mótsins alls 27 í öllum
aldursflokkum og lýkur mótinu
með leik ÍR og KR í 1. deild 23.
apríl.
Alls taka 33 lið þátt í mótinu
og þátttakendur eru um 400 tals
ins. Er þetta fjölmennasta körfu
knattleiksmót sem haldið hefur
verið.
Athygli vekur hve mörg utan-
bæjarlið eru með í mótinu, en
lið koma frá Akureyri, Borgar-
nesi, Stykkishólmi, ísaifirði,
Keflavík og Árnessýslu. ^Keppt
verður á þremur stöðum, íþrótta
höllinni, Hálogalandi og á Akur
eyri.
Hin mikla þátttaka sýnir hve
hratt körfuknattleiknum. aukast
vinsældir.
Að lokinni setningarræðu í
dag leika IKF og lið Skarp-
héðins um það hvort félagið
skuili taka sæti í l.deild, en
á síðasta ársþingi KKÍ var á-
kveðið að fjölga í 1. deild um
eitt lið.
Síðan leika ÍR og Ármann 1
1. deild. Næsta leikkvöld er svo
18. jan. að Hálogalangi og leika
þá 1. og 2. fl. karla
Handknattleikur í
dag og á morgun
í DAG kl. 2 verður íslandsmót-
inu í handknattleik fram haldið
í Laugardalshöllinni. Fara fyrst
fram tveir leikir í 2. deild. Mæt-
ast lið Akureyringa og Þróttar
fyrst en síðan KR og ÍR. Þá fara
og fram leikir Víkings og Vals
og FH og Fram í 1. deild kvenna
og loks leikur í 2 fl. karla milli
FH og Akraness.
Á mánudagskvöldið kl. 20:15
eru næstu 1. deildar leikir. Mæt-
ast fyrst Valur og Haukar en
síðan FH og Fram. Hvort tveggja
eru þetta hörkuleikir ekki sfet
á milli FH og Fram, en sá
leikur getur ráðið miklu um
endanleg úrslit í mótinu.